Morgunblaðið - 09.02.2006, Síða 50
50 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Losaðu samband þitt við alla tvíræðni.
Sýndu að þú sért til í að breytast ef það
verður til þess að halda ástinni lifandi.
Málamiðlun er til marks um trúfestu
þína og vandaðar manneskjur eru til í
að mætast á miðri leið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Óvæntir atburðir eru eins og köld
vatnsgusa framan í nautið. Hvers vegna
tókstu ekki eftir neinu? Kannski hefur
þú gengið í svefni. Nú þegar þú hefur
áttað þig, koma nýir möguleikar til sög-
unnar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þrár tvíburans eru honum ofarlega í
huga og hjarta í dag. Hann er í þeirri
stöðu að geta tekið skref fram á við í
sambandi sem skiptir hann máli. Vertu
til staðar fyrir einhvern sem spyr hvort
þú eigir tíma aflögu og hjálpaðu viðkom-
andi með ánægju.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Áskorun bíður krabbans en hún er bara
tækifæri til þess að sýna hversu mikið
hann hefur þroskast. Krabbinn er góður
í því að finna lausnir og veit að sá vægir
sem vitið hefur meira.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið er einstaklega samvinnuþýtt og
gerir allt sem því er ætlað, en einhverra
hluta vegna finnur það ekki til fullnægju
eða árangurs. Á einhverjum tímapunkti
nemur það staðar og spyr: hver fékk
eiginlega hugmyndina?
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan er eins og barn sem syngur eft-
ir karaókí-texta á sjónvarpsskjá og fylg-
ist með boltanum sem hoppar á milli
orða. Fyrr en varir á hún eftir að kunna
lagið og þarf þá ekki á hjálp að halda
lengur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Beittu næmi í meira mæli í einkalífinu,
ekki rökhugsuninni. Það er hún sem
þjónar þínu frábæra innsæi. Ef eitthvað
sem þú gerir virðist óskiljanlegt, er það
eitt út af fyrir sig næg ástæða til þess að
stoppa.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tekjumöguleikar sporðdrekans eru
góðir þessa dagana. Hann eyðir fénu af
kostgæfni. Sýndu heilindi og neitaðu að
vera eins og aðrir, hvort sem þú leggur
stund á viðskipti eða listir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Draumur heltekur bogmanninn. Ef
hann væri ekki jafn yndislegur og raun
ber vitni, fyndist bogmanninum hann í
heljargreipum. Hann einblínir á yndis-
legan möguleika svo það sem hann gerir
á ekkert skylt við vinnu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einhver sem steingeitin treystir segir
henni eitthvað sem hún vill ekki heyra.
Aðrir sjá mann oft greinilegar en maður
sér sjálfan sig. Mundu að fólki þykir
óumræðilega vænt um þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Horfðu í baksýnisspegilinn en ekki fest-
ast. Haltu áfram og einbeittu þér að því
sem er framundan á veginum. Þú tekur
eftir hlutum sem þarf að sinna, eins og
hungurverkjum í maganum. Lífið bíður
eftir því að þú keyrir upp að lúgunni og
pantir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Möguleikarnir eru já eða nei. Í þínu til-
felli er já-ið skrifað í stjörnurnar.
Leyfðu hjartanu að tala. Þótt enginn
segi neitt, er nóg að blikka.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Sveiflutíðni vatnsberans
þeytir okkur í átt til morg-
undagsins, morgundags-
ins, morgundagsins og ekkert ráðrúm til
þess að horfa tilbaka. Ef gljáandi nýja-
brum vatnsberans reynist einhverjum um
megn, huggar tungl í krabba. Það táknar
umönnun, móður, mjúkt teppi og hlý orð.
Ef maður er heima við, finnur maður
það örugglega.
Myndlist
101 gallery | Ásmundur Ásmundsson. Til
25. feb.
Artótek Grófarhúsi | Valgerður Hauks-
dóttir myndlistarmaður til 19. febrúar.
Bananananas | Opið verður á sýningu
Finns Arnars Arnarsonar, fim. 9. feb. kl. 16–
18, fös. 10. feb. kl. 16–18 og lau. 11. feb. kl.
