Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 29 Undanfarið hefur mik-ið verið fjallað umstaðsetningu flug-vallarins og ætlar undirritaður að leyfa sér að bæta lítilsháttar við það. Svo hagar til á þessari jarð- arkúlu að á henni eru þrjú svæði þar sem meðalvindhraði er hæstur, eitt þeirra er við Eldlandið, annað nærri Kamsjakkaskaganum og það þriðja er á hafinu milli Íslands og Færeyja. Vest- mannaeyjar eru á norðurhluta þess og þar fyrir norðan er Reykjanesskag- inn með fjalllendi sem ræður miklu um vindáttir hér um slóðir. Svo breytileg áhrif hefur það á vind- stefnurnar, að þegar komið er norður af því er ekki hægt að sjá að vindrósir Veðurstof- unnar frá Elliðavatni, Gufunesi og Reykjavík séu úr sama landsfjórðungnum. Annað dæmi um þetta er að úrkom- umagnið við Elliðavatn kvað vera fjórðungi meira en í höf- uðstaðnum. Sjálf Esjan og fjöll- in nærri henni valda líka miklu, en þau gefa sumsstaðar skjól eins og kunnugt er, en storm annarsstaðar. Saltmengað loft Í Hvalfirðinum hafa vegfar- endur tekið eftir stormhvirflum sem dansa í norðanáttum eftir sjávarfletinum í endilöngum firðinum. Þeir rífa sjóinn upp og loftið verður saltmengað. Þegar vindstrengurinn kemur fram úr firðinum er hann það stífur að það hvítnar á báru allt suður undir Keflavík. Þetta saltmengaða loft hefur afar tærandi áhrif á efnið í flugvél- unum og ekki síður leið- sögutækin. Vitaskuld fer magn hins saltmengaða lofts eftir styrk vinds og stefnu, en mesta hef ég séð saltþekjuna á bílnum mínum þegar hann hafði staðið áveðurs í á annan klukkutíma utarlega á Seltjarnarnesi, og þá var hún svo mikil að ég þurfti að nota þurrkurnar á bílnum þegar ég ók af stað. Þegar þannig blæs er hluti af morg- unverkum flugvirkja á flugvell- inum að hreinsa salthúðina af flugvélunum áður en þær fara í loftið. Það verður því að teljast frjó skáldskapargáfa hjá þeim mönnum sem láta sér detta í hug að gera nýjan flugvöll úti á Lönguskerjum þar sem saltrík- ir vindar næða að minnsta kosti úr þrem áttum. Afstaðan til staðsetningar flugvallar Nú eru borgarstjórnarkosn- ingar á næsta leiti og einn frambjóðandinn ætlar sér að setja kraft í skipulag borg- arinnar að því er hann segir: „Hafinn verði undirbúningur að íbúða- og atvinnubyggð með stækkun Örfiriseyjar að Ak- urey. Tenging við Engey og þaðan yfir á uppfyllingu í fram- haldi Kringlumýrarbrautar verði skoðuð ítarlega.“ Enn- fremur segir hann að á næsta kjörtímabili ætli hann að beita sér fyrir því að tekin verði ákvörðun um hvenær og hvert innanlandsflugið verði flutt úr Vatnsmýrinni og því fundinn annar staður í Reykjavík eða í næsta nágrenni. Þetta er annað dæmið um frjóa skáldskapargáfu. Land- fylling alla leið frá Örfirisey og út til Akureyjar! Segja má að Seltjarnarnesið og Álftanesið hafi yfirburðaaðstöðu sem flug- vallarstæði fyrir höfuðborg- arsvæðið, því aðrir möguleikar sunnan við koma varla til greina vegna ókyrrðar sem rík- ir þar tíðum. Ef Vatnsmýrin verður ekki inni í myndinni er ekki um annað að ræða en að flytja allt flugið suður á Kefla- víkurflugvöll. Svo einfalt er það. Og við skulum hafa það í huga að við næstu borg- arstjórnarkosningar mun af- staðan til staðsetningar flug- vallarins ráða mörgum atkvæðaseðlinum. Varnir gegn sjávarflóðum Svo við lítum í aðra átt. Und- anfarin ár hafa sveitarfélögin á SV- horninu veitt árlega vænar fúlg- ur til að endurbæta varnir gegn sjáv- arflóðum. Glöggir menn halda því fram að botninn á Faxaflóanum fari hægt sígandi niður á við. Því til árétt- ingar benda þeir á, að Seltjörnin sé nú orðin að sjávarbotni og á fjörum megi sjá þar sendnar mýrartorfur og í eina tíð var Hólmurinn vestan Örfiriseyjar verslunarstaður kaupstaðarins. Þar er nú skerið eitt eftir en það