Morgunblaðið - 10.02.2006, Page 53
Challenges Presented by Populations of
the African Diaspora.“
Oddi – Félagsvísindahús Háskóla Íslands |
Samtökin ’78 efna til fyrirlestrar í Odda,
Háskóla Íslands föstudaginn 10. febrúar kl.
12. Þorgerður H. Þorvaldsdóttir, sagn- og
kynjafræðingur, flytur fyrirlestur sem hún
nefnir: Glæpurinn kynvilla. Samkynhneigð
og refsilöggjöf 1869–1993.
ReykjavíkurAkademían | Reykjavíkur-
Akademían ræðir um málefni innflytjenda
á Íslandi, í fyrirlestraröðinni, Varavinnuafl
eða vannýtt auðlind. Næsta erindi heitir:
Menntunarmöguleikar í nýju landi og fer
fram 11. feb. kl. 12. Ahn-Dao Tran mennt-
unarráðgjafi veltir því m.a. fyrir sér af
hverju nemendur af erlendum uppruna á
Íslandi hætta í framhaldsskóla?
Fréttir og tilkynningar
Fjölskylduhjálp Íslands | Tökum á móti
matvælum, fatnaði og leikföngum alla mið-
vikudaga frá kl. 13 til 17. Úthlutun matvæla
er alla miðvikudaga frá kl. 15 til 17 að Eski-
hlíð 2–4 V/Miklatorg. Þeir sem vilja styðja
starfið fjárhagslega, vinsamlegast leggið
inn á reikning 101-26-66090 kt. 660903-
2590.
Frístundir og námskeið
Yoga Shala Reykjavík | Ashtanga yoga
helgarnámskeið verður með Mark Freeth
frá Englandi, dagana 10.–12. feb. (8 klst).
Allar nánari upplýsingar og skráning í síma
862 6323 eða á helgasnjolfs@gmail.com.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 53
DAGBÓK
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó alla föstudaga
kl. 14. Söngstund við píanóið eftir
kaffihléið kl. 15. Fótsnyrting og hár-
greiðsla alla daga frá 9–16.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl. 9–
16.30. Bingó kl. 13.30.
Ásgarður | Félagsvist og dans verður
í Ásgarði, Stangarhyl 4, laugardaginn
11. febrúar. Félagsvistin hefst kl. 20 og
dans að henni lokinni um kl. 22.30.
Stefán G. leikur fyrir dansi, dans við
allra hæfi. Félagsstarf SÁÁ.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaað-
gerð, frjálst að spila í sal.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús kl. 13–16
á föstudag. Námskeið II í postulíns-
málun. Sigurbjörg Sigurjónsdóttir
leiðbeinir. Kaffiveitingar að hætti
FEBÁ. Auður og Lindi annast akstur,
sími 565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15. Fé-
lagsvist verður spiluð í félagsheim-
ilinu Gjábakka kl. 20.30 í kvöld.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Skráning fer nú fram vegna
sæludaga á Hótel Örk vikuna 26.–31.
mars nk. Listar eru á upplýsinga-
töflum félagsmiðstöðvanna Gjábakka
og Gullsmára. Hægt er að skrá sig á
skrifstofu FEBK í Gullsmára 9 á skrif-
stofutíma. Takmarkaður fjöldi gist-
inga í boði. Fyrstur kemur – fyrstur
fær. Ferðanefndin.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Leikfélagið Snúður og Snælda frum-
sýnir leikritið Glæpir og góðverk.
Leikgerð Sigrún Valbergs. Leikstjóri
Bjarni Ingvarsson. Sýning í Iðnó
sunnudaginn 12. febrúar kl. 14. Miða-
pantanir í Iðnó í síma 562 9700. Sýn-
ingar verða á miðvikudögum og
sunnudögum.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.30
boccia, kl. 10 spænska, framh., kl. 11
spænska, byrjendur, kl. 13.15 brids, kl.
13 gler- og postulínsmálun, kl. 20.30
félagsvist.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Vefnaður kl. 9, leikfimi kl. 10.45.
Gleðigjafarnir syngja kl. 14–15 þann
27. janúar og 10. og 24. febrúar.
Bingó kl. 14 þann 20. janúar, 3. og 17.
febrúar.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Opið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Bútasaumur kl. 13.30 í Kirkjuhvoli.
