Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
E
r hugsanlegt að lýsa megi
ástandinu í heiminum, nú í
upphafi 21. aldar, þannig að
þar takist á markaðsþjóðfélag-
ið og réttarríkið? Ef ég væri
beðin að lýsa réttarríkinu fyrir
barni myndi ég líkja því við
upphaf ævi Montesquieu,
mannsins sem við rekjum
grunnhugmynd okkar um þrískiptingu ríkis-
valdsins til. Hann fæddist á kaldri janúarnóttu
1689 í kastala nálægt Bordeaux í Frakklandi,
sonur dómara og guðrækinnar móður. Betlari,
sem átti leið hjá, var kallaður til sem skírnar-
vottur svo að drengurinn myndi minnast þess
allt sitt líf að hinir örsnauðu væru bræður hans.
Hann var barn þess tíma þegar fátækt og eymd
var ekki rakin til samfélagslegra þátta heldur
útskýrð eins og hver önnur tilviljun eða hjátrú. Í
því verki sem Charles-Louis Montesquieu síðar
varð heimsfrægur fyrir, „Andi laganna“ (De
l’esprit des lois 1758), útskýrði hann fyrir um-
heiminum að aðlaga ætti lögin lífi fólks, þörfum
þess og aðstæðum, þjóðerni og loftslagi og að
því frelsi sem stjórnarskrá heimilaði . . .
Hvernig ber að líta á réttarríkið?
Með þessum hætti þarf að hugsa um rétt-
arríkið en ekki eingöngu sem ríki sem lýtur
réttarreglum við beitingu ríkisvalds, þ.e. að
stjórnvöld hagi athöfnum sínum í samræmi við
lög; að eftirlit þurfi með meðferð opinbers
valds, að lög séu ekki afturvirk; að dómstólar
eigi að vera sjálfstæðir og valdmörk milli lög-
gjafarvalds og framkvæmdarvalds séu skýr –
allt bráðnauðsynlegar forsendur en ekki nægar.
Það þarf að hugsa um réttarríkið sem dýpra og
innihaldsríkara hugtak eins og það var skil-
greint af alþjóðanefnd lögfræðinga 1959: Rétt-
arríkið er fyrirkomulag til að ná fram stjórn-
málalegu, félagslegu og efnahagslegu réttlæti!
Þessi skilgreining á réttarríki á sér æ fleiri tals-
menn. Einn þeirra, Owen Fiss, professor við
lagadeild Yale-háskóla, bendir á hvernig fylgj-
endum þessa viðhorfs hafi fjölgað á sama tíma
og ný-frjálshyggjan hafi leitt öflug stórfyrir-
tæki í öndvegi – sem í sjálfu sér sé lýðræðislegt.
Á hinn bóginn sé ljóst að kröfur réttarríkisins
um virðingu fyrir mannréttindum og kröfur fyr-
irtækja um hámarksarðsemi fara ekki alltaf
saman. Markaðir þurfa á réttarríki að halda en
þeir eru ef til vill ekki tilbúnir fyrir það í öllu
sínu veldi, þar sem kröfur réttarríkis eru ekki
endilega í samræmi við forsendur markaðarins.
Alexis de Toqueville, franski aristókratinn
sem gerði úttekt á lýðræði í Ameríku á fyrri
hluta 19. aldar, sagði að efnahagsleg hagsæld í
lýðræði þyrfti alltaf að haldast í hendur við
ákveðnar dyggðir. Hann taldi ekki nóg að af-
nema forréttindi valdastéttarinnar eins og gert
hefði verið í frönsku byltingunni, efnahagslegur
ójöfnuður væri líka áhyggjuefni fyrir lýðræðið.
Í höfuðstöðvum Evrópuráðsins í Strasbourg í
síðustu viku, sagði Terrie Davis aðalfram-
kvæmdastjóri þess, í árlegu ávarpi til þing-
mannasamkundunnar, að til þess að Evrópu-
ráðið gæti staðið vörð um þau grunngildi sem
það byggði á – lýðræði, mannréttindi og rétt-
arríki – mætti ekki gleymast að lýðræði væri
meira en grunnreglur um viðeigandi lögskipan
og ferli. Raunverulegt lýðræði ætti rætur í lýð-
ræðis-menningu og þá menningu þyrfti að
rækta, ekki bara í nýfrjálsum ríkjum heldur
einnig þeim sem byggðu á aldalangri hefð.
