Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 51
Sími - 551 9000 M YKKUR HENTAR **** 400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu WALK THE LINE kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA MEMOIRS OF A GEISHA kl. 6 og 9 LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA 6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA BESTA TÓNLISTIN, JOHN WILLIAMS GOLDEN GLOBE VERÐLAUN FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! THE FOG Sími 553 2075 • www.laugarasbio.is „...falleg og skemmtileg fjölskyldumynd...“ MMJ Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára Mögnuð stríðsmynd með Jake Gyllenhaal og Óskarsverðlaunahöfunum Jamie Foxx og Chris Cooper. DÖJ, Kvikmyndir.com eeee VJV, Topp5.is eee H.J. MBL Sýnd kl. 6 F U N Sýnd kl. 6, 8 og 10 STÓRKOSTLEG SAGA UM ÁSTIR OG ÁTÖK BYGGÐ Á HINNI ÓGLEYMANLEGU METSÖLUBÓK EFTIR ARTHUR GOLDEN BESTA TÓNLISTIN, JOHN WILLIAMS GOLDEN GLOBE VERÐLAUN eeeKvikmyndir.com eee Kvikmyndir.is eee Rolling Stone eee Topp5.is Sýnd kl. 5 og 8 VINSÆLASTA MYNDIN á Íslandi í dag! 6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA eee Kvikmyndir.com eee Kvikmyndir.is eee Rolling Stone eee Topp5.is MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 51 Undanfarin ár hafa verið árpóstmódernískrar róm-antíkur í tónlistinni. Allt getur gengið, allt má, gamalt og nýtt gengur saman, þjóðlegt og al- þjóðlegt gengur saman, rokkaðar rómönsur, röppuð ritornelli … allt á nótum umburðarlyndis, víðsýni, þess að vera gjaldgengur – og jú, líka sem betur fer, oft, frumleika. And- ófið gegn fortíðinni virðist fyrst og fremst hafa skilað sér í fegurð. Tón- list síðustu ára hefur umfram allt verið falleg og höfðað til hjartans, ekki síður en til höfuðsins. Engar sérstakar kröfur eru gerðar um of- urvitsmunalega aðferðafræði – tón- listin verður fyrst og fremst að „sánda“ vel. Nýrómantíkerar gömlu austantjaldslandanna riðu á vaðið með þýðri, fallegri tónlist; Gorecki, Pärt, Vasks og fleiri og við höfum eignast stórvirki sem stafa stakri fegurð – þar nægir að nefna Sam’s Mass og Jólaóratoríu Johns Speight, Óttusöngva á vori og Aldasöng Jóns Nordals, Skálholtsmessu Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar, Passíu og Sellókonsert Hafliða Hallgríms- sonar. Detti nú engum í hug að fal- lega tónlistin sé á nokkurn hátt óvandaðri smíðar en aðrar – þar er auðvitað ekkert samasemmerki á milli. Fyrir austantjaldsskáldin var feg- urðin og samruninn við löngu liðna fortíð vafalítið andóf gegn ríkisrek- inni raunsæismúsík ráðstjórn- arinnar, meðan hér og víða annars staðar hefur andófið – meðvitað eða ómeðvitað beinst að módernism- anum, tilraunatónlistinni og þeim landlægu viðhorfum almennings að nútímatónlist væri „óáheyrileg, lag- línulaus og ljót“, eins og oft á tíðum heyrðist sagt.    Öldin er sem sagt önnur og nýtónlist hefur gert Myrka mús- íkdaga, sem nú standa sem hæst, að hátíð sem hinn almenni hlustandi vill sækja og sækir. Það þarf vart að taka fram hversu nauðsynlegur vettvangur Myrkir músíkdagar eru fyrir músíklífið í landinu. Þar getur að heyra allt það nýjasta í tónlistinni en líka eldri verk sem sum hver heyrast allt of sjaldan. Það færist líka í vöxt að ný erlend verk séu flutt á hátíðinni og það er gott því heimskt er heimaalið barn – og nauðsynlegt bæði fyrir tónskáld, tónlistarmenn og áheyrendur að heyra okkar sköpun í samhengi við það sem skapað er annars staðar. Myrkir músíkdagar eru líka sá vett- vangur þar sem áhugasamir geta spekúlerað í tónskáldum framtíð- arinnar. Það er á engan hallað þótt nafn Huga Guðmundssonar sé nefnt nú – verk hans á opnunartónleikum hátíðarinnar fékk afar góðar við- tökur, eins og reyndar segja má um flest öll hans verk, frá því að hann útskrifaðist út tónsmíðadeild Tón- listarskólans í Reykjavík fyrir fimm árum. Haraldur Vignir Sveinbjörns- son er annað ungt tónskáld sem vert er að