Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 43 DAGBÓK DOFRABORGIR - ÚTSÝNI Glæsilegt 172 fm raðhús á tveimur hæðum á fallegum útsýnisstað í Grafarvogi. Húsið er hraunað að utan og er bílskúrinn sambyggður húsinu. Stórt bílaplan er framan við húsið og er hitalögn í hluta þess. Húsið skiptist á eftirfarandi hátt. Neðri hæð: And- dyri, þvottahús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sjónvarpsstofa. Efri hæð: Stofa og borðstofa, eldhús, gestasnyrting, hjónaherbergi og fata- herbergi inn af því. V. 38 m. 5352 Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Vegleg sýning og ráðstefna verður hald-in á Nordica hóteli helgina 11. og 12.febrúar. Yfirskrift dagskrárinnar er„Golf á Íslandi 2006. – Þín íþrótt! þín sýning!“ og er Gústaf Gústafsson sýningarstjóri: „Sjálfur er ég golfari og hef stundað þessa íþrótt í um áratug. Sem kylfingur hef ég fundið fyrir vöntun á stórum árlegum viðburði sem veitir íþróttinni þá umfjöllun og athygli sem hún á skilið. Þar sem ég starfa við sýningar sá ég tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi: efla íþróttina og jafnframt halda öfluga sýningu,“ út- skýrir Gústaf tilurð sýningarinnar. „Markmiðið er að gera þessa sýningu að reglulegum við- burði sem íslenskir kylfingar láta ekki framhjá sér fara.“ Dagskráin er, sem fyrr segir, tvískipt: annars vegar hefðbundin vörusýning þar sem söluaðilar og fyrirtæki kynna vörur sínar og þjónustu; og hins vegar ráðstefna þar sem fjallað verður um ýmsar hliðar íþróttarinnar, en Golfsamband Ís- lands er samstarfsaðili um framkvæmd ráð- stefnunnar og Icelandair aðalstyrktaraðili sýningarinnar. Meðal þess sem Gústaf nefnir meðal há- punkta sýningarinnar er kylfingurinn David Edwards: „Hann er í senn skemmtikraftur og leikur sér að snúnum brögðum með golfkylfuna, en hann var, sem dæmi aðalskemmtikraftur á PGA-golfsýningunni í München í október sem leið, en sú sýning er sú stærsta sinnar tegundar í Evrópu,“ segir Gústaf. Þá verður keppni í golf- hermi, svokölluð næst-holu-keppni, en takist einhverjum gesta að fara holu í höggi hlýtur hann VW Golf Highline-bifreið að launum. „Stanslaus dagskrá er frá opnun til loka sýning- arinnar og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.“ Ráðstefnuhlið golfhátíðarinnar skiptist í þrenns konar málstofur: Í fyrsta lagi er fjallað um grasvallarannsóknir og um framkvæmdir á golfvöllum, þá er málstofa um golfíþróttina sem heilsurækt, þar sem m.a. verður fjallað um rétt- ar og rangar æfingar, og loks er málstofa um af- rekskylfinga. „Við bjóðum því upp á dagskrá sem hentar jafnt starfsmönnum og aðstand- endum golfklúbba, almennum kylfingum sem og afreksfólki í greininni. Fjöldi góðra fyrirlesara tekur þátt, bæði innlendir og erlendir, og dag- skráin er með vandaðasta móti og Golfsamband- inu til sóma,“ segir Gústaf. Nánar má lesa um dagskrá Golfs á Íslandi 2006 á slóðinni www.icexpo.is/golf. Íþróttir | Golf á Íslandi 2006, sýning og ráðstefna, haldin í fyrsta skipti á Íslandi Eitthvað fyrir alla golfáhugamenn  Gústaf Gústafsson er fæddur í Reykjavík 1973. Hann útskrifaðist frá Verslunarskóla Ís- lands 1991 og lærði kerf- isfræði í Kaupmanna- höfn 1992. Þá forritun og kerfisfræði við Raf- iðnaðarskóla Íslands 1997–1998. Nam Mark- aðs- og útflutnings- fræði 1999 og Verð- bréfamiðlun 2002–2003 við Háskóla Íslands. Gústaf stundaði sjómennsku frá 1992 til 1997, og hefur fengist við störf hjá ýmsum fyrirtækjum í hugbúnaði, síðast hjá