minnir samt á sig á fjörum. Fleira má segja um þetta en ekki er úr vegi að minna á Báts- endaflóðið sem átti sér stað fyr- ir um 200 árum. Segja má að það hafi verið sérstakt tilfelli, en hefðu lægðirnar sem hrjáðu Vestur-Evrópu í haust villst hingað með tilheyrandi bram- bolti gæti eitthvað svipað átt sér stað. Þetta stórviðri gekk yfir allt Suðvesturlandið og sjórinn gekk langt á land upp og olli víða miklu tjóni. Geir biskup Vídalín, sem bjó á Lambastöðum á Seltjarnarnesi, lýsti því og taldi hann flóðhæð- ina hafa verið fimm álnum eða um þremur metrum hærri en í öðrum stórstraumsflóðum. Braust sjórinn þvert yfir nesið fyrir innan býlið og var þar hvorki fært mönnum né hest- um. Nú er mesta flóðhæð í stór- straumi talin tæpir fimm metr- ar svo varlegt er að áætla að flóðið hafi þá daga náð vel yfir sex metra hæð. Við þær að- stæður hefði sjórinn nú á dög- um gengið upp um holræs- isaugun í Austurstræti. Líka eru til heimildir fyrir því að í því sama flóði skar sjórinn Álftanesið líka í sundur um tjarnirnar sem þar eru. Fólksfjölgun og skipting sveitarfélaga Nú eru landsmenn orðnir 300.000 og hefur þjóðin þrefald- ast að tölu á 75 árum og gera má ráð fyrir að mesta fjölgunin verði hér suðvestanlands. Reikna má með að á hverjum 40 árum fjölgi þeim um a.m.k. 100.000 manns. Því miður hefur borgarstjórnin undanfarið stefnt að því að þétta byggðina í norðurhluta borgarinnar. En því fylgir að þangað veitir ekki af greiðum samgönguæðum frá öðrum borgarhlutum. Meginhluti þjóðarinnar býr hér á höfuðborgarsvæðinu í sjö sveitarfélögum með mismun- andi mörgum íbúum eins og kunnugt er. Sjö bæjarstjórar eða sveitarstjórar. Litlir kóng- ar með skotthúfur, þar sem hver hugsar um sitt ríki. Sjö sveitarstjórnir, jafnmargir skipulagsstjórar og skipulags- nefndir. Ekki er ósennilegt að við skipulagsvinnu á svæðinu starfi meir en þrjú hundruð manns. Þar að auki fjalla allar sveitarstjórnirnar um hvert og eitt mál sem leysa þarf. Lítum á nokkur atriði sem sýna þetta misgengi. Seltjarn- arnes er í sama kjördæmi og Sandgerði og Grindavík, Kópa- vogslandi er skipt í þrjá að- skilda landshluta, Reykjavík í tvo, Garðabær og Bessa- staðahreppur eiga sameign, Litla kaffistofan er í Ölf- ushreppi, Elliðavatn tilheyrir höfuðborginni, en Gunn- arshólmi Kópavogi. Skipulag sveitarfélaganna er lítið sam- ræmt. Hafnir í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi þjóna öllu sviðinu. Orkuveita Reykja- víkur sér öllu svæðinu utan Sel- tjarnarness fyrir hitaveitu og á allar lagnir henni tengdar og svo má lengi telja. Ef við lítum á þátt ríkisins þá eru á svæðinu fjögur aðskilin sýslumannsembætti og lög- gæslur, fjórar stofur almanna- trygginga, tvær tollstofur og skattstofur og fjölmargar skólanefndir framhalds- skólastigsins auk annarra starfa sem verður að hafa sam- vinnu um. Þróun höfuðborgar- svæðisins Þótt þessi atriði sem hér hafa verið nefnd komi ekki beinlínis flugvallarmálinu við hafa þau samt sína þýðingu vegna þró- unar höfuðborgarsvæðisins eins og síðar verður vikið að. Aðrar þjóðir svo sem Norð- urlandaþjóðirnar og kunningjar okkar í Winnipeg lentu á sínum tíma í því að fleiri sveitarfélög voru á afmörkuðu svæði, en þar var líka andstaða hjá for- ráðamönnunum um að samein- ast. Þá tóku löggjafarþingin af skarið og samþykktu lög um sameiningu. Síðan hafa engar óánægjuraddir heyrst þar. * Eins og fram hefur komið hefur stefna borgarinnar verið undanfarið að þétta byggðina, einkanlega í eldri hlutanum. Nærri flugvellinum er búið að ráðstafa stórum svæðum undir stækkun Landspítalans og til nýs háskóla vestan við Öskju- hlíðina. Þar eiga að vera vinnu- staðir fyrir þúsundir manna sem flestir munu koma sunnan að, en sáralítið hefur verið hugsað fyrir