Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÝVERIÐ varð ein af þessum undarlegu fjölmiðlauppákomum sem í fyrstu virðist marka tíma- mót en síðan kemur í ljós að hefur engu breytt, þ.e. þegar for- ysta Kennarasam- bandsins og mennta- málaráðherra skrifuðu undir sam- komulag. Fyrst í stað virtist samkomulagið snúast um að Kenn- arasambandið hefði náð fram áfangasigri og ráðherra ætlaði að stíga eitt skref aftur- ábak með niðurskurð framhaldsskólans. En síðan kom í ljós að ráðherra túlk- aði þetta á annan veg. Hún lýsti því yfir að samkomulagið hefði engu breytt um þá fyrirætlan að skerða framhaldsskólastigið niður í þrjú ár, breytingin væri sú að nú ætluðu kennarar að vinna með henni að þessu markmiði. Þetta kom í kjölfarið á umdeild- um tillögum um nýja námskrá sem leiddu í ljós það sem and- stæðingar styttingarinnar höfðu alla tíð haldið fram, þ.e. að hér væri um niðurskurð námsefnis að ræða. Nú virðist nýja línan vera sú að þetta sé klaufaskapur og ráðuneytið heldur því fram að hægt sé að færa stóran hluta af framhaldsskólanámi niður í grunn- skóla (einu sinni var talað um svo- kallaða niðurfærsluleið í efnahags- málum, er hún kannski risin upp aftur?!). Forysta án félagsmanna? Nú hefur komið á daginn að ekkert er breytt. Kennarar eru farnir að lýsa yfir óánægju með forystu sína sem virðist ekki hafa haft samráð við fé- lagsmenn sína um þetta samkomulag. En það sem er öllu verra: Við nemendur hefur ekkert verið rætt, hvorki núver- andi framhalds- skólanema né þá sem styttingin mun eiga að ganga yfir. Marg- oft falla fögur orð um að mennta- kerfið eigi að „þjónusta“ nem- endur (því að sjálfsögðu talar enginn lengur um mennta nem- endur). Í raun virðast þessir „þjónustuþegar“ engu máli skipta og orðin fögru vera verðlaus með öllu. Ráðherra telur nægja að semja við nokkra forystumenn kennara og þá sé málið í höfn. Það sem enn blasir við er und- arleg hugmynd ráðherrans um samráð, þ.e. að undirmenn hennar aðstoði hana við að hrinda hug- myndum hennar í framkvæmd, eða öllu heldur hugmyndum Hag- fræðistofnunar Háskólans, Versl- unarráðsins og Samtaka atvinnu- lífsins, sem eru hinir raunverulegu hugmyndafræðingar á bak við styttinguna. Niðurstaðan er einföld: Stúd- entsaldur verður ekki lækkaður í 19 ár að jafnaði með aðferð ráð- herrans án þess að inntak námsins skerðist. Ef það er markmið að stúdentsaldur lækki þarf að hætta stífni og einstefnu ráðherrans og ræða allar leiðir sem þar koma til greina. Margoft hefur verið bent á fleiri leiðir og ráðherra mun aldrei uppskera neina „sátt“ um málið nema hún dragi höfuðið upp úr sandinum og uppgötvi nýja og sannari skilgreiningu á hugtakinu „samráð“. Það eina jákvæða við sam- komulagið er kannski að Íslend- ingar eiga möguleika á því að lýsa skoðun sinni á málinu í næstu al- þingiskosningum. Afstaða Vinstri grænna er skýr: Enginn nið- urskurður á inntaki stúdents- prófsins, enginn einhliða nið- urskurður á framhaldsskólastiginu. Ekkert samkomulag um niðurskurð framhalds- skólastigsins Katrín Jakobsdóttir fjallar um styttingu náms til stúdentsprófs ’Niðurstaðan er einföld:Stúdentsaldur verður ekki lækkaður í 19 ár að jafnaði með aðferð ráðherrans án þess að inntak námsins skerðist.