Morgunblaðið - 29.01.2006, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 47
UMRÆÐAN
ENDURNÝJAÐUR Reykjavík-
urflugvöllur í Vatnsmýrinni mun
gegna mikilsverðu hlutverki
um ókomin ár. Ákvörðun um
óbreytta staðsetningu
Landspítalans, sam-
hliða stórauknu rými
með tilfærslu Hring-
brautar eykur mjög
gildi staðsetningar
vallarins.
F-listinn er eina aflið
í borgarstjórn, sem
beitir sér fyrir því að
Reykjarvíkurflugvelli
verði tryggð staðsetn-
ing í Vatnsmýrinni. Þar
liggja til grundvallar
öryggis- og hag-
kvæmnissjónarmið fyr-
ir landsmenn í heild.
Uppbygging Vatnsmýrar
Herflugvöllur krafðist eðlilega
mun meira rýmis, en þörf er á varð-
andi innanlandsflugvöll.
Þess vegna fer uppbygging í
Vatnsmýrinni, samhliða áframhald-
andi starfsemi innanlands-
og öryggisflugvallar mjög vel
saman. Með því að lengja austur/
vestur flugbrautina til vesturs
um nokkur hundruð metra, má á
einfaldan hátt beina u.þ.b. 80% flug-
umferðar um þá braut og nota ein-
ungis suður/norður flugbrautina í
mjög stífum suðlægum/norðlægum
áttum. Þannig má að mestu koma í
veg fyrir flug yfir gamla miðbæinn.
Verðmæti Vatnsmýrar er því há-
markað með samtvinnun Reykjavík-
urflugvallar í breyttri mynd, hæfi-
legri uppbyggingu og að öðru leyti
nýtingu hennar sem frábærrar úti-
vistarperlu í tengslum við Tjarnar-
og Öskjuhlíðarsvæðin.
Landspítali – Vatns-
mýrarflugvöllur
Í tengslum við um-
ræður um staðsetningu
Reykjavíkurflugvallar,
Landspítala og flutning
sjúkra og slasaðra, hef-
ur gætt þess misskiln-
ings að sjúkraflug megi
nær alfarið leysa með
þyrlum. Staðreyndin er
hinsvegar sú, að jafn-
mikilvægar og þyrlur
eru í neyðartilvikum,
eru þær einungis not-
aðar í um 20% tilvika.
Af 500 sjúkraflugum á ári, eru þyrl-
ur þannig notaðar í u.þ.b. 100 tilfella.
Þyrlur gagnast þar sem öðrum flug-
tækjum verður ekki við komið. Hins-
vegar eru þær hægfleygar og henta
því ekki til flutnings sjúkra og slas-
aðra á milli landshluta. Þær geta
ekki, ólíkt flugvélum búnum jafn-
þrýstibúnaði, flogið stystu leið milli
staða, ofar veðrum. Jafnframt er
mjög mikilvægt að gera sér grein
fyrir að þyrlur, líkt og allar aðrar
flugvélar þarfnast aðflugsbúnaðar í
vályndum veðrum. Blindaðflug er
einungis mögulegt að gera að flug-
völlum, sem útbúnir eru blind-
aðflugstækjum. Það er því höf-
uðkostur að Landspítali sé í næsta
nágrenni við fullkominn innanlands-
flugvöll. Þannig nær sjúkraþyrlan að
gera blindaðflug að næsta nágrenni
spítalans og ef aðstæður leyfa, flýg-
ur hún í lítilli hæð að þyrlupallinum
við spítalann, en lendir ella á flug-
vellinum, þaðan sem örstutt er með
sjúkrabíl að spítalanum. Að leggja
Reykjavíkurflugvöll af á grundvelli
þess að hann þurfi að víkja fyrir
verðmætu byggingarlandi, sýnir að
mat manna á forgangsröðun er ekki í
lagi.
Flugvellir í miðborgum
Til viðbótar framanskráðu, er vert
að benda á hversu nálægt miðju ým-
issa stórborga flugvellir eru stað-
settir, t.d. í London, Berlín og Wash-
ington D.C. Þarlend yfirvöld leggja
höfuðáherslu á að hafa flugvelli stað-
setta miðsvæðis, þar sem því verður
við komið.
Í strjálbýlu landi á borð við Ísland,
ber að nýta sér kosti flugsins, sem
nokkur kostur er og bjóða íbúum
landsins sem greiðasta og hagkvæm-
asta leið milli dreifbýlis og höf-
uðborgar.
Mikilvægi
Reykjavíkurflugvallar
Eftir Svein Aðalsteinsson ’F-listinn er eina aflið íborgarstjórn, sem beitir
sér fyrir því að Reykja-
víkurflugvelli verði
tryggð staðsetning í
Vatnsmýrinni.‘
Sveinn
Aðalsteinsson
Höfundur er viðskiptafræðingur og
varafulltrúi F-listans í skipulagsráði.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Karfavogur
„Sigvaldahús“ á besta stað Vogunum
Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali
Sérlega fallegt 194 fm raðhús ásamt 25 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað í Vogunum. Hér er um að ræða sér-
staklega vel hannað „Sigvaldahús“ þar sem fer saman falleg hönnun og gott skipulag. Neðri hæðin er opin og
skemmtileg með stórum og björtum stofum og fallegri tengingu við garðskála. Á efri hæðinni eru síðan fjögur góð
herbergi og stórar 25 fm svalir. Í heild er um að ræða mjög gott hús á besta stað í Vogunum
Upplýsingar veitir Jón Gretar Jónsson sölumaður í síma 840 4049.
