Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 69
Á BOL sem merktur er Hekken-
feld, og ber með sér útúrsnúning
á Brennivínsmerkinu, stendur
„Probably the worst band in the
world!“. Hressandi að vita til þess
að meðlimir vita nokkurn veginn
sjálfir hvar þessi plata stendur
sem er greinilega fyrst og fremst
gefin út til að skemmta meðlimum
sjálfum og áhangendum, séu þeir
til. Hana er ekki hægt að taka al-
varlega, er tilkomin eins og sveitin
sjálf, tylliástæða til að hittast og
glamra saman á hljóðfæri. Sem er
virðingarvert í sjálfu sér. Mig
grunar þá að Hekkenfeld virki vel
á tónleikum, vonandi betur en
þessi plata a.m.k.
Hljómsveitin er starfrækt í
Danmörku og er skipuð Íslend-
ingum sem þar búa. Hún á rætur í
pönk-tökulagabandi sem stofnað
var 1999 sem seinna þróaðist í
Hekkenfeld. Hinir og þessir hafa
runnið í gegnum bandið sem hefur
verið starfandi í núverandi mynd
síðan 2002.
Tónlistin er groddalegt pönk-
rokk, með klúrum og bjánalegum
textum. Flestir textarnir fara of-
fari í einkahúmornum, lagið
„Hreðjatak“ er gott dæmi um
einkaflipp sem er gjörsamlega
óþolandi í eyrum þess sem ekki
var á staðnum eða tók þátt í
gjörningnum sjálfur. Utan texta
er tónlistin nákvæmlega eins og
hún á að vera, hrá og losaraleg og
t.a.m. í laginu „Glæpadvergar“ fer
sveitin á sæmilegasta flug. Mörg
laganna eiga það hins vegar til að
dragnast stefnulaust áfram. „Stór-
ir strákar“ (eða „Stórir strákar fá
raflost“) er þá illa heppnað í með-
förum Hekkenfeld en „Jón var
kræfur karl og hraustur“ er
ágætt.
Plötuútgáfa sem þessi er vel
skiljanleg, hún gefur hljómsveit-
inni markmið og varðar þá leið
sem hún er á. Platan mun fara vel
í hillu meðlima sjálfra og hugs-
anleg gleðja nánasta vinahóp. En
fyrir okkur hin er þetta skamm-
lífur, og í langflestum tilfellum,
lítt skemmtilegur brandari.
Galgopi í
Kaupinhafn
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Hekkenfeld er skipuð þeim Jóni, Bigga,
Unnsteini, Stebba og Óskari. Hljóm-
sveitin semur lögin utan tvö („Stórir
strákar“ og „Jón var kræfur karl og
hraustur“). Upptökur og hljóðblöndun var
í höndum meðlima og Poul Steinbeck.
Hljómsveitin gefur sjálf út.
Hekkenfeld – Umturnast
Arnar Eggert Thoroddsen
ROKKARARNIR í Mötley Crüe, leiðtogar glysrokks ní-
unda áratugarins, fengu stjörnu í frægðargangstétt Holly-
wood Boulevard í vikunni. Þetta er 2.301. stjarnan sem sett
er í stéttina.
„Við erum beint á móti Erótíska-safninu og Frederick’s
of Hollywood. Það er fullkomið fyrir okkur,“ sagði bassa-
leikarinn Nikki Sixx við um 600 æsta aðdáendur á staðn-
um.
Aðrir meðlimir létu sig ekki vanta en þarna voru einnig
trommarinn Tommy Lee, gítarleikarinn Mick Mars og
söngvarinn Vince Neil.
Lee þóttist gráta. „Ég held það sé eitthvað í auganu á
mér,“ sagði hann.
Mötley Crüe hefur verið starfandi í 25 ár og selt á þeim
tíma 40 milljónir platna um allan heim. Þeir eru m.a.
þekktir fyrir lögin „Girls, Girls, Girls“, „Smokin’ in the Bo-
ys Room“ og „Dr. Feelgood“ en margir textar þeirra fjalla
um kynlíf, drykkju og eiturlyf.
Reuters
Vince Neil, Nikki Sixx, Tommy Lee og Mick Mars í rokkarastellingum.
Mötley Crüe
fær stjörnu
Leikarinn Tom Cruise var sá leik-ari í heiminum sem halaði inn
mesta peninga fyrir kvikmynda-
framleiðendur árið 2005, samkvæmt
árlegri könnun
fyrirtækisins
Quigley Publ-
ishing Co., en
þetta er í sjöunda
sinn sem Cruise
er í efsta sæti
listans. Enginn
leikari hefur ver-
ið oftar í efsta
sæti listans, en leikarar á borð við
Tom Hanks, Clint Eastwood, Burt
Reynolds og Bing Crosby hafa allir
komist á toppinn fimm sinnum.
Könnunin hefur verið gerð árlega
frá árinu 1932, en hún fer þannig
fram að kvikmyndaframleiðendur og
aðrir áhrifamenn í kvikmyndaheim-
inum eru beðnir að kjósa þá tíu leik-
ara sem þeir telja hafa halað inn
mesta peninga á liðnu ári. Johnny
Depp hafnaði í öðru sæti listans,
Angelina Jolie og Brad Pitt voru
jöfn í þriðja til fjórða, en á eftir þeim
komu Vince Vaughn, George
Clooney, Will Smith, Reese With-
erspoon, Adam Sandler og Tom
Hanks, sem var efstur árið 2004.
Fólk folk@mbl.is