‘ Katrín Jakobsdóttir Höfundur er varaformaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs. PRÓFKJÖR Samfylkingarinnar í Reykjavík fer fram um næstu helgi. Þar gefst Sam- fylkingarfólki og öðr- um borgarbúum kost- ur á að velja borgarstjóraefni flokksins og aðra frambjóðendur á lista fyrir komandi borg- arstjórnarkosningar. Ég býð mig fram í þriðja sætið í þessu prófkjöri. Ég hef verið vara- borgarfulltrúi á þessu kjörtímabili og setið í tveimur nefndum sem stýra mikilvægum málaflokkum, nefnilega velferð- arráði og umhverfisráði. Þá sit ég í stjórn hjúkrunarheimilisins Skóg- arbæjar, hef verið í jafnréttisnefnd og var formaður stjórnar Inn- kaupastofnunar Reykjavíkurborgar þar til skipulagi hennar var breytt og var einnig formaður stjórnar Vélamiðstöðvar ehf. þar til hún var seld. Reynslan Í starfi mínu fyrir Samfylk- inguna og Reykjavíkurlistann hef ég beitt mér í velferðarmálum, og lagt þar m.a. áherslu á að styðja betur við bakið á ungum mæðrum, forsjárlausum feðrum og öldr- uðum. Ég hef talað fyrir heilbrigðu tómstundastarfi fyrir börn og ung- linga. Ég hef unnið að ýmiss konar framtaki í jafnréttismálum. Ég hef beitt mér í umræðu um fjármál borgarinnar og m.a. dregið fram stöðu borgarsjóðs í samanburði við önnur sveitarfélög. Ég hef einnig beitt mér í umhverfismálum, og þá einkum verið umhugað um að auka loftgæðin og draga úr því svifryki sem stafar frá umferðinni og getur verið börnum og öðrum hættulegt þegar fram í sækir. Tilraunir mín- ar til að hafa áhrif byggjast á sannfæringu minni um að hin sí- gildu sjónarmið jafnaðarmanna um frelsi, jafnrétti og samhygð séu best til þess fallin að bæta samfélagið. Framtíðarsýn Það dugar að sjálf- sögðu ekki aðeins að benda á það sem gert hefur verið því stjórn- málamenn þurfa að hafa einhver stefnu- mið og einhverja framtíðarsýn. Ég vil stuðla að því að Reykjavík eflist að grósku og þrótti, að velferð borgarbúa verði aukin, og lögð meiri áhersla á jafnrétti og lífsgæði borgarbúa. Þess vegna eru nokkur helstu áherslumál mín í stuttu máli þessi: 1. Eflum framsækið skólastarf frá leikskólum til háskóla. Gott og fjölbreytt skólastarf er vel til þess fallið að jafna stöðu barna og ungmenna í lífinu. Lengja þarf fæðing- arorlof, fjölga dagvist- arrýmum og auka framboð á leikskólaplássum. Byggjum þekkingarþorp í Vatnsmýr- inni. 2. Tryggjum fyrirtækjum í ýmsum greinum aðstöðu til vaxtar í landi borgarinnar. 3. Reykjavík verði áfram í fremstu röð sem vinnuveit- andi. Útrýmum kynbundnum launamun og eflum öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi. 4. Bætum aðstöðu barna sem búa við erfiðar aðstæður. Styrkjum sjálfshjálpargetu þeirra sem þurfa að leita að- stoðar. Látum borgina ann- ast sameinaða heimahjúkrun og heimaþjónustu og auð- veldum öldruðum enn frekar að búa í eigin húsnæði. Þjón- ustuíbúðum þarf að fjölga og bæta sem fyrst við hjúkr- unarrýmum til að eyða bið- listum. 5. Öllum börnum upp að vissum aldri verði gefinn kostur á gjaldfrjálsum íþróttum og listum. 