Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF EKKI MISSA AF 9 7 7 1 0 2 5 9 5 6 0 0 9 Svava Johansen og Björn: Gillzenegger:ill : NR. 6 - 2006 • Verð kr. 599 • 9. - 15. febrú ar. Stefán Karl og Steinunn Ólína: Sjáið myndirnar í GIFTU SIG Í LA! Fjölnir er sætur pa bbi: LEIGJA RÁNDÝRT HÚS! SENUÞJÓFUR MEÐ HOMMA OG NAMM I Silvía Nótt:il í tt: Á LEYNI- KÆRUSTU! GENGU Í HEILAGT HJÓNABAND! BESTA TILFIN NING Í HEIMI! Simbi og Böðvar: 01 S&H FORSÍ ‹A4805-2 6. 2.2006 18:3 4 Page 2 Nýtt blað komið út! Fluguhjón! „Við vorum samaní Menntaskólanum við Tjörn-ina og kynntumst á lokaballinuárið 1975 þannig að þetta var seinasti séns,“ segja Stefán Jón og Guðrún Kristín um sín fyrstu kynni. „Það vildi þannig til að þegar ég kom á ballið voru bara laus sæti hist og her og ég settist því við hliðina á Stef- áni,“ bætir Guðrún Kristín við. „Ég fékk hana því alveg fyrirhafnar- laust í fangið,“ segir Stefán og hlær. Hjónin keyptu íbúðina sína við Freyjugötu árið 1989 og hafa búið þar ll öt íð F ll i fjölb tt þriðji fjölskyldumeðlimurinn, köttur- inn Goði, þykist vera húsbóndinn á heimilinu. Guðrún Kristín rekur verkstæðið Keramik fyrir alla við Laugaveg en þangað getur fólk komið og málað ýmsa keramikmuni sjálft. Hún kveðst vera fremur ópólitísk en hún fylgir Stefáni meira í fluguveiðinni sem hann er þekktur fyrir. „Ég er mjög ánægður með að hún skuli nenna að veiða með mér og ég á reyndar fleiri kvenkynsveiðifélaga en karlkyns,“ segir Stefán. „Ég hef staðið i ð þ í ð hl kk t til iðitú förum við alltaf með frændsystkinum okkar. Mér finnst voða gaman að kenna litlu frænkunum að veiða.“ Mannlegi þátturinn Stefán segist finna mikinn meðbyr og vera bjartsýnn á prófkjör Samfylk- ingarinnar um helgina. „Þetta er allt ágætis fólk sem býður sig fram og ég ber mikla virðingu fyrir Degi og Stein- unni en ég lít fyrst og fremst á próf- kjörið sem fyrri hluta af sigri í borgar- stjórnarkosningunum í vor. Það þarf að lít á þ tt h ild þá ð Ástin kviknaði á milli Stefáns Jóns og Guð- rúnar Kristínar í menntaskóla. Heimili þeirra ber þess merki að þau eru bæði miklir listunnendur en á sumrin nota þau þær stundir sem gefast til að egna fyrir fisk með flugu. Stefán Jón Hafstein (50) og Guðrún Kristín Sigurðardóttir (51) njóta sín í Þingholtunum:Frambjóðendur opna dyrnar sem sé líklegastur til að hafa sem breiðasta skírskotun. Það verður að vera frjálslyndur jafnaðar- maður sem fólk almennt treystir til góðra verka. Þetta er það sem ég mun leggja áherslu á. Ég hef líka látið meira til mín taka sem þungavigtarmaður í þjóðmálum á landsvísu en þau hin og nefni fjölmiðlafrumvarpið og eftir- launafrumvarpið sem dæmi. Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir borgarstjóra ð á ð l t i ð an borgarinnar. Það hrós sem mér þykir vænst um er þegar fólk segist skilja það sem ég er að segja og ég komi því í verk sem ég ætla mér.