Stöðug barátta fyrir réttindum
Þær rúmu 800 milljónir íbúa hinna 46 ríkja
sem nú eru aðilar að Evrópuráðinu og Mann-
réttindasáttmála Evrópu eru mis„kúltíveraðar“
í þessum efnum. Hin nýfrjálsu ríki Austur-Evr-
ópu, umföðmuðu anda Evrópuráðsins þegar
vígi kommúnismans féll með Berlínarmúrnum á
svipaðan hátt og „eighties-tískuna“ svokölluðu,
jafn móttækileg fyrir mannréttindum og Ís-
lendingar fyrir Gleðibankanum á þeim tíma. En
eins auðveldlega og fólk gat losað sig við herða-
púða og legghlífar níunda áratugarins eins erf-
iðlega getur gengið að breyta hugsunarhætti
þess sem hefur búið við þá skoðanakúgun, ótta
og óöryggi sem fylgir harðstjórn. Það er sama
hvernig hún birtist allir óttast hana en eru að
sama skapi ekki tilbúnir að berjast fyrir rétt-
indum sínum eins og þarf að gera stöðugt.
Þegar blaðamaður bandarísks stórblaðs hafði
samband við mig sem varaforseta Evrópusam-
taka kvenlögfræðinga í síðustu viku og bað mig
að finna fyrir sig konu í einhverju Evrópuríki,
sem hefði orðið fyrir kynferðislegri áreitni (lík-
ast til af því að ný Hollywood-mynd með Charl-
ize Theron í hlutverki slíks fórnarlambs er kom-
in á markað) – var engin kona tilleiðanleg til að
koma fram í dagsljósið og ræða sín mál. Ástæð-
urnar sem lögmenn þeirra gáfu voru m.a. ótti
við afdrif sín á vinnumarkaði í kjölfarið.
Það var loks pólskur lögmaður (kona), sem
svaraði tölvupósti og sagði frá því að á síðasta
ári hefði komið upp alvarlegt mál af þessu tagi í
verksmiðju, sem er útibú frá Pepsi, nálægt
Varsjá. Þar hafði hópur verkakvenna kært yf-
irmann sinn fyrir kynferðislegt áreiti í vinnu-
tímanum. Saksóknari gaf út ákæru á hendur
verksmiðjustjóranum og hefur málsmeðferð
fyrir sakadómi tekið langan tíma. Konunum
hefur öllum verið sagt upp störfum og eru þær
komnar með mál sitt fyrir félagsdóm. Fulltrúa
Solidarnosk, verkalýðsfélagsins á staðnum, sem
mótmælti brottrekstri þeirra var gefið að sök að
hafa falsað upplýsingar og fleira áður en honum
var sparkað. Landssamtök Samstöðu hafa í
kjölfarið hótað að sniðganga vörur fyrirtækis-
ins.
Vald stórfyrirtækja
Hvað kemur þessi saga markaði og réttarríki
við frekar en sagan af Montesquieu? Hvað ef
faðir hans, dómarinn hefði farið út fyrir kast-
alann sinn og sparkað í beiningamanninn á
tröppunum? Spurningin snýst um ábyrgð
þeirra sem eiga að tryggja að virðing sé borin
fyrir mannréttindum og mannhelgi einstak-
linga. Hún snýst um það hvernig samfélagið og
umheimurinn allur bregst við þegar stórfyrir-
tæki á borð við það sem rak pólsku verkakon-
urnar fyrir að berjast gegn kynbundnu ofbeldi –
eru komin í aðstöðu til að hóta fólki að henda því
út á guð og gaddinn ef það er með eitthvert
mannréttinda-múður. Og hún snýst ekki síst
um það hvernig kjörin stjórnvöld bregðast þá
við.