samgönguæðum þaðan til þessara nýju hverfa. Og þá fer ekki hjá því að líta þarf til fjölda sveitarfélaganna á þeim slóðum. * Eins og margir vita eru leir- ur í botni Kópavogs og Foss- vogs sem koma upp úr á fjörum. Eru þær mörgum til leiðinda. Ef gerðar verða land- fyllingar út yfir þær má gera þar akbraut sem liggur þvert yfir Kársnesið og vogana og tekur hún land vestan við kirkjugarðinn í Fossvogi og getur mætt þar Hlíðarfæti. Síð- ar meir er líka hugsanlegt að gera veg fyrir létt farartæki lengra til vesturs og smeygja honum niður fyrir enda NS- flugbrautarinnar og tengja hann að lokum við enda Suður- götunnar. * En til þess að þetta nái fram að ganga þarf að fækka sveit- arfélögunum og gera heild- arskipulag af öllu svæðinu kringum höfuðborgina. Þau eru of mörg. Um það eru allir sam- mála En hversu mörg? Til greina kemur að steypa þeim saman í eitt. En vænleg- ast telur undirritaður að þau verði þrjú. Hafnarfjörður og Bessastaðahreppur geta sam- einast, Garðabær og Kópavog- ur og síðan Seltjarnarnes, Reykjavík og Mosfellsbær. Reykjavíkurflugvöllur Eftir Ólaf Pálsson ’En til þess að þettanái fram að ganga þarf að fækka sveit- arfélögunum og gera heildarskipulag af öllu svæðinu kringum höf- uðborgina.‘ Höfundur er verkfræðingur. Ólafur Pálsson hugmyndum sem upp koma um al- þjóðlega skóla. Slíkir skólar eru eðli málsins samkvæmt dýrir, nemendur gjarnan mun færri en almennt gerist. Með stuðningi atvinnulífsins mætti gera alþjóðlegan skóla að raunhæfum kosti, einnig fyrir Íslendinga. Allar hugmyndir sem miða að því að fá vel menntaða sérfræðinga af erlendu bergi brotnu til starfa á Íslandi byggja á því að börn þeirra geti stundað nám í alþjóðlegum skólum á öllum menntastigum. Greitt verði fyrir menntun Hjá framtíðarhópnum kom fram sameiginlegur skilningur á þeim auði sem menntunin er. Viðskiptaráð telur því eðlilegt að þeir sem þann auð öðl- ist greiði fyrir það með einhverjum hætti. Því megi heldur ekki gleyma að kröfur til menntastofnana aukist sí- fellt og kostnaðurinn þar með. Hófleg skólagjöld eru eðlilegt framhald þeirrar þróunar, segir í skýrslunni. Fjallað er sérstaklega um málefni aldraðra í skýrslunni og meðal þess sem fram kemur er að tryggja þurfi öldruðum þá virðingu og frelsi sem þeir eigi skilið og þeim verði gert kleift að vera eins lengi heima og þeir kjósa og mögulegt sé. Mikilvægt sé að búa öldruðum gott öryggisnet í formi heilbrigðisþjónustu og þeirrar fé- lagslegu aðstoðar sem þörf sé á til þess að aldraðir geti búið einir og sjálfstæðir eins lengi og þeir treysta sér til. Viðskiptaráð telur að athuga eigi samþættingu þeirrar þjónustu sem heilsugæslan annars vegar veitir öldruðum og félagsþjónustan hins vegar og þá jafnvel að einkaaðilar taki hana að sér að hluta eða í heild í formi þjónustusamninga. Bent er á að í út- tekt Hagfræðistofnunar Háskóla Ís- lands sem unnin var fyrir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, komi fram að hvert hjúkrunarrými kostaði 12.500 krónur á dag, meðan þrjár vitj- anir í heimaþjónustu kostuðu 8.000 krónur. Hægt er því að ná fram um- talsverðri hagræðingu með því að efla heimaþjónustu í stað þess að fjölga hjúkrunarrýmum, segir Viðskiptaráð. Möguleikar lífeyrissjóðanna eru Viðskiptaráði hugleiknir í skýrslunni og þar lagt til að frelsi þeirra til fjár- festinga verði aukið. Fjallað er um styrka stöðu íslenska lífeyriskerfisins og fram kemur að íslenska þjóðin eigi meira en 1,1 billjón króna í lífeyr- iskerfinu – sem jafngildi um 120% af vergri landsframleiðslu. Spár geri ráð fyrir að eignir sjóðanna eigi eftir að tvöfaldast á næstu tíu árum miðað við ávöxtun síðustu ára. Ríkið og einstaklingurinn Síðasti kafli skýrslunnar ber yf- irskriftina Ríkið og einstaklingurinn