“ Guðrún Kristín heldur því fram að það sé ekki síst mannlegi þátturinn sem fleyti Stefáni Jóni áfram í pólitíkinni. „Stefán þorir að vera mannlegur og er óhræddur við að sýna tilfinningar sínar og fólk kann að meta það,“ segir hún. TEXTI: LOFTUR ATLI EIRÍKSSON MYNDIR: BRAGI JÓSEFSSON FÉKK FRÚNA Í FANGIÐ Að borgin reki þrjú gjaldfrjáls skólastig, leikskóla og grunnskóla og taki við ábyrgð á rekstri fram- haldsskóla af ríkinu. Að í Vatnsmýrinni verði glæsilegt miðborgarsvæði 21. aldarinnar. Að borgin taki við heimahjúkrun og þjónusta við aldraða verði öflug og heildstæð undir einni stjórn. Að kalla borgarbúa til beinna áhrifa með því að styrkja hverfafélög í samvinnu við þjónustumiðstöðvar borgarinnar og fela þeim verkefni um grenndarmál sem varða öryggi, umferð og umhverfi. Að umönnun barna verði tryggð frá fæðingarorlofi til leikskóla og á skólastigum yngri barna verði nám, íþróttir og frístundastarf hluti af samfelldum skóladegi. FLOTT HJÓN: Stefán Jón og Guðrún Kristín eiga fallega hæð við Freyju- götu. Að baki þeim er mynd eftir Kristján Davíðsson sem Stefán fékk í fimmtugsafmæl- isgjöf frá vinum sínum. Mynd- in er í miklu uppáhaldi hjá Stefáni Jóni sem segir hana óræða eins og líf sitt sem tek- ur oft mjög óvæntar stefnur. LISTUNNENDUR: Guðrún Kristín er mikill listunnandi, líkt og Stefán Jón en hún rekur verkstæðið Keramik fyrir alla við Laugaveg. Stóra myndin í borðstofunni er eftir Tolla, ▼HVÍTUR KRÓNPRIN S: Kötturinn Goð i er krónprinsin n á heimilinu og hefur fengið að halda falleg um feldinum þótt húsbónda num væri án e fa í lófa lagið að nota hann s em fluguhnýtin garefni. BJARTSÝNN: Stefán Jón er bjartsýn á prófkjör Samfylkinga innar og gengi flokksin í borgarstjórnarkosn- ingunum í vor. STEFNUMÁLIN MÍN Steinunn Valdís Óskarsdóttir (40) og Ólafur Haraldsson (41) eru samrýnd hjón:Frambjóðendur opna dyrnar LANGMESTI TÖFFARINNSteinunn Valdísog Ólafur hafa búið sér fallegt heimili við Rauða- læk. Þau hafa bæði mikinn áhuga á góðum mat og Steinunn segir að verka- skiptingin í eld- húsinu sé alveg skýr. Hann eldar og hún borðar. Getur ekki tapað! „Við sáumhvort annað fyrst í miðbæReykjavíkur, augnaráðið varinnilegt og þetta var ást við fyrstu sýn,“ segir Ólafur um fyrstu kynni þeirra Steinunnar Valdísar. „Það myndaðist strax einhver leyniþráður á milli okkar,“ bætir Ólafur við en hann starfar sem hönnuður á auglýsingastof- unni EnnEmm. En hvernig er að vera maðurinn á bak við borgarstjórann? „Stundum er maður á bak við, stundum við hliðina og stundum fyrir framan. Ég held að þetta sé svipað og hjá öðru fólki sem starfar sitt á hvoru sviðinu nema hvað Steinunn er oft í fjölmiðl- É t l t ð é fi i ikið Steinunn er náttúrlega á fullu í sinni vinnu og ég í minni. Þegar við kynnt- umst var hún atkvæðamikil í stúd- entapólitík og formaður stúdentaráðs. Það er ekki eins og manni hafi verið hent út í djúpa laug varðandi félags- málaþátttöku hennar.“ Steinunn Valdís og Ólafur eiga fal- lega hæð við Rauðalæk þar sem þau hafa búið undanfarin 10 ár. Þau eiga dótturina Kristrúnu Völu, sex ára, sem er á fyrsta ári í skóla og prinsessan á heimilinu. Mikið mæðir á Steinunni Valdísi í pólitíkinni en hvernig gengur að samræma móður- hlutverkið og starf borgarstjóra? Á tl h ld é b K i t ú h fði ekkert alveg viss um að hún vildi að ég sigraði í prófkjörinu. Ég var nú ekki al- veg sátt við það og spurði hana hvers vegna hún segði þetta. Svar hennar var að þá hefði ég meiri tíma til að vera með sér.“ Þannig að þetta verður sigur á hvorn veginn sem prófkjörið fer? „Það má kannski orða það þannig. Þetta fer allt eftir því hvernig maður nálgast hlutina. Það má líta á það sem stórsigur fyrir fjölskylduna ef illa fer.