Slökunarjóga og teygjur kl. 12 í
Kirkjuhvoli.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10.30 létt
ganga um nágrennið. Frá hádegi er
spilasalur opinn. Kl. 13 leggur
Gerðubergskór o.fl. af stað í heim-
sókn á Hrafnistu í Hafnarfirði. Veit-
ingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi
Berg. Strætóleiðir S4 og 12 stansa
við Gerðuberg. Allar uppl. á staðnum
og í síma 575 7720. www.gerduberg-
.is.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9
smíðar og útskurður. Kl. 14 verður
bingó, kl. 15 kaffiveitingar. Allir vel-
komnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin. Almenn handavinna, út-
skurður, baðþjónusta, fótaaðgerð
(annan hvern föstudag), hárgreiðsla.
Kl. 12 hádegismatur. Kl. 14.45 bóka-
bíll. Kl. 15 kaffi. Kl. 14 bingó.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–12, postulínsmálning. Böðun fyr-
ir hádegi. Fótaaðgerðir s. 588 2320.
Hársnyrting s. 517 3005.
Norðurbrún 1 | Smíði kl. 9, myndlist
kl. 9–12, ganga kl. 10, opin hár-
greiðslustofa kl. 9, sími 588 1288,
leikfimi kl. 14.
Norðurbrún 1, | Þorrablót föstudag-
inn 10. febrúar kl. 18.30. Sigmundur
og Gunnar Jónssynir syngja dúett,
minni karla og kvenna. Þorvaldur
Halldórsson leikur fyrir dansi. Veislu-
stjóri Gunnar Þorláksson. Aðgöngu-
miði gildir sem happdrættismiði. Allir
velkomnir. Skráning og uppl. í síma
568 6960.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30 hann-
yrðir. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður.
Félagsmiðstöðinni verður lokað kl. 13
vegna undirbúnings þorrablóts sem
hefst kl. 17.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9. Leirmótun kl. 9. Hárgreiðsla kl. 9.
Morgunstund kl. 9.30, fótaaðgerðar-
stofa kl. 9.30, leikfimi kl. 10. Bingó kl.
13.30, allir velkomnir.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10. Kaffi og spjall.
Hallgrímskirkja | Starf með eldri
borgurum alla þriðjudaga og föstu-
daga kl. 11–14. Leikfimi, súpa, kaffi og
spjall.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam-
koma kl. 20. Ræðumaður Þorkell
Héðinn Haraldsson. Lofgjörð og fyrir-
bænir. Bænastund kl. 19.30 fyrir sam-
komu. Allir velkomnir.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Beðið fyrir sjúkum og bágstödd-
um. Einnig tekið við bænarefnum.
Kaffisopi að lokinni athöfninni.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
FÉLAG um átjándu aldar
fræði heldur málþing í fyrir-
lestrasal Þjóðarbókhlöðu á 2.
hæð, á morgun, laugardaginn
11. febrúar kl. 13.30. Yfir-
skrift málþingsins er: Af ís-
lenskum bókmenntum 1700–
1850.
Erindi halda: Sigurður Pét-
ursson, lektor í grísku og lat-
ínu; Margrét Eggertsdóttir
bókmenntafræðingur, Stein-
unn Inga Óttarsdóttir bók-
menntafræðingur og Sveinn
Yngvi Egilsson, lektor í ís-
lenskum bókmenntum. Tæki-
færi gefst til fyrirspurna og
umræðu að loknu hverju er-
indi. Fundarstjóri verður
Svavar Sigmundsson, for-
stöðumaður Örnefnastofnunar
Íslands.
Málþing um
bókmenntir
AÐALGALLI klassískra meistara-
verka – settur á oddinn – er kannski
að þau koma aldrei óþægilega á
óvart. Til þess eru þau klassísk. Þau
hafa staðizt tímans tönn. Og flutn-
ingur þeirra fer núorðið afar sjaldan
niður fyrir gott meðallag. Sem sagt:
lítið er þar að hafa fyrir spennu-
sækna hlustendur sem einkum fara
á tónleika upp á von og óvon.
Þeirra kjörvettvangur er hins
vegar tónleikar með nútímaverkum
þar sem allt getur gerzt, hvort held-
ur á betri eða verri veg. Þar er ólíkt
víðara á milli andstæðra skauta eins
og dæmin hafa sannað, ekki sízt á
Myrkum músíkdögum. Tandurskýrt
tilfelli gafst nú á dögunum ef bornir
eru saman Ýmistónleikarnir sunnu-
daginn 5.2. og sl. miðvikudagskvöld.
Ekki hvað flutning varðar, heldur
verk. Viðfangsefni sunnudagsins
voru öll hin áheyrilegustu, og sum
bráðskemmtileg. Aftur á móti syrti í
álinn á miðvikudagskvöld, þar sem
munurinn á milli beztu og lökustu
verka var nánast sem hvítt hjá
svörtu.
