Morgunblaðið - 29.01.2006, Side 28

Morgunblaðið - 29.01.2006, Side 28
28 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ E r hugsanlegt að lýsa megi ástandinu í heiminum, nú í upphafi 21. aldar, þannig að þar takist á markaðsþjóðfélag- ið og réttarríkið? Ef ég væri beðin að lýsa réttarríkinu fyrir barni myndi ég líkja því við upphaf ævi Montesquieu, mannsins sem við rekjum grunnhugmynd okkar um þrískiptingu ríkis- valdsins til. Hann fæddist á kaldri janúarnóttu 1689 í kastala nálægt Bordeaux í Frakklandi, sonur dómara og guðrækinnar móður. Betlari, sem átti leið hjá, var kallaður til sem skírnar- vottur svo að drengurinn myndi minnast þess allt sitt líf að hinir örsnauðu væru bræður hans. Hann var barn þess tíma þegar fátækt og eymd var ekki rakin til samfélagslegra þátta heldur útskýrð eins og hver önnur tilviljun eða hjátrú. Í því verki sem Charles-Louis Montesquieu síðar varð heimsfrægur fyrir, „Andi laganna“ (De l’esprit des lois 1758), útskýrði hann fyrir um- heiminum að aðlaga ætti lögin lífi fólks, þörfum þess og aðstæðum, þjóðerni og loftslagi og að því frelsi sem stjórnarskrá heimilaði . . . Hvernig ber að líta á réttarríkið? Með þessum hætti þarf að hugsa um rétt- arríkið en ekki eingöngu sem ríki sem lýtur réttarreglum við beitingu ríkisvalds, þ.e. að stjórnvöld hagi athöfnum sínum í samræmi við lög; að eftirlit þurfi með meðferð opinbers valds, að lög séu ekki afturvirk; að dómstólar eigi að vera sjálfstæðir og valdmörk milli lög- gjafarvalds og framkvæmdarvalds séu skýr – allt bráðnauðsynlegar forsendur en ekki nægar. Það þarf að hugsa um réttarríkið sem dýpra og innihaldsríkara hugtak eins og það var skil- greint af alþjóðanefnd lögfræðinga 1959: Rétt- arríkið er fyrirkomulag til að ná fram stjórn- málalegu, félagslegu og efnahagslegu réttlæti! Þessi skilgreining á réttarríki á sér æ fleiri tals- menn. Einn þeirra, Owen Fiss, professor við lagadeild Yale-háskóla, bendir á hvernig fylgj- endum þessa viðhorfs hafi fjölgað á sama tíma og ný-frjálshyggjan hafi leitt öflug stórfyrir- tæki í öndvegi – sem í sjálfu sér sé lýðræðislegt. Á hinn bóginn sé ljóst að kröfur réttarríkisins um virðingu fyrir mannréttindum og kröfur fyr- irtækja um hámarksarðsemi fara ekki alltaf saman. Markaðir þurfa á réttarríki að halda en þeir eru ef til vill ekki tilbúnir fyrir það í öllu sínu veldi, þar sem kröfur réttarríkis eru ekki endilega í samræmi við forsendur markaðarins. Alexis de Toqueville, franski aristókratinn sem gerði úttekt á lýðræði í Ameríku á fyrri hluta 19. aldar, sagði að efnahagsleg hagsæld í lýðræði þyrfti alltaf að haldast í hendur við ákveðnar dyggðir. Hann taldi ekki nóg að af- nema forréttindi valdastéttarinnar eins og gert hefði verið í frönsku byltingunni, efnahagslegur ójöfnuður væri líka áhyggjuefni fyrir lýðræðið. Í höfuðstöðvum Evrópuráðsins í Strasbourg í síðustu viku, sagði Terrie Davis aðalfram- kvæmdastjóri þess, í árlegu ávarpi til þing- mannasamkundunnar, að til þess að Evrópu- ráðið gæti staðið vörð um þau grunngildi sem það byggði á – lýðræði, mannréttindi og rétt- arríki – mætti ekki gleymast að lýðræði væri meira en grunnreglur um viðeigandi lögskipan og ferli. Raunverulegt lýðræði