Morgunblaðið - 09.02.2006, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 25
DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR
ALZHEIMER er arfgengur sjúk-
dómur en lífsstíllinn getur ákvarð-
að hvenær sjúkdómurinn kemur
fram. Þetta eru helstu
niðurstöður nýrrar
rannsóknar sænskra
og bandarískra vís-
indamanna á sænsk-
um tvíburapörum.
Nancy Pedersen er í
forsvari fyrir vísinda-
mannahópinn og segir
í Dagens Nyheter að
með því að rannsaka
Alzheimertilfelli hjá
tvíburum hafi komið í
ljós að orsakir sjúk-
dómsins liggi mun frekar í erfð-
unum (80%) en umhverfinu (20%).
Í DN kemur fram að þrátt fyrir
að Alzheimer sé í ættinni og í ljós
hafi komið að sjúkdómurinn
stjórnist frekar af erfðum en um-
hverfi, geti fólk fyrirbyggt eða
a.m.k. seinkað sjúkdómnum með
því að lifa heilbrigðu lífi og æfa
heilann. Um er að ræða stærstu
tvíburarannsókn á sambandi erfða
og umhverfis í tengslum við Alz-
heimer sem gerð hefur verið.
Sænsk gögn um tólf þúsund tví-
burapör yfir 65 ára aldri voru
rannsökuð og voru tvíburarnir
bæði eineggja og tvíeggja, en
sænska tvíburaskráin er sú um-
fangsmesta í heimi. Niðurstöð-
urnar birtast í vísindatímaritinu
Archives of General Psychiatry.
Erfðavísar hafa einnig áhrif á
það hvenær einkenni Alzheimer
koma í ljós. Hjá eineggja tvíburum
með Alzheimer byrjuðu einkennin
oftar á svipuðum tíma en lengra
gat liðið á milli hjá
tvíeggja tvíburum, allt
að 18 ár. Þegar rann-
sóknin fór fram höfðu
ekki endilega báðir
eineggja tvíburarnir
fengið Alzheimer þótt
annar væri greindur
með sjúkdóminn.
„Rannsóknin sýnir
að bæðir erfðir og um-
hverfi hafa áhrif [...]
maður þarf ekki að
gefast upp heldur
reyna að hafa áhrif á þróunina,“
segir Pedersen í DN og nefnir
hollt mataræði og heilarækt sem
mikilvæga þætti til að hægja á
þróuninni. Umhverfisþættirnir
eru þó margir og mismunandi og
t.d. skiptir máli við hvað fólk vinn-
ur, hvaða menntun það hefur,
hreyfing og mataræði. Frekari
rannsóknir á umhverfisþáttum
sem hafa áhrif standa nú fyrir dyr-
um.
Annar hópur vísindamanna hef-
ur komist að því að hægt er að sjá
fyrir hvaða sjúklingar muni fá el-
liglöp eða Alzheimer með því að
taka mænuvökvapróf. Of snemmt
þykir þó að byrja að gera slík próf
á hugsanlegum sjúklingum þar
sem meðferðarúrræði eru ekki
skýr.
Heilbrigt líf getur
seinkað Alzheimer
HEILSA
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
,
Kringlunni,
sími 533 4533
Smáralind,
sími 554 3960
Laugavegi 7,
sími 561 1511
Tax-free-bomba
Fríhafnarverð
fimmtudag til sunnudags
Fríhafnarverð á öllum vörum
í verslunum okkar þessa helgi
Verið velkomin
Yamaha píanó.
Yamaha píanó og flyglar
með og án SILENT búnaðar.
Veldu gæði – veldu Yamaha!
Samick píanó.
Mest seldu píanó á Íslandi!
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 357.000 kr.
Goodway píanó.
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 238.000 kr.
15 mán. Vaxtalausar greiðslur.
Estonia flyglar.
Handsmíðuð gæðahljóðfæri.
Steinway & Sons
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Til sýnis í verslun okkar.
H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350