Eftir því sem vandamálin verða stærri og
hnattrænni því meiri þörf er að alþjóðavæða
réttarríkið. Það er að verða viðurkennd stað-
reynd í hópi sérfræðinga á sviði alþjóðalaga og
stjórnskipunar að þróunin sé í átt að heimsrétti
og að það sé að verða til kerfi alþjóðlegrar
stjórnskipunar. Þar vegur þungt þróun mann-
réttinda á alþjóðavettvangi, ekki síst dóma-
framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og
túlkun hans á Mannréttindasáttmála Evrópu,
sem „lifandi sáttmála“ sem eigi að veita raun-
verulega réttarvernd í stað þess að vera fræði-
leg tálsýn. Evrópusambandsdómstóllinn í Lúx-
emborg hefur einnig verið virkur í því hlutverki
að endurskoða löggjöf aðildarríkja á grundvelli
Rómarsáttmálans. Þessi réttarframkvæmd hef-
ur haft gífurleg áhrif innan ríkja, þ.e í afstöðu
ríkja til eigin þegna og samskipta þeirra inn-
byrðis og gert það að verkum að fræðimenn eru
farnir að vísa í evrópska stjórnskipun – jafnvel
alþjóðlega stjórnskipun.
Óréttmæt áhrif valdablokka
Það er nokkuð viðurkennd staðreynd að ein
mesta meinsemd nútíma stjórnkerfa eru órétt-
mæt áhrif valdablokka í viðskiptalífi á hið lýð-
ræðislega ferli stjórnmálanna, sem í raun varp-
ar skugga á lögmæti þeirra sem eru kjörnir til
að fara með völdin og helstu stofnana sam-
félagsins. Ríkið á hvort tveggja að gæta þess að
skerða ekki mannréttindi og jafnframt að
tryggja öllum réttinn til að njóta þeirra. Nú eru
stjórnvöld víða komin í þá aðstöðu að vera
óbeinn þátttakandi í skerðingu með því annað
tveggja að ýta undir aðstöðu þriðja aðila til að
skerða þau eða koma ekki í veg fyrir slíkt með
því að grípa til aðgerða.
Fjölmiðlasamsteypur nútímans eru ágætt
dæmi um þetta vandamál. Hnattvæðingin er
óhugsandi án þeirra samtímis sem þeir sem þar
ráða för eru komnir með yfirþjóðleg áhrif og
vald til skoðanamótunar vegna stýringar á upp-
lýsingastreymi, sem vart nokkur máttur innan
ríkis fær rönd við reist. Drittwirkung eða áhrif
stjórnarskrárbundinna mannréttinda í sam-
skiptum einkaaðila er vart álitamál lengur held-
ur frekar spurning um hve langt sú réttarvernd
nær.
Mannréttindi eru ekki aðeins hástemmd og
draumkennd markmið heldur niðurnjörvuð
lagaákvæði þar sem auknar kröfur eru um at-
hafnaskyldu ríkisvalds til að tryggja jafnræði
borgara og forsendur þess að þeir geti notið
grunnréttinda. Þegar Ísland sem fleiri Evrópu-
ríki gerðist aðili að Evrópuráðinu og skuldbatt
sig að þjóðarrétti til að framfylgja ákvæðum
Mannréttindasáttmála Evrópu var almennt
álitið að sú réttarvernd sem þar væri snerist um
að vernda einstaklinga gegn íhlutun ríkisvalds-
ins – enda meginregla að íslenskum rétti að ein-
staklingar búi við athafnafrelsi og slíku frelsi
mætti aðeins setja skorður með lögum innan
þess ramma sem stjórnarskrá setur. Hins vegar
leggur Mannréttindasáttmáli Evrópu (1. gr.)
sem og EES-samningurinn (3. gr) þá athafna-
skyldu á íslenska ríkið að það geri viðeigandi
ráðstafanir til að tryggja að staðið sé við þær
skuldbindingar sem samningarnir kveða á um.
Frá því að þessir samningar voru lögfestir hér
má segja að vendipunktur hafi orðið í afstöð-
unni til athafnaskyldu stjórnvalda, sem kallar
ekki aðeins á stefnumarkandi dómaframkvæmd
heldur einnig löggjöf með áherslu á efnisleg við-
mið en ekki eingöngu formlega staðfestingu á
þjóðaréttarlegum skuldbindingum.