og er þar m.a. fjallað um umfang hins opinbera og hvernig draga megi úr því. Er m.a. lagt til að einkaaðilum verði treyst í auknum mæli til að reka heilbrigðisstofnanir og að Ísland verði kynnt sem land heilbrigðis. Þá er lagt til að einkaaðilar taki við fleiri þáttum almannatryggingakerfisins, t.d. líf- eyrissjóðirnir. Viðskiptaráð vill að einkaaðilar byggi, fjármagni og reki fleiri samgöngumannvirki og að ríkið hætti að stunda samkeppni við bank- ana um fjármögnun íbúðarhúsnæðis. Þá vill ráðið að tollar og landbún- aðarstyrkir verði afnumdir, ráðu- neytum verði fækkað úr 14 í jafnvel sjö og að ríkisstofnunum, sem séu í dag ríflega 1.000 talsins, verði fækkað án þess að það valdi auknum kostnaði. Viðskiptaráð Íslands vill beita sér fyrir því að í ár fari fram umræða á ýmsum sviðum þjóðlífsins um lang- tímastefnumótun fyrir Ísland. Með það að leiðarljósi hefur ráðið því skipulagt fundi með fyrirtækjum, stofnunum, aðilum úr menningarlífinu og háskólum til að skapa margháttaða umræðu um Ísland árið 2015. Skýrsla ráðsins er innlegg í slíka umræðu. gjöfinni. Skatt- töðugri mótun erslum atvinnu- nnings. fjárfestingu út- nahagslífi hér- mati Við- kref erlendrar rtækja verður ð verði fyrir fjár- ér á landi. útrás fyrirtækja á að íslensk fyr- eldur þurfa út- ð hluthafar í ís- í gegnum rslunni. ylda hópsins er sér- stæður fjöl- rfi menntunar í miðstýring í nnkuð, að leik- r svo að þeir kstrareiningar átttaka foreldra andsins verði mati Við- eim sem sækja n erlendis. mikilvægt að ís- vel á móti þeim óðleg a og þjónustu Morgunblaðið/Kristinn rði minnkuð, að leikskólar verði stækkaðir svo að þeir aka foreldra og nemenda í skólum landsins verði aukin. sunna@mbl.is en eru engu að síður – eða kannski einmitt þess vegna – í fremstu röð þegar samkeppnishæfni ríkja er met- in. Um hvað snýst valið? Hægri flokkar hafa almennt þá stefnu í skattamálum að draga úr skattbyrði þ.e. minnka sneið ríkisins af þjóðarkökunni. Þess vegna vilja hægri flokkar minnka ríkið og draga úr samneyslu. Þetta er líka stefna Sjálfstæðisflokksins – í orði. Á borði er Sjálfstæðisflokkurinn einhver mesti skattheimtuflokkur sem hér hefur verið og formaður hans skatta- kóngur Íslands. Það sem verra er, Sjálfstæðisflokkurinn hefur með stefnu sinni stóraukið ójöfnuð í sam- félaginu. Samfylkingin býður fram skýran valkost gegn þeirri stefnu, jafn- aðarstefnu byggða á réttlæti og sam- ábyrgð. stækkað. Hið opinbera tekur nú til sín í skatttekjur um 40% af lands- framleiðslunni en tók 34,3% árið 1995. Kakan hefur vissulega stækkað mikið á þessum tíma en ríkið tekur til sín talsvert stærri hluta hennar en áður. Ég er í sjálfu sér ekkert ósátt við hlut hins opinbera – en ég tilheyri líka jafnaðarmannaflokki en ekki hægri flokki. Ég er þeirrar skoðunar að hlutfall skatttekna af landsframleiðsl- unni sé ekki óeðlilega hátt – ef við not- um skattana til að auka jöfnuð og halda uppi öflugu menntakerfi og góðri velferðarþjónustu. Samneysla, sem stuðlar að auknum lífsgæðum, og samábyrgð er sú stefna sem jafn- aðarmannaflokkar almennt aðhyllast og er grundvöllur hinna norrænu vel- ferðarríkja. Þeirra ríkja sem búa við mestan jöfnuð allra ríkja í heiminum tleysismörkin þús. kr. á mán- u að vera um 85 þau hefðu hald- i sínu frá árinu a hittir alla fyrir yngst hjá þeim eð lægstu tekj- ir byrja fyrr en rga skatta. Á hefur kaup- rra sem hæstar rnar aukist þre- en þeirra sem a úr býtum. st skattastefna hnotskurn. hægri flokks amfélaginu. ra skattheimtu fur aukist á æðisflokkurinn rsætis- og fjár- r hins opinbera í einfaldlega s Höfundur er formaður Samfylkingarinnar. ’Þetta er skattastefnahægri flokks sem eykur ójöfnuð í samfélaginu.‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.