Morgunblaðið - 29.01.2006, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
UNDANFARIN misseri hefur
mörgu verið hrint í framkvæmd í
Kópavogi. Hvert hverfið á fætur öðru
er skipulagt og byggt.
Lóðum er úthlutað.
Samið er við aðila um
rekstur á þjónustu við
bæjarbúa. Drifið er í að
byggja upp íþrótta-
akademíu og skissaðar
eru upp hugmyndir að
óperuhúsi. Allt eru
þetta hin ágætustu mál
og í sjálfu sér ættu ekki
að vera tilefni til sér-
stakra deilumála. Aftur
á móti hefur oftar en
ekki verið mjög um-
deilanlegt hvernig staðið er að
ákvarðanatöku og framkvæmd þess-
ara mála. Ákvarðanataka sem ein-
kennist oft af einræðislegum vinnu-
brögðum og sérkennilegri
forgangsröðun. Tökum nokkur dæmi.
Hver deiliskipulagstillagan á fætur
annarri hefur orðið að eldfimum deil-
um, því ekki hefur verið haft nauð-
synlegt samráð við íbúa eða hags-
munaaðila. Eða vegna þess að
skipulagið er unnið í svo mörgum
bútum að menn eru löngu hættir að
greina í aðalskipulagið sem liggja á til
grundvallar skyn-
samlegri uppbyggingu.
Verðmætum lóðum hef-
ur lengi vel verið út-
hlutað, án þess að svo
mikið sem að dusta ryk-
ið af lóðarúthlut-
unarreglum bæjarins.
Ekki hefur verið unnið
eftir sömu vinnureglum
varðandi útboð á rekstri
leikskóla og tónlistar-
skóla í bænum. Lítil sem
engin fagleg umræða fór
fram um útboð á rekstri
tónlistarskóla, en aftur á móti fór slík
nauðsynleg umræða fram vegna út-
boðs á rekstri leikskóla. Bæjarstjór-
inn hefur lagt töluverða vinnu og tíma
í að teikna upp óperuhús fyrir bæj-
arbúa. En á meðan hafa verið blikur á
lofti í leikskólamálum bæjarins. Það
hefur stefnt í að hver leikskóladeildin
á fætur annarri loki, vegna þess að
hið ótrúlega langlundargeð starfs-
fólks leikskólanna er að þrotum kom-
ið. Það er búið að bíða í marga mán-
uði eftir; starfsmati, nýjum
kjarasamningum, launamálaráð-
stefnum og nú er enn verið að bíða og
vona. Það er ekki fyrr en nú, þegar
starfsemi sumra leikskólanna hefur
skaðast, ekki fyrr en hækkuð hafa
verið lægstu laun hjá starfsfólki í leik-
skólum Reykjavíkur, að tími hefur
fundist til að vinna að einhverri al-
vöru að lausn þessa máls. Á meðan
hafa börn og foreldrar þeirra ekki
fengið þá sjálfsögðu þjónustu sem
bæjarfélagið hefur skuldbundið sig til
að veita. Og nýjar dýrar leik-
skólabyggingar eru ekki nýttar sem
skyldi.
Ofantalin dæmi sýna að það þarf
nauðsynlega að bæta vinnubrögðin,
svo að allir ákvarðanatökuferlar í
bæjarkerfinu verði skýrir og gagnsæ-
ir, beri þess ótvíræð merki að unnið
sé á lýðræðislegan hátt. Að forgangs-
röðun verkefna sé með eðlilegum
hætti. Vinnubrögð sem leiða af sér
deilur og ósætti, vantraust og erf-
iðleika, veikja ímynd bæjarins. Sum-
um háttsettum ráðamönnum bæj-
arins hefur sárnað þegar umræða um
vinnubrögð þeirra hafa verið rædd
opinberlega. Þeir segja að það sé slík
umræða sem veiki ímynd bæjarins,
en ekki vinnubrögð þeirra. Eru þá
skilaboðin til íbúa að ekki megi ræða
eða gagnrýna valdhafana? Er það
ekki enn eitt dæmið um einræðislega
stjórnunarhætti? Það er því löngu
orðið tímabært að fara frá einræði til
lýðræðis í Kópavogi. Komum á nýjum
meirihluta í bænum, lýðræðislegum
meirihluta. Ágætu Kópavogsbúar,
kynnið ykkur stefnumál frambjóð-
enda í prófkjöri Samfylkingarinnar,
sem fram fer 4. febrúar nk. Við viljum
sjá breytt vinnubrögð. Ég vil gjarna
vera með í að stuðla að þeim breyt-
ingum. Þess vegna býð ég mig fram í
2.–4. sæti Samfylkingarinnar í próf-
kjöri þeirra til sveitarstjórnarkosn-
inga. Hvet ykkur til að skoða heima-
síðu mína http://rut.hexia.net
Breytum vinnu-
brögðum í Kópavogi
Eftir Rut Kristinsdóttur
’Vinnubrögð sem leiða afsér deilur og ósætti, van-
traust og erfiðleika,
veikja ímynd bæjarins.‘
Rut Kristinsdóttir
Höfundur situr í leikskólanefnd
Kópavogsbæjar og býður sig fram í
2.–4. sæti í prófkjöri Samfylking-
arinnar í Kópavogi.
