Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Jakarta. AP, AFP. | Vísindamenn hafa uppgötvað „nýjan
heim“ á einangruðum frumskógarsvæðum í Indónesíu,
nýjar tegundir froska, fiðrilda og plantna og einnig stór
spendýr, sem annars staðar eru í útrýmingarhættu.
„Þetta er það næsta, sem hægt er að komast aldin-
garðinum Eden,“ sagði Bruce Beehler, annar leiðang-
ursstjóranna, eftir ferð hópsins um Foja-fjöllin á norð-
vestanverðri Nýju-Gíneu í desember sl. Um er að ræða
tveggja milljóna hektara svæði, sem vaxið er fornum
frumskógi.
Það vakti athygli vísindamannanna hvað dýrin voru
óhrædd við manninn og þeir nefna sem dæmi, að þeir
fundu tvo mjónefi eða maurígla, spendýr, sem verpa
eggjum, og gátu þeir meðhöndlað þá og eggin þeirra að
vild.
Fyrir utan nýjar tegundir af froskum og fiðrildum,
fannst mikið af nýjum plöntum, meðal annars fimm nýir
pálmar og alparós með 15 cm breitt blóm.
Í leiðangurshópnum voru 11 menn frá Bandaríkj-
unum, Ástralíu og Indónesíu og voru þeir fluttir á stað-
inn með þyrlu.
„Þarna var ekki að finna neina stíga, enga manna-
byggð og ekkert, sem benti til, að hún hefði nokkru sinni
verið þarna,“ sagði Beehler, sem bætti við, að fjölbreytni
dýra- og plöntulífsins væri svo mikil, að leiðangursmenn-
irnir hefðu aldrei farið langt frá búðunum. „Það má því
segja, að við höfum bara fengið reykinn af réttunum.“
Fundu heimkynni paradísarfugls
Meðal þess, sem vísindamennirnir fundu, var kengúra,
sem lifir í trjám og var áður talin um það bil útdauð, og
ný fuglategund, sem lifir á hunangi. Þá tóku þeir í fyrsta
sinn myndir af einni tegund paradísarfugla, sem kennd
er við þýska náttúrufræðinginn Hans von Berlepsch.
Var henni fyrst lýst á 19. öld og þá stuðst við dauða fugla,
aðeins kvenfugla, í höndum innfæddra. Síðan hefur
fuglsins oft verið leitað en án árangurs. Urðu vísinda-
mennirnir vitni að ástarleik karlfuglsins og vita nú, að
þarna, í 2.000 m hæð í Foja-fjöllum, eru hin eiginlegu
heimkynni hans.
Beehler segir, að sem stendur steðji engin hætta að
þessu landsvæði en ásóknin í timbur vaxi stöðugt, eink-
um frá löndum eins og Kína og Japan, og því verði menn
að hafa varann á.
„Það næsta sem hægt
er að komast Eden“
Vísindamenn hafa fundið nýjan og ósnertan heim plantna
og dýra á indónesíska hluta eyjarinnar Nýju-Gíneu
%;
'
(
#
(
()
$
!" #
$%&'()*+,'-../
) & & $
% *%
$ +,%-
./0
(1 2,1
13 &0 1, #
M
N*
.
9
445
6+78+9:"
! "#
:9);
% *%
0
#1
:#1,
<&=
"7&$/$ ,&40#$/
,&40#$/ ?
74O"/
%./
=&=
"7&$/$ ,&40#$/
>?,&40#$/ 1
/
H
/"047
&=
"7&$/$ ,&40#$/
,&40#$/ &; &%%$ :&%%,0, >=0/
4
==&=
"7&$/$ ,&40#$/
>=0/ P:&%%,
/ ,&40#$/
1
>=&=
"7&$/$ ,&40#$/
<#B?
/ ,&40#$/ (4
"?!7;
/4
/ 0#$/,&40#$/
$%
@A # 2 ;
6 1 2 "&/%H7P;&,/
/
"
74&/7&4
P#&/,0; O-
"(/#0;
$,
5&7,$%P4$2
B
2 "&/%H7P;&,/
-O=$ &;
?
7
# &/ &$;P,,
"
;!##0;2
%%$ /F,,0/ ;O7$%-
/=$
!( $
6 1
B
C # D$*
# 1
(; "/
; > 2 !7
&# &$;%D##$
#
"
"/
; ,$7 :&
-&/$= P:&%%,2
:& E % $
# &
&40# &; &## >
&",$/
= 7B
(4 4/&$#
04
#7&4
,O/,
71
/P -&/
7
/2
F %
"
/ ?
74O",
(4 "/0;,O,,
1&#B/ &;
-&/1$/ &44?0; &#
7H,$= &/ -$,
= 0;2
+, *
1
$# "?!7;
/4/
,&40#
&;
&## > &",$/
=
7B
(4 4/&$#
2
> ? <
>
?<
Reuters
Paradísarfugl, sem fannst í Foja-fjöllum á Nýju-Gíneu.