ætti rætur í lýð- ræðis-menningu og þá menningu þyrfti að rækta, ekki bara í nýfrjálsum ríkjum heldur einnig þeim sem byggðu á aldalangri hefð. Stöðug barátta fyrir réttindum Þær rúmu 800 milljónir íbúa hinna 46 ríkja sem nú eru aðilar að Evrópuráðinu og Mann- réttindasáttmála Evrópu eru mis„kúltíveraðar“ í þessum efnum. Hin nýfrjálsu ríki Austur-Evr- ópu, umföðmuðu anda Evrópuráðsins þegar vígi kommúnismans féll með Berlínarmúrnum á svipaðan hátt og „eighties-tískuna“ svokölluðu, jafn móttækileg fyrir mannréttindum og Ís- lendingar fyrir Gleðibankanum á þeim tíma. En eins auðveldlega og fólk gat losað sig við herða- púða og legghlífar níunda áratugarins eins erf- iðlega getur gengið að breyta hugsunarhætti þess sem hefur búið við þá skoðanakúgun, ótta og óöryggi sem fylgir harðstjórn. Það er sama hvernig hún birtist allir óttast hana en eru að sama skapi ekki tilbúnir að berjast fyrir rétt- indum sínum eins og þarf að gera stöðugt. Þegar blaðamaður bandarísks stórblaðs hafði samband við mig sem varaforseta Evrópusam- taka kvenlögfræðinga í síðustu viku og bað mig að finna fyrir sig konu í einhverju Evrópuríki, sem hefði orðið fyrir kynferðislegri áreitni (lík- ast til af því að ný Hollywood-mynd með Charl- ize Theron í hlutverki slíks fórnarlambs er kom- in á markað) – var engin kona tilleiðanleg til að koma fram í dagsljósið og ræða sín mál. Ástæð- urnar sem lögmenn þeirra gáfu voru m.a. ótti við afdrif sín á vinnumarkaði í kjölfarið. Það var loks pólskur lögmaður (kona), sem svaraði tölvupósti og sagði frá því að á síðasta ári hefði komið upp alvarlegt mál af þessu tagi í verksmiðju, sem er útibú frá Pepsi, nálægt Varsjá. Þar hafði hópur verkakvenna kært yf- irmann sinn fyrir kynferðislegt áreiti í vinnu- tímanum. Saksóknari gaf út ákæru á hendur verksmiðjustjóranum og hefur málsmeðferð fyrir sakadómi tekið langan tíma. Konunum hefur öllum verið sagt upp störfum og eru þær komnar með mál sitt fyrir félagsdóm. Fulltrúa Solidarnosk, verkalýðsfélagsins á staðnum, sem mótmælti brottrekstri þeirra var gefið að sök að hafa falsað upplýsingar og fleira áður en honum var sparkað. Landssamtök Samstöðu hafa í kjölfarið hótað að sniðganga vörur fyrirtækis- ins. Vald stórfyrirtækja Hvað kemur þessi saga markaði og réttarríki við frekar en sagan af Montesquieu? Hvað ef faðir hans, dómarinn hefði farið út fyrir kast- alann sinn og sparkað í beiningamanninn á tröppunum? Spurningin snýst um ábyrgð þeirra sem eiga að tryggja að virðing sé borin fyrir mannréttindum og mannhelgi einstak- linga. Hún snýst um það hvernig samfélagið og umheimurinn allur bregst við þegar stórfyrir- tæki á borð við það sem rak pólsku verkakon- urnar fyrir að berjast gegn kynbundnu ofbeldi – eru komin í aðstöðu til að hóta fólki að henda því út á guð og gaddinn ef það er með eitthvert mannréttinda-múður. Og hún snýst ekki síst um það hvernig kjörin stjórnvöld bregðast þá við. Eftir því sem vandamálin verða stærri og hnattrænni því meiri þörf er að alþjóðavæða réttarríkið. Það er að verða viðurkennd stað- reynd í hópi sérfræðinga á sviði alþjóðalaga og stjórnskipunar að þróunin sé í átt að heimsrétti og að það sé að verða til kerfi alþjóðlegrar stjórnskipunar. Þar