Morgunblaðið - 03.03.2006, Síða 8

Morgunblaðið - 03.03.2006, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heppnir fá miða til Evrópu fyrir tvo 10 Það fær enginn að vita hverju þú svarar ef þú tekur þátt í Launakönnun VR og Fyrirtæki ársins. Niðurstöðurnar eru hinsvegar öflugt vopn sem mun gagnast öllum félögum VR í baráttu þeirra fyrir betri kjörum og lífsgæðum. Þín þátttaka skiptir miklu máli. LAUNAKÖNNUN VR og FYRIRTÆKI ÁRSINS Skilafresturinn hefur verið framlengdur til 14. mars. Stríðsherrarnir okkar verða varla lengi að stauta sig fram úr þessu, þó það sé á útlensku. Síldey ehf. fékk engaaflahlutdeild í sinnhlut við setningu reglugerðarinnar 16. ágúst 2001, því veiði- reynsla félagsins féll utan viðmiðunartíma reglu- gerðarinnar. Hafrann- sóknastofnun hafði lagt til að heildarafli m.a. keilu, löngu og skötusels yrði takmarkaður á fiskveiði- árinu 2001/2002. Þrátt fyr- ir það voru veiðar á þess- um tegundum ekki takmarkaðar í reglugerð frá 5. júní 2001. Ný reglu- gerð var sett 16. ágúst 2001 og nú skyldi úthlutað aflahlutdeildum m.a. í keilu, löngu og skötusel á fiskveiðiárinu 2001/2002 sam- kvæmt veiðireynslu á fyrrgreindu tímabili. Síldey ehf. krafðist bóta og byggði á því að ekki hefði verið staðið rétt að setningu reglugerð- arinnar. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að miða hefði átt við aflareynslu síðustu þriggja ára fyrir setningu reglugerðarinnar. Því var bótaskylda íslenska ríkis- ins gagnvart Síldey ehf. viður- kennd vegna úthlutunar kvóta í löngu og keilu á grundvelli veiði- reynslu félagsins frá 1. júní til 16. ágúst 2001. Þá dæmdi Hæstirétt- ur að ríkið skyldi greiða Síldey ehf. eina milljón í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Guðrún Erlends- dóttir, Hrafn Bragason og Markús Sigurbjörnsson. Hrafn Bragason skilaði sératkvæði. Daníel Gunnarsson, útgerðar- maður Síldeyjar NS, kvaðst vera ánægður með niðurstöðu Hæsta- réttar. Hann sagði þó ekki enn ljóst hvaða skaðabætur hann fengi. Daníel gerir Síldey NS enn út frá Seyðisfirði. Hann kvaðst hafa keypt skipið til að veiða keilu og löngu, því þá hafi ekki verið horfur á að þær tegundir færu inn í aflamarkskerfið. Hann taldi sig hafa verið einan um að einbeita sér að löngu og keilu, en nokkrir bátar hefðu verið á skötuselsveiðum. Haft hefur verið samband við Daníel frá útgerðum slíkra báta vegna dómsins. Merkilegur dómur Hilmar Gunnlaugsson, sem flutti málið fyrir Hæstarétti fyrir Síldey ehf. sem prófmál, sagði að næsta skref væri að freista þess að ná samkomulagi við íslenska ríkið um fjárhæð skaðabóta til Síld- eyjar ehf. Málið snúist ekki lengur um hvort ríkinu beri að greiða skaðabætur heldur hve háar þær eigi að vera. Á þessu stigi málsins vildi hann ekki greina frá því hve mikilla bóta Síldey ehf. krefst. Hilmar telur dóminn merkileg- an fyrir margra hluta sakir. Þótt Hæstiréttur hafi komist að sömu niðurstöðu og Héraðsdómur Reykjavíkur sé dómur Hæstarétt- ar mun víðtækari. Hilmar telur dóminn hafa fordæmisgildi að því leyti að lögin bindi hendur ráð- herra um val á viðmiðunartímabili veiða. Ráðherra geti ekki notað annað tímabil en síðustu þrjú ár áður en reglugerð er sett. Hilmar telur að dómurinn hafi bein áhrif á alla sem stunduðu veiðar á löngu, keilu og skötusel frá 1. júní 1998 til 16. ágúst 2001. Einnig felist í dóminum að úthlut- un aflahlutdeilda í keilu, löngu og skötusel á grundvelli reglugerðar- innar frá 16. ágúst 2001 hafi verið á röngum forsendum. Hilmar kvaðst ekki vita hver áhrif dómsins á einstakar útgerðir yrðu, en hafin væri vinna við öflun gagna um allar landanir allra út- gerða í þessum tegundum á tíma- bilinu 1. júní 1998 til 16. ágúst 2001 til að finna út réttarstöðu Síldeyj- ar ehf. Sú vinna myndi einnig leiða í ljós hvaða áhrif dómurinn gæti haft á einstakar útgerðir. Þegar ákveðið var að úthluta kvóta vegna þessara tegunda 2001 hafi það m.a. verið réttlætt með því að ásókn í þessar tegundir væri að aukast. Það þýði væntan- lega að fleiri útgerðir hafi verið í sömu sporum og Síldey ehf. Hilm- ar sagði að nokkrar útgerðir hefðu haft samband við Lögmannsstof- una Regula ehf., þar sem Hilmar starfar, vegna dóms Hæstaréttar. Hilmar telur einnig sératkvæði Hrafns Bragasonar mjög merki- legt. Hrafn telji að ráðherra hafi ekki mátt setja á kvóta eftir 1. ágúst, þar sem engar nýjar tillög- ur frá Hafrannsóknastofnun hafi gefið tilefni til þess. Í 3. grein laga nr. 38/1990 segir að heildarafli fyr- ir komandi fiskveiðiár skuli ákveð- inn fyrir 1. ágúst ár hvert. Nið- urstaða meirihluta Hæstaréttar þýði hins vegar að ákvæði laganna um 1. ágúst hafi í raun enga sjálf- stæða þýðingu. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, telur að þeir sem séu í sömu stöðu og Síldey ehf. hljóti að skoða stöðu sína í framhaldi af dómi Hæstaréttar. Hann sagði ljóst að nokkrar út- gerðir hefðu ekki notið veiði- reynslu sinnar sumarið 2001 við úthlutun nýrra aflaheimilda fyrir fiskveiðiárið 2001/2002. Gísli Rúnar Gíslason, forstöðu- maður lögfræðisviðs Fiskistofu, sagði að þar væri verið að fara yfir fyrrnefndan hæstaréttardóm og huga að framhaldinu. Sú vinna væri á frumstigi. Fréttaskýring | Deilt um kvóta í keilu og löngu Ríkið dæmt bótaskylt Dómur Hæstaréttar kann að varða hag margra útgerðarfyrirtækja Kvóti var settur á keilu og löngu 2001. Utankvótategundir voru settar undir kvótakerfið  Hæstiréttur dæmdi 23. febr- úar sl. íslenska ríkið bótaskylt vegna tjóns sem Síldey ehf. varð fyrir þegar kvóti var settur á keilu og löngu 2001. Síldey NS hóf veiðar um vorið og sótti í teg- undirnar sem voru utan kvóta. Samkvæmt reglugerð frá júní 2001 voru tegundirnar áfram ut- an kvóta en í reglugerð frá 16. ágúst 2001 var m.a. settur kvóti á þær skv. veiðireynslu 1. júní 1998 til 31. maí 2001. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.