Morgunblaðið - 29.01.2006, Side 76

Morgunblaðið - 29.01.2006, Side 76
VONIR standa til að hægt verði að taka fyrstu skóflustungu að menn- ingar- og fræðasetri á Hólum í ágúst á þessu ári og er það hugsað sem þjóðargjöf í tilefni af 900 ára afmæli staðarins. Er það einn af fjölmörg- um viðburðum á afmælisárinu. Guðmundur Jónsson arkitekt hef- ur lagt fram fyrstu hugmyndir að fjölnota húsi með ýmiss konar þjón- ustumöguleikum, þar sem gert er ráð fyrir móttöku ferðamanna, en í fyrra sóttu um 20 þúsund ferða- menn Hóla heim og er gert ráð fyrir allt að 50 þúsund ferðamönnum eftir 5 til 10 ár. Fyrstu hugmyndir gera ráð fyrir að húsið rísi þar sem gamla fjósið og hlaðan stendur og verði þrjú þúsund fermetrar á tveimur hæð- um. | 18–20 Byggt á Hólum Morgunblaðið/RAX Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, og Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi ÞRÍR átján ára piltar voru teknir með hálft kíló af kókaíni í Leifs- stöð á fimmtudag og voru úrskurðaðir í viku gæsluvarðhald á föstu- dag að kröfu sýslu- mannsins á Keflavík- urflugvelli, sem rannsakar málið. Þetta er með stærstu kók- aínmálum sem upp hafa komið í Leifsstöð á liðnum árum og vekur athygli í ljósi svo ungs aldurs smyglaranna með annað eins magn fíkniefna á sér. Tollgæslan á Keflavík- urflugvelli stöðvaði þá við komuna til landsins og kom þá í ljós að þeir höfðu falið efnin inn- anklæða. Hreinleiki kókaínsins hefur ekki verið mældur en ætla má að götuverðmæti þess geti numið allt að 20 milljónum króna. Piltarnir, sem allir eru íslenskir, eiga nokk- urn sakaferil að baki. Málið telst með stærstu kókaínmálum sem upp hafa komið í Leifsstöð. Svo tekin séu dæmi af stærstu málum liðinna ára voru 1,5 kg tekin af manni árið 2002 og árið 2004 var 1 kg tekið af öðrum sem jafnframt reyndi að smygla öðru eins af amfetamíni. Þá voru 400 g af kókaíni tekin af manni árið 2003. Teknir með hálft kg af kóka- íni í Leifsstöð SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fær 44,7% fylgi og Samfylkingin 23,6% þeirra sem afstöðu taka í þjóðmálakönnun Félagsvísinda- stofnunar fyrir Morgunblaðið sem unnin var 18.–25. janúar. Í könnuninni fær Framsóknar- flokkurinn 9,6% fylgi, Vinstri grænir 18,1% og Frjálslyndi flokkurinn 3,2%. Í þingkosningunum 2003 fékk Sjálfstæðisflokkurinn 33,7% at- kvæða og Samfylkingin 31%. Framsóknarflokkurinn fékk 17,7%, VG 8,8% og Frjálslyndir 7,4%. Í könnun Gallup í desember fékk Sjálfstæðisflokkurinn 41,6%, Samfylkingin 27,4%, VG 17,8%, Framsóknarflokkurinn 10,6% og Frjálslyndi flokkurinn 2,3%. Óákveðnir 9,7% Í könnuninni var stuðst við slembiúrtak úr þjóðskrá, sem náði til 1.200 manna á aldrinum 18–75 ára, af öllu landinu. Nettó- svarhlutfall, þ.e. þegar látnir, er- lendir borgarar og þeir sem bú- settir eru erlendis hafa verið dregnir frá úrtakinu, er 70,6%, sem telst ágætt í könnun af þessu tagi. Félagsvísindastofnun telur að úrtakið endurspegli þennan aldurshóp meðal þjóðar- innar allrar ágætlega. Spurt var hvað menn myndu kjósa ef alþingiskosningar yrðu á morgun. Þeir sem sögðust ekki vita það voru spurðir aftur hvað þeir teldu líklegast að þeir kysu. Segðust menn enn ekki vita voru þeir enn spurðir hvort líklegra væri að þeir kysu Sjálfstæðis- flokkinn eða einhvern vinstri flokkanna og þeim sem sögðust myndu kjósa vinstri flokka deilt niður á þá í hlutfalli við svörin við fyrri spurningum. Með þessu fer hlutfall óákveðinna úr 33,8% eft- ir fyrstu spurninguna niður í 9,7%. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur stuðnings 44,7% Samfylkingin með 23,6% fylgi, VG 18,1% og Framsókn 9,6%      F     G     5                              LEIKSKÓLAKENNARAR hækka að meðal- tali um 12% í launum og verða kjör þeirra jöfn- uð við þær hækkanir sem aðrir háskólamennt- aðir starfsmenn fengu í kjarasamningum Reykjavíkurborgar við Eflingu og Stafsmanna- félag Reykjavíkurborgar á dögunum. Þetta var samþykkt á fundi Launanefndar sveitarfélaga laust fyrir hádegi í gær. Hækkunin felst í blöndu af launaflokkahækk- unum og eingreiðslum á tiltekin störf og gilda viðbæturnar frá 1. janúar 2006. Með þessari ákvörðun hefur Launanefndin heimilað sveit- arfélögum að hækka leikskólakennara í launum samkvæmt ofangreindum forsendum. Hér er þó ekki um að ræða breytingu á kjarasamn- ingum. Heimildin gildir til 30. september næst- komandi þegar samningar leikskólakennara losna og segir Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavíkur, að þessar hækkanir séu upplegg í nýja samninga í haust. Stefán Jón segist sem formaður menntaráðs mjög ánægður með þessa niðurstöðu. Markmið- ið hafi verið að jafna kjörin og bæta úr þeirri óánægju sem skapast hafi í kjölfar fyrrnefndra samninga Reykjavíkurborgar. „Við komum verulega til móts við leikskólakennara og við náðum því grundvallarmarkmiði að leikskóla- kennarar verði að minnsta kosti jafnir í launum á við annað háskólamenntað starfsfólk,“ sagði Stefán Jón og bætti við að borgin myndi strax ganga í málið. Gunnar Rafn Sveinbjörnsson, formaður LN, segir nefndarmenn hafa lagt hart að sér og unn- ið vel saman til að ná skjótri og góðri niður- stöðu. Þar með hafi verið bundinn endi á óþægi- lega biðstöðu og það andrúmsloft sem hún leiddi af sér í samfélaginu. „Það ber að þakka þeim sem hér áttu hlut að máli,“ segir Gunnar Rafn að lokum. Þegar Morgunblaðið fór í prentun var nefnd- in að vinna í málefnum annarra viðsemjenda sinna og var búist við að hún skilaði niðurstöð- um sínum síðdegis. Leikskólakennarar fá um 12% hækkun launa Morgunblaðið/Kristinn Jakob Björnsson og Gunnar Rafn Sveinbjörnsson voru ánægðir með niðurstöðu nefndarinnar. Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is „ÉG HEF alltaf haft þá trú á Samherja að þetta væri fyrirtæki sem gæfist ekki upp fyrr en öll sund væru lokuð,“ segir Sigfús Vilhjálmsson oddviti, bóndi og útgerð- armaður á Brekku í Mjóafirði. Eftir að Samherji og Síldarvinnslan tilkynntu að fyrirtæki þeirra, Sæsilfur, myndi hætta laxeldi á Austurlandi árið 2008, hefur Mjó- firðingum verið brugðið. Langmestur hluti eldisins fer fram í firðinum og hafa ellefu af þrjátíu og tveimur fullorðnum íbúum í Mjóafirði haft viðurværi af starf- seminni. Að auki hefur hreppurinn lagt í nokkrar fjárfestingar í formi íbúðarbygg- inga og annarra framkvæmda vegna eld- isins. Að mati Sigfúsar er tilkynning Sam- herja um að hætta starsfemi sökum geng- ismála og hás raforkuverðs klaufaleg. „Eina haldbæra ástæðan fyrir því að þeir ætla að hætta hér er að seiðin sem áttu að koma hingað til eldis síðastliðið sumar komu ekki af því að það þurfti að farga þeim út af nýrnaveiki í seiðastöðinni hjá Íslandslaxi,“ segir Sigfús. „Það er fullskipað í öll þau störf sem eru möguleg,“ segir Jóhanna Lárusdóttir á Brekku. „Ef annar aðilinn missir vinnuna þá er lífsviðurværið farið.“ Morgunblaðið fór sjóleiðina í Mjóafjörð í vikunni og ræddi þar við íbúana. Mjófirðingar uggandi Ingólfur Sigfússon sem starfar að laxeld- inu í Mjóafirði segir vanhugsað hjá eig- endum Sæsilfurs að hætta eldinu, loks þegar það skilar tilætluðum árangri. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur austurland@mbl.is  Byggð í Mjóafirði | 30–32

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.