Prófkjör í Kópavogi
Sérlega glæsileg 109,3 fm íbúð á 5. hæð m.
geymslu. Gott aðgengi og lyfta. 3 svefnherb.,
hol, sjónvarpshol, eldhús m. borðkr., stofa, sval-
ir, baðh., þvottahús. Þetta er falleg eign sem
vert er skoða. Mikið útsýni. Verð 25,8 millj.
Kristjana býður ykkur velkomin.
Opið hús í dag frá
kl. 15 til 16
Rjúpnasalir 12 - Kópavogi - Opið hús í dag
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 16-17
EFSTILUNDUR - GARÐABÆ
EINBÝLI Á EINNI HÆÐ MEÐ ÚTSÝNI
Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, sími 520 2600, fax 520 2601,
netfang as@as.is, heimasíða www.as.is. Opið virka daga kl. 9-18.
Kári Halldórsson, löggiltur fasteignasali.
Gott 196 fm einbýlishús með innbyggðum 47 fm bílskúr
á góðum stað í Garðabæ. Möguleiki á allt að fimm
svefnherbergjum. Góð eldhúsinnrétting, stáltæki og gas-
hellur. Gestasnyrting og gott baðherbergi. Parket á
stofu, sjónvarpsholi og borðstofu. Sjón er sögu ríkari.
Verð 46,9 millj. LAUST VIÐ KAUPSAMNING.
Eiríkur Svanur, sölumaður Áss,
tekur á móti gestum, s. 862 3377
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Langholtsvegur 146
Opið hús á milli kl. 14-18 í dag
Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
Falleg og mikið endurbætt 3ja herb. 93,2 fm neðri hæð með sérinngangi. Eignin
er á austari og rólegri hluta Langholtsvegar. Húsið er bakhús með snyrtilegri
heimreið frá Langholtsveginum. Í íbúðina hefur verið lagt nýtt rafmagn sem og
skipt um allar vatnslagnir, bæði til neyslu og hitunnar, sem og alla ofna, blönd-
unartæki, vaska, klósett og baðkar. Skólpleiðslur eru einnig nýjar. Þak hefur ver-
ið lagfært og gler og gluggakarmar endurnýjaðir. Tvö svefnherbergi, annað mjög
stórt og hægt að nýta sem hjónaherbergi eða jafnvel leikherbergi fyrir börnin,
falleg stofa, bjart eldhús með góðum innréttingum, þvottahús og geymsla.
Sindri og Elfa sýna eignina á milli klukkan 14 og 18 í dag. Verð 22,3 millj.
Þórðarsveigur 2
Opið hús á milli kl. 14 og 15 í dag
Vorum að fá í einkasölu þessa gullfallegu íbúð
í Grafarholtinu með bílageymslu
Íbúðin er á annarri hæð með góðum svölum, stofa og eldhús í opnu rými, rúm-
gott hjónaherbergi með góðum skápum, þvottahús innan íbúðar, bílageymsla
sem liggur beint að lyftu og stór geymsla. Falleg og þægileg eign á góðum stað.
Sigurður sýnir eignina, s. 616 8880, bjalla merkt nr. 20.1. Verð 20,9 millj.
Barónstígur 3
Opið hús á milli kl. 14 og 16 í dag
Björt og falleg 2ja herbergja íbúð á rólegum og góðum stað í 101 Reykjavík.
Auðveldlega er hægt að bæta við einu herbergi. Komið er inn í anddyri með flís-
um og fatahengi. Baðherbergi með baðkari og sturtu. Eldhús með góðum inn-
réttingum og tækjum. Stofa og borðstofa eru samliggjandi og þaðan er hægt að
ganga út á svalir með góðu útsýni. Hjónaherbergi er með fataskápum sem ná
upp í loft. Íbúðin er að mestu leyti parketlögð. Góð eign og stutt í alla þjónustu
og samgöngur.
Bjallan er merkt „Ristic“. Verð 22,5 millj.