Morgunblaðið - 09.02.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 51
DAGBÓK
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, bað og
jóga kl. 9. Boccia og spænska kl. 10.
Sheena með myndlist kl. 13. Video-
stund kl. 13.15, ýmsar myndir og
þættir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl.
9–16.30. Boccia kl. 9.30. Helgistund
kl. 10.30. Leikfimi kl. 11. Myndlist kl.
13.30.
Ásgarður | Félagsvist og dans verður
í Ásgarði, Stangarhyl 4, laugardaginn
11. febrúar. Félagsvistin hefst kl. 20 og
dans að henni lokinni um kl. 22.30.
Stefán G. leikur fyrir dansi, dans við
allra hæfi. Félagsstarf SÁÁ.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
myndlist, bókband, fótaaðgerð.
FEBÁ, Álftanesi | Gönguhópur kl.
10–11. Mæting fyrir framan Bessann
og kaffisopi þar eftir göngu. Allir eldri
borgarar velkomnir í hópinn, bara
mæta. Útskurðarnámskeið í smíða-
stofu Grunnskólans fimmtudaga kl.
15.30–18.30. Leiðbeinandi Friðgeir H.
Guðmundsson. Upplýsingar gefur
Guðrún í síma 565 1831.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Skráning fer nú fram vegna
sæludaga á Hótel Örk vikuna 26.–31.
mars nk. Listar eru á upplýsinga-
töflum félagsmiðstöðvanna Gjábakka
og Gullsmára. Hægt er að skrá sig á
skrifstofu FEBK í Gullsmára 9 á skrif-
stofutíma. Takmarkaður fjöldi gist-
inga í boði. Fyrstur kemur – fyrstur
fær.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids í dag kl. 13. Leikfélagið Snúður
og Snælda frumsýnir leikritið Glæpir
og Góðverk. Leikgerð Sigrún Val-
bergs. Leikstjóri Bjarni Ingvarsson.
Sýnt í Iðnó sunnudaginn 12. febrúar
kl. 14. Miðapantanir í Iðnó í síma
562 9700. Sýningar verða á mið-
vikudögum og sunnudögum.
Félag kennara á eftirlaunum | Bók-
menntaklúbbur í Kennarahúsi kl. 14–
16. EKKÓ-kórinn í KHÍ kl. 17–19.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.05 og
kl. 9.50 leikfimi, kl. 9.15. rammavefn-
aður, kl. 9.30 málm- og silfursmíði, kl.
10.50 róleg leikfimi, kl. 13 bókband, kl.
14 bingó, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21
línudans.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Handavinnustofan opin frá kl. 9–16,
leiðbeinandi á staðnum. Jóga kl. 10,
laus pláss. Brids kl. 13.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Opið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Glerbræðsla kl. 9 í Kirkjuhvoli. Vatns-
leikfimi kl. 9.45 og karlaleikfimi kl.
13.15 í Mýri. Handavinnuhorn kl. 13 í
Garðabergi. Spilakvöld í Garðabergi
kl. 19.30 á vegum FAG og Kristínar
Jóhannsdóttur. Síðasti skráningar-
dagur í leikhúsferðina á Carmen þann
19. febrúar.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9
smíðar og útskurður, almenn handa-
vinna. Kl. 13.30 boccia. Kaffiveitingar
kl. 15. Allir velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun, hjúkrunarfræðingur
á staðnum, kaffi, spjall, dagblöðin,
hárgreiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11 leik-
fimi. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 14
félagsvist. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi rabb og kaffi kl. 9,
pútt kl. 10, leikfimi kl. 11.20, gler-
bræðsla kl. 13, opið hús kl. 14, í boði
VÍS.
Hringskonur Hafnarfirði | Aðalfund-
ur Kvenfélagsins Hringsins verður 9.
feb. kl. 20 í Hringshúsinu, Suðurgötu,
Hafnarfirði.
Hvassaleiti 56–58 | Bróderí hjá
Halldóru kl. 9–16. Boccia kl. 10–11.
Félagsvist kl. 13.30 kaffi og gott með-
læti í hléi. Böðun fyrir hádegi. Fóta-
aðgerðir 588 2320. Hársnyrting
517 3005.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug kl. 9.30 á morg-
un.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hár-
greiðslu- og fótaaðgerðastofa opnuð
kl. 10. Handmennt almenn kl. 13, kaffi
kl. 14.30, bingó kl. 15.
