Morgunblaðið - 29.01.2006, Síða 64
64 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hafnarfjarðarbær boðar til upplýs-ingafundar þar sem farið verður yfirframkvæmdir og útboð á vegum bæj-arins. Fundurinn verður haldinn í
Hafnarborg á morgun, mánudaginn 30. janúar og
hefst klukkan tíu. Sams konar upplýsingafundur
var haldinn í fyrra og mættu 150 manns.
Fjárfestingar bæjarins á þessu ári nema rúmum
fimm milljörðum og verður rúmum 1,5 milljörðum
varið í byggingarframkvæmdir, svo dæmi sé tekið.
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir bæði um að
ræða nýjar fjárfestingar og verkefni sem verið sé
að halda áfram með.
„Nú er að hefjast mjög stórt og mikið fram-
kvæmdaár. Varið verður á sjötta milljarð til þess-
ara verkefna, sem er tvöföldun á kostnaði við fram-
kvæmdir, miðað við síðasta ár. Það endurspeglar
þá miklu uppbyggingu sem er hér í bænum.“
Lúðvík segir mega skipta framkvæmdum í
þrennt, í fyrsta lagi gatnagerð á nýbygging-
arsvæðum vegna atvinnu- og íbúðarhúsnæðis fyrir
rúma tvo milljarða króna. „Þarna er verið að taka
fyrir mjög stór svæði og mikið lagt undir. Síðan má
nefna byggingarframkvæmdir sem bæjarfélagið er
að fara af stað með, en þá er aðallega átt við skóla,
leikskóla og sundlaugar. Í þriðja lagi má nefna
veituframkvæmdir, sem við erum að ljúka á þessu
ári.“
Stendur kannski til að byggja óperuhús í Hafn-
arfirði?
„Við erum að vinna að uppbyggingu miðbæjarins
og þar er ein stór og álitleg lóð sem stendur óspjöll-
uð í miðju bæjarins. Það eru uppi hugmyndir um að
fara í framkvæmdaútboð á þeirri lóð og leita eftir
hugmyndum um uppbyggingu. Ýmsir stórir aðilar
hafa sýnt henni áhuga og það mun skýrast síðar á
þessu ári hvað verður gert.“
Hefur íbúum í Hafnarfirði fjölgað hratt upp á
síðkastið?
„Íbúafjölgunin hefur verið um og yfir 3% síðustu
árin, sem er langt yfir landsmeðaltali. Við erum að
nálgast 23.000 íbúa og fjölgunin hefur verið á milli
500 og 1.000 á ári, sem er mikil viðbót og kallar á
ýmis verkefni samhliða því.“
Lúðvík segir að lokum að hlutfall ungra íbúa sé
hærra í Hafnarfjarðarbæ en í nágrannasveitar-
félögunum. „Það er kannski vegna þess að við erum
rótgróið samfélag og verðum 100 ára kaupstaður á
þarnæsta ári. Endurnýjunin er góð og mikið af
barna- og fjölskyldufólki. Framtíðin er fólgin í því,“
segir Lúðvík Geirsson.
Hafnarfjörður | Upplýsingafundur haldinn um framkvæmdir og útboð ársins 2006
Íbúum hefur fjölgað um 3% á ári
Lúðvík Geirsson
fæddist 21. apríl árið
1959. Hann varð stúd-
ent frá Flensborg-
arskóla árið 1978 og
lauk BA-prófi í íslensku
og bókmenntum frá Há-
skóla Íslands árið 1984.
Lúðvík var blaðamaður
og síðar fréttastjóri á
Þjóðviljanum og for-
maður og síðar fram-
kvæmdastjóri Blaðamannafélagsins frá 1988
til ársins 2000. Hann hefur verið bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði frá árinu 1994 og bæj-
arstjóri frá 2002. Lúðvík er kvæntur Hönnu
Björk Lárusdóttur og eiga þau þrjá syni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Atburðir sem virðast tilviljanakenndir
eru það ekki. Þess í stað eru þeir bein
afleiðing samkomulags sem þú hefur
gert við sjálfan þig eða aðra, meðvitað
eða ómeðvitað. Taktu aftur við stjórn-
inni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver sem gegnir lykilhlutverki í við-
fangsefnum nautsins kemur til skjal-
anna í vikunni. Þú ert í rétta gírnum til
þess að taka leiðbeiningum og jafnvel
forystu viðkomandi. Eyddu deginum í
dag með virðingu og þakklæti í huga.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ef veröldin er leiksvið er tvíburinn
snillingur í því að breyta sér í „per-
sónuna“ sem þarf til þess að breyta nú-
verandi atburðarás í yndislega og róm-
antíska sögu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Viðteknar venjur eru mismunandi frá
fjölskyldu til fjölskyldu, vinnustað til
vinnustaðar, manneskju til manneskju.