“ Kjötbollur og risotto Steinunn Valdís er mikil veiðikló og þ hjó i f i l þ tí i hins vegar skíðin sem eru helsta áhugamál fjölskyldunnar. „Þá höfum við mik- inn áhuga á góðum mat. Óli eldar og ég borða,“ segir Steinunn Valdís og hlær. „Hann er rosalega góður kokkur og býr til óskaplega fína eftirrétti. Vandinn er að ég er svo lítið fyrir þá. Hann er líka mjög duglegur að búa til listagóðan ítalskan mat og ég get sannarlega mælt með risottoinu hans. Þegar ég er ekki heima hafa þau Kristrún hins vegar uppáhaldið sitt, kjötbollur með brúnni sósu og kart- öflumús. Ég er mest hissa á að maður sem leggur svo mikið upp úr léttri og f k i ld k k li t l t é Af hverju eiga Reykvíkingar að velja þig í fyrsta sætið? „Ég hef verið borgarfulltrúi í 12 ár og borgarstjóri í 14 mánuði. Ég tel mig hafa staðið mig vel og hafa ýmislegt fram að færa sem borgarstjóri. Ég lít á mig sem venjulega manneskju sem Reykvíkingar eigi auðvelt með að nálgast og tala við. Ég hef aukið við viðtalstíma borgarstjóra í minni tíð og hef fundið að fólk hefur kunnað að meta það. Ég á mjög auðvelt með að tala við fólk og umgangast alls konar fólk É h ld ð þ ð ki ti áli f i stjóri allra Reykvíkinga að hann geti nálgast fólk á þess eigin forsendum. Þá held ég að það skipti máli í þessu prófkjöri að sá frambjóðandi sem verð- ur valinn í fyrsta sætið hafi ákveðinn kjark til að framkvæma hlutina en ekki bara að tala um þá. Ef talað er við það fólk sem hefur unnið með mér nefnir það gjarnan þetta. Ég nenni yfirleitt ekki að eyða miklum tíma í fundarset- ur. Ef búið er að taka ákvörðun um málin vil ég bara ganga í verkin. Þannig að það er meiri kjarkur í þér en mótframbjóðendum þínum? „Svo segir Össur á heimasíðunni sinni. Hann segir að Dagur sé gáfuleg- t St fá é f ll t ð é é Ertu sátt við þann vitnisburð? „Ég er bara nokkuð sátt við það o ekki frá því að hann hafi hitt naglann höfuðið.“ TEXTI: LOFTUR ATLI EIRÍKSSON Hækkun lægstu launa og jöfnun lífskjara. Konur sem annast börn og eldra fólk hafa haft lægstu launin í samfélaginu. Þessu breyttum við. Undir minni forystu munum við áfram ryðja brautina. Málefni aldraðra. Það er víða brotalöm í heilbrigðisþjónustu við eldri borgara. Ég mun berjast fyr því að Reykjavíkurborg taki við málaflokknum frá ríkinu. Gjaldfrjáls leikskóli verði að full að veruleika á næstu þremur árum. STEFNUMÁLIN MÍN STOLT STELPA: Kristrún Vala er stolt af mömmu sinni og pabba en er samt ekkert viss um að það sé best að mamma hennar sigri í prófkjörinu því hún vill gjarnan fá að hafa hana meira út af fyrir sig. GAMAN Í ELDHÚSINU: Eldhúsið er yfirráðasvæði feðgin- anna og þegar mamma er ekki heima halda þau alvörukjötbollu- veislu. GOTT HVERFI: Borgarstjórafjölskyldan hefur búið sér fallegt og látlaust heimili í rúm- góðri íbúð við Rauðalæk. Steinunn Valdís er alin upp í Laugarnes- hverfinu en pabbi hennar var smið- ur og byggði tvær blokkir hlið við hlið á Kleppsveginum og þar áttu þau heima. BJARTSÝN: Steinunn Valdí s er bj rtsýn á próf kjör- ið og telur sig besta kostinn í fyrsta sæti Sam - fylkingarinnar í Reykjavík. Tak ið eftir skemmtile gu lágmyndinni á veggnum en h ún er eftir listako un a Huldu Háko . Áskriftarsími: 515 5555 Ritstjórar: Bjarni Brynjólfsson Kristján Þorvaldsson kristjan@frodi.is sogh@frodi.is Aðstoðarritstjóri: Róbert Róbertsson Útlitsteiknun og umbrot: Linda Guðlaugsdóttir Útgefandi: Tímaritaútgáfan Fróði ehf. Skrifstofa og afgreiðsla: Höfðabakki 9. Sími: 515 5500 Fax: 515 5599 Filmuvinna, prentun og bókband: Oddi hf. Áskriftarverð greitt með greiðslukorti 479 kr. Áskriftarverð greitt með gíróseðli 539 kr. ISSN 1025-9562 Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. Oddný Magnadóttir oddny@frodi.is auglýsingastjóri, sími: 515 5614 og 861 6313. U mburðarlyndi er dyggð. Í umræðunni um birtingu fjölmiðla á skopmyndum af Múhameð spámanni hefur sárlega vantað upp á umburðarlyndi og tillitssemi. Það er ljótur leikur að gantast með trúarbrögð og fáranlegt að jafnvel hinir virðulegustu fjöl- miðlar á Vesturlöndum hafi farið út í þann eltingarleik að birta myndirn- ar í nafni tjáningar- og prentfrelsis. Tilgangurinn virðist vera sá einn að ögra múhameðstrúarmönnum. Árekstrar ólíkra menningarheima er stóralvarlegt mál. Æ oftar slær í brýnu með kristnum mönnum og íslamstrúar. Stjórnvöld í Bandaríkjun- um og víðar á Vesturlöndum hafa lagt sín lóð á vogarskálarnar til að kynda undir hatri og ófriði þannig að í óefni er komið. Ófriðarbál kraum- ar undir niðri og má búast við hinu versta ef friðarins menn grípa ekki í taumana. Íslendingar eiga að geta lagt sitt af mörkum til að stilla til friðar og miðla málum. Taumlaus stuðningur íslenskra stjórnvalda við innrásina í Írak hefur vissulega dregið úr trúverðugleika okkar sem hlutlausrar þjóð- ar en það er aldrei of seint að bæta ráð sitt. Það er hagur heimsbyggð- arinnar allrar að gripið verði fram fyrir hendurnar á brjáluðum stríðsherr- um sem drepa í nafni kristninnar, líkt og George Bush. Mönnum hefur orðið tíðrætt um það síðustu árin að mikil andleg vakn- ing hafi orðið. Þannig hafi menn leitað meira inn á við og ræktað sinn innri mann. Þetta kann að virðast öfugsnúið því að á sama tíma hefur peningahyggja verið gegndarlaus hjá stórum þjóðfélagshópum. Á trúmálavefnum má lesa ágætis pistil eftir séra Halldór Reynisson. Þar veltir hann fyrir sér uppeldi og gildismati. Hann segir að þegar við drögum mörk í uppeldinu sé það gjarnan út frá ákveðnu gildismati. „Þú ferð ekki yfir ákveðin mörk af því að þá skaðar þú einhvern. Að skaða aðra manneskju er einfaldlega rangt. Að efla sjálfan sig að þekkingu og góðvild er einfaldlega gott. Það er gott af því að það byggir á þeirri for- sendu að sérhver manneskja sé dýrmæt. Sú forsenda er aftur á móti gefin og byggir á lífsskoðun eða trú. Sem sagt uppeldi sem byggir á siðferðilegu gildismati. Uppeldi sem hefur það að markmiði að koma börnum til manns. Að gera þau að manneskjum með tilfinningu fyrir öðrum mann- eskjum,“ svo vitnað sé orðrétt í pistil Hall- dórs. Tilfellið er að það er ekki sjálfgefið að við ölum upp umburðarlynda og sann- gjarna einstaklinga. Þannig bendir Halldór m.a. á að við erum ekki að troða gildismati upp á börnin okkar þótt við leiðbeinum þeim og ræðum við þau og höldum að þeim ákveðnu gildismati. Við erum einungis að hjálpa þeim til að taka afstöðu þegar þau hafa aldur og þroska til. Sýnum umburðarlyndi og gerum lífið skemmtilegra! Kristján Þorvaldsson FRÉTTASKOT SÉÐ OG HEYRT: 515 5651 HIN GÖMLU GÓÐU GILDI Óhressir dómarar! Kepp-endurnir stóðu sig allir frá-bærlega vel á sviðinu íSmáralind og því var valið ekki auðvelt fyrir landsmenn. Á endan- um var það