Alþjóðlegir mannréttindasamningar sem
upphaflega taka mið af þeim meginreglum
stjórnskipunar sem eru ríkjandi í þeim ríkjum,
sem lengst eru komin í átt til lýðræðis og frjáls-
ræðis (eins og það viðmið var túlkað í upphafi
kalda stríðsins) hafa síðan víxlverkandi áhrif í
stjórnskipun innan ríkja. Endurbætur á stjórn-
arskrám og önnur lögskipan sem tekur mið af
þjóðréttarlegum skuldbindingum veitir ríkis-
valdinu aðhald en er einnig í auknum mæli álitið
tæki stjórnvalda til að stuðla að ákveðinni sam-
félagsþróun, t.d. velferðarríki eða auknum jöfn-
uði.
Aðeins ein mannréttindi virk?
Philip Allot, lagaprófessor í Cambridge, talar
um „lýðræðis-kapítalisma“ þar sem hinn Al-
menni Vilji og Markaðurinn eru komnir í stað
Guðs og Konungs; alvitrir og almáttugir og þess
umkomnir að stuðla bæði að hinu besta og
versta í samfélaginu þar með ójöfnuði í setningu
laga og dómaframkvæmd. Allot segir aðeins ein
mannréttindi virk um þessar mundir og það sé
réttur hinna ríku til að verða ríkari. Bæði
Hæstiréttur Bandaríkjanna og Mannréttinda-
dómstóll Evrópu hafa þurft að kljást við spurn-
inguna um samþjöppun valds og möguleikana á
öflugum skoðanaskiptum þegar fámennur hóp-
ur ræður í raun hvaða raddir fá að heyrast í
samfélaginu. En í dómaframkvæmd kemur ber-
lega í ljós mismunandi afstaða til hlutverks
stjórnvalda í réttarríki og athafnaskyldu þeirra
þegar eignarhald virðist fremur orðin spurning
um samfélagslegt vald en eignarrétt og hvar
draga eigi mörkin á milli einstaklingsréttinda
og samfélagslegra hagsmuna.
Slík mál varpa skýrara ljósi en margt á tog-
streituna milli markaðssjónarmiða og réttarrík-
is. Í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu sum-
arið 2002 í máli nokkurra verkalýðsfélaga gegn
Bretlandi var það talið brot á félagafrelsis-
ákvæði Mannréttindasáttmálans að bresk lög
heimiluðu atvinnurekendum að sniðganga
verkalýðsfélög með því að bjóða starfsmönnum
sérsamninga og hærri laun ef þeir tækju ekki
þátt í almennum kjarasamningum og þannig
væri réttur starfsmanna til að vera í stéttar-
félögum, til verndar hagsmunum sínum, ekki
tryggður. Gaukur heitinn Jörundsson dómari
var sammála niðurstöðu dómenda en skilaði
séráliti til að hnykkja á mikilvægi þess að
stjórnvöld tryggðu það að vinnuveitendur gætu
ekki í skjóli laganna notað fjárhagslegar tálbeit-
ur á starfsmenn til að þeir afsöluðu sér mik-
ilvægum réttindum. Með því móti væri ríkið að
bregðast þeirri skyldu sinni að tryggja rétt
manna til að ganga í stéttarfélög til verndar
hagsmunum sínum.
Togstreita markaðar og réttarríkis
Þróun í átt að heimsrétti?
Hvernig á að bregðast við á tímum
hnattvæðingar þegar fyrirtæki eru
orðin það voldug að þau geta grafið
undan grunnréttindum fólks í ríkj-
unum, sem þau starfa í? Er kominn
tími til að alþjóðavæða réttarríkið?
Dr. Herdís Þorgeirsdóttir fjallar um
togstreituna milli markaðarins og
réttarríkisins.
Reuters
Markaðsöflin og réttarríkið togast á í heimi hnattvæðingar. Á World Social Forum í Caracas í Venesúela mótmæltu þúsundir manna í liðinni viku meðal
annars ójöfnuði í viðskiptum og brotum á réttindum frumbyggja.
’Allot segir aðeins ein mann-réttindi virk um þessar mundir
og það sé réttur hinna ríku til
að verða ríkari.‘
Höfundur er prófessor við lagadeild
Viðskiptaháskólans á Bifröst.