fylgjast með, en verk hans, sem leikið verður á Sinfóníutón- leikum Myrkra músíkdaga annað kvöld, Sjö byltur svefnleysingjans, hefur vakið athygli og var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2004. Báðir þykja þeir Hugi og Har- aldur Vignir semja „falleg“ verk. Það á þó ekki við um öll tónskáld yngstu kynslóðarinnar. Í þeirra hópi er líka fólk sem á það til að ögra rækilega. Áki Ásgeirsson, einn for- sprakka Atónal Future, er í þeim flokki, en verk eftir hann eru líka á dagskrá Myrkra músíkdaga í ár. Tinna Þorsteinsdóttir píanóleik- ari segir í viðtali í blaðinu í dag, að þótt fegurðin hafi verið ríkjandi í tónlist síðustu ára, bendi margt til þess að tilraunastarfsemi í tónlist- inni sé í vexti á nýjan leik, en að meira umburðarlyndi sé gagnvart henni nú en var á dögum módern- ismans. Þeir Hugi, Haraldur Vignir og Áki eru af sömu kynslóð tónskálda og eiga fortíð saman í Atónal Fut- ure, sem nú er orðinn að Atón. Það verður forvitnilegt að fylgjast með hvernig tónlist þessara ólíku tón- skálda vindur fram á næstu árum; og hvort verður ofan á – það sem heillar eða það sem ögrar. Ögrun eða fegurð ’Allt getur gengið, alltmá, gamalt og nýtt geng- ur saman, þjóðlegt og al- þjóðlegt, rokkaðar róm- önsur, röppuð ritornelli … allt á nótum umburðarlyndis, víðsýni, þess að vera gjaldgengur – og jú, líka sem betur fer, oft, frumleika.‘ Haraldur Vignir Sveinbjörnsson begga@mbl.is AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir Áki Ásgeirsson Hugi Guðmundsson Halldór Ásgeirsson með lifandi myndgjörning á opnunartónleikum Myrkra músíkdaga um helgina. Spurning hvort hann hafi ögrað eða heillað. KANADÍSKI tónlistarmaðurinn og ljóðskáldið Leonard Cohen var vígð- ur inn í kanadísku frægðarhöllina á sunnudaginn fyrir framlag sitt til tónlistar. Lítið hefur farið fyrir Coh- en undanfarin misseri en hann varð fyrir gríðarlegu áfalli þegar upp komst að umboðsmaður hans til 17 ára hafði, ófrjálsri hendi, tekið 300 milljónir íslenskra króna af banka- reikning Cohen á meðan hann dvaldi í búddaklaustri á árunum 1994–1999. Liggur sú kæra enn fyrir í Los Ang- eles. Cohen, sem er orðinn 71 árs gam- all, virtist hins vegar í fínu formi þeg- ar hann tók við verðlaununum á sunnudaginn en með honum var hawaiísk kærasta hans til nokkurra ára og samstarfsmaður, Anjani Thomas. Tónlistarmennirnir Willie Nelson, k.d. Lang og Rufus Wain- wright vottuðu Cohen virðingu sína og léku lög eftir listamanninn. Nel- son flutti mjög alþýðlega útgáfu af laginu „Bird on a Wire“ en Lang söng að sögn viðstaddra, ógleym- anlega útgáfu af laginu „Hallelujah“. Cohen var augljóslega mjög hrærður eftir að hafa horft á mynd- band þar sem farið var yfir feril hans, en sló einnig á létta strengi. „Ef ég vissi hvaðan góðu lögin koma, þá færi ég þangað oftar,“ sagði Cohen. „Þið hafið verið mér svo góð í gegnum ár- in, hjarta mitt er fullt af þakklæti. Þetta eru forréttindi og ég er mjög stoltur yfir því að þið skulið kunna að meta það sem ég hef gert,“ sagði Cohen þegar hann tók við viðurkenn- ingunni. Í maí er von á 250 síðna ljóðabók með teikningum frá Cohen en síðar á árinu er von á nýrri hljómplötu auk þess sem Thomas mun gefa út plöt- una Blue Alert sem inniheldur texta eftir Cohen en hann stjórnaði jafn- framt upptökum á plötunni. Leonard Cohen hefur á ferli sínum sent frá sér ellefu hljóðversplötur. Sú fyrsta, The Songs of Leonard Cohen, kom út árið 1968 en sú síðasta Dear Heather kom út fyrir tveimur árum. Cohen lagði út á tónlistarbrautina til að afla sér tekna þegar ferill hans sem ljóðskáld gekk ekki sem skyldi. Aðdáendur listamannsins hafa frá því í fyrra reynt að þrýsta á að Cohen verði veitt Nóbelsverðlaunin í bók- menntum. Leonard Cohen hefur samið mörg snilldarlögin í gegnum tíðina. Í tónlist af nauðsyn Tónlist | Leonard Cohen vígður inn í kanadísku frægðarhöllina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.