síðan Angela Ingibjörg sem fékk fæst atkvæði og draumur hennar varð því ekki lengri. Dómararnir voru þó ekki alls kostar sammála þjóðinni því þeir voru allir á því að Tinna ætti það helst skilið að falla úr keppni. Stemmningin í salnum var alveg frá- bær og stuðningsmenn keppenda létu vel í sér heyra. Simmi og Jói gerðu reyndar þau reginmistök að mæta í uppaklæðnaði í stað hippaklæðnaðar en það var leiðrétt við fyrsta tækifæri og þeir ákváðu að skella sér bara í jakkafötin. TEXTI: SIGRÍÐUR HJÁLMARS MYNDIR: SIGURJÓN RAGNAR Angela Ingibjörg Coppola datt út úr Idol-Stjörnuleit: ALLIR FRÁBÆRIR! Það var mikið fjör í Smáralindinni á föstu- daginn þegar önnur um- ferðin í úrslitum Idol- Stjörnuleitar fór þar fram en þema kvöldsins var hippatímabilið. DRAUMURINN BÚINN: Margrét Guðrún og Angela Ingi- björg eru báðar dottnar út úr Idol- inu en það stóð ekki á brosinu þrátt fyrir það. ROSALEGA FLOTT: Ragnheiður Sara stóð sig einstaklega vel á sviðinu og var með fallega sviðsframkomu sem snerti við dómurunum sem og öðrum en að auki söng hún eins og engill. POPPARI: Sigga Beinteins sagði Nönu vera alvörupoppara, enda sýndi hún og sannaði hæfi- leika sína í Smáralindinni. ÞRJÚ Á PALLI: Eiríkur, Tinna og Angela voru í neðstu þremur sæt- unum og spennan var rafmögnuð þegar beðið var eftir úr- slitum síma- kosningar- innar. SVAÐALEGA FLOTTIR: Vinirnir Alexander Aron og Snorri voru flottir í hippafötunum baksviðs en þeir hefðu verið góðir á hippatímanum. BUBBI MEÐ HÁR: Bubbi gekk ekki alveg svo langt að fara í hár- ígræðslu eins og hann ætlaði að gera ef Tinna kæmist áfram úr fyrsta þættinum í Smáralind, heldur mætti hann með þessa líka fínu hárkollu og vakti gríðarlega lukku. Sigga kollegi hans í dómnefnd virðist eiga bágt með að venjast hárinu. ÁFRAM, PABBI: Elísabet Birta, dóttir Alexande rs Arons, mæt ti að sjálfsögðu með plakat af p abba í Vetrarga rð- inn, enda er hú n án efa hans besti stuðning s- maður. Nakinn ellismellur Bláköld nekt! Nýlega opnaði sýning áverkum bresk-bandaríska listamannsinsJohn Coplans í Listasafni Reykjavíkur.Nýskipaður forstöðumaður safnsins, Hafþór Yngvason, bauð gesti velkomna en vinur hans, Howard Yezerski, hafði milligöngu um komu sýningarinnar hingað til lands. Coplans hóf ekki feril sinn sem listamaður fyrr en um sextugt en sýningin heitir Líkamshlutar og á henni getur að líta óvenjulega nærgöngular nektarmyndir af listamanninum sem hann tók sjálfur. Myndirnar eru hispurslausar og raun- sæjar og listamaðurinn sýnir mannslíkamann með öðrum hætti en gert hefur verið áður. Gestir sýningarinnar kunnu greinilega vel að meta árangurinn og sýningin er hval- reki á fjörur listunn- enda. TEXTI OG MYNDIR: LOFTUR ATLI EIRÍKSSON FLOTT FJÖLSKYLDA: Hjónin Jón Ársæll Þórðar- son og Steinunn Þórarins- dóttir komu á opnunina ásamt syni sínum, Þórði Inga, 12 ára. Í FÍNU FORMI: Harpa Karlsdóttir var í fínu formi að vanda ásamt mæðgunum Lindu Lundbergsdóttur og Sunnefu Lindudóttir. Adriana Iliescu (67) er elsta konan sem fæðir barn: Rúmenski háskóla- prófessorinn og rit- höfundurinn Adri- ana Iliescu vakti heimsathygli er hún fæddi heilbrigða stúlku þann 16. jan- úar árið 2005, þá 66 ára gömul. ORÐIN EINS ÁRS: Adriana komst í heimsmetabók Guiness er hún fæddi dóttur, 66 ára gömul. Á myndinni sjást þær mæðgur Adriana og