Laugardalshópurinn Blik, Laugar-
dalshöll | Leikfimi eldri borgara í
Laugardalshöll kl. 11.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu | Félagsheimilið, Há-
túni 12. Skák í kvöld kl. 19. Allir vel-
komnir.
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík
| Aðalfundur Slysavarnadeildar
kvenna í Reykjavík verður haldinn í
Höllubúð kl. 20.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9–10 boccia. Kl.
9.15–14 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15–
15.30 handavinna. Kl. 10.15–11.45
spænska. Kl. 11.45–12.45 hádegis-
verður. Kl. 13–14 leikfimi. Kl. 13–16 kór-
æfing. Kl. 13–16 glerbræðsla. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9. Bókband og pennasaumur kl. 9,
morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10,
handmennt almenn kl. 13. Gler-
skurður kl. 13. Brids frjálst kl. 13.
Félagsvist spiluð í kvöld, allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 12. Léttur hádegis-
verður á eftir. Fundur í Kvenfélagi
Akureyrarkirkju kl. 19.30. Samhygð
kl. 20.
Áskirkja | Foreldrum er boðið til sam-
veru með börn sín í safnaðarheimili II
milli kl. 10 og 12 í dag. Herdís Storga-
ard ræðir um slysavarnir barna. Opið
hús milli kl. 14 og 17 í dag. Samsöngur
undir stjórn organista, kaffi og með-
læti. Samvera í safnaðarheimili II milli
kl. 17 og 18 í dag. Spurningaleikur.
Breiðholtskirkja | Biblíulestur kl. 20 í
umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar.
Farið verður í bréf Páls postula til
Rómverja og Galatamanna.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra í Bú-
staðakirkju! Núna á fimmtudegi
heimsækjum við starf aldraðra í
Akraneskirkju. Lagt verður af stað
frá kirkjunni kl. 12.30. Áætluð heim-
koma er um klukkan 17. Nánari upp-
lýsingar hjá kirkjuvörðum Bústaða-
kirkju í síma 553 8500.
Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl.
10. Leikfimi IAK kl. 11. Bænastund kl.
12. Barnastarf 6–9 ára kl. 17–18 á
neðri hæð. Unglingastarf kl. 19.30–
21.30 á neðri hæð. www. digranes-
kirkja.is
Dómkirkjan | Alla fimmtudaga frá kl.
14–16 er opið hús í safnaðarheimilinu
Lækjargötu 14a.
Fríkirkjan í Reykjavík | Kyrrðar- og
bænastund í hádeginu á fimmtudög-
um, kl. 12.15.
Garðasókn | Kyrrða-og fyrirbæna-
stund kl. 22. Gott er að ljúka deginum
og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar
og bera þar fram áhyggjur sínar og
gleði. Tekið er við bænarefnum af
prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í
lok stundarinnar.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmiss konar fyrir-
lestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús
og brauð fyrir börnin. TTT fyrir börn
10–12 ára á fimmtudögum í Húsa-
skóla kl. 17.30–18.30.
Hafnarfjarðarkirkja | 7–9 ára starf
er alla fimmtudaga klukkan 17–18.
Margt skemmtilegt er gert saman,
vonum að sjá sem flesta.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi alla fimmtudaga kl. 12. Orgel-
leikur, íhugun. Léttur málsverður í
safnaðarsal eftir stundina.
Háteigskirkja | Taize-messa öll
fimmtudagskvöld í Háteigskirkju.
Kirkjan opnuð klukkan 19 og messan
hefst klukkan 20. Hljóð stund í nær-
veru Guðs.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Bridsaðstoð í Setrinu, Háteigskirkju á
föstudögum kl. 13–16. Kaffi kl. 15.
Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 7–9
ára starf, er kl. 16.30–17.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam-
vera fyrir fólk á öllum aldri. Lofgjörð,
vitnisburðir og kröftug bæn.
KFUM og KFUK | Hátíðarfundur í AD
KFUM Holtavegi 28 fimmtudag 9.
feb. kl. 19 í umsjá stjórnar KFUM og
KFUK. Nýir félagar boðnir velkomnir.
Fundurinn hefst með kvöldverði, verð
kr. 2.900. Skráning á skrifstofu
KFUM og KFUK til 8. feb. sími
588 8899. Allir karlmenn eru vel-
komnir
Kristniboðsfélag kvenna | Kaffi-
fundur að Háaleitisbraut 58–60.
