Morgunblaðið - 10.02.2006, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 35
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
VEGNA mikillar umfjöllunar í
blöðum og öðrum fjölmiðlum um
áramótaræðu biskups Íslands, og
þeirrar hörðu gagnrýni, sem hann
hefur orðið fyrir, vil ég segja
þetta: Engin kristin manneskja,
jafnt karl sem kona, getur blessað
syndina, en það á að biðja fyrir og
blessa fólkið, sem í henni lifir.
Nokkrar spurningar til ykkar,
kæru landar: Á hvað trúum við?
Höfum við ekki verið að hæla okk-
ur af því að vera kristin þjóð í á
annað þúsund ár? Og hver er sú
bók, sem við höfum haft að leið-
arljósi? Það er jú Biblían, lifandi
Guðs orð. Jesús segir í Lúkasi
21:33: „Himinn og jörð munu líða
undir lok, en orð mín munu aldrei
undir lok líða.“ Og á öðrum stað
stendur: „Fremur ber að hlýða
Guði en mönnum.“ Ég held að öllu
kristnu fólki beri saman um að í
Biblíunni er að finna öll þau lífs-
gildi, sem eru undirstaða í öllu
okkar siðgæði (og landslög hafa
tekið mið af), ekki bara það, sem
snertir kynlíf fólks, (sem er skýrt
kveðið á um), heldur allt, sem er
manninum fyrir bestu. Allir lestir
okkar mannanna eru Guði and-
stygð, eins og segir í Matt. 15:19:
„Manndráp, hórdómur, saurlifn-
aður, þjófnaður, ljúgvitni, last-
mælgi.“ Hvað sjáum við í blöðum í
dag? Gæti það verið eitthvað af
þessu? Eða kannski allt? Svari
hver fyrir sig. Allt, sem brýtur á
móti boðum Hans er synd, hvort
sem okkur líkar betur eða verr,
en góðu tíðindin eru þau, að
„hann gaf son sinn eingetinn, til
þess að hver sem á hann trúir
glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“
(Jóh. 3:16). Við höfum öll syndgað
og skortir Guðs dýrð, en okkur ber
sem kristnu fólki að umbera og
elska náunga okkar, en jafnframt
eigum við ekki að skrökva að fólki
um það hvað Guðs orð segir okkur
skýrt og greinilega að er ekki frá
Guði komið. Svo ef við ætlum að
fara að leyfa eitthvað af þessu og
þykja sjálfsagt, þá erum við komin
út á hálan ís. Við færum okkur
alltaf lengra og lengra frá Guðs
orði.
Hvar endum við? Í öngstræti.
Jesús segir á einum stað: „Ef þér
elskið mig, munuð þér halda boð-
orð mín.“ (Jóh.14:15). Höfum við
gert það? Ég held ekki. Við brjót-
um þau daglega, bæði ég og aðrir
og það eina, sem við getum gert er
að biðja Guð að hjálpa okkur og
fyrirgefa, og það mun hann gera.
Við erum breyskar manneskjur, en
Jesús Kristur dó fyrir syndir okk-
ar og við getum alltaf snúið okkur
til hans og iðrast, og hann mun
fyrirgefa okkur með kærleika sín-
um. Hans faðmur stendur öllum
opinn, því hann elskar alla menn,
en hann vill fá að breyta okkur til
þess góða, fagra og fullkomna. Guð
blessi íslensku þjóðina og gefi
henni þá náð að hvika ekki frá því,
sem Guðs orð talar.
Að lokum vil ég þakka bisk-
upnum okkar, herra Karli Sig-
urbjörnssyni, fyrir að hafa ekki
látið undan þrýstingi fólks, sem
hefur ekki, eða vill ekki meðtaka
það, sem kristin trú boðar, og ég
bið honum blessunar Guðs í starfi
á komandi árum.
GUÐRÚN ODDSDÓTTIR,
húsmóðir,
Engihjalla 11, Kópavogi.
Hvert stefnum við?
Frá Guðrúnu Oddsdóttur
smáauglýsingar
mbl.is
ÞAÐ er ótrúlegt að heyra end-
urtekið órökstuddar fullyrðingar og
sleggjudóma um heilar starfs-
greinar af munni þeirra
sem ættu að vita betur.
