Morgunblaðið - 29.01.2006, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 35
lega fjórum sinnum hærra í Vilníus
en fyrir nokkrum árum,“ segir hún
og bætir við að uppgangurinn sé
miklu meiri í borgunum en á lands-
byggðinni. „Er það samt ekki svo-
leiðis í flestum löndum?“ spyr hún.
Björk, Sigur Rós og Júróvisjón
Þegar konan heyrir að ég sé frá
Íslandi veðrast hún öll upp og lýsir
með glampa í auga ferð sinni til
landsins fyrir nokkrum árum.
Henni fannst Geysir, Gullfoss og
Þingvellir hreint undursamlegir.
Ég kinka kolli – hef heyrt þennan
áður. Jú jú, þetta er eins og að
lenda á tunglinu. Einmitt, mjög
sérstakt. Fátt fólk á landinu, akk-
úrat.
Ég hlusta áhugalaus á konuna en
glampinn fer ekki úr augunum á
henni. Hún ræðir lengi um lands-
lag á tunglinu og á endanum
heillast ég af áhuganum. Áður en
ég veit af er ég byrjuð að úttala
mig um auðn og óbyggðir, tungl og
víkinga. „And then we had Leifur
the Lucky, you know about him,
right?“
Maður frá Finnlandi heyrir sam-
talið og segir í óspurðum fréttum
að hann þoli ekki Björk. Tónlistin
hennar sé stórfurðuleg. Stelpa frá
Lettlandi kemur Björk til varnar
og segir að hún sé frábær, uppá-
haldstónlistarmaðurinn sinn og
hún sé mjög vinsæl í Lettlandi.
„Iss, þú kannt bara ekki gott að
meta,“ segir hún við Finnann sem
ranghvolfir í sér augunum.
Samræðurnar leiðast út í tal um
Sigur Rós. Gott ef Júróvisjón ber
ekki einnig á góma. Síðan ætla allir
að sjálfsögðu að koma til Íslands
einn daginn.
sigridurv@mbl.is
ÞRÁTT fyrir erfiðan vetur og sí-
fellda erfiðleika við að komast til
Muzaffarabad í Pakistan, eru um
þessar mundir 129 börn ein síns liðs í
umsjá SOS-barnaþorpanna, þar sem
35 börn voru færð í barnaþorpið í
Lahore. Þar sem þorpið er nálægt
stórum spítala er lögð áhersla á að
börn sem send eru til þorpsins séu
þau sem þurfi á læknisaðstoð að
halda. Börnin hljóta nauðsynlega að-
hlynningu innan þorpsins auk lækn-
isaðstoðarinnar sem þau þurfa á
spítalanum. 23 börn hafa verið tekin
inn í barnaþorpið í Rawalpindi; flest
þessara barna eru mjög ung. 62 börn
fá aðhlynningu í nýju neyðarskýli í
barnaþorpinu í Rawalpindi og 9
börn eru enn í SOS-Ungmennaheim-
ili í Rawalpindi, sem hefur mest not-
aða SOS neyðarskýlið. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá SOS-
barnaþorpum á Íslandi.
Neyðarskýli og tjöld
SOS barnaþorpin í Pakistan hafa
fengið margar fyrirspurnir hvort
hægt sé að útvega og dreifa tjöldum
til samfélagslegra nota (kennslu og
annarrar hjálparstarfsemi). Al-
þjóðlegu SOS-barnaþorpin hafa gert
eftirfarandi ráðstafanir svo hægt sé
að afhenda 100 stór tjöld. Þýski
tjaldframleiðandinn Lancomun
framleiðir 80 stór tjöld sem er ætlað
að þola mikið frost og snjó. Þessi
tjöld munu vera framleidd með þeim
hætti að hægt sé að hita þau upp og
elda mat innan þeirra.
Þar að auki munu alþjóðlegu SOS-
barnaþorpin senda 20 tjöld frá SOS
sumarbúðunum í Caldonazzo, á Ítal-
íu. Alþjóðlegu SOS-barnaþorpin og
flugfélagið HGFD eru nú um þessar
mundir að gera ráðstafanir svo
hægt sé að senda tjöldin fyrstu vik-
una í febrúar til Pakistan, segir í
fréttatilkynningu.
Börn ein síns liðs í umsjá SOS-barnaþorpanna
Reuters