Morgunblaðið - 29.01.2006, Qupperneq 34
34 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSVIRKJUN hefur nú sent
öllum grunnskólum í landinu frek-
ari upplýsingar um samkeppni um
verkefni unnin um orku og orku-
mál. Samkeppnin stendur til 7.
apríl nk. Í bréfi sem Landsvirkjun
hefur sent skólastjórnendum
vegna samkeppninnar er rifjuð
upp sú gagnrýni sem kom fram í
fjölmiðlum í haust á samkeppnina.
Kemur fram að það sé von fyr-
irtækisins að sem flestir skólar og
kennarar telji gagn að því að nýta
fræðsluefnið til að vinna t.d. þema-
verkefni um orku og orkumál á
þessari önn sem er nýhafin. Það sé
síðan sjálfstæð ákvörðun kennara í
samráði við forráðamenn hvort úr-
lausnir nemenda skuli sendar
Landsvirkjun í samkeppnina. Þá
segir: „Ástæða er til að árétta eft-
irfarandi atriði í tilefni af opinber-
um umræðum um þetta framtak
Landsvirkjunar:
Í námskrá grunnskólans er
gert ráð fyrir kennslu um orku og
orkunýtingu og þar á meðal að
fjallað verði um íslenskar orkulind-
ir.
Yfirvöld menntamála í landinu
hafa staðfest að ekkert sé því til
fyrirstöðu að skólarnir nýti sér
efni frá Landsvirkjun og taki þátt í
samkeppninni.
Eðlilega ræður mat skólafólks
og foreldra því hvort efnið frá
Landsvirkjun er nýtt og verkefni
unnin og loks hvort úrlausnir verði
sendar inn í samkeppnina.
Skólafólk og nemendur verða
að sjálfsögðu að vega og meta og
fjalla um verkefnin frá Lands-
virkjun með sjálfstæðum hætti
eins og hver önnur verkefni í
skóla. Ekki er rétt eins og heyra
mátti í fjölmiðlum í haust að verið
sé að leita eftir því að verkefnin
skuli unnin á þann hátt sem er
þóknanlegur Landsvirkjun.
Mat á úrlausnum sem berast
Landsvirkjun fer fram með aðstoð
valinkunns skólafólks og mun
byggjast á því að efninu verði gerð
vönduð skil.“
Á fræðsluvef Landsvirkjunar
(sjá www.lv.is) er aðgengilegt efni
og leiðbeiningar fyrir skólana,
meðal annars myndir af vegg-
spjöldum um orkumál sem skól-
arnir fengu sendar fyrr í mán-
uðinum.
Háaleitisbraut 68 103 Reykjavík.
Sími: 515 9000. Fax: 515 9007.
Tölvupóstfang: landsvirkjun@lv.is.
Vefsíða: www.lv.is.
Samkeppni um orku og orkumál í skólum
Íslendingur, segirðu? Þið vor-uð fyrst til að viðurkennasjálfstæði okkar,“ segirleigubílstjóri í Vilníus og lít-ur kampakátur á mig í bak-
sýnisspeglinum. Hann skiptir eld-
snöggt um akrein og segir að ég
verði að skella mér í Íslandsgötu.
Ég hnykla brýr. Íslands-hvað?
„Nú, þetta er gatan sem nefnd
var eftir Íslandi,“ svarar hann að
bragði, eins og ekkert sé sjálfsagð-
ara en að gata sé nefnd í höfuðið á
ríki. Ísland varð fyrst af löndum
heims til að viðurkenna sjálfstæði
Litháens frá Sovétríkjunum árið
1990.
Daginn eftir held ég í pílagríms-
ferð í miðbæinn, vopnuð litskrúð-
ugu korti. Íslandsgatan mín, hvar
ertu? Sól hefur skinið síðustu daga
en nú er þungbúið og gengur á með
skúrum. Við fjölfarin gatnamót hef
ég kortið á loft og mæni á veg-
skiltið hinum megin við götuna.
Stendur ekki Islandijosgata þarna?
Jú, þarna er hún, Íslandsgatan
mín.
Áður en ég veit af hef ég fyllst
einhverju furðulegu stolti. Eitt
andartak verð ég meyr og hugsa
um íslenskan arf og eitt eilífðar
smáblóm með titrandi tár. Gott ef í
rigningarúðanum rennur ekki ein-
mitt eitt titrandi tár niður vangann
á mér. Gatan er stutt en ég geng
hana með viðhöfn.
„Ég var veikur þegar við fengum
sjálfstæði, lá inni á spítala og
missti af öllu saman,“ segir ungur
maður um kvöldið og er svekktur.
Hann bætir við að landið hafi
breyst mikið síðan þá. Margir
segja það sama. Litháen gekk í
Evrópusambandið í fyrra, ásamt
Eistlandi, Lettlandi og fleiri Aust-
ur-Evrópuríkjum. Austurlanda-
mæri Evrópusambandsins færðust
til við inngöngu nýju ríkjanna. 500
kílómetra landamæri Litháens og
Hvíta-Rússlands marka nú landa-
mæri sambandsins til austurs. Við
inngöngu Austur-Evrópuþjóðanna
hræddust margir að ódýrt vinnuafl
myndi flæða yfir ríkari þjóðir sam-
bandsins. Menn sáu fyrir sér að
Austur-Evrópubúar flyttu í hrönn-
um vestur. Sú hefur ekki orðið
raunin.
„Það hefur verið mikill uppgang-
ur hérna síðustu ár,“ segir kona á
fertugsaldri og bendir á að við-
skipti hafi blómstrað, vextir lækk-
að og lán séu hagstæð. „Það er
voða gott en íbúðaverð í borgunum
hefur hins vegar rokið upp. Ég get
svarið það, fasteignaverð er örugg-
Íslandsgata í útlöndum
Morgunblaðið/Sigríður Víðis
Götulíf í Vilníus, höfuðborginni í Litháen. Kirkja, gömul hús, háhýsi, auglýs-
ingaskilti, bílaumferð og stór stytta frá Sovéttímanum.
Svipmynd frá Litháen
Sigríður Víðis Jónsdóttir