hugbún- aðarfyrirtækinu Rhea 1999–2001. Frá 2002 hefur Gústaf starfað sem sölu- og markaðs- stjóri hjá Iceexpo. Gústaf er kvæntur Sigrúnu Bragadóttur og á hann fjögur börn. Dulin hætta. Norður ♠109762 ♥K864 ♦109 ♣95 Suður ♠K5 ♥Á9753 ♦Á6 ♣ÁKD7 Suður spilar fjögur hjörtu án afskipta AV af sögnum. Útspilið er smár tígull. Hvernig er áætlunin? Tólf slagir eru til í dæminu er allt liggur á besta veg – trompið 2-2 og spaðaás réttur. En fyrsta markmið er að tryggja tíu slagi. Fyrr eða síðar verður tígli hent úr borði í hálauf, en það þarf að huga að ýmsu öðru, til dæmis íferðinni í hjartað. Borgar sig að spila trompinu af öryggi upp á einn tapslag, eða er það of hættulegt? Norður ♠109762 ♥K864 ♦109 ♣95 Vestur Austur ♠Á84 ♠DG3 ♥DG2 ♥10 ♦D874 ♦KG532 ♣632 ♣G1084 Suður ♠K5 ♥Á9753 ♦Á6 ♣ÁKD7 Það þýðir ekkert að hugsa um 4-0 leguna í trompi, enda of hættulegt að spila fyrst litlu hjarta frá báðum hönd- um. Hins vegar er varhugavert að taka strax tvo efstu í trompi. Skoðum málið: Drepið á tígulás og ÁK í hjarta spilað. Þá er ÁKD í laufi spilað og tígli hent úr borði. Tígull trompaður og spaða spilað að kóng. En vestur á ásinn og tekur síðasta tromp blinds, svo austur fær fjórða slag varn- arinnar á laufgosa. Þessi hætta leynir á sér, en svarið er í sjálfu sér einfalt: Sagnhafi lætur nægja að taka á hjartakóng í byrjun, hendir svo tígli niður í lauf. Hann stingur síðan tígul, fer heim á hjartaás og trompar fjórða laufið. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8. Ra3 b5 9. Rd5 Be7 10. Rxe7 Rxe7 11. Bd3 Rd7 12. 0–0 Rc5 13. b4 Rxd3 14. Dxd3 f6 15. Be3 d5 16. Bc5 dxe4 17. Dxe4 Dd5 18. De2 Bb7 19. f3 Rg6 20. Hfd1 Rf4 21. Df1 De6 22. c4 Kf7 23. Hd6 Df5 24. cxb5 axb5 25. Rxb5 Kg6 26. Hd2 Hhd8 27. Hxd8 Hxd8 28. Rd6 Hxd6 29. Bxd6 Dg5 30. Kh1 h5 31. Bc5 e4 32. Be3 Þýski stórmeistarinn Arkadij Nai- ditsch (2.657) vann ofurstórmótið í Dortmund á síðasta ári en síðan þá hef- ur hann ekki teflt mikið. Á síðustu stundu var honum boðin þátttaka í B- flokki Corus-skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Hann hóf mótið af miklum krafti og leiddi það einn framan af en eftir fimm umferðir hafði undrabarnið norska, Magnus Carlsen (2.625) náð honum að vinningum. Staðan kom upp í viðureign þeirra í sjöttu umferð og hafði sá þýski með hvítu leikið tveimur slæmum leikjum röð og það nýtti undrabarnið sér til hins ýtrasta. 32. … exf3 33. gxf3 Dg4! og hvítur gafst upp þar sem eftir 34. Bxf4 Bxf3+ er staða hvíts hrunin. Naiditsch tapaði fleiri skákum til viðbótar eftir þessa viður- eign og blandaði sér því ekki í barátt- una um efsta sætið í flokknum á meðan Carlsen varð efstur ásamt rússneska stórmeistaranum Alexander Motylev (2.638). SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. 85 ÁRA afmæli. Í dag, 8. febrúar,er 85 ára Haraldur M. Helga- son, fyrrv. kaupfélagsstjóri KVA, Goðabyggð 2, Akureyri. Haraldur og kona hans, Áslaug Einarsdóttir, bjóða vinum og vandamönnum upp á kaffi á heimili sínu að kvöldi afmælisdagsins. Árnaðheilla dagbók@mbl.is RANNSÓKNARSTOFNUN KHÍ heldur opinn fyrirlestur í dag, mið- vikudaginn 8. febrúar kl. 16.15, í Bratta, Kennaraháskóla Íslands. Auður Torfadóttir, dósent við KHÍ, heldur fyrirlestur er nefnist: Er ritun vanræktur þáttur í tungu- málakennslu? Auður fjallar um rannsókn sem byggð er á úrtaki úr ritunarþætti samræmda grunnskólaprófsins í ensku vorið 2004. Þeir þættir sem einkum verður fjallað um taka til uppbyggingar texta og