AP
Trjákengúran, sem liggur við útrýmingu annars staðar.
HÓPUR reiðra múslíma réðst til
inngöngu í búðir norskra hermanna í
bænum Meymana í norðvesturhluta
Afganistans í gærmorgun en Norð-
mennirnir mynda svokallaða endur-
reisnarsveit ISAF, alþjóðlegra ör-
yggissveita Atlantshafsbandalagsins
(NATO), í Meymana. Íslenskir frið-
argæsluliðar störfuðu með Norð-
mönnunum í Meymana en voru kall-
aðir á brott fyrir jól skv. ákvörðun
Geirs H. Haarde utanríkisráðherra
en ástand öryggismála þótti þá hafa
versnað í þessum hluta Afganistans.
Samkvæmt frétt norska blaðsins
Dagbladet tóku tvö til þrjú hundruð
Afganar þátt í mótmælum við bæki-
stöð norsku endurreisnarsveitarinn-
ar í Meymana, en mótmælin tengd-
ust birtingu á skopmyndum af
Múhameð spámanni í norsku blaði,
Magazinet, og raunar víðar í Evr-
ópu. Til átaka kom og a.m.k. tveir
Afganar týndu lífi þegar afganskir
lögreglumenn á staðnum skutu inn í
mannfjöldann. AFP-fréttastofan
sagði þá raunar hafa verið fjóra.
Norska Dagbladet hafði eftir
Thom Knustad, yfirmanni norsku
hersveitarinnar í Meymana, að mót-
mælendur hefðu beitt handsprengj-
um og skotvopnum, auk þess sem
grjóti var kastað á Norðmennina.
Urðu fimm liðsmenn endurreisnar-
sveitarinnar fyrir meiðslum en eru
ekki alvarlega særðir.
Liðsmenn endurreisnarsveitar-
innar beittu táragasi og skutu
gúmmíkúlum úr byssum sínum á
mótmælendurna. Þá voru F-16-orr-
ustuþotur ISAF-sveitanna sendar á
vettvang og flugu þær yfir Meymana
til að stökkva mótmælendum á
flótta. Ennfremur sagði BBC frá því
að bresk hersveit hefði verið send á
staðinn með hraði til að tryggja yf-
irráð yfir flugvellinum í Meymana.
Loks greindi talsmaður Samein-
uðu þjóðanna í Afganistan, Adrian
Edwards, frá því að ákveðið hefði
verið að kalla flesta starfsmenn SÞ
frá Meymana.
Alls eru fimmtíu norskir hermenn
á svæðinu, skv. frétt Dagbladet á
netinu, en þar af reka þrjátíu og fjór-
ir þeirra bækistöð endurreisnar-
sveitarinnar (e. Provincial Reconst-
ruction Team) í Meymana, en borgin
er höfuðstaður Faryab-héraðs. Eru
þar jafnframt sextán Finnar, þrír
Lettar og nokkrir Svíar.
Talibanar í heilagt stríð gegn
dönskum hermönnum?
Sjö íslenskir friðargæsluliðar
störfuðu með Norðmönnunum í
Meymana sl. haust en þeir voru kall-
aðir heim fyrir jól skv. ákvörðun ut-
anríkisráðherra. Hafði þá verið ráð-
ist gegn hjálparstarfsfólki á þessu
svæði og vísbendingar voru um vax-
andi spennu.
Átta íslenskir friðargæsluliðar eru
hins vegar enn í borginni Chag-
hcharan í Ghor í vesturhluta Afgan-
istans. Eru þeir hluti af endurreisn-
arsveit sem Litháar fara fyrir þar.
Engar fregnir hafa borist af mót-
mælum í Chaghcharan. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er hins
vegar ein dönsk hersveit hluti af
endurreisnarsveitinni í Chaghchar-
an og eftir því var tekið í gær að
meintur talsmaður talibanahreyfing-
arinnar, Qari Yussif Ahmadi, lýsti
yfir heilögu stríði gegn öllum dönsk-
um hermönnum, sem nú væru í Afg-
anistan.
Sjálfsmorðssprengjumaður
sprengdi sig í héraðinu Kandahar í
sunnanverðu landinu í gær og tók 12
manns með sér í dauðann. Til nokk-
urra átaka kom fyrir framan danska
sendiráðið í höfuðborginni Kabúl í
gær og beitti lögreglan bareflum
gegn mótmælendum. Fimm biðu
bana í óeirðum í Afganistan í fyrra-
dag er tengdust skopmyndunum af
Múhameð.
Ráðist gegn
norskum
hermönnum
í Afganistan
SÞ kalla starfs-
lið sitt á brott frá
Meymana
Íslenskir friðar-
gæsluliðar voru
við störf á svæðinu
þar til skömmu
fyrir jól
Reuters
Afganar í Herat í vestanverðu landinu mótmæla teikningum af Múhameð með því að brenna danskan fána.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
&D;
#
'
4 +
/
#
'8
9Q
9
MQ<
'
M 3<
'
R''
-+6:+
!
%;