Þú færð að kynnast reglum einhvers
annars í dag. Eitthvað fyndið gerist
óvænt eftir miðjan dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekkert samband er fullkomið. Að tak-
ast á við galla náins sambands af rausn-
arskap og ljónslegu hugrekki gæti
breytt því sem brotið er í meiriháttar
áhrifavald í lífi þínu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan er nú þegar góð í því að gera
við hluti og fegra þá. Miðlaðu sköp-
unargáfu þinni til annarra í veröldinni.
Það þýðir að þú þarft að taka þá áhættu
að vera hafnað. Þú ert tilbúin.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hlutirnir sem gera heimili vogarinnar
viðkunnanlegra auka líka sjálfstraust
hennar. Bættu nokkrum sterkum litum
við, til dæmis rauðum eða fjólubláum,
með málningu, hillum eða nýjum púð-
um. Þú hressist bara með því að horfa.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Daður er til í ýmsum myndum. Það sem
aðrir myndu kalla átök er ekkert annað
en vingjarnlegt hjal í þínum augum.
Félagar sem drekinn velur um helgina
passa honum einstaklega vel. Ein-
hleypir: Láttu einhvern hafa fyrir því
að fá símanúmerið þitt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sérhver hugsun bogmannsins miðast
að því að ná árangri. Þó að maður fari
rétt að öllu er flókið að láta sig dreyma
um tiltekna niðurstöðu. Til þess að öðl-
ast það sem maður vill þarf maður að
hugsa hvað í stað hvernig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitinni tekst að hvetja þrjóskan
einstakling með því að beita gömlu
góðu gulrótinni. Gættu þess samt að
verðlauna viðkomandi á endanum, ann-
að væri hrein grimmd.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Að vera innan um fólk sem trúir á þig
og hvetur hefur áhrif á viðhorf þitt og
þar með hæfileika og framleiðni.
Reyndu ljón eða bogmann.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hugsast getur að svokallaður „óvinur“
sé ómeðvitað viðhorf eða trú sem fisk-
urinn er ekki til í að sleppa. Himin-
tunglin gefa honum óvænta innsýn í
það sem aðrir eru að hugsa. Þannig sér
hann hlutina í réttu ljósi.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Nýtt tungl í vatnsbera og
hópur pláneta í grennd við
það í himingeimnum vita
á gott í vinasamböndum, ekki síst þeim af
skrýtnari og óvenjulegri gerðinni. Fólk
sem hittist í fyrsta sinn lætur eins og alda-
gamlir vinir. Því afslappaðri sem sam-
skiptin eru því viðkunnanlegri verða
þau.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 togstreitu, 8
þoli, 9 garðjurt, 10 kven-
dýr, 11 marra, 13 virðir,
15 slitur, 18 vísu, 21 grein-
ir, 22 duftið, 23 hátíðin, 24
glímutök.
Lóðrétt | 2 formóðir
manna, 3 hluta, 4 knáa, 5
tólf, 6 bút, 7 skordýr, 12
snæfok, 14 glöð, 15 sokk-
ur, 16 áreita, 17 lipur, 18
mjöll, 19 sterk, 20 elska.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ókjör, 4 fjöld, 7 impra, 8 útveg, 9 rok, 11 drap, 13
þróa, 14 ansar, 15 hökt, 17 álit, 20 aka, 22 kúpan, 23 nenni,
24 lærði, 25 aginn.
Lóðrétt: 1 ókind, 2 japla, 3 róar, 4 fjúk, 5 örvar, 6 dugga, 10
orsök, 12 pat, 13 þrá, 15 hökul, 16 kopar, 18 lindi, 19 teinn,
20 andi, 21 anga.
Sauðárkrókur | Nýverið dvaldi tíu
manna hópur frá Þjóðleikhúsinu á
Hofsósi við æfingar vegna nýrrar
uppfærslu á leikritinu Pétri Gaut
eftir Ibsen, en hún verður frum-
sýnd á nýja sviði Þjóðleikhússins
um miðjan febrúar næstkomandi.
Það er leikstjórinn Baltasar Kor-
mákur sem fer fyrir sínu fólki, er
hafði aðstöðu í Konungsversl-
unarhúsi Vesturfarasetursins á
Hofsósi, og sagði hann að þessi
ferð væri farin til þess að ná hópn-
um vel saman og brjóta upp hefð-
bundið æfingaferli. Vel hefði geng-
ið þessa daga, enda valinn maður í
hverju rúmi, og margt skemmti-
legt komið upp þegar hefðbundið
umhverfi leikhússins væri ekki
umgjörðin á æfingunum. Ný þýð-
ing verksins er eftir Karl Ágúst
Úlfsson, og sagði leikstjórinn ljóst
að ekki yrði um hefðbundna upp-
færslu að ræða.
Þjóðleikhúsið í
æfingabúðum á Hofsósi