kraftaverkabarnið Eliza Maria sem fagnaði eins árs afmæli sínu þann 16. janúar. Gekk með þríbura! Adrianaer ekki líffræðileg móðirElizu Mariu því hún gekk ígegnum gervifrjóvgun til þess að verða þunguð. Hún fékk egg og sæði frá ónafngreindum gjöfum og varð ófrísk að þríburum. Fyrsta fóstrið dó á tíundu viku og annað á þeirri þrítugustu og fjórðu. Eliza Maria var svo tekin með keisaraskurði skömmu síðar og reyndist alheilbrigð. Margar spurningar hafa vaknað varðandi sið- ferðilegu hliðina á þessu máli þar sem ekki er líklegt að Adriana nái að vera til staðar fyrir dóttur sína í mörg ár vegna aldurs. Verið er að skoða lögin í Rúm- eníu og stefnt er að því að þau verði að- löguð öðrum lögum í Evrópu, sem kveða á um að ekki sé heimilt að ganga í gegnum þessa meðferð eftir fimmtugt. Þegar Adriana var ófrísk sagði hún í sjónvarpsviðtali að hún hefði ávallt þráð að eignast barn en ekki getað það með eðlilegum hætti. Hún segist bjart- sýn á framtíð sína sem móður þar sem langlífi sé algengt í fjölskyldu sinni. TEXTI: RAGNHEIÐUR M. KRISTJÓNSDÓTTIR MYNDIR: ALL OVER BJARTSÝN Á FRAMTÍÐINA! BROSMILD: Hafþór Yngvason, nýskipaður for- stöðumaður Lista- safns Reykjavíkur, og listakonan Svala Jónsdóttir voru brosmild við opnunina. SKÁL FYRIR SKÁMÁNA: Saman skipa Stefán Baldurs- son og Hilmir Snær Guðna- son leikhúsið Skámána en Ég er mín eigin kona er fyrsta verkefni leikhússins. Klassas tykki !Ekkert lát virð-ist ætla aðverða á aðsókn- inni á einleikinn Ég er mín eigin kona þar sem Hilmir Snær Guðnason skiptir um hlutverk eins og nærbuxur. Leikarinn rómaði sýnir og sannar hvers hann er megnugur en alls fer hann með 35 hlutverk í sýningunni. Nýlega var 50. sýningu verksins fagn- að af aðstandendum leiksins en það eru leikhúsið Skámáni og Menningar- og listastofnun Kormáks og Skjaldar. Kátt var hjá mannskapnum sem skál- aði í kampavíni af þessu tilefni. Leik- ritið byggir á sönnum atburðum en að- alpersónan er hin þýska Charlotte von Mahlsdorf sem fæddist sem karlmaður en kaus að lifa lífinu sem kona. TEXTI: LOFTUR ATLI EIRÍKSSON MYNDIR: SIGURJÓN RAGNAR KÁTT Á HJALLA: Það var kátt á hjalla hjá að- standendum Ég er mín eigin kona. F.v.: Grétar Reynisson leikmyndahönnuður, Hilmir Snær Guðnason leikari, Stefán Baldursson leikstjóri, fram- kvæmdastjórarnir Skjöldur Sig- urjónsson og Kormákur Geir- harðsson, Ísold Grétarsdóttir og Helgi Örn Pétursson, ljósa- og hljóðmaður.VINSÆL KONA Ísfirðingar í Reykjavík fagna hækkandi sól: SÆL Á SÓLARKAFFI Sól, sól skín á mig! Gamlir ogungir Ísfirðingar í Reykjavíkog nágrenni fjölmenna jafnaná hið árlega Sólarkaffi Ísfirð- ingafélagsins í Reykjavík. Á Ísafirði fagnar fólk hækkandi sól með rjómapönnukökum í janúar. Staðurinn er umvafinn háum fjöllum og sést ekki til sólar í nokkra mánuði meðan sólar- gangur er sem lægstur. Þegar sólin gægist yfir fjallstindana í janúar kætist lundin, enda getur skammdegið orðið býsna svart, sérstaklega þegar ekki snjóar mikið eins og í ár því frá snjón- um stafar mikilli birtu, hann lýsir upp fjallshlíðarnar og gleður ísfirskar skíðahetjur. „Þetta tókst ljómandi vel þótt fleiri hefðu mátt mæta,“ segir Guðfinnur Rósinkranz Kjartansson, gjaldkeri og aðaldriffjöður Ísfirðingafélagsins, en hann hefur haldið utan um fram- kvæmd Sólarkaffisins í mörg ár. Vel yfir 400 manns