vegur þungt þróun mann- réttinda á alþjóðavettvangi, ekki síst dóma- framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og túlkun hans á Mannréttindasáttmála Evrópu, sem „lifandi sáttmála“ sem eigi að veita raun- verulega réttarvernd í stað þess að vera fræði- leg tálsýn. Evrópusambandsdómstóllinn í Lúx- emborg hefur einnig verið virkur í því hlutverki að endurskoða löggjöf aðildarríkja á grundvelli Rómarsáttmálans. Þessi réttarframkvæmd hef- ur haft gífurleg áhrif innan ríkja, þ.e í afstöðu ríkja til eigin þegna og samskipta þeirra inn- byrðis og gert það að verkum að fræðimenn eru farnir að vísa í evrópska stjórnskipun – jafnvel alþjóðlega stjórnskipun. Óréttmæt áhrif valdablokka Það er nokkuð viðurkennd staðreynd að ein mesta meinsemd nútíma stjórnkerfa eru órétt- mæt áhrif valdablokka í viðskiptalífi á hið lýð- ræðislega ferli stjórnmálanna, sem í raun varp- ar skugga á lögmæti þeirra sem eru kjörnir til að fara með völdin og helstu stofnana sam- félagsins. Ríkið á hvort tveggja að gæta þess að skerða ekki mannréttindi og jafnframt að tryggja öllum réttinn til að njóta þeirra. Nú eru stjórnvöld víða komin í þá aðstöðu að vera óbeinn þátttakandi í skerðingu með því annað tveggja að ýta undir aðstöðu þriðja aðila til að skerða þau eða koma ekki í veg fyrir slíkt með því að grípa til aðgerða. Fjölmiðlasamsteypur nútímans eru ágætt dæmi um þetta vandamál. Hnattvæðingin er óhugsandi án þeirra samtímis sem þeir sem þar ráða för eru komnir með yfirþjóðleg áhrif og vald til skoðanamótunar vegna stýringar á upp- lýsingastreymi, sem vart nokkur máttur innan ríkis fær rönd við reist. Drittwirkung eða áhrif stjórnarskrárbundinna mannréttinda í sam- skiptum einkaaðila er vart álitamál lengur held- ur frekar spurning um hve langt sú réttarvernd nær. Mannréttindi eru ekki aðeins hástemmd og draumkennd markmið heldur niðurnjörvuð lagaákvæði þar sem auknar kröfur eru um at- hafnaskyldu ríkisvalds til að tryggja jafnræði borgara og forsendur þess að þeir geti notið grunnréttinda. Þegar Ísland sem fleiri Evrópu- ríki gerðist aðili að Evrópuráðinu og skuldbatt sig að þjóðarrétti til að framfylgja ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu var almennt álitið að sú réttarvernd sem þar væri snerist um að vernda einstaklinga gegn íhlutun ríkisvalds- ins – enda meginregla að íslenskum rétti að ein- staklingar búi við athafnafrelsi og slíku frelsi mætti aðeins setja skorður með lögum innan þess ramma sem stjórnarskrá setur. Hins vegar leggur Mannréttindasáttmáli Evrópu (1. gr.) sem og EES-samningurinn (3. gr) þá athafna- skyldu á íslenska ríkið að það geri viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að staðið sé við þær skuldbindingar sem samningarnir kveða á um. Frá því að þessir samningar voru lögfestir hér má segja að vendipunktur hafi orðið í afstöð- unni til athafnaskyldu stjórnvalda, sem kallar ekki aðeins á stefnumarkandi dómaframkvæmd heldur einnig löggjöf með áherslu á efnisleg við- mið en ekki eingöngu formlega staðfestingu á þjóðaréttarlegum skuldbindingum. Alþjóðlegir mannréttindasamningar sem upphaflega taka mið af þeim meginreglum stjórnskipunar sem eru ríkjandi í þeim ríkjum, sem lengst