6. Jöfnum stöðu kynjanna, vinnum gegn ofbeldi gegn konum og börnum. 7. Bætum stöðu fatlaðra, sam- kynhneigðra, aldraðra og ný- búa með nýrri mannréttinda- stefnu. 8. Eflum öryggi borgarbúa og verndum æskuna, m.a. fyrir óæskilegum auglýsingum. 9. Þéttum byggð hæfilega og byggjum upp ný og fjölbreytt hverfi með góðu aðgengi að útivistarsvæðum. Almenn- ingssamgöngur verði efldar og aukum loftgæði í borginni. 10. Fjármálastjórn verði ábyrg og framsýn svo hægt verði að veita þá þjónustu sem við viljum. Velferð og lífsgæði Eftir Stefán Jóhann Stefánsson ’Ég vil stuðla að því aðReykjavík eflist að grósku og þrótti, að vel- ferð borgarbúa verði auk- in, og lögð meiri áhersla á jafnrétti og lífsgæði …‘ Stefán Jóhann Stefánsson Höfundur er varaborgarfulltrúi og býður sig fram í 3. sæti í prófkjöri Samfylkingar í Reykjavík. TENGLAR .............................................. http://www.stefanjohann.is Prófkjör Reykjavík VIÐBRÖGÐ við nýlegu sam- komulagi kennarasamtakanna og menntamálaráðherra hafa verið á ýmsa lund, bæði neikvæð og jákvæð. Staðhæft er að samtökin hafi ekki haft umboð til sam- komulags við ráð- herra. Í fréttum fjöl- miðla af samkomulaginu hefur ýmislegt farið afvega. Þetta hefur valdið misskilningi sem ástæða er til að leið- rétta. Fagleg gagnrýni Fagleg gagnrýni hefur komið fram á stefnu og aðferðir við að stytta námstíma til stúdentsprófs.  Í samanburði á lengd námstímans á Íslandi og í nágranna- ríkjum er horft framhjá innihaldi náms og íslenskum að- stæðum. Íslendingar þurfa að leggja mikla rækt við tungumál, sögu og menningu samhliða því að læra fleiri erlend tungumál en aðr- ar þjóðir og stunda nám á erlend- um tungum. Þetta er tímafrekt og ekki viturlegt að stytta tímann til þessa.  Minni undirbúningur fyrir áframhaldandi nám, s.s. í stærð- fræði, raungreinum og erlendum tungumálum. Margir telja að nið- urskurður í stærðfræði í núverandi aðalnámskrá framhaldsskóla sé mistök og að ástæða sé til að efla móðurmálskennslu í stað þess að draga úr henni. Vegið sé að breiðri almennri menntun.  Styttingin þjónar einkum dug- miklum nemendum en ekki hinum breiða hópi sem þarf lengri tíma. Óveruleg fjölgun verður í hópi þeirra sem taka námið á styttri tíma.  Hertar námskröfur og sam- þjöppun náms draga ekki úr falli á báðum skólastigum og brottfalli í framhaldsskólum heldur auka á vandann.  Minni sveigjanleiki og valfrelsi í námi, miðstýring og einsleitari skólar.  Áhyggjur af afdrifum starfs- og listnáms og stöðu fámennra skóla.  Ráðherra getur ekki afgreitt faglega gagnrýni á málið sem sér- hagsmunasjónarmið. Stefna kennarasamtakanna Frá hausti 2003 hafa kenn- arasamtökin lagt fast að ráðherra að hætta við áform um að skerða nám í framhaldsskólum og efna þess í stað til samstarfs við kenn- ara um faglega heildarendurskoðun skólastiga frá grunni. Í aðalfundarsamþykkt FF 2005 er þess krafist að hætt verði við styttingaráform í núverandi mynd og þess í stað leitað samstarfs við kennara og samtök þeirra um fag- lega heildarendurskoðun á eftirfar- andi forsendum:  Sveigjanleiki núverandi kerfis verði nýttur betur til að greiða bráðgerum og duglegum nem- endum leið til stúdentsprófs.  