Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Verðhrun
Síðasta útsöluvika
Lagersala
1.-11. febrúar
40-70%
afslátturHverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Kjósið
Þekkingu og reynslu
Kjósið
Skynsemi og skilning
Kjósið
Stefán Benediktsson
Stuðningsmenn Stefáns Benediktssonar
Opið prófkjör Samfylkingarinnar og óháðra
helgina 11. og 12. febrúar
Tilboðsdagar í Sjúkravörum ehf.
áður verslunin Remedia,
í bláu húsi v. Faxafen, sími 553 6511
10% afsláttur
af sjúkra- og
vinnuskóm
frá Schurr
og Nurse Mates
15% afsláttur
af stuðnings- og sjúkrasokkum
frá Delilah/Samson
og Sigvaris
Einnig af sokkabuxum
Sendum í póstkröfu
15% afsláttur
af hinum frábæra Care
þægindabrjóstahöldurum,
bæði smelltir og heilir
Í GLUGGAVERÖLD taka form
mannslíkamans á sig óræðar mynd-
ir. Í réttri lýsingu getur Ráðhús
Reykjavíkur brugðið á leik með
formin og sýnir þarna skuggaveru
nálgast samborgara sinn sem engu
er líkara en sé íklæddur stórum hvít-
um kassa. Sé nánar að gætt sjást
andstæðurnar í myndinni með því að
formin hægra megin á henni eru
bein, stílhrein og hvöss. Sé augum
hvarflað til vinstri er allt annað uppi
á teningnum. Formin eru mjúk og
lin. Gæti myndin endurspeglað í
einu vetfangi tíðarfarið að und-
anförnu þar sem veturinn hefur ým-
ist hert eða linað tök sín á borg og
borgarbúum.
Morgunblaðið/Ómar
Í gluggaveröld
DOKTORSVÖRN fer fram við
læknadeild Háskóla Íslands föstu-
daginn 10. febrúar. Þá ver Birkir
Þór Bragason líf-
fræðingur dokt-
orsritgerð sína:
Rannsókn á pró-
teinsamskiptum
príon próteinsins,
PrPC, og á áhrif-
um R151C
breytileikans í
príon-próteini
kinda á meðhöndlun próteinsins.
Andmælendur eru dr. Wilfred
Goldman, sérfræðingur við Institute
for Animal Health, Neuro-
pathogenesis Unit, í Edinborg,
Bretlandi, og dr. Zophonías O.
Jónsson, dósent við líffræðiskor Há-
skóla Íslands. Dr. Stefán B. Sig-
urðsson, deildarforseti læknadeild-
ar, stjórnar athöfninni sem fer fram
í hátíðasal, Aðalbyggingu og hefst
kl. 13.
Rannsóknirnar voru unnar á Til-
raunastöð H.Í. í meinafræði á Keld-
um og hafa niðurstöðurnar verið
birtar í tveimur greinum í erlendum
ritrýndum tímaritum. Leiðbeinandi
var dr. Ástríður Pálsdóttir, sérfræð-
ingur við læknadeild H.Í. Auk henn-
ar sátu í doktorsnefndinni dr. Eirík-
ur Steingrímsson,
rannsóknaprófessor við læknadeild
H.Í., dr. Guðmundur Georgsson,
prófessor emiritus, dr. Halldór Þor-
mar, prófessor emiritus, og dr. Sig-
urður Ingvarsson, prófessor við
læknadeild H.Í. og forstöðumaður
Tilraunastöðvar H.Í. á Keldum.
Doktorsvörn
við lækna-
deild HÍ á
föstudag
ÞRÍR frambjóðendur Samfylkingar-
innar í prófkjöri vegna borgarstjórn-
arkosninganna í vor verða á
kappræðufundi í kvöld á NASA við
Austurvöll í Reykjavík. Fundurinn á
að standa milli kl. 19 og 20 og er á
vegum Samfylkingarfélagsins í
Reykjavík.
Frambjóðendurnir eru Dagur B.
Eggertsson, Stefán Jón Hafstein og
Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Fund-
arstjórar verða Sigrún Grendal og
Davíð Þór Jónsson.
