Morgunblaðið - 10.02.2006, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Úrilli dómarinn í American Idol,Simon Cowell, er sagður vera
orðinn svo þreyttur á því að heyra
keppendur
syngja sömu lög-
in að hann hefur
ákveðið að banna
nokkur þeirra.
Eitt laganna er
„Falling“ með
söngkonunni
Aliciu Keys. „Ég
vil aldrei heyra
þetta lag aftur. Ég þoli það ekki og
er kominn með ofnæmi fyrir því,“
hefur veftímaritið Chart Singles eft-
ir honum.
Leikkonan Gwyneth Paltrowsegist ekki þola að sjá stelpur
skjögrandi á fylliríi. „Þær líta ekki
vel út og þetta er afar óviðeigandi,“
segir hún í viðtali við breska tímarit-
ið Grazia. Paltrow og maður hennar,
Chris Martin, söngvari Coldplay,
eiga von á öðru barni sínu, og Palt-
row hefur neitað því algjörlega að
þau hjónin séu leiðinleg.
Hún sagði nýverið að í Bretlandi
færi af þeim það orð að þau væru
„verulega leiðinleg“ af því að þau
stundi jóga og „sitji bara heima og
horfi á UK Gold“, sem er kapalstöð
sem sýnir klassískar bíómyndir.
„Mér finnst það eiginlega svolítið
fyndið að maður skuli núorðið þurfa
að vera að sniffa kók af rassinum á
einhverri fatafellu til að vera ekki
álitinn leiðinlegur,“ sagði Paltrow.
Leikkonan Teri Hatcher, semkunn er fyrir að leika í sjón-
varpsþáttunum Aðþrengdar eig-
inkonur, vakti mikla athygli þegar
hún mætti á verðlaunahátíð
Grammy-verðlaunanna í Hollywood
í gærkvöldi.
Hatcher var klædd bláum og
gegnsæjum kjól, sem hannaður var
af John Paul Gaultier.
„Ég vildi ekki að neinn þyrfti að
velkjast í vafa um hvort ég væri í
nærhaldi eða ekki,“ sagði Hatcher,
sem veitti m.a. verðlaun á hátíðinni.
„Við bjuggum samt til nokkrar
rykkingar til að tryggja að þið sæjuð
ekkert sem þið eigið ekki að sjá,“
bætti hún við.
Þegar Hatcher kom til verð-
launahátíðar Golden Globe-
verðlaunanna í janúar kom Isaac
Mizrahi, fréttamaður E!-frétta-
stöðvarinnar, henni á óvart þegar
hann togaði í hálsmálið á toppi, sem
hún var í, og sagðist vera að leita að
skrifaðri ræðu.
Í þetta skipti kom Hatcher öllum
á óvart, þar á meðal sjálfri sér.
„Vá, þetta er gegnsætt,“ sagði
hún eftir að hafa skoðað mynd af sér
á sjónvarpsskjá.
Fólk folk@mbl.is