Fundurinn er í umsjá Rannveigar
Ólafsdóttur og hefst kl. 16. Betsy
Halldórsson verður gestur fundarins
og eru allar konur velkomnar.
Langholtskirkja | Opið hús kl. 10–12
fyrir foreldra ungra barna. Spjall,
kaffisopi, söngstund fyrir börnin.
Fræðsla annan hvern fimmtudag.
Umsjón hefur Lóa Maja Stefánsdóttir,
móðir og sjúkraliði. Verið velkomin.
Leitið uppýsinga í síma 520 1300.
Laugarneskirkja | Kl. 12 Kyrrðar-
stund í hádegi. Að bænastund lokinni,
kl. 12.30, er málsverður í boði í safn-
aðarheimilinu. Kl. 14 Samvera eldri
borgara. Hróbjartur Darri Karlsson
hjartalæknir fræðir um holla lífshætti
á efri árum og svarar spurningum. Kl.
17 Adrenalín gegn rasisma.
Neskirkja | Samtal um sorg kl. 12.
Samtal um sorg er opinn vettvangur
þeirra sem glíma við sorg og missi og
vilja vinna úr áföllum sínum. Fólk
kemur þar saman til að tjá sig eða
hlusta á aðra. Prestar kirkjunnar
leiða fundina.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Beðið fyrir sjúkum og bágstödd-
um. Einnig tekið við bænarefnum.
Kaffisopi að lokinni athöfninni.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
VERÖLDIN er full af undrum. Hvað
veldur því að menn, milljónum sam-
an, ganga inn í bláfjólubjarg hug-
sjóna og trúar? Hvernig verða slíkar
trúar- og hugsjónahreyfingar til?
Hvað knýr þær áfram og hvert er eðli
þeirra? Ein slík hreyfing 20. aldar-
innar er hvítasunnuhreyfingin en
fræjum hennar hefur einnig verið sáð
hér á landi. Um hana og leiðtoga
hennar hefur sænska stórskáldið Per
Olov Enquist skrifað fyrirferðar-
mikla heimildaskáldsögu, sem í ís-
lenskri þýðingu Höllu Kjartansdóttur
hefur fengið nafnið För Lewis. Hvíta-
sunnuhreyfingin virðist hafa orðið til í
Bandaríkjunum og Svíþjóð og breiðst
þaðan út um heim. Ef marka má
skáldsöguna eru nú 250 milljónir
manna frelsaðir í hennar anda um
víða veröld. Því er viðfangsefnið
sannarlega áhugavert.
Enquist velur þá leið að nálgast
hreyfinguna út frá lykilpersónum
hennar á 20. öldinni, þeim Lewi Pet-
rus og Sven Lidman. Í upphafi bókar
kemst sögumaður yfir lífssögu eða
lífshlaup eins samverkamanna þeirra,
Efraim Markström, og á þeirri lífs-
sögu byggir hann frásögn sína. Þetta
val á sjónarhorni hleypir sögumanni
inn í miðjan leiðtogahóp hreyfingar-
innar í Svíþjóð, jafnframt því að
tryggja höfundi íróníska fjarlægð frá
viðfangsefninu. Við fylgjumst með
uppgangi safnaðarins innan frá.
Efraim gefur okkur innsýn inn í innri
átök leiðtoganna. Þeir Lewi Petrus
og Sven Lidman voru þekktir menn
og vel metnir af ýmsum í heimalandi
sínu og miklir
áhrifamenn um
framgang hreyf-
ingarinnar enda
þótt báðir væru
umdeildir. Lewi
Petrus er raunar
sagður faðir henn-
ar.
Hvor þeirra er
með sínum hætti.
Lewi Petrus er af alþýðuættum, líkur
bjargi sem kirkja hans er byggð á en
Lidman er borgaralegt skáld, giftur
inn í auðmannafjölskyldu. Þegar
hann frelsast hafa þau fjölskyldubönd
þó losnað. Hann er miklu breyskari
maður og dregur á eftir sér slóða
fyrri synda þegar hann frelsast til
hinnar sönnu trúar. Hins vegar er
hann mikill prédikari og mikilvægur
rithöfundur hreyfingarinnar. Segja
má að samband þessara tveggja
manna sé í brennidepli sögunnar. Í
senn gefa þeir hvítasunnusöfnuðinum
styrk en jafnframt eru í sambandi
þeirra og lundarfari fólgin átök sem
gera honum erfitt fyrir.