14–16. Á laugard. mun Finnur sitja yfir sýn-
ingunni. Sýningin stendur til 18. feb.
Energia | Erla M. Alexandersdóttir sýnir
akrýl og olíumálverk. Út febrúar.
Gallerí BOX | Arna Valsdóttir sýnir til 11.
febrúar. Opið fimmtud. og laugard. kl. 14–
17.
Gallerí Kolbrúnar Kjarval | Sigrid Østerby
sýnir myndverk tengd Sömum til 22. feb.
Gallerí Sævars Karls | Jónas Viðar
Sveinsson sýnir málverk til 23. febrúar.
Gallerí Úlfur | Sýning Ásgeirs Lárussonar
út febrúar.
Grafíksafn Íslands | Ingiberg Magnússon –
Ljós og tími II. Opið fim–sun kl. 14–18.
i8 | Sýningin Fiskidrama samanstendur af
myndbandi, skúlptúr og teikningum. i8 er
opið mið–föst. kl. 11–17 og laug. kl. 13–17.
Kaffi Mílanó | Erla Magna Alexanders-
dóttir sýnir olíu og akrýlmyndir út feb.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýning-
una Týnda fiðrildið til loka apríl.
Kunstraum Wohnraum | Jóna Hlíf Hall-
dórsdóttir sýnir verkið – Gegnum –
Through – til 23. mars.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafnið á Akureyri | Sýning á verkum
Svavars Guðnasonar, Carl–Henning Peder-
sen, Sigurjóns Ólafssonar og Else Alfelt. Til
25. febr.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II –
Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13
ísl. samtímalistamanna. Til 12. febrúar.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kristín
Þorkelsdóttir (hönnun, vatnslitir). Guðrún
Vigfúsdóttir (vefnaður). Til 12. feb.
Listasafn Reykjanesbæjar | Guðrún Ein-
arsdóttir sýnir verk unnin með olíu á striga
ásamt skúlptúrum unnum úr frauðplasti og
litarefni á tré. Til 5. mars.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Gabrí-
ela Friðriksdóttir, Feneyjaverkið. Kristín Ey-
fells. Til 26. feb.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Skotið.
Jóna Þorvaldsdóttir. Til 22. feb.
Skúlatún 4 | Fyrsta sýning ársins. Ólíkir
listamenn sem reka vinnustofur og sýning-
araðstöðu á þriðju hæð. Til 12. feb.
Thorvaldsen | Bjarni Helgason sýnir á
Thorvaldsen Bar – Ostranenie – sjónræna
tónræna – til 3. mars
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís-
lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí. Ljós-
myndir Marco Paoluzzo og ljósmyndir
Péturs Thomsen í Myndasal. Til 20. feb.
Söfn
Aurum | Þorgeir Frímann Óðinsson fjöl-
listamaður sýnir verk úr myndaröðinni Vig-
dís til 17. febrúar.
Bæjarbókasafn Ölfuss | Sýning á teikn-
ingum Guðmundar Einarssonar frá Miðdal,
sem hann gerði er hann var í verbúð í Þor-
lákshöfn á árunum 1913–1915. Myndirnar
eru ómetanleg heimild um mannlífið í ver-
stöðinni Þorlákshöfn á þessum árum.
Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins í
Duushúsum Sagt er frá tímabilinu 1969 til
1979 í máli og myndum. Rifjuð upp tískan
og tíðarandinn. Opið daglega kl. 13–18.30
til 1. apríl.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Myndirnar á
sýningunni Móðir Jörð gefa óhefðbundna
og nýstárlega sýn á íslenskt landslag þar
sem markmiðið er að fanga ákveðna
stemningu fremur en ákveðna staði. Skotið
er nýr sýningarkostur hjá Ljósmyndasafni
Reykjavíkur og er myndum er varpað á
vegg úr myndvarpa.
Minjasafn Austurlands | Endurnýjun á
sýningum stendur yfir. Ný grunnsýning
opnar 1. maí nk.