Endurritun námskráa fyrsta bekkjar grunnskóla verði haldið áfram og námskrár alls grunnskól- ans endurskoðaðar með styttingu námstíma að markmiði.  Verk- og listnám og nám á al- mennum brautum verði forgangs- verkefni.  Veikleikar unglingastigsins sem lýsa sér í slöku námsgengi og tengdum vandamálum verði teknir til sérstakrar skoð- unar.  Brottfall, rann- sóknir á því og viðeig- andi ráðstafanir verði forgangsverkefni.  Kennaramenntun efld og aukin með endurskipulagningu og nauðsynlegri samræm- ingu.  Menntunarstig þjóðfélagsins vaxi og styrkist í samanburði við aðrar þjóðir á næstu tíu árum.  Sveigjanleiki og skynsamleg verka- skipting milli skóla- stiga í starfsmanna- málum í stað víðtækra uppsagna og vannýt- ingar á mannafla. Í samþykkt þriðja þings KÍ 2005 er skorað á ráðherra að draga til baka ákvörð- un um að skerða nám í framhaldsskóla þar sem nægilegur und- irbúningur hafi ekki farið fram. Næstu ár verði notuð til að vinna að úrbótum á námi, náms- framboði og námsumhverfi til að bæta námsárangur, fjölga þeim sem útskrifast með próf úr fram- haldsskóla og bæta möguleika nemenda á öllum skólastigum til mismunandi námshraða og náms- framboðs við hæfi. Kennarasamtökin hafa með gerð samkomulagsins náð fram kröfu sinni um að faglegar forsendur verði hafðar að leiðarljósi í heildar- endurskoðun. Það er ljóst að nám- skipan mun breytast. Með sam- komulaginu er búið að tryggja að kennarar verða hafðir með í ráðum. Mikil vinna framundan Samkomulagið felur í sér sam- starf um verkefni sem hafa verið helstu baráttumál kennarasamtak- anna til margra ára. Hér má nefna lengri og breytta kennaramenntun, öfluga endurmenntun, lögverndun, umbætur á starfsumhverfi kennara og nemenda og loks heildarend- urskoðun á námi og námskipan frá grunni til að efla fjölbreytni, sveigjanleika og samfellu í námi. Ef vel tekst til mun þetta leiða til umbóta í skólastarfi sem eru löngu tímabærar. Bættur námsárangur og enn betra skólastarf eru mik- ilvægustu markmið þessa sam- komulags. Kennarasamtökin hafa ekki horf- ið frá grundvallarstefnu sinni í mál- inu. Þau munu aldrei ljá máls á niðurskurði á námi nemenda og minni menntun. Þessu til áréttingar er samþykkt stjórnar Félags framhaldsskóla- kennara frá 1. febrúar sl. um for- sendur þeirrar ákvörðunar að taka þátt í samkomulaginu við ráðherra með öðrum aðildarfélögum Kenn- arasambands Íslands. Í samþykkt- inni eru tekin saman öll grundvall- aratriði í stefnu, samþykktum og ályktunum samtakanna frá upphafi og þau undirstrikuð. Þessi sam- þykkt er sá grunnur sem samtökin byggja á í samstarfi við ráðherra. Samkomulagið eykur líkur á að hægt verði að ná niðurstöðu sem nemendur, kennarar og allt skóla- samfélagið geti vel við unað. Um samkomulag kennarasamtak- anna og mennta- málaráðherra Aðalheiður Steingrímsdóttir fjallar um menntamál ’Samkomulagiðfelur í sér sam- starf um verk- efni sem hafa verið helstu bar- áttumál kenn- arasamtakanna til margra ára.‘ Aðalheiður Steingrímsdóttir Höfundur er formaður Félags framhaldsskólakennara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.