Meginviðfangsefni Enquists er þó
hreyfingin sjálf. Sennilega verður að
telja skýringar skáldsins á eðli og
uppgangi hennar umdeilanlegar.
Hann reynir að útskýra þetta tvennt
annars vegar út frá tengslum við upp-
gang verkalýðshreyfingarinnar og
hins vegar út frá því sem mér sýnist
einhvers konar sálgreiningartilraun.
Mikill hluti þátttakenda hreyfing-
arinnar eru konur, oft einstæðar
mæður, og Enquist leikur sér með
hugmyndina um brúði Krists og kyn-
ferðislega strauma milli leiðtoga og
safnaðar í þessu samhengi í stað nær-
tækari skýringar um föðurlegt skjól
slíkra hreyfinga. Við sjáum líka í um-
fjöllun Enquists hvernig söfnuðurinn
breytist úr opnum og lýðræðislegum
samtökum í miðstýrt andlegt vald.
Allt eru þetta kunnugleg einkenni á
slíkum alþýðuhreyfingum.
Þýðing Höllu Kjartansdóttur er
nokkuð góð en þó misgóð. Stíllinn er
lipur oftast nær og textinn skýr. Þó
glittir í staði þar sem mér finnst mál-
vöndunarsjónarmið látin lönd og leið.
Orðið „meðlimur“ sem er nokkuð góð
sænska er mikið notað á kostnað þess
ágæta orðs „félagi“ sem oftast fer
betur. Sömuleiðis orðið að „fyrirfinn-
ast“ í stað þeirrar látlausu sagnar „að
vera“: „Þegar 20. öldin var á enda
runnin, fyrirfundust „að minnsta
kosti“ 530 sjálfstæðir hvítasunnnu-
söfnuðir víða um land. Enda þótt
fjöldi meðlima væri óviss var hann þó
gríðarlega mikill í samanburði við
aðra fríkirkjusöfnuði eða söfnuði
ríkiskirkjunnar.“ (bls. 296) Á næstu
blaðsíðu við þetta textabrot er síðan
tilvísunarsetningum hrúgað saman
þannig að úr verður hið mesta klúður:
„Sven hafði snemma fundið, á þeim
tíma sem hann var heiðinn, sem hann
nú gat notað á svo spennandi hátt í
predikunum sínum frammi fyrir dol-
föllnum systkinum sínum í trúnni, að
dulhyggjan kringum blóðið væri hinn
trúarlegi lykill að kynhvötinni.“ (bls.
297) Hér skortir greinilega betri rit-
stjórn og yfirlegu.
För Lewis er bók sem vekur ýmsar
spurningar varðandi alþýðu- og
trúarhreyfingar. Svör hennar eru
kannski ekki alltaf sannfærandi en
bókin er skrifuð af töluverðri list og
sem heimildaskáldsaga er hún vel
unnin, persónur dregnar skýrum
dráttum og efnistök öll með ágætum.
Þó að skáldsagan sé býsna löng held-
ur hún lesendum nokkuð vel við efnið.
Ég get þó ekki sagt að ég hafi beinlín-
is hrifist af henni.
Vald trúarinnar
BÆKUR
Heimildaskáldsaga
eftir Per Olov Enquist. Þýðandi er Halla
Kjartansdóttir. Mál og menning 2005
För Lewis
Skafti Þ. Halldórsson
Per Olov Enquist
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
60 stunda hagnýtt og skemmtilegt
tölvu- námskeið sem er sniðið að
þörfum byrjenda. Farið af mikilli
þolinmæði yfir námsefnið, sem er
allt á íslensku.
Kennt er á þau forrit sem mest eru
notuð þ.e. Windows, Word, Excel,
Internetið og Tölvupóst.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til
náms hjá NTV. Ertu búinn að kanna þinn rétt?
Þetta námskeið
hentar vel þeim
sem hafa enga
eða mjög litla
tölvuþekkingu.
Morgunnámskeið
Mán. og mið. 8:30 - 12:30
Frá 13. feb. til 15. mars.
Kvöldnámskeið
Mán. og mið. 18 - 22
Frá 13. feb. til 15. mars.