Skúli Helgason, framkvæmda-
stjóri flokksins, segir að fundaformið
verði knappt, ekki verði um fram-
sögur að ræða heldur muni fundar-
mönnum gefast kostur á að spyrja
frambjóðendurna „spjörunum úr“.
Prófkjör Samfylkingarinnar í
Reykjavík verður haldið um næstu
helgi.
Þrír prófkjörsfram-
bjóðendur í kappræðu
NÝJAR hugmyndir um tilurð Ís-
lands er meðal efnis í nýrri bók
Freysteins Sigmundssonar, jarð-
eðlisfræðings við Norræna eld-
fjallasetrið, um
jarðskorpuhreyf-
ingar á Íslandi,
en bókin er sam-
ansafn áratuga
rannsókna á
jarðskorpu
landsins.
Freysteinn
sagði í samtali
við Morgunblað-
ið að þessar nýju hugmyndir
byggðust aðallega á því að efast er
um tilurð svokallaðs möttulstróks,
en það er heitt efni sem flæðir úr
möttli jarðar upp á yfirborðið og
ber með sér varma. Gamlar hug-
myndir um myndun landsins hafi
byggst á því að möttulstrókur und-
ir landinu hafi náð langt niður í
jörðu, hugsanlega að mörkum
jarðmöttulsins og kjarna jarðar.
Nýja hugmyndin er hins vegar sú
að efnisgerð undir landinu sé örlít-
ið frábrugðin þeirri sem er í dag
og meiri bergkvika geti myndast.
Þetta sé vegna fornrar jarðskor-
puflísar sem liggi ofan á möttl-
inum.
Freysteinn telur að ekki sé
hægt að hafna þessum hugmynd-
um þó svo að þær eldri séu réttar.
Hann telur að Ísland sé einn af
fáum stöðum þar sem mikill
straumur varma liggur djúpt úr
iðrum jarðar. Þessar niðurstöður
eru fengnar að undangegnum ára-
tuga rannsóknum á jarðskorpu Ís-
lands en Freysteinn sagði að gríð-
armiklar rannsóknir hefðu verið
gerðar á jarðskorpuhreyfingu,
hvernig hún myndast og færist til í
jarðskjálftum, eldgosum og land-
reki. Þessar rannsóknir hafa ekki
Nýjar hugmyndir
um tilurð Íslands
í nýrri bók
verið teknar saman og birtar í
einu riti áður.
Mikill fróðleikur í
Suðurlandsskjálftunum
Freysteinn sagði að auk nýrra
hugmynda um tilurð landsins væri
að finna í bókinni upplýsingar um
nýjar hugmyndir um jarðfræði
Norður-Atlantshafssvæðisins þar
sem dregnar væru saman hug-
myndir um möttulstrók sem er
undir landinu og veldur m.a. auk-
inni eldvirkni. Hegðun eldfjalla
eru einnig gerð góð skil en mæl-
ingar á eldfjöllum með GPS og
bylgjuvíxlmælingum hafa skilað
miklum upplýsingum en 20 ár eru
síðan GPS-mælingar hófust en ein-
ungis 10 ár eru síðan bylgjuvíxl-
mælingar úr gervitunglum hófust.
Fjallað er um landrekið og auk
þess sem líkön í bókinni lýsa því
hvernig það á sér stað. Einnig er
fjallað um hvernig jarðskorpan
brotnar og sagði Freysteinn að
Suðurlandsskjálftarnir hefðu verið
hafsjór af fróðleik. GPS- og gervi-
tunglamælingar gerðu það kleift
að mæla hreyfingu á jarðskorp-
unni og færslur á þeim misgengj-
um þar sem jarðskjálftinn átti sér
stað.
Aðspurður hvort bókin gæti
nýst erlendum vísindamönnum
sagði Freysteinn að bókin væri
hugsuð fyrir alþjóðamarkað, bæði
til að veita skilning á Íslandi og
vera lykill til að skilja sambærileg
ferli annars staðar í heiminum.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn