Morgunblaðið - 09.02.2006, Page 2
Sjónvarpsstjóri Skjás eins um ráðningu Sigríðar Arnardóttur til 365 miðla
SJÓNVARPSKONAN Sigríður Arnardóttir skrif-
aði í gær undir samning við 365 miðla, en hún mun
taka við umsjón morgunþáttarins Íslands í bítið.
Sigríður hafði nýlega skrifað undir samning við
Skjá einn, en gert var ráð fyrir að hún stjórnaði nýj-
um dægurmálaþætti ásamt Felix Bergssyni. Í gær-
kvöldi var síðan tilkynnt að Guðrún Gunnarsdóttir,
sjónvarps- og söngkona, hefði veri ráðin til að
stjórna hinum nýja þætti ásamt Felix. Magnús
Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, segir
ákvörðun Sigríðar koma sér verulega á óvart.
„Sirrý kom til okkar í dag [í gær] og tilkynnti
okkur að hún væri nýbúin að skrifa undir samning
við NFS. Ég hváði við því ég gekk frá samningi við
hana á laugardaginn,“ segir Magnús. „Það var ekk-
ert ákvæði í samningnum sem heimilaði klukkutíma
uppsagnarfrest á honum, þetta var bara venjulegur
samningur,“ segir Magnús og bætir því við að und-
irbúningur að þættinum hafi staðið yfir í tvær vikur.
„Ég gekk frá ráðningarsamningi við Felix og Sirrý
um helgina og svo höfðum við starfsmannafund á
mánudaginn þar sem þetta var tilkynnt. Þessi
bransi er hins vegar þannig að það lekur allt á milli
og klukkan fjögur þann sama dag hringdi NFS í
Sirrý og gerði henni tilboð,“ segir Magnús. „Ég er
mjög hissa á NFS að gera þetta og að Ari Edwald
ætli að stimpla sig svona inn í stjórn 365 miðla,“ seg-
ir Magnús. „Ég hefði ekki verið hissa á forverum
hans, en að Ari haldi þessu áfram er með ólíkind-
um,“ segir Magnús og bætir því við að svipaðir at-
burðir hafi átt sér stað áður. „Hálf söludeildin var
tekin frá okkur síðasta sumar og Vala Matt var
fengin yfir á Sirkus stuttu síðar. Það er sorglegt að
þeir geti ekki þjálfað upp sitt eigið fólk heldur þurfi
að ræna aðra miðla með þessum hætti,“ segir
Magnús. „Ég gerði Ara Edwald tilboð nú rétt áðan
[undir kvöld í gær], að Sirrý byrjaði þáttinn hjá
okkur, ynni út þriggja mánaða uppsagnarfrestinn
og færi svo yfir á NFS, því ég get ekkert sagt við því
að hún segi upp. Þeir hins vegar höfnuðu því alfarið,
sem segir kannski meira um hvort þeir séu að
hugsa um hag Sirrýjar eða bara um að eyðileggja.“
Ráðum fólk og missum fólk
„Það er algengt að við ráðum fólk og að við miss-
um fólk. Það er ekki hægt að gera það í bága við
aðrar ráðningar,“ sagði Ari Edwald, forstjóri 365
ljósvakamiðla, þegar hann var spurður um viðbrögð
sín við óánægju sjónvarpsstjóra Skjás eins. „Þetta
verður skoðað en mér finnst skrýtið að þessu hafi
ekki verið teflt fram. Venjan er sú að starfsmaður
sem ræður sig í vinnu kynni væntanlegum vinnu-
veitanda þá stöðu sem uppi er um sína hagi,“ sagði
Ari. | 54
Ari
Edwald
Vinnubrögð NFS með ólíkindum
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Sigríður
Arnardóttir
Magnús
Ragnarsson
2 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ræðum málin.
Ég verð á beinni línu á Útvarpi Sögu fm 99.4 í dag kl. 17. Sími: 588 1994
HUGSUM STÓRT!
Borgin á að vera hrein, örugg og falleg,
en umfram allt lifandi fyrir fólk eins og þig
og mig. Ég vil byggja upp glæsta byggð í
Vatnsmýrinni og bjóða Reykvíkingum upp á
fjölbreytta íbúðakosti og lóðir.
VILJA STÖÐVA ÓEIRÐIR
Áhrifamiklir múslímaklerkar í
Afganistan komu fram í þarlendum
fjölmiðlum í gær til að koma þeim
skilaboðum til landa sinna að mál
væri að mótmælum vegna birtinga
evrópskra fjölmiðla á skopmyndum
af Múhameð spámanni linnti. Skop-
myndunum var mótmælt víða í Afg-
anistan í gær og biðu fjórir bana í
óeirðum í sunnanverðu landinu.
Kosið í skugga átaka í Nepal
Ofbeldi og dræm kjörsókn vörp-
uðu skugga á sveitarstjórnarkosn-
ingar sem fram fóru í Nepal í gær.
Höfðu tíu manns látist í átökum
tengdum kosningunum.
Setti met í fallhlífarstökki
Þórhildur Valsdóttir var ein af 400
fallhlífarstökkvurum frá 31 landi
sem settu heimsmet í hópstökki í
Taílandi í gær.
Gildi með 18% raunávöxtun
Raunávöxtun Gildis-lífeyrissjóðs
var 17,8% á síðasta ári, en það jafn-
gildir því að nafnávöxtun sjóðsins
hafi verið 22,6% á árinu.