Þjóðmenningarhúsið | Fræðist um fjöl-
breytt efni á sýningunum Handritin, Þjóð-
minjasafnið – svona var það, Fyrirheitna
landið og Mozart-óperan á Íslandi. Njótið
myndlistar og ljúfra veitinga í veitingastof-
unni. Leiðsögn í boði fyrir hópa.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni
Íslands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu
og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru nýstár-
legar og vandaðar sýningar auk safnbúðar
og kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka
og miðla þekkingu á menningararfi Íslend-
inga frá landnámi til nútíma. Opið alla daga
nema mánudaga kl. 11–17.
Skemmtanir
Kiwanishúsið | Félagsvist alla fimmtud. í
Kiwanishúsinu Mos., í landi Leirvogstungu
við Vesturlandsveg. Spilaverðlaun, kaffi-
veitingar. Sími 566 7495, húsið opnað kl.
20.
Klúbburinn við Gullinbrú | Trúbadorarnir
Halli og Kalli skemmta 10. febrúar.
Fyrirlestrar og fundir
Háskóli Íslands | Kjartan Ólafsson, sér-
fræðingur á Rannsóknastofnun Háskólans
á Akureyri, heldur erindi í hádegisfundaröð
Rannsóknastofu í vinnuvernd um áhrif ál-
vers- og virkjunarframkvæmda á Austur-
landi, á efnahag og vinnumarkað. Fundur-
inn er í Lögbergi stofu 101, kl. 12–13.
Landakot | Fræðslufundur á vegum RHLÖ
verður haldinn kl. 15, í kennslusalnum á 6.
hæð á Landakoti. Júlíana Sigurveig Guð-
jónsdóttir hjúkrunarfr., fjallar um reynslu
dætra af flutningi foreldra, sem þjást af
heilabilun, á hjúkrunarheimili. Sent verður
út með fjarfundabúnaði.
Oddi – Félagsvísindahús HÍ | Samtökin ’78
efna til fyrirlestrar í Odda, Háskóla Íslands
10. febr. kl. 12. Þorgerður H. Þorvaldsdóttir,
sagn- og kynjafræðingur flytur fyrirlestur
sem hún nefnir: Glæpurinn kynvilla. Sam-
kynhneigð og refsilöggjöf 1869–1993.
Slysavarnadeild kvenna | Aðalfundur
Slysavarnadeildar kvenna í Reykjavík í
Höllubúð kl. 20.
Frístundir og námskeið
Bókaforlagið Salka | Þrýstipunkta nám-
skeið kl. 19–21. Birgitta Jónsdóttir Klasen
skoðar mismunandi mataræði fyrir sólar-
týpur og tungltýpur og kennir þrýsti-
punktameðferð. Skráning er hafin hjá
Sölku. Sendið póst með upplýsingum um
fæðingardag og ár. á berglind@salka-
forlag.is eða í síma 552 1122.
Yoga Shala Reykjavík | Ashtanga yoga
helgarnámskeið verður með Mark Freeth
frá Englandi, dagana 10.–12. feb. (8 klst).
Allar nánari upplýsingar og skráning í
síma 862 6323 eða á helgasnjolfs@-
gmail.com.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos/
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 ástæður,
4 gelta, 7 lagarmál,
8 spjalla, 9 dugur, 11 ein-
kenni, 13 pípan, 14 blær,
15 skinn, 17 sníkjudýr,
20 deilur, 22 landræk,
23 forræði, 24 tómur,
25 lotur.
Lóðrétt | 1 handfang,
2 gjálfra, 3 beð, 4 hetju,
5 heimild, 6 ávöxtur,
10 frek, 12 meis, 13 þjóta,
15 sperðill, 16 döpur,
18 smáöldur, 19 hagn-
aður, 20 siðar, 21 næð-
ing.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 barndómur, 8 augað, 9 öldur, 10 iðn, 11 dýrið,
13 nýrað, 15 kenna, 18 safna, 21 píp, 22 sigla, 23 önnin,
24 mislingar.
Lóðrétt: 2 angur, 3 næðið, 4 ósönn, 5 undur, 6 hald,
7 fróð, 12 inn, 14 ýsa, 15 kæsa, 16 nagli, 17 apall,
18 spönn, 19 fenna, 20 asni.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is