Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. HAGSMUNUM Reykvíkinga hvað almennings- samgöngur varðar væri best borgið ef Reykjavík drægi sig út úr byggðasamlagsfyrirkomulaginu í Strætó bs. og færi alfarið að sjá um stræt- isvagnakerfi höfuðborgarinnar á eigin for- sendum. Þetta kom fram í máli Árna Þórs Sig- urðssonar, borgarfulltrúa Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík, á fundi frambjóðenda VG til borg- arstjórnar í Reykjavík með starfsfólki Strætós bs. Sagði hann reynsluna af sameiningu Stræt- isvagna Reykjavíkur og Almenningsvagna hafa valdið sér miklum vonbrigðum og hún væri ein samfelld árekstrasaga þar sem byggðasamlags- formið væri stórgallað. Því væri réttast að leysa upp byggðasamlagið í núverandi mynd. „Við viljum fá strætó aftur heim til Reykjavík- ur því við teljum að hagsmunum Reykjavíkur sé betur borgið ef borgin sjái bara um sinn rekstur og sína starfsemi og geti þá aukið við hana og eflt eftir því sem menn telja skynsamlegt,“ sagði Árni Þór og benti á að eins og staðan væri í dag borgaði Reykjavík um 65–70% af stræt- isvagnakerfinu á höfuðborgarsvæðinu öllu. „Það má vel færa rök fyrir því að Reykvík- ingar borgi fyrir góða þjónustu í hinum sveit- arfélögunum. Það væri svo sem allt í lagi ef það væri þá samstaða um að það þyrfti líka stundum að efla þjónustuna inni í Reykjavík, en því miður hefur það ekki reynst raunin.“ |6 Vill fá strætó heim til Reykjavíkur BLÍÐVIÐRIÐ skilur tjarnir borgarinnar eft- ir nánast spegilsléttar. Sannaðist það heldur betur þegar ljósmyndari smellti af mynd við vatninu. Þó mun sólin ekki gleðja borgarbúa lengi en spáð er úrkomu næstu daga. Búist er við að sólin skíni aftur á sunnudag. Tjörnina hjá Ráðhúsi Reykjavíkur en vart má sjá hvort manneskjan á myndinni stend- ur fyrir framan linsuna eða speglast í sléttu Morgunblaðið/Ómar Kólnandi veður á ný STÓRAUKA þarf enskukennslu á fyrstu skólaárunum svo Íslending- ar verði jafnvígir á bæði tungu- málin. Á sama tíma og mikilvægt er að slá hvergi af kröfunni um að við- halda íslenskri tungu er tungu- málið helsti þröskuldur í samskipt- um við umheiminn. Allir Íslendingar verða einfaldlega að vera mæltir á aðra tungu en sína eigin ef þeim á að takast að njóta sín í alþjóðlegum viðskiptum og samskiptum. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri skýrslu framtíðarhóps Við- skiptaráðs Íslands sem kynnt verður á Viðskiptaþingi 2006 í dag. Í skýrslunni segir að tvímæla- laust eigi að færa enskukennsluna niður í yngstu bekki grunnskólans þegar börnin séu móttækilegust fyrir málörvun. Auk þess sé nauðsynlegt að færa inn í skólakerfið, t.d. á fram- haldsskólastigið, þau viðmiðunar- próf sem viðurkennd eru sem að- gangur að námi t.d. í Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkjunum. Kennt á ensku í grunnskólum? Í skýrslunni er litið áratug fram í tímann og sagt sjálfsagt að árið 2015 verði ákveðnar námsgreinar í grunn- og framhaldsskólum kenndar á ensku og að bækur á ensku verði lagðar til grundvallar í kennslu eða sem ítarefni. Þannig megi bæði auka námsframboð og víðsýni í ýmsum greinum án þess að kosta til dýrri útgáfu kennslu- bóka og annars námsefnis auk þess sem slíkt opni fyrir mögu- leika á að fá til starfa erlenda kennara sem geti borið með sér nýja og ómetanlega þekkingar- og menningarstrauma inn í íslenskt samfélag. Íslendingar verði jafn- vígir á íslensku og ensku  Ísland verði | Miðopna FLUGFÉLAG Íslands hefur gengið frá kaupum á tveimur notuðum Dash 8 100-flugvélum sem teknar verða í notkun í júní. Árni Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri félagsins, segir þetta fjárfestingu upp á um 600 milljónir króna. Hann segir vélarnar einkum verða notaðar í verkefni á Grænlandi en að nokkru leyti einnig á innan- landsleiðum félagsins. Vélarnar tvær taka 37 farþega og eru tveggja hreyfla háþekjur, svip- aðar og Fokker 50-vélar félagsins nema hvað þær taka ívið fleiri far- þega. Árni Gunnarsson segir vél- arnar framleiddar 1992 og