Þannig eru til dæmis
orð landbúnaðarráð-
herra, Guðna Ágústs-
sonar, sem birtust í
sjónvarpsfréttum 1.
feb. sl. af fundi kúa-
bænda þar sem hann
gerir fyrst lítið úr
hagfræðiprófessorum
og mönnum sem
skreyta sig með fínum
titlum, en kýs síðan að
vitna í einn slíkan, Guð-
mund Ólafsson prófess-
or, varðandi hugs-
anlega lækkun
matarskattsins. Guðni
telur Guðmund sann-
orðan þegar hann segi
að samkeppnin sé ekki
meiri en svo, að versl-
unin gæti hirt 2/3 af
lækkun matarskattsins
og stungið í sinn vasa ef
stjórnvöld myndu
lækka hann (tollar og
innflutningsgjöld af
innfluttum landbún-
aðarafurðum). Nú vill
svo til að landbún-
aðarráðherra hefur fyr-
ir sér einmitt alveg þveröfugt dæmi
úr tíma sínum í ráðuneytinu þegar
ákveðið var að fella niður vernd-
artolla og álögur á innflutt græn-
meti. Þetta skilaði sér til neytenda í
lækkuðu smásöluverði og ekki að-
eins í verði grænmetis heldur náðu
áhrifin einnig til ávaxta sem lækk-
uðu beinlínis af sömu orsökum.
Það er alvarlegur hlutur að bera
það upp á heila atvinnugrein að hún
sé óvönd að meðölum og starfi and-
stætt því sem hún boðar, þ.e.a.s. í
þessu tilfelli sem þjónustustarfsemi
fyrir neytendur sem
leitast við að falbjóða
vörur á sem hagstæð-
ustu verði. Það er eng-
inn að biðjast undan
eðlilegu aðhaldi og
rökstuddri gagnrýni,
en tilvitnaður mál-
flutningur dæmir sig
sjálfur og menn hafa
fyrir sér dæmi um
ráðamenn með viðlíka
framkomu sem allir
enduðu á ruslahaug
sögunnar.
Verslunin er starfs-
grein sem veitir rúm-
lega 21 þúsund manns
atvinnu og skilar
meiru til samneysl-
unnar en margar aðrar
greinar atvinnulífsins.
Allt það góða fólk sem
starfar af heilindum og
hollustu í greininni er
með orðum ráðherrans
niðurlægt, ekki einu
sinni heldur margoft.
Hagsmunasamtök at-
vinnurekenda og laun-
þega í verslun hljóta að
æskja þess að mál-
flutningi sem þessum
linni og menn stuðli fremur að sam-
heldni og uppbyggingu en niðurrifi
og sundrungu með orðum sínum.
Sleggjudómar
og ávirðingar
Sigurður Jónsson
andmælir ávirðingum
um verslunina í landinu
Sigurður Jónsson
’Verslunin erstarfsgrein sem
veitir rúmlega 21
þúsund manns
atvinnu og skilar
meiru til sam-
neyslunnar en
margar aðrar
greinar atvinnu-
lífsins.‘
Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ
– Samtaka verslunar og þjónustu.
Námufélagar fá afslátt á sýningar í febrúar
SÝNT Í IÐNÓ. MIÐASALA Í IÐNÓ S. 562 9700 OG WWW.MIDI.IS
skámáni PERSÓNA
HILMIR SNÆR GUÐNASON
leikur Charlotte von Mahlsdorf og þrjátíu og fjórar aðrar persónur!
Leikstjóri : STEFÁN BALDURSSON
„Hvílíkur leikari!” (Þorgeir Tryggvason, Mbl.)
„Stórkostlegur leiksigur” (Blaðið)
„Fyrir þá sem njóta þess að upplifa list leikarans, þar sem hún er hvað sýnilegust er Ég er mín eigin kona einhver
stærsti og safaríkasti konfektmoli sem boðið hefur verið upp á hér um árabil.” (Þ.T. Mbl.)
„Það var nánast óraunverulegt að verða vitni að þeirri tæru kúnst sem Hilmir Snær býr yfir.”
(Súsanna Svavars, Blaðið)
„hér nær list Hilmis mögnuðum hæðum. Líkamstjáning, innlifun og tímasetningar óaðfinnanlegar.” (Þ.T.Mbl.)
„Það er fáum listamönnum gefið að fá mann til að hlæja og gráta á sama tíma. Charlie Chaplin var snillingur í þessu
og Hilmir Snær og Stefán Baldursson ná að galdra þetta fram einnig” (Heimir Már Pétursson, Blaðið)
„Svona gera bara snillingar.” (S.Sv. Blaðið)
„Stórbrotin í einfaldleika sínum”. (Valgeir Skagfjörð, Fréttablaðið)
„Hilmir Snær vinnur algeran leiksigur í þessari sýningu.” (H.M.P. Blaðið)
ÚR UMSÖGNUM FJÖLMIÐLA
UPPSELT
UPPSELT
laus sæti
örfá sæti laus
örfá sæti laus
föstudagur
laugardagur
fimmtudagur
föstudagur
laugardagur
10.02
11.02
16.02
17.02
18.02
föstudagur
laugardagur
föstudagur
laugardagur
föstudagur
24.02
25.02
03.03
04.03
10.03
laus sæti
örfá sæti laus
laus sæti
laus sæti
laus sæti