Morgunblaðið - 03.03.2006, Page 4
!
"
"
"#
$ %
&
'()
*+
*# ,
*
+ -
. +
+()
&
+)&
((
/
,0
,
,
,#!
,()
,/
*/#
1,(*2
,(
)
3
4 5
+6
+6
.718
$9 50 2
:;<
=
, ,("
<> &6?>>@
" A
A
?
?
?
A
?
?
?
?
?
A
<
A
A
?
?
B
A
?
?
A
A
A
A
<
B
B
?
?
A
C;
4 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.expressferdir.is
Express Fer›ir, Grímsbæ,
Efstalandi 26, sími 5 900 100
Nánar á www.expressferdir.is
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
VERÐ
39.900 kr.
INNIFALI‹:
20–23. APRÍL
Borgarleikhúsið og Express Ferðir hafa í
sameiningu sett saman leikhúsferð til
London í lok apríl. Þá er vorið komið í allri
sinni dýrð. Sérstakur leiðsögumaður
verður Guðjón Petersen leikhússtjóri og í
boði er að fara á tvær frábærar sýningar
sem báðar hafa slegið rækilega í gegn í
London. Söngleikurinn The Producers
og Who's afraid of Virginia Woolf? með
Kathleen Turner í aðalhlutverki. Einnig
gefst farþegum kostur á skoðunarferð
um borgina. Gist á góðu hóteli rétt við
Kensington Park.
Flug með sköttum, gisting
í þrjár nætur með morgunverði og
akstur til og frá flugvelli. Einstök ferð á
einstökum kjörum.
LONDON
Láttu drauminn rætast
SPENNANDI LEIKHÚSFERÐ TIL
KARL Georg Sigurbjörnsson,
hæstaréttarlögmaður hjá lögmanns-
stofunni Lögmenn Laugardal ehf.,
gagnrýnir harðlega rannsókn Fjár-
málaeftirlitsins á stofnfjárviðskipt-
um í Sparisjóði Hafnarfjarðar. „Ég
held að þessi rannsókn FME sé á al-
gerum villigötum. Ég átta mig ekki á
því hvaða glæpur á að hafa verið
framinn,“ segir hann. „Ég tel að
rannsóknin sé reist á sandi,“ segir
Karl Georg.
Í frétt Morgunblaðsins í gær kom
fram að rannsókn á stofnfjárvið-
skiptunum beindist m.a. að fjár-
mögnun viðskipta og komið hefði í
ljós við athugun á reikningum lög-
mannsstofunnar að fimm félög lögðu
háar fjárhæðir inn á þá. Karl Georg
segir að þessi mál séu í eðli sínu mjög
einföld en vegna trúnaðarskyldna
hans sem lögmanns gagnvart skjól-
stæðingum sínum eigi hann mjög
erfitt með að veita upplýsingar um
þetta. „En þetta á allt sínar eðlilegu
skýringar og það hefur ekkert óeðli-
legt átt sér stað. Ég get upplýst að
fjármögnunaraðilinn hefur aldrei átt
nein bréf eða haft umráð eða ráðstöf-
unarrétt eða farið með atkvæðisrétt
fyrir eitt einasta stofnbréf í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar.“
Engin lagaákvæði til um
„óbeinan virkan eignarhlut“
Karl Georg gagnrýnir m.a. að
FME beiti fyrir sig hugtökum sem
ekki sé að finna í íslenskum rétti, en
eins og fram hefur komið telur FME
hóp stofnfjáreigenda hafa náð óbein-
um virkum eignarhlut í SPH. Karl
Georg bendir á að þetta hugtak
„óbeinn virkur eignarhlutur“ sé ekki
að finna í lögum. Í 40. grein laga um
fjármálafyrirtæki sé hins vegar virk-
ur eignarhluti skilgreindur. „Ef ég
skil það rétt, og flestir lögfræðingar
sem ég hef talað við eru sammála
mér, þá er ekkert til í lögunum sem
heitir „óbeinn virkur eigarhluti“,“
segir hann.
Karl Georg segir að helst megi
ætla að FME hafi í upphafi talið að
málið væri allt öðru vísi vaxið en það
er í raun og veru. Rannsóknin hafi
staðið yfir allt frá í apríl á seinasta
ári. Að sögn hans leituðu hann og
Sigurður G. Guðjónsson hæstarétt-
arlögmaður til FME fyrir aðalfund
SPH í apríl í fyrra og óskuðu liðsinn-
is svo tryggt yrði að farið yrði að
samþykktum við undirbúning aðal-
fundarins og formskilyrði yrðu upp-
fyllt. FME hefði í engu sinnt því en
örfáum dögum seinna hefði borist
bréf frá FME með hugleiðingum um
einhvern virkan eignarhlut og FME
hefði lagt þeim orð í munn. „Við
komum [á þeirra fund] og kynntum
okkur sem lögmenn þessa framboðs
en eftir þetta kemur fram í öllum
bréfum frá þeim að við höfum kynnt
okkur sem talsmenn meirihluta-
stofnfjáreigenda í Sparisjóði Hafn-
arfjarðar, sem er alrangt,“ segir
hann.
Karl Georg segir að viðskipti með
stofnfjárhluti hafi svo gengið fyrir
sig með eðlilegum hætti en FME
hafi gengið fram með miklu offorsi
við rannsókn á málinu. Eftirlitið hafi
krafið þá svara og dregið allt í efa
sem sagt var og gert.
„Þetta var verkefni sem við tókum
að okkur sameiginlega og þetta var
keyrt í gegnum fjárvörslureikning
lögmannsstofu minnar,“ segir hann.
„Við göngum frá þessum viðskiptum,
bréfin ganga kaupum og sölum og
eru framseld en eftirlitið hnýtir stöð-
ugt í það. Þeir eru alltaf að leita að
þessum glæp.“
Karl Georg segir FME hafa staðið
í bréfaskriftum við hann en hann hafi
bent þeim á í bréfi 31. ágúst, að hann
væri lögmaður og bundinn algjörri
trúnaðarskyldu, skv. lögum um lög-
menn. Eftir það hafi hann ekkert frá
þeim heyrt en í byrjun janúar á
þessu ári hafi sér borist fregnir af
því að lögregla hefði tekið einstaka
stofnfjáreigendur til yfirheyrslu
vegna upplýsinga sem fengist hafi af
reikningum hans. Hvorki hann sjálf-
ur né Sigurður G. Guðjónsson hafi
verið kallaðir til yfirheyrslu.
Eins og fram hefur komið fékk
FME aðgang að reikningum lög-
mannsstofunnar með dómsúrskurði
og segir Karl Georg lögmennina afar
ósátta við það. Báru þeir þessar
rannsóknarathafnir undir dómstóla
og er úrskurðar Hæstaréttar að
vænta á næstu dögum.
Efnahagsbrotadeild Ríkislög-
reglustjóra hóf rannsókn á stofnfjár-
viðskiptum í SPH í byrjun þessa árs.
Karl Georg segir hana snúast um
sama málið og það veki spurningar í
réttarríki þegar tvær opinberar
stofnanir séu að rannsaka sama mál-
ið á sama tíma. Menn hafi varla verið
komnir úr yfirheyrslu lögreglu þeg-
ar þeim hafi borist bréf frá FME þar
sem þeir eru krafðir svara um sömu
upplýsingar. „Það er vísað í lög-
regluskýrslurnar og hótað einhverj-
um úrræðum. Þetta er óeðlileg
stjórnsýsla,“ segir hann.
Tiltekur Karl Georg ýmis dæmi
um að reglur stjórnsýsluréttarins
um andmælarétt, varfærnissjónar-
mið og meðalhófsreglan hafi verið
þverbrotnar af opinberu stjórnvaldi.
Þannig hafi FME t.d. sent stofnfjár-
eigendum bréf fyrir aðalfundinn 21.
febrúar sl. og þeim gefinn einnar
viku andmælafrestur. FME hafi svo
tekið ákvarðanir innan þess frests
þar sem einstakir stofnfjáreigendur
voru sviptir atkvæðisrétti fyrir aðal-
fundinn. Einnig hafi fyrirmæli um að
fresta aðalfundinum borist síðdegis
deginum fyrir boðaðan aðalfund.
„Þetta eru óviðunandi vinnubrögð,“
segir hann.
Að sögn Karls Georgs er hvergi að
finna í lögum heimildir til handa
FME að krefjast þess af stjórn
sparisjóðs að hún neiti að samþykkja
framsöl stofnfjárbréfa. „Stjórn
sparisjóðsins hefur þá skyldu að ef
hún telur að það sé að myndast virk-
ur eignarhluti vísar hún því til eft-
irlitsins. Á þeim tíu til ellefu mán-
uðum sem þeir hafa rannsakað þetta
mál hefur þeim ekki tekist að teikna
upp virkan eignarhluta og eru svo
undrandi á því að menn upplýsi þá
ekki um eitthvað sem er alls ekki til
staðar. Það er vandamálið. Það er
enginn glæpur,“ segir hann.
Enginn minna umbjóðenda
hefur neitt að fela í þessu máli
Karl Georg segir óumdeilt að hann
og Sigurður G. Guðjónsson hafi haft
milligöngu um viðskipti með stofn-
fjárbréf og greiðslurnar hafi runnið í
gegnum fjárvörslureikninga. FME
haldi því hins vegar fram að tilteknir
kaupendur stofnfjár virðist ekki hafa
sjálfir reitt fram greiðslur í
tengslum við kaup þeirra. „Þó ekki
hafi borist greiðslur í peningum, þá
voru lánaskjöl og tryggingapappírar
á bak við. Þá pappíra höfum við Sig-
uður G. varðveitt. Þeir eru því ekki
með alla söguna,“ segir hann.
„Enginn af umbjóðendum mínum
hefur neitt að fela í þessu máli.
Þetta er orðið hálfgerður skrípa-
leikur,“ segir Karl Georg.
Lögmaður hjá Lögmönnum Laugardal segir rannsókn FME byggða á sandi
„FME á algerum villigötum“
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
„Enginn af umbjóðendum mínum hefur neitt að fela í þessu máli,“ segir
Karl Georg Sigurbjörnsson um rannsóknina á stofnfjárviðskiptum í SPH.
ÞAÐ er af og frá að Saxhóll ehf. hafi
átt einhvern þátt í að fjármagna
kaup annarra á stofnfjárbréfum í
Sparisjóði Hafnarfjarðar. Saxhóll er
fjárfestingarfélag sem á í fjórum
stærstu sparisjóðum landsins og
keypti einfaldlega fjögur stofnbréf í
SPH í fyrra. Þetta segir Jón Þor-
steinn Jónsson, stjórnarformaður
Saxhóls ehf.
Fram kom í frétt Morgunblaðsins
í gær að rannsókn á stofnfjár-
viðskiptum í SPH beinist m.a. að
fjármögnun á kaupum stofnbréfa og
komið hafi í ljós við skoðun á reikn-
ingum lögmannsstofunnar Lögmenn
Laugardal að fimm félög, þ.á m.
Saxhóll, hafi lagt umtalsverðar fjár-
hæðir á reikningana.
Allt uppi á borðinu og eins
hreint og hægt er að hafa það
Jón segir það alrangt að Saxhóll
hafi verið að fjármagna kaup fyrir
einhverja aðra. ,,Við kaupum þarna
fjögur stofnbréf í október eða nóv-
ember. Það er bara rætt um verð
eins og gengur og gerist í við-
skiptum og síðan þegar ég greiði
fyrir þessi bréf, greiði ég inn á
reikning hjá þessari umræddu lög-
mannsstofu. Ég fór svo þangað og
fékk kvittun fyrir kaupum á fjórum
stofnbréfum,“ segir hann.
