Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 19
MINNSTAÐUR
Rimini
frá 43.895 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, vikuferð í maí eða 21. júní.
Riviera íbúðahótelið.
Vinsælasta sólarströnd
Ítalíu - Ath. tilboð á fyrstu
300 sætunum
Króatía
frá 45.895 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjónmeð 2 börn,
2-11 ára, vikuferð í maí eða sept.
Diamant íbúðahótelið.
Heitasti staðurinn í fyrra.
Brottfarir í júní og ágúst
að seljast upp
Costa del Sol
frá 39.696 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 3 börn, 2-11
ára, vikuferð 25. maí eða 22. júní.
Castle Beach íbúðahótelið.
Margar brottfarir
í júní og ágúst
að seljast upp
Mallorca
frá 35.495 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, vikuferð 25. maí eða 22. júní.
Brasilia íbúðahótelið.
Frábærir gististaðir
Margar brottfarir
að seljast upp
Fuerteventura
frá 34.695 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, vikuferð í maí eða júní.
Oasis Royal íbúðahótelið.
Glæsilegasta
nýjungin
sumarið 2006
Benidorm
frá 17.188 kr.
Flugsæti til Alicante með sköttum.
Gildir í valdar brottfarir.
Netverð á mann.
Sala hafin!
- Ath. tilboð á fyrstu 300
sætunum
Barcelona
frá 23.990 kr.
Flugsæti með sköttum. Fargjald A.
Netverð á mann.
Sala hafin!
Barcelona – alltaf vinsæl
Lloret de Mar
frá 36.495 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, 5 nætur í maí eða júní (nema 29.
júní). Bolero íbúðahótelið.
Sala hafin!
Lloret de Mar
– frábærir gistivalkostir
Bókaðu núna og tryggðu þér10.000 kr.afslátt á mann!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
Bókaðu beint á www.heimsferdir.is
Sumar
2006
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
20
3
40
Reykjavík | Gjaldfrjálsir leikskólar,
nýir kjarasamningar og samdráttur í
fjárfestingu er það sem hæst ber í
frumvarpi að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir næstu þrjú
árin sem tekin var til fyrri umræðu í
borgarstjórn í gær, en Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir borgarstjóri mælti
fyrir frumvarpinu.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
lögðu til við fyrri umræðu um
þriggja ára áætlunina í borgarstjórn
í gær að frumvarp að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar til næstu þriggja
ára yrði dregið til baka og lögð fram
endurskoðuð áætlun þegar búið væri
að endurskoða fjárhagsáætlun fyrir
yfirstandandi ár.
Í bókun meirihluta Reykjavíkur-
listans með áætluninni segir að
áfram verði stigin framfaraspor í
rekstri og þjónustu Reykjavíkur-
borgar á næstu árum samkvæmt
frumvarpinu. Leikskóladvöl verði
gjaldfrjáls haustið 2008, kjör lægst
launaða starfsfólksins verði stórbætt
og skuldir borgarsjóðs greiddar nið-
ur um hátt í einn milljarð króna
næstu árin.
Í bókun sjálfstæðismanna segir að
frumvarpið sýni frekar óskhyggju en
raunhæfar áætlanir. Þar sé að finna
„áframhaldandi lóðabrask á kostnað
borgarbúa og falsloforð um lækkun
skulda og batnandi afkomu sem ekki
verður staðið við“. Tillagan um að
áætlunin yrði dregin til baka var
felld með átta atkvæðum gegn sjö.
Benda sjálfstæðismenn á að engin
grein sé gerð fyrir kostnaðarauka
vegna nýgerðra kjarasamninga á
árinu 2006, og kynntar séu „háar
slumptölur“ vegna áranna 2007–
2009. Ekki séu kynntar sundurliðað-
ar tölur til framkvæmda í yfirstand-
andi fjárhagsáætlun þar sem fram
komi hvert áætlað sé að verði fram-
lag til hvers einstaks verkefnis á
hverju ári fyrir sig.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd-
viti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn,
benti við umræður í borgarstjórn á
að gert væri ráð fyrir 3,5 milljörðum
króna í hreinan hagnað af lóðasölu á
árunum 2007–2009, og við þetta
bættist hagnaður á yfirstandandi ári
upp á 1,5 milljarða króna. „Þannig
hyggst R-listinn velta um 5 milljörð-
um króna yfir á húsbyggjendur og
kaupendur á fjórum árum eða um 2–
2,5 milljónum króna á hverja íbúð,“
sagði Vilhjálmur.
Stefnir í óefni hjá Strætó
Hann benti einnig á að skuldir
Reykjavíkurborgar héldu áfram að
hækka. Þegar Reykjavíkurlistinn
hefði tekið við stjórn borgarinnar
hefðu skuldir án lífeyrisskuldbind-
inga verið um fimm milljarðar króna,
en yrðu á árinu 2009 um 120 millj-
arðar króna, á verðlagi ársloka 2005.
Vilhjálmur sagði stefna í algert
óefni í rekstri Strætós bs., skuldir
hefðu aukist og framlög Reykjavík-
urborgar langt umfram áætlanir.
„Nýtt leiðakerfi Strætó hefur mis-
heppnast, farþegum hefur fækkað,
tekjur minnkað og kerfið þjónar
miklu verr en hið eldra ýmsum hóp-
um, ekki síst börnum og eldra fólki.“
Fyrri umræðan um þriggja ára áætlun Reykjavík-
urborgar til umræðu á fundi borgarstjórnar í gær
Lagt til að frumvarpið
yrði dregið til baka
Hlíðahverfi | Framkvæmdir við
nýtt íþróttahús Menntaskólans við
Hamrahlíð ganga vel og eru á
áætlun samkvæmt upplýsingum
frá Lárusi H. Bjarnasyni, rektor
skólans. Gert er ráð fyrir að hús-
inu verði skilað 1. desember á
þessu ári og verður það tekið til
notkunar á vorönn 2007.
Að sögn Lárusar verður nýja
húsið ekki hefðbundið íþróttahús
að því leytinu til að í því verður
ekki aðeins einn stór íþróttasalur.
Lagt var upp með að hafa einn
stóran sal og svo þrjá minni, m.a.
tækjasal og veggtennissal. Einnig
verða í húsinu tólf nýjar kennslu-
stofur og t.a.m. mun raungreina-
kennsla færast yfir í nýja húsið.
Einnig verða almennar kennslu-
stofur og nýtt bókasafn.
Lárus reiknar með að hægt
verði að taka við fleiri nemendum
í kjölfar framkvæmdaloka. „Við
erum reyndar búin að taka út svo-
lítið af fjölguninni fyrirfram með
því að troða í allar mögulegar
kompur. En þegar húsið var hann-
að var gert ráð fyrir að hægt yrði
að fjölga nemendum úr 950 til
1.000 í rúmlega 1.100 nemendur,“
segir Lárus en á haustönn 2005
voru 1.050 nemendur skráðir til
náms við skólann. Það mun því að-
eins fjölga lítillega til viðbótar en
aðallega mun aðstaðan vera til
batnaðar. „Við höfum búið alveg
feikilega þröngt og ég held að við
séum næst á eftir Kvennaskól-
anum þegar litið er til fermetra-
fjölda á hvern nemanda,“ segir
Lárus H. Bjarnason.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinna við nýtt íþróttahús Mennta-
skólans við Hamrahlíð á áætlun
Reykjavík | Gengið hefur verið frá
ráðningu tveggja nýrra fram-
kvæmdastjóra þjónustumiðstöðva í
Reykjavík. Sólveig Reynisdóttir fé-
lagsráðgjafi hefur verið ráðin fram-
kvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar
Árbæjar og Grafarholts og Sigtrygg-
ur Jónsson sálfræðingur hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Þjónustu-
miðstöðvar Miðborgar og Hlíða.
Sólveig hefur gegnt starfi félags-
málastjóra og síðar sviðsstjóra fjöl-
skyldusviðs Akraneskaupstaðar frá
árinu 1986. Hún hefur starfað sem fé-
lagsráðgjafi á Vífilsstöðum, við
barna- og unglingageðdeild Lands-
spítalans og við útideild Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar.
Sólveig lauk starfsréttindanámi í
félagsráðgjöf frá Háskólanum í
Lundi árið 1979, framhaldsnámi í fé-
lagsráðgjöf við sama skóla árið 1986
og viðbótarnámi í opinberri stjórn-
sýslu og stjórnun frá Endurmennt-
unarstofnun HÍ árið 2001.
Sigtryggur lauk BA-prófi í sál-
fræði frá Háskóla Íslands árið 1976,
embættisprófi í sálfræði frá Háskól-
anum í Lundi árið 1979, framhalds-
námi í fjölskyldumeðferð árið 1988 og
stundar nú nám í stjórnun á vegum
NOPUS, við Háskólann í Linköping.
Sigtryggur hefur starfað sem yf-
irsálfræðingur hjá Félagsþjónust-
unni í Reykjavík, nú velferðarsviði,
frá árinu 1997. Hann hefur starfað
sem skólasálfræðingur, sem deildar-
sálfræðingur við göngudeild Ung-
lingaheimilis ríkisins og var fram-
kvæmdastjóri Sálfræðingafélags
Íslands um fimm ára skeið. Sigtrygg-
ur hefur rekið eigin sálfræðistofu frá
árinu 1987, hefur kennt á fjölda nám-
skeiða og annast stundakennslu á há-
skólastigi.
Nýir framkvæmdastjórar
þjónustumiðstöðva borgarinnar
Sigtryggur
Jónsson
Sólveig
Reynisdóttir
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