sóttu samkomuna á skemmtistaðnum Broadway. Að sjálf- sögðu snæddu gestir rjómapönnukök- ur undir vel völdum skemmtiatriðum og ræðuhöldum. Guðfinnur er hins vegar góðu vanur því um 800 manns sóttu Sólarkaffið í fyrra en þá var sam- koman haldin í sextugasta sinn. Bjarni Arason og Helgi Björnsson skemmtu gestum af sinni alkunnu snilld en báðir eiga ættir að rekja til Ísafjarðar. Ólafur Helgi Kjartansson, rokksýslumaður á Selfossi, stjórnaði veislunni af mikilli röggsemi en hann var áður sýslumaður Ísfirðinga. Ísfirð- ingar á Sólarkaffi sungu þjóðsöng sinn Í faðmi fjalla blárra saman en síðan hélt hljómsveitin Saga Class með Reyni Guðmundssyni, söngvara og Ís- firðingi, uppi fjörinu til þrjú um nótt- ina og var rífandi stuð á dansgólfinu. Þess má geta að Ísfirðingafélagið í Reykjavík er eitt öflugasta átthagafé- lag landsins. Félagið á húsið Sóltún á Ísafirði sem það leigir út til félags- manna. Félagið keypti nýlega íbúð í Torrevieja á Spáni svo brottfluttir Ís- firðingar geti leitað enn frekar í hlýj- una og ylinn frá sólinni. TEXTI: BJARNI BRYNJÓLFSSON MYNDIR: BJÖRN BLÖNDAL MEÐ STONES-BINDI: Rokksýslumannshjónin, Ólafur Helgi Kjartansson og Þórdís Jónsdóttir, voru kát á Sólarkaffinu en Ólafur Helgi stjórn- aði veislunni af sinni alkunnu röggsemi. Takið eftir hálstauinu sem er merkt Roll- ing Stones í bak og fyrir en Ólafur Helgi er án efa þekktasti aðdáandi þeirrar sveitar hér á landi. FLOTTUR FORMAÐUR: Ólafur Hannibals- son, formaður Ísfirð- ingafélagsins í Reykjavík, í sólar- sveiflu ásamt eigin- konu sinni Guðrúnu Pétursdóttur, fyrrum forsetaframbjóð- anda. FJÖR: Unnur Árnadóttir, María Níelsdóttir, Rúnar Jónatansson, Baldur Trausti Hreinsson leikari og Hjördís Ingvarsdóttir skemmtu sér vel á Sólarkaffi. TÓK SPORIÐ: Guðjón A. Kristjánsson, betur þekktur á Vestfjörðum sem Addi Kitta Gauj, var í fínu formi og tók sporið ásamt eig- inkonu sinni, Barböru. BROSTU BREITT: Vilberg Viggósson píanóleikari og Þóra Jóna Jón- atansdóttir kennari voru í banastuði, enda höfðu þau ekki hist lengi. REFFILEGUR: Rúnar Þór Pétursson tónlistar- maður var mættur á Sólarkaffi og skemmti sér vel. Hér er hann með Bryndísi Gunnarsdóttur, eiginkonu Reyn- is Guðmundssonar söngvara. Rúnar Þór fer um land allt og spilar en hann hefur gert það gott í Þýska- landi með píanóplötunum sínum sem seljast eins og heitar lummur, bæði þar og hér. ÚR SKÁKINNI Á SÓLARKAFFI: Einar S. Einarsson, fyrrverandi forstjóri VISA Ísland og fyrr- um formaður Ísfirð- ingafélagsins til margra ára, gaf sér tíma frá skákinni til að lyfta sér upp á Sól- arkaffi. Einar var einn af hópnum sem fékk Bobby Fischer til Íslands. Hann er hér með mági sínum sem Ísfirð- ingar þekkja sem Didda Reimars. SKÍÐAKÓNGURINN OG GJALDKERINN: Gamli skíðakóngurinn Matti Sveins mætti á Sólarkaffið og heilsar hér upp á Guðfinn Rósinkranz Kjartansson, gjald- kera Ísfirðingafélagsins. GERIR LÍFIÐ SKEMMTILEGR A! Fr bjóð ndur opn dy a ! Best í Idol! Sólarkaffi Ísfirði g ! Þorr l á S lfossi! Elsta a a í heimi! Besta dagskráin! HAGNAÐUR af rekstri Össurar á síðasta ári nam um 11,7 milljónum Bandaríkjadala, sem jafngildir um 735 milljónum króna. Er það undir meðalvæntingum greiningardeilda bankanna en meðalspá þeirra hljóð- aði upp á 818 milljónir króna. Þess ber þó að geta að hagnaðurinn var meiri