Stofnfjárkaupin hafi síðan verið
lögð fyrir stjórn sparisjóðsins eins
og alltaf eigi sér stað við framsal
stofnbréfa og Saxhóll sé stofnfjár-
eigandi í SPH dag. „Þetta er okkar
þáttur í málinu,“ segir hann. „Það er
allt uppi á borðinu og eins hreint og
hægt er að hafa það.“
Jón Þorsteinn Jónsson stjórnarformaður Saxhóls
Keyptum 4 stofnfjárbréf í SPH
ÁHÖFN eftirlitsflugvélar
Landhelgisgæslunnar stóð ís-
lenskan bát að veiðum sem
ekki hafði veiðileyfi, sam-
kvæmt upplýsingum frá Dag-
mar Sigurðardóttur, lögfræð-
ingi og upplýsingafulltrúa
Landhelgisgæslu Íslands. Bát-
urinn var að veiðum út af Garð-
skaga þegar eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom að
honum við eftirlitsflug síðdegis síðastliðinn þriðjudag.
Skipstjóri bátsins fékk fyrirmæli um að draga upp veið-
arfærin og halda til næstu hafnar, þar sem lögreglan í
Keflavík tók á móti honum. Að sögn hennar voru veiðileyfi
bátsins útrunnin og teljast meint brot skipstjórans varða
við ákvæði laga um fiskveiðistjórnun og laga um veiðar í
fiskveiðilandhelgi Íslands.
Landhelgisgæslan hefur sent kæru til sýslumannsins í
Keflavík vegna þessara meintu ólöglegu veiða. „Síðan er
það sýslumannsins að ákveða hvort hann telur efni til þess
að gefa út ákæru. Mér sýnist nú ekkert koma í veg fyrir
það úr þessu,“ sagði Dagmar. Rannsókn málsins er í hönd-
um lögreglunnar í Keflavík.
Kærður fyrir
veiðar án leyfis
Lögreglan í Keflavík tók á
móti bátnum í Sandgerði.
Stofnfjárlisti SPH
STOFNFJÁREIGENDUR í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar eru 31 talsins og
fara þeir með 93 stofnfjárbréf.
Sparisjóðurinn afhenti Morgun-
blaðinu í gær stofnfjárlistann, sem
er nú í fyrsta sinn í 103 ára sögu
sparisjóðsins, birtur opinberlega,
samkvæmt upplýsingum Magnúsar
Ægis Magnússonar sparisjóðsstjóra.
Tíu milljarða af-
gangur í janúar
GREIÐSLUAFGANGUR ríkissjóðs í janúar sl. nam
rúmum 10 milljörðum króna, samanborið við 302
milljónir í sama mánuði árið 2005. Frá þessu er
greint í vefriti fjármálaráðuneytisins.
Breyting á handbæru fé frá rekstri var jákvæð um
tæpa 14 milljarða króna í janúar, sem er um 11 millj-
örðum króna hagstæðari útkoma en í sama mánuði í
fyrra. Þá er útkoman um 10 milljörðum króna hag-
stæðari en reiknað var með í áætlun fjárlaga.
Í mánuðinum námu heildartekjur ríkissjóðs 41,1
milljarða króna og hækkuðu um 11,2 milljarða frá
fyrra ári. Þar af námu skatttekjur og tryggingagjöld
um 36 milljörðum króna, sem er um 26% hækkun að
nafngildi frá síðasta ári. Á sama tíma hefur almennt
verðlag hækkað um 4,4% þannig að skatttekjur og
tryggingagjöld hækkuðu að raungildi um 21%. Inn-
heimta eignarskatta nam 800 milljónum króna, sem
er aukning um 11,2%. Þar af námu stimpilgjöld ríf-
lega 500 milljónum en innheimta þeirra hefur hins
vegar dregist saman frá fyrra ári um 27,4%. Í vefriti
ráðuneytisins segir að þetta gefi til kynna að dregið
hafi úr veltu á fasteignamarkaði og skuldbreytingu
lána.