setninga- byggingar. Niðurstöður leiða í ljós að þar er víða pottur brotinn. Jafnvel hjá nemendum sem fá háa einkunn fyrir ritun vantar víða tilfinningu fyrir uppbyggingu og framsetningu texta. Í drögum að nýrri námskrá fyrir ensku er eitt af lokamark- miðum 10. bekkjar að nemendur hafi náð valdi á að skrifa samfelldan texta á viðeigandi máli um kunnuglegt efni og geti fylgt helstu hefðum varðandi uppbyggingu ritaðs máls. Það er brýnt að nemendur séu meðvitaðir um hvað það er sem einkennir góðan ritaðan texta og fái þjálfun í að koma hugsun sinni skipulega á framfæri, segir í fréttatilkynningu. Í lok fyrirlestrarins verður fjallað um leiðir til að koma til móts við þetta markmið. Fyrirlestur um ritun og tungumálakennslu BJARNI Helgason, grafískur hönnuður, hefur opnað sýn- ingu á Thorvaldsensbar er ber nafnið „Ostranenie; sjón- ræna, tónræna“. Í titlinum vísar hann til rússnesku, en orðið „ostranenie“ þýðir framandleiki, og kemur fyrst fyrir í ritgerð Victors Schlovskys, „Art as Procedure“ frá árinu 1917. Með verkum sínum vill Bjarni reyna að gera hið kunn- uglega ókunnugt með því að gera áhorfandanum erfitt um vik að sjá tengingu myndefnisins við upprunann – þröngva meðvitund hans til þess að sjá hlutina í nýju ljósi. Á sýningunni tekst Bjarni einnig á við þá hugmynd hvort hægt sé að myndgera hljóð og tónlist. Hann raðar saman kyrrmyndum úr myndbrotsböndum úr hversdags- lífinu svo þau mynda einskonar tónverk, eða „tónræna heild“. Framandleiki og myndgerð hljóð Bjarni Helgason: Hverfisgata – verk í svipuðum tónum (2006). Hver þekkir konuna? Á MYNDINNI er kona sem ég þarf að fá upp- lýsingar um hver er. Maðurinn á myndinni er David Snidal frá Kanada. Hann kom til Íslands sum- arið 1985 og hitti frændfólk víðs vegar um land. Ef einhver veit hver þessi kona er, þá hafið samband við Vigdísi Sigurðardóttur, sími 468 1233, netfang: borgum- @simnet.is Samskipti við Eflingu, stéttarfélag MIG langar að segja frá samskipt- um mínum við Eflingu, stéttarfélag. Þannig var að ég fékk leigt sumarhús í Úthlíð nýlega, þ.e.a.s. þorrahelgina. Við fórum glöð af stað því þarna ætluðum við hjónin að eyða helginni í rólegheitum. Er við komum á staðinn kom í ljós að við urðum að leggja bifreið okkar á götunni og þannig loka fyrir aðra umferð þar sem ekki var hægt að komast inn á bifreiðaplanið vegna snjóa. Með naumindum var hægt að komast inn á pallinn við húsið vegna snjóa, húsið ískalt er komið var inn. Heiti potturinn á kafi í snjó og fennt fyrir geymsluhurð þar sem hugsanlega var geymd skófla. Haft var samband við umsjónarmann þarna á staðnum og kvað hann það ekki vera í sínum verkahring að moka snjó af veröndinni, „þetta er ekki þriggja stjörnu hótel“ sagði hann. Þar sem enga þjónustu var þarna að fá var ákveðið að yfirgefa stað- inn án frekari dvalar. Eftir helgina var haft samband við starfsmann á skrifstofu Eflingar, þann sem sér um orlofshúsin. Ekki vildi þessi ágæti starfsmaður neitt fyrir mig gera, hvorki að endurgreiða né að lána mér hús síðar. Hann kvaðst aldrei hafa heyrt aðra eins firru, það væri nú vetur og fólk yrði að gera sér grein fyrir því. Við höfum oft farið í sum- arbústað að vetri til áður, hjá öðr- um stéttarfélögum, og aldrei fengið þvílíka þjónustu og hjá þessu ágæta félagi, Eflingu. Ég þakka þessum ágætu starfs- mönnum, bæði umsjónarmanni í Úthlíð og starfsmanni á skrifstofu, fyrir góð mannleg samskipti. Sigrún Kristinsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.