eru komin í átt til lýðræðis og frjáls- ræðis (eins og það viðmið var túlkað í upphafi kalda stríðsins) hafa síðan víxlverkandi áhrif í stjórnskipun innan ríkja. Endurbætur á stjórn- arskrám og önnur lögskipan sem tekur mið af þjóðréttarlegum skuldbindingum veitir ríkis- valdinu aðhald en er einnig í auknum mæli álitið tæki stjórnvalda til að stuðla að ákveðinni sam- félagsþróun, t.d. velferðarríki eða auknum jöfn- uði. Aðeins ein mannréttindi virk? Philip Allot, lagaprófessor í Cambridge, talar um „lýðræðis-kapítalisma“ þar sem hinn Al- menni Vilji og Markaðurinn eru komnir í stað Guðs og Konungs; alvitrir og almáttugir og þess umkomnir að stuðla bæði að hinu besta og versta í samfélaginu þar með ójöfnuði í setningu laga og dómaframkvæmd. Allot segir aðeins ein mannréttindi virk um þessar mundir og það sé réttur hinna ríku til að verða ríkari. Bæði Hæstiréttur Bandaríkjanna og Mannréttinda- dómstóll Evrópu hafa þurft að kljást við spurn- inguna um samþjöppun valds og möguleikana á öflugum skoðanaskiptum þegar fámennur hóp- ur ræður í raun hvaða raddir fá að heyrast í samfélaginu. En í dómaframkvæmd kemur ber- lega í ljós mismunandi afstaða til hlutverks stjórnvalda í réttarríki og athafnaskyldu þeirra þegar eignarhald virðist fremur orðin spurning um samfélagslegt vald en eignarrétt og hvar draga eigi mörkin á milli einstaklingsréttinda og samfélagslegra hagsmuna. Slík mál varpa skýrara ljósi en margt á tog- streituna milli markaðssjónarmiða og réttarrík- is. Í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu sum- arið 2002 í máli nokkurra verkalýðsfélaga gegn Bretlandi var það talið brot á félagafrelsis- ákvæði Mannréttindasáttmálans að bresk lög heimiluðu atvinnurekendum að sniðganga verkalýðsfélög með því að bjóða starfsmönnum sérsamninga og hærri laun ef þeir tækju ekki þátt í almennum kjarasamningum og þannig væri réttur starfsmanna til að vera í stéttar- félögum, til verndar hagsmunum sínum, ekki tryggður. Gaukur heitinn Jörundsson dómari var sammála niðurstöðu dómenda en skilaði séráliti til að hnykkja á mikilvægi þess að stjórnvöld tryggðu það að vinnuveitendur gætu ekki í skjóli laganna notað fjárhagslegar tálbeit- ur á starfsmenn til að þeir afsöluðu sér mik- ilvægum réttindum. Með því móti væri ríkið að bregðast þeirri skyldu sinni að tryggja rétt manna til að ganga í stéttarfélög til verndar hagsmunum sínum. Togstreita markaðar og réttarríkis Þróun í átt að heimsrétti? Hvernig á að bregðast við á tímum hnattvæðingar þegar fyrirtæki eru orðin það voldug að þau geta grafið undan grunnréttindum fólks í ríkj- unum, sem þau starfa í? Er kominn tími til að alþjóðavæða réttarríkið? Dr. Herdís Þorgeirsdóttir fjallar um togstreituna milli markaðarins og réttarríkisins. Reuters Markaðsöflin og réttarríkið togast á í heimi hnattvæðingar. Á World Social Forum í Caracas í Venesúela mótmæltu þúsundir manna í liðinni viku meðal annars ójöfnuði í viðskiptum og brotum á réttindum frumbyggja. ’Allot segir aðeins ein mann-réttindi virk um þessar mundir og það sé réttur hinna ríku til að verða ríkari.‘ Höfundur er prófessor við lagadeild Viðskiptaháskólans á Bifröst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.