Smyrlahraun - Hafnarfirði
Glæsilegt og nánast algjörlega endur-
byggt um 180 fm einbýlishús sem er
kjallari og tvær hæðir. Eignin skiptist
m.a. í eldhús með nýlegum beykiinn-
réttingum, vönduðum tækjum og stórri
eyju, rúmgóðar og bjartar samliggjandi
stofur, sex herbergi, sjónvarpshol og
tvö glæsileg endurnýjuð baðherbergi.
Nýjar svalir til suðurs út af efri hæð.
Húsið hefur verið mjög mikið endur-
nýjað á sl. árum, m.a. vatns- og raflagnir og tafla, allt járn á húsi að utan sem
og á þaki, gler og gluggar o.fl. Tvö sérbílastæði eru á lóð hússins og hellulögð
verönd. Verð 41,9 millj.
Heiðarlundur - Garðabæ
Fallegt og vandað 198 fm einbýlishús
á einni hæð ásamt 58 fm bílskúr. Eign-
in skiptist m.a. í eldhús með nýlegri
innréttingu, samliggjandi borðstofu og
stofu með arni, um 30 fm bókastofu,
3-4 herbergi, um 20 fm garðstofu með
kamínu og flísalagt baðherbergi auk
gestasalernis. Arinn í stofu. Aukin loft-
hæð í stofum, bókastofu og í holi.
Parket og flísar á gólfum. Húsið er steinsteypt, timburklætt að utan með láréttri
klæðningu. Falleg ræktuð lóð með miklum gróðri. Timburverönd með skjól-
veggjum. Góð staðsetning, nálægt leikskóla og allri þjónustu.
Laugalækur
Mjög gott 174 fm raðhús, tvær hæðir
og kjallari. Á neðri hæð er hol/borð-
stofa, eldhús, flísalögð gestasnyrting
og parketlögð stofa. Á efri hæð er
sjónvarpshol, þrjú góð herbergi, öll
parketlögð og skápar í tveimur, og ný-
lega endurnýjað baðherbergi auk ris-
lofts. Í kjallara er eitt herbergi, snyrt-
ing, þvottaherbergi og góð geymsla.
Tvennar svalir, til suðvesturs út af stofu og til norðausturs af stigapalli. Ræktuð
lóð með stórum sólpalli og skjólveggjum. Verð 39,5 millj.
Urðarhæð - Garðabæ
Mjög fallegt og vandað 246 fm einbýl-
ishús á einni hæð með 31 fm bílskúr.
Eignin skiptist m.a. í rúmgott eldhús
með vandaðri innréttingu, eyju og
útgangi á verönd, stórar stofur með
góðri lofthæð og innbyggðri halogen-
lýsingu, sjónvarpshol, þrjú rúmgóð
herbergi auk fataherbergis og flísalagt
baðherbergi með nuddpotti auk gesta-
salernis. Merbauparket og ítalskar flís-
ar á gólfum. Góð staðsetning innst í botnlanga. Fallegur ræktaður garður með
stórri timburverönd mót suðvestri. Verð 59,0 millj.
Melabraut - Seltjarnarnesi
4ra herb. með sérinngangi
Mjög falleg og mikið endurnýjuð 119
fm 4ra herbergja íbúð með sérinn-
gangi á jarðhæð á sunnanverðu Sel-
tjarnarnesi. Eignin hefur verið mikið
endurbætt, t.d. lagnir, gólfefni og inn-
réttingar að mestu. Hol með góðu
skápaplássi, rúmgóð og björt stofa,
eldhús með vönduðum tækjum og fal-
legri beykiinnréttingu, tvö herbergi og
flísalagt baðherb. með þvottaaðstöðu.
Hellulögð stétt fyrir framan hús og verönd með hitalögn. Verð 31,9 millj.
Norðurbrú - Garðabæ
4ra herb. íbúð í Sjálandshverfinu
Glæsileg 112 fm íbúð á 2. hæð, þ.m.t.
9,8 fm geymsla, í nýlegu lyftuhúsi í
nýja Sjálandshverfinu. Rúmgott eldhús
með góðum gluggum og vönduðum
tækjum, tvö herbergi, stofa með út-
gangi á suðursvalir og flísalagt bað-
herbergi. Vandaðar innréttingar og
hurðir úr eik og parket á gólfum.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Verð 30,8 millj.
Laugarnesvegur
Sérhæð með bílskúr
Stórglæsileg 110 fm 4ra herbergja sér-
hæð ásamt sérgeymslu í kjallara og
26 fm bílskúr í þessu nýja þríbýlishúsi í
Laugarnesinu. Íbúðin er öll innréttuð á
afar vandaðan og smekklegan máta
og eru innihurðir, gólfefni og innrétt-
ingar úr eik. Flísalagt baðherbergi,
samliggjandi rúmgóðar og bjartar stof-
ur með miklum gluggum, eldhús með
vönduðum tækjum og tvö herbergi
bæði með skápum. Tvö sérbílastæði á
lóð. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslítið. Verð 36,9 millj.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.