Ísland í ESB árið 2015
Íslendingar verða orðnir aðilar að
(ESB) árið 2015, rætist spá Halldórs
Ásgrímssonar, sem hann setti fram í
erindi á Viðskiptaþingi í gær.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Fréttaskýring 8 Umræðan 32/38
Úr verinu 16 Bréf 37
Erlent 18/19 Minningar 39/43
Minn staður 20 Hestar 47
Höfuðborgin 22 Myndasögur 48
Akureyri 23 Dagbók 48/50
Suðurnes 23 Staður og stund 49
Landið 22 Leikhús 52
Daglegt líf 24/25 Bíó 54/57
Neytendur 26/27 Ljósvakamiðlar 58
Menning 28/29 Veður 59
Forystugrein 30 Staksteinar 59
* * *
Morgunblaðinu fylgir fasteignablað
Miðborgar.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna,
var útskrifaður af Landspítalanum á þriðjudag eftir
rúmlega þriggja vikna sjúkrahúslegu í kjölfar bílslyss í
A-Húnavatnssýslu um miðjan janúar. „Ég er orðinn
sæmilega sjálfbjarga en það er heilmikið eftir,“ segir
hann. „Beinin eiga eftir að gróa og vöðvar að jafna sig.
Næstu tvær til þrjár vikurnar mun ég því safna kröftum
og síðan get ég vonandi hafið æfingar og þjálfun. Það
eru því þónokkrar vikur í að ég geti látið mér detta í hug
að kíkja í vinnuna. En það kemur allt saman. Ég ætla að
reyna að vera til friðs og hlíta ráðum sérfræðinga um
það hvenær tímabært er að fara að mæta til starfa. Það
er enginn ómissandi og í mínu tilviki sýnist mér vaktin
vera prýðilega staðin, ekki síst hjá Jóni Bjarnasyni sem
nýlega hélt fimm tíma ræðu á þingi gegn stóriðju.“
Steingrímur mun því halda sig í faðmi fjölskyldunnar
á heimili sínu í Reykjavík og hafa hægt um sig næstu vik-
urnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður var ekki fyrr kominn heim eftir sjúkrahúsleguna en forseti Alþingis,
Sólveig Pétursdóttir, færði honum bókapakka að gjöf með kveðju frá alþingismönnum.
„Orðinn sæmilega sjálfbjarga“
Rann eftir lyftu-
vírnum og rakst
á næsta stól
ÓHAPP varð í stólalyftunni í Suð-
urgili í Bláfjöllum á þriðjudag
þegar stóll með drengjum í skíða-
deild Breiðabliks rann stjórnlaust
aftur á bak og rakst á næsta stól
en þar voru einnig skíðastrákar úr
Breiðabliki. Vinnueftirlitið hefur
tekið lyftuna til rannsóknar en
ljóst er að stóllinn hefur losnað á
vírfestingunni þótt ekki væri
hætta á að hann færi upp af vírn-
um og hrapaði niður í brekkuna
að sögn Grétars Halls Þórissonar,
forstöðumanns Bláfjalla og Skála-
fells.
Óhappið varð á miðri leið upp á
endastöð, þar sem hallinn er hvað
mestur, og mjakaðist stóllinn í
fyrstu afturábak en náði talsverðri
ferð í lokin áður en hann rakst á
næsta stól. Drengjunum var mjög
brugðið við atvikið en þeir sem
voru í stólnum fyrir neðan voru
um tvítugt og tóku á móti renn-
andi stólnum af röggsemi. Að sögn
Grétars Halls er þetta ekki í fyrsta
skiptið sem svona atvik gerist.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær viðskiptavin Kaupþings
til að greiða KB banka tæpar 1,3
milljónir króna, sem voru eftirstöðvar
taps á tveimur skiptasamningum er
maðurinn gerði við Kaupþing um
hlutabréfakaup árið 2000.
Um var að ræða hlutabréf í sænska
félaginu Daleen Technologies Inc. og
Nokia. Gengi bréfanna lækkaði og
þegar samningunum var lokað árið
2001 nam tap á viðskiptunum samtals
rúmum 4,7 milljónum króna. Við-
skiptavinurinn greiddi ekki bankan-
um mismuninn og gekk bankinn þá að
veðum sem sett voru sem tryggingar
og seldi þau fyrir samtals um 3,5
milljónir króna. Bankinn höfðaði síð-
an mál til að innheimta eftirstöðvarn-
ar. Viðskiptavinurinn taldi að samn-
ingarnir við Kaupþing hefðu ekki
verið í samræmi við þær kröfur, sem
gera yrði til slíkra samninga um skýr-
leika, og form samninganna þannig
uppbyggt að þeir væru algerlega
óskiljanlegir venjulegu fólki. Þá hefði
framganga starfsmanna Kaupþings
við gerð samninganna ekki verið í
samræmi við lög eða þær kröfur sem
gera yrði til slíkra sérfróðra starfs-
manna og þeir hefðu ekki gert honum
grein fyrir þeirri áhættu sem fylgdi
viðskiptunum. Héraðsdómur féllst
hins vegar ekki á að bankinn hefði
með framgöngu sinni í viðskiptunum
bakað viðskiptavininum tjón og bæri
því ábyrgð á tapi hans á samningun-
um. Þá yrði ekki séð á hvern hátt
Kaupþing hefði notfært sér fákunn-
áttu viðskiptavinarins.
Greta Baldursdóttir héraðsdómari
dæmdi málið. Andri V. Sigurðsson
hdl. flutti málið fyrir stefnanda og
Reynir Karlsson hrl. fyrir stefnda.
Greiði KB banka
eftirstöðvar taps
Lést í vinnuslysi
MAÐURINN sem lést í vinnuslysi á
mánudag er aftanívagn flutningabíls
féll á hann við Blesugróf hét Ingvar
Ágústsson, bifreiðastjóri, til heimilis
í Blesugróf 15, Reykjavík. Hann var
fæddur 19. ágúst árið 1938 og lætur
eftir sig eiginkonu og fjögur upp-
komin börn.