en greiningardeild KB banka hafði spáð. Hagnaður ársins 2004 var 15,2 milljónir dala og er því um 23,2% afkomurýrnun á árinu að ræða en það skýrist meðal annars af því að gjaldfærður kostnaður vegna endur- skipulagningar á síðasta ári var 4,4 milljónir dala en jafnframt jukust fjármagnsgjöld um 3 milljónir dala. Össur óx mikið á liðnu ári, meðal annars með kaupunum á Royce Medical í Bandaríkjunum og fleiri fyrirtækjakaupum og má greinilega sjá þess merki í uppgjöri félagsins. Ekki síst í efnahagsreikningi en einnig í rekstrarreikningi, sem dæmi má nefna að framlegð jókst um tæp 27% á milli ára. Slíkum vexti fylgir oft mikill kostnaður, t.d. vegna end- urskipulagningar eins og nefnt var að framan en ennfremur jókst sölu- og markaðskostnaður félagsins um ríflega 11 milljónir dala. Í fréttatil- kynningu frá félaginu kemur fram að bókfærður einsskiptiskostnaður vegna fyrirtækjakaupa hafi verið 6,7 milljónir dala. Eignir félagsins nær fjórfölduðust og eigið fé þess nær þrefaldaðist á árinu. Mikill vöxtur á árinu sem leið Uppgjör Össur hf. sverrirth@mbl.is       '        -   ! <    !     0!*            1736'2 7744( !! 1(63 62647 ( ( +8'(3   ( +556     # 9    15'('2 '55156   9 *     9 *   # !* )  -  !* 1(258 158(1 46; 15; 1'8422 82555 "$ 1382 55512 #" +1'4' ! +4215   13(215 586'3 58125 '4325 17733 53; 41;  !  %& )* "#$%$! %&         )*+ , +   ÍSLENSKA breiðbandsfyrirtækið Industria hefur gert samning við sveitarfélagið Cork County Coun- cil á Írlandi um ráðgjöf og verk- umsjón við breiðbandsvæðingu sem ná mun til um 325 þúsund íbúa í fimmtán bæjum í héraðinu. Verkefnið var boðið út á evrópska efnahagssvæðinu, og varð Ind- ustria hlutskarpast í útboðinu. Áætlaður verktími er 18 mánuði og heildarkostnaður við verkið er um 1,5 milljarðar króna. Samningurinn er sá þriðji sinn- ar tegundar sem Industria gerir á Írlandi, og kemur í kjölfar tveggja annarra sem voru gerðir árið 2005 við sveitarstjórnir Galway- og Meath-héraða. Með þessu hefur Industria umsjón með breiðbands- væðingu 65% af íbúum þessara héraða á Suður-Írlandi, eða alls um 780.000 íbúa. Heildarkostn- aður verkefnanna þriggja hljóðar upp á um þrjá milljarða íslenskra króna. Haft er eftir Guðjóni Má Guð- jónssyni, forstjóra Industria, áður Oz, í tilkynningu að fyrirtækið byggi að hluta til á reynslu sinni af sambærilegum verkefnum á Norðurlöndunum en einnig ára- langri reynslu af vinnu á íslenska, danska, írska og breska fjar- skiptamarkaðnum. Guðjón segir verkefnið í Cork aðeins vera eitt mikilvægt skref til viðbótar í breiðbandsvæðingu hinna dreifðari byggða Írlands. Alls standi til að breiðbandsvæða um 80 bæi í næsta áfanga, og Ind- ustria stefni að því taka þátt í eins mörgum af þessum verkefnum og unnt sé. Industria er með skrifstofur á Íslandi, Írlandi, Englandi, og í Danmörku og Búlgaríu. Hjá félag- inu starfa rúmlega 100 manns. Samið um verk- efni á Írlandi Breiðbandsvæðing Samningur Industria við sveitarfélagið Cork County á Írlandi undirritaður, f.v. Eamonn Confrey, fulltrúi í fjarskipta-, sjávar- og náttúruauðlindamálaráðuneyti Írlands, Michael McNeill, verkefnastjóri hjá Industria á Írlandi, Sharon Corcoran, þjónustu-, skipulags- og þróun- arstjóri Cork County Council, og Simon McKenna frá Magnum Opus.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.