Morgunblaðið - 29.01.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 43
www.icelandair.is/serferdir
Hafið samband við hópadeild
í síma 50 50 406
eða hopar@icelandair.is
Ferðir fyrir eldri borgara
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
31
04
6
0
1/
20
06
Fjölbreytt dagskrá
Farþegar í þessari ferð kynnast einni af fegurstu
og fjölbreyttustu borgum Bandaríkjanna þar sem er
m.a. stærsta Kínahverfi utan Asíu.
Sporvagnar San Francisco eru heimsþekktir, svo og
Fisherman´s Wharf og Cannery Row með sínum
mörgu verslunum og veitingastöðum. Í San Francisco
eru frábær lista- og vísindasöfn.
Farið verður til Napa Valley og Sonoma vínekranna
og í kynnisferð um borgina. Skoðunarferðir eru
innifaldar í verði.
Lágmarksþátttaka er 20 manns.
Njótið lífsins í San Francisco
31. maí – 7. júní – íslenskur fararstjóri
Verð119.990 kr.*
Flug og gisting í 7 nætur
*Á mann í tvíbýli. Innifalið í verði: Flug, gisting í 7 nætur á Handlery Hotel, akstur til
og frá flugvelli erlendis, skoðunarferð um borgina, skoðunarferð í vínræktarhéruðin
Napa Valley og Sonoma, íslensk fararstjórn, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Icelandair tekur við
MasterCard ferðaávísun
í allt flug, þ.m.t. netflug
Fararstjóri: Erling Aspelund
VELFERÐARRÁÐ Reykjavíkur hef-
ur samþykkt að setja af stað að-
gerðir til að mæta þörfum eldri
borgara í Reykjavík sem búa við
einangrun.
Farið verður í heildarúttekt á
þjónustu við eldri borgara en á
sama tíma verða settir á laggirnar
starfshópar í hverfum borgarinnar
sem fara yfir stöðu þeirra sem þar
búa. Verða þjónustumiðstöðvar
borgarinnar nýttar til að samræma
aðgerðir og bregðast við þeim að-
stæðum sem upp kunna að koma,
segir í frétt frá borginni.
„Ástæða þessara aðgerða er
margþætt en m.a. er verið að bregð-
ast við fréttum af andlátum fólks
sem finnst dögum og jafnvel vikum
eftir andlát sitt,“ segir í fréttinni.
„Þá er vitað til þess að margir hafa
einangrast á efri árum og þrátt fyr-
ir ýmiss konar tilboð um heimsókn-
ir, félagsstarf, þjónustu heim og
fleira þá hefur það ekki náð til
þessa fólks. Nú munum við sameina
krafta allra þeirra sem eru að bjóða
eldri borgurum þjónustu og fá þann-
ig heildarmynd á það hversu margir
eru án allra utanaðkomandi afskipta
og getum þá boðið þeim aðstoð eftir
þörfum og vilja hvers og eins.“
Þörfum
einangraðra eldri
borgara mætt
STJÓRN Landverndar fagnar þeirri
viðtæku samstöðu sem er að mynd-
ast um hugmyndir um stækkun frið-
landsins í Þjórsárverum og þeirri
ákvörðun Landsvirkjunar að leggja
til hliðar áform um framkvæmdir á
svæðinu. Þetta kemur fram í yfirlýs-
ingu frá stjórninni.
„Þjórsárver eru óumdeilanlega
eitt verðmætasta svæðið á hálendi
Íslands. Í greinargerð sem tveir al-
þjóðlega viðurkenndir sérfræðingar,
þeir Roger Crofts og Jack D. Ives,
unnu fyrir Landvernd eru færð
haldgóð rök fyrir því að Þjórsárver
gætu átt heima á Heimsminjaskrá
UNESCO og hníga öll rök að því að
eitt brýnasta verkefni nátt-
úruverndar á Íslandi í dag sé að
stækka verndarsvæði þeirra að nátt-
úrulegum mörkum. Skoðanakann-
anir sýna jafnframt að góður al-
mennur stuðningur er við áform um
stækkun friðlandsins.
Stjórn Landverndar fagnar yf-
irlýsingu umhverfisráðherra um
áformaða stækkun friðlandsins og
hvetur Samvinnunefnd miðhálend-
isins, Alþingi og viðkomandi sveit-
arstjórnir til að vinna með umhverf-
isráðherra að þessu markmiði.
Jafnframt hvetur stjórnin stjórnvöld
til að hefja undirbúning að því að
koma Þjórsárverum á Heims-
minjaskrá UNESCO þar sem til-
greindar eru merkustu nátt-
úruminjar á jörðinni,“ segir í
yfirlýsingunni.
Fagnar víðtækri
samstöðu
SAMNINGUR milli ÞSSÍ, Háskóla
Íslands og læknadeildar Háskóla Ís-
lands hefur verið undirritaður um
að tveir læknanemar á þriðja ári
fari til Malaví næsta vor að vinna
rannsóknarverkefni í tengslum við
nám sitt. Þetta er í þriðja sinn á
fjórum árum sem ÞSSÍ styrkir ís-
lenska nema við læknisfræðideild
Háskóla Íslands til rannsókna við
sjúkrahúsið í Monkey Bay í Malaví. Í
lok síðasta árs var undirritaður sam-
bærilegur samningur milli stofn-
ananna tveggja um að senda ljós-
móðurnema til rannsókna við
sjúkrahúsið og er hún þegar farin
utan.
ÞSSÍ hefur starfað að uppbygg-
ingu heilsugæslu í samvinnu við
malavísk stjórnvöld á rúmlega 100
þúsund manna landsvæði í Malaví
síðan 1999 og hafa rannsóknir
þeirra nema sem ÞSSÍ hafa styrkt
komið að góðum notum fyrir sjúkra-
húsið og skilvirkni starfsemi þess,
segir í fréttatilkynningu.
Læknanemar við
HÍ til rannsóknar-
vinnu í Malaví
ÞAÐ ER ekki algeng sjón að sjá fólk á hjóli í
Reykjavík í lok janúar. Veðrið undanfarna daga
hefur þó orðið til þess að þeim fjölgar sem velja
hjólhestinn sem farartæki í umferðinni. Enda er
það hagkvæmt á margan hátt; bæði fyrir budduna
og umhverfið.
Morgunblaðið/Golli
Á rölti með
reiðhjól
FULLTRÚAR Kjarafélags viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga fóru nýlega á
fund rektors Háskóla Íslands til að lýsa
áhyggjum sínum af kjörum fé-
lagsmanna sinna á stofnuninni, en þeir
hafa dregist langt aftur úr fólki í sam-
bærilegum störfum hjá ríkinu. Kemur
þetta fram í nýju fréttabréfi BHM:
Telja fulltrúar félagsins að starfs-
matskerfi háskólans mæli ekki með
fullnægjandi hætti faglega og fjárhags-
lega ábyrgð þeirra starfa sem hér um
ræðir.
Í þeim stofnunum sem hafa tekið upp
starfsmatskerfi hafa nokkrir hnökrar
reynst vera á því að matið leggi rétta
mælikvarða á störf einstakra starfs-
manna og jafnvel hópa. Getur það verið
vegna þess að matskerfi hefur ekki ver-
ið nægilega aðlagað stofnun, eða þátta
eins og þess að um of hefur verið mið-
að við störf stórra og ráðandi hópa
starfsmanna, segir í frétt BHM.
Fóru á fund rektors