því álíka gamlar og Fokker-vélarnar. FÍ hefur sex slíkar í þjónustu sinni í dag og segir Árni næg verkefni vera fyrir þær allar í sumar en næsta vetur verði einni Fokker-vélinni hugs- anlega ráðstafað í verkefni erlendis eða leiguverkefni innanlands. Dash-vélarnar eru keyptar af framleiðandanum, Bombardier í Kanada. Árni segir þær geta athafn- að sig á stuttum flugbrautum og einn af kostum þeirra sé sá að þær geti borið mikla frakt auk farþega. Segir hann það henta mjög vel við verk- efnin á Grænlandi. Flugfélagið flýgur nú tvo daga í viku milli Íslands og tveggja staða á Grænlandi og í sumar verður önnur Dash-vélin þar mikið til í innanlandsflugi. Flugfélag Íslands mun í sumar alls reka 10 flugvélar, tvær Dash 8-vélar, sex Fokker 50 og tvær Twin Otter. Flugfélag Íslands kaupir tvær Dash-vélar OF LÍTIL ávöxtunarkrafa hefur verið gerð til Kárahnjúkavirkjun- ar, að mati Ágústs Guðmundsson- ar, stjórnarformanns Bakkavar- ar. Þetta kom fram í viðtali við hann í Kastljósi Ríkissjónvarps- ins í gærkvöldi. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, er á öðru máli, og segir í samtali við Morgunblaðið að margoft hafi verið farið yfir arðsemisútreikninga vegna virkj- unarinnar, m.a. með aðstoð er- lendra og innlendra banka, af svo- nefndri eigendanefnd, sem fór yfir alla útreikninga, og af stjórn Landsvirkjunar. „Niðurstaðan festing skapar vel launuð og góð störf svo vitnað sé í ummæli Gylfa Arnbjörnssonar á ráðstefnu á dögunum,“ segir Friðrik. „Mér finnst þetta allt vera gott og blessað og tek undir að auðvit- að hlýtur þjóðfélagið að vera að færast í þá átt að verða þjónustu- samfélag. Hér á landi eru góðar aðstæður til að koma upp alls konar atvinnurekstri og nægt fjármagn stendur til boða, en því miður hafa erlendir aðilar ekki kosið að koma hingað til að stunda annan atvinnurekstur en þennan,“ segir Friðrik. Hann segir ástæðulaust að egna at- vinnugreinum saman og segja að eitt útiloki annað, því þær gangi hver með annarri. mest af sér í framtíðinni. „Ef ríkið ætlar að leggja út í fjárfestingar upp á 200 milljarða er auðvitað úr ýmsu að velja og hægt að byggja upp ýmiss konar þjónustuiðnað fyrir 200 milljarða sem getur gef- ið betur af sér en stóriðjan,“ sagði Ágúst. Friðrik sagði Landsvirkj- un ekki leggja 200 milljarða til virkjunarinnar, heldur 100 millj- arða. Erlend fjárfesting sé hins vegar upp á aðra 100 milljarða. „Ástæðan fyrir því að við Ís- lendingar erum að setja 100 millj- arða í fjárfestingar hjá okkur miðað við tiltekna arðsemi sem við teljum nægjanlega er m.a. sú að við erum að setja þetta í starf- semi þar sem erlenda fjárfesting- in er króna á móti krónu. Sú fjár- varð sú að þetta væri viðunandi arðsemi,“ segir Friðrik. „Ég hefði varið peningunum öðruvísi,“ sagði Ágúst í sjón- varpsviðtalinu. Hann sagði að það sem skipti máli fyrir Íslendinga væri að fjárfesta í því sem gæfi Ósammála um arðsemi Kárahnjúkavirkjunar Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ágúst Guðmundsson Friðrik Sophusson VIGGÓ Sigurðsson tilkynnti stjórn Handknatt- leikssambands Íslands í gærkvöldi að hann gæfi ekki kost á sér sem landsliðsþjálfari, en nafn hans hafði verið nefnt þrátt fyrir að hann hefði sagt upp samningi sínum við HSÍ áður en haldið var á Evrópumótið í Sviss. Samningur hans rennur út í lok mars og því mun nýr landsliðsþjálfari vænt- anlega taka við liðinu 1. apríl. „Ég er búinn að fá nóg, þetta er orðið ágætt og nú sný ég mér annað,“ sagði Viggó við Morgunblaðið í gærkvöldi og átti þá við að hann ætlaði að einbeita sér að því að reka fyrirtæki sitt, en hann tók við landsliðinu í október 2004. Stjórn HSÍ fundaði í gærmorgun og sagði Guðmundur Ingvarsson, formaður sambands- ins, eftir fundinn að Viggó væri einn þeirra sem kæmu til álita. Af ráðningu hans verður ekki en samkvæmt heimildum blaðsins eru hinir þrír Atli Hilmarsson, Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson. | Íþróttir Viggó hættur ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.