Í ljósari endanum voru hinir ljóð-
rænt súrrealísku fjórir þættir úr
Makrokosmos II, 1. hluta frá 1973
eftir Crumb (Morning Music, The
Mystic Chord, Rain-Death Vari-
ations og Twin Suns) og Quattro Ill-
ustrazioni frá 1953 eftir Scelsi inn-
blásnar af indverskri goðafræði er
Tinna Þorsteinsdóttir gerði ágæt
skil. Tækniólánið elti hins vegar
Hilmar Þórðarson (líkt og með „Bit-
in eyru“ á MM 2004) við frumflutn-
inginn á verki hans „Sononymus For
Piano – meitlað í stein“ fyrir slag-
hörpu og tölvu, þar sem tölvuhliðin
vildi ekki makka rétt. Endaði eftir
talsverðar tafir með að aðeins píanó-
hlutinn, í formi hæggengra klasa-
hljómaraða, var leikinn síðast á tón-
leikunum.
Áður gat að heyra frumflutning á
verki eftir bandaríska gestatón-
skáldið Greg Davis, Sea Chime fyrir
svokallað undirbúið („prepared“)
píanó, og var það langáheyrilegasta
framlag hans af þremur. Hugmynd-
in minnti jafnvel á gamlar grínteikn-
ingar hins danska Storm P. Skondið
var að horfa á bjölludótið bifast af
völdum girnisþráða, er tengdir voru
við hamra upprétta píanógarmsins,
hvaðan inn á milli kom stakur „óund-
irbúinn“ píanótónn á stangli. Og gis-
ið en notalegt klingið úr ýmsum
smágjöllum á 11 stöndum aftan við
píanistann var einkennilega tauga-
sefandi, þrátt fyrir vart merkjanlega
efnisframvindu á uppundir 20 mín.
þar sem 10 hefðu fyllilega dugað.
Seinni tvö verk Davis reyndu hins
vegar á þolinmæðina. Tónlistar-
gjörningur hans „Emptying“ var
músíkleikhús í anda Kagels og gekk
út á að láta píanistann smám saman
tína timbursprek og annað fjöru-
drasl úr flygli Dieters Roths. En
meðan tónsýningar Kagels geta ver-
ið bráðsmellnar – í hæfilegu sam-
ræmi við orð Shakespeares „brevity
is the soul of wit“ – þá teygðist sára-
einföld hugmynd Davis von úr viti,
enda hló enginn. Enn meiri erindis-
leysu fór „River Thought“ (frumfl.)
fyrir harmóniku og tölvu, er lá mar-
flatt á sama grunntóni í hátt í kortér
án teljandi breytinga umfram lötur-
hægt styrkris og síðan hnig.
Hvílík tímasóun …
Ríkarður Ö. Pálsson
Tímasóun
TÓNLIST
Ýmir
Verk eftir George Crumb, Giacinto
Scelsi, Hilmar Þórðarson og Greg Davis.
Tinna Þórsteinsdóttir píanó. Miðvikudag-
inn 8. febrúar kl. 20.
Myrkir músíkdagar
Fréttir á SMS
PHILADEPHIA
Inquirer birti
nýverið gagn-
rýni um hljóð-
bókarútgáfu
skáldsögunnar
The Thrall’s
Tale, Saga
þrælsins, eftir
Virginiu Leish-
man. Hrífst
gagnrýnandinn
mjög af sögunni,
sem segir frá ís-
lenskum þrælum
á 10. öld og ör-
lögum þeirra
eftir búferla-
flutninga til
Grænlands.
Þrjár konur eru í
forgrunni, Katla, sem er nauðgað,
dóttir hennar sem fæðist í kjölfarið
og heitir Bibrau, og svo höfðinginn
Þorbjörg.
Að mati gagnrýnandans er fróð-
legt að lesa um aðstæður Íslend-
inganna í Grænlandi, og lýsingar á
lifnaðarháttum þeirra. Þá nefnir
hún einnig að einn af helstu kost-
um hljóðbókarinnar sé hve ís-
lensku nöfnin séu tilkomumikil
áheyrnar; Freydís Eiríksdóttir,
Össur Ásbjarnarson, Hafgrímur,
Ketill og Hrafn.
Bók um íslenskar konur
á 10. öld vekur athygli
Morgunblaðið/RAX
Barist á fyrstu víkinga- og inúítahátíðinni, sem haldin
var í Narsarsuaq á Grænlandi.