Morgunblaðið - 03.03.2006, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nakið fólk í
hundraðatali
á morgun
ÚR VERINU
ÞORSTEINN Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri og eigandi Saltvers í
Njarðvík, segir að vel hafi gengið að
frysta loðnu síðustu daga, en félagið
tók í gagnið ný frystitæki fyrir ver-
tíðina í vetur.
„Við erum á síðustu metrunum en
höfum keyrt vinnsluna allan sólar-
hringinn síðustu 10 daga. Á þeim
tíma frystum við 500 tonn af loðnu
fyrir Rússlandsmarkað og 500 tonn
af úrvals hrognum fyrir Japan.
Kaupandinn frá Japan, Morestita,
stóð hér við körin á meðan á fram-
leiðslunni stóð og hann er ánægður
með afraksturinn.“
Þorsteinn, sem hefur fyrst loðnu í
Njarðvík um12 ára skeið, segir að
með nýju uppsjávarlínunni hafi
náðst mikil hagræðing. „Ef við
hefðum ekki lagt í þess fjárfestingu
þá hefði frysting hér í Njarðvík ein-
faldlega lagst af sökum þess hve
erfitt er að fá mannskap í vinnsl-
una. Hér áður fyrr störfuðu 60 til 70
manns þegar tækin voru keyrð all-
an sólarhringinn og afköstin voru í
kringum 60 til 70 tonn. Í dag eru
starfsmennirnir um 10 og við getum
fyrst upp í 200 tonn á sólarhring.
Allt er meira eða minna sjálfvirkt.
Vélasamstæðan sér um að vigta í
poka og gerir þá klára í frystinguna
sem skilar afurðunum full fyrstum á
tveimur klukkustundum,“ segir
Þorsteinn.
Atgangurinn lengir lífið
Þorsteinn segist ekki muna eftir
loðnuvertíð sem hafi varað jafn
stutt og nú. „Yfirleitt hefur hrogna-
takan byrjað um mánaðamótin febr-
úar mars og það er alveg sérstakt
að hún endi svona snemma. Í það
minnsta man ég ekki eftir öðru
eins.“ Hann segir einnig að það hafi
verið viss vonbrigði þegar ekki var
gefin út viðbótarkvóta þegar loðnan
gekk við Hornafjörð. „Vissulega
blasa við einhver vandræði þegar
vertíðarbrestur kemur á sama tíma
og við stöndum í jafn viðamikilli
fjárfestingu. En þegar atgangurinn
er sem mestur og vélarnar eru
keyrðar á fullu allan sólarhringinn,
þá er svo gaman að standa í þessu
að ég er viss um að það lengir hjá
manni lífið. Og það er arðurinn sem
maður fær útúr þessu.“
Loðnufryst-
ing gengið vel
í Njarðvík
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Þorsteinn Erlingsson, eigandi og framkvæmdastjóri Saltvers, og kaupandinn frá Japan, Morestita.
Ljósmyndarinn Spencer Tunick er þekktur
fyrir listræna gjörninga sem felast í því að
ljósmynda hundruð eða þúsundir nakinna
þjóðfélagsþegna á opinberum vettvangi.
Á FUNDI fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
félagsins í Garðabæ í fyrrakvöld,
var ákveðið að breyta uppstillingu
á lista félagsins fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar í vor.
Stefán Konráðsson, sem skipaði
þriðja sætið eftir prófkjörið, og
Sturla Þorsteinsson, hafa fært sig
einu sæti neðar og mun Ragnhild-
ur Inga Guðbjartsdóttir, sem hafn-
aði í fimmta sæti í prófkjörinu,
taka það þriðja.
Fundurinn á miðvikudagskvöld
hófst með því að formaður uppstill-
ingarnefndar bar fram tillögu um
framboðslista sem grundvallaðist á
niðurstöðum prófkjörsins, þ.e.a.s.
hvað varðaði fyrstu 6. sætin. Er-
ling Ásgeirsson, oddviti listans,
kvaddi sér síðan til hljóðs og bar
fram tillögu þess efnis að Ragn-
hildur Inga Guðbjartsdóttir flyttist
í þriðja sætið, Sturla Þorsteinsson
flyttist í það fimmta og Stefán
Konráðsson flytjist í það fjórða.
Annað í tillögu uppstillingarnefnd-
ar yrði látið óbreytt. Undir þetta
hafi skrifað hann sjálfur, Páll
Hilmarsson, sem skipar annað sæt-
ið, Stefán Konráðsson og Sturla
Þorsteinsson. Var tillagan sam-
þykkt nær einróma.
Að sögn Erlings Ásgeirssonar
mættu á annað hundrað manns á
fund fulltrúaráðsins. Upp hefðu
sprottið fjörugar umræður og með-
al annars verið rætt um þær skoð-
anir að ekki mætti breyta listanum
eftir prófkjörið en hann sagði sjálf-
ur að það hlyti að horfa öðruvísi
við þegar að frambjóðendur sjálfir
ákveða að víxla sætum á listanum.
Erling sagði að mikil samstaða
hefði verið á fundinum og að mikil
og almenn ánægja væri með þessa
niðurstöðu. Hann sagðist sérstak-
lega ánægður með hvað tillagan
fékk góðar undirtektir á fundinum.
Aðspurður hvort hann teldi listann
vera sigurstranglegan eftir breyt-
inguna sagði hann listann vera með
jafnt hlutfall karla og kvenna og
hann gæti fullyrt það að listinn
væri með mjög breiða skírskotun.
Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ ákveður framboðslista
Stefán og Sturla neðar á
listann fyrir Ragnhildi
ÍSLENSK-AMERÍSKA við-
skiptaráðið stóð fyrir ráðstefnu í
New York í gær þar sem meðal
annars var fjallað um fjárfest-
ingatækifæri á Íslandi og í Banda-
ríkjunum. Efni fundarins spannaði
allt frá umjöllun um orkukostnað á
Íslandi og ferðaþjónustu landsins til
einkavæðingar bankastofnana.
Valgerður Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, flutti
setningarávarp ráðstefnunnar og
hér má sjá Valgerði ásamt þeim
Jóni Sigurðssyni, forstjóra Össurar
(í miðið), sem flutti erindi á ráð-
stefnunni, og Ólafi Jóhanni Ólafs-
syni en hann er formaður Íslensk-
ameríska viðskiptaráðsins.
Ráðstefna um fjárfest-
ingatækifæri á Íslandi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt karlmann á fertugsaldri til
sjö mánaða fangelsisvistar fyrir að
fíkniefna- og tollalagabrot. Hann
var jafnframt dæmdur til að greiða
sakarkostnað að fjárhæð 360 þús-
und krónur auk málsvarnarlauna
til skipaðs verjanda síns, rúmar 142
þúsund krónur.
Ákærða var gefið að sök að hafa í
vörslu sinni 60,85 grömm af
amfetamíni á heimili sínu í sept-
ember 2005. Efnið hafði hann keypt
af óþekktum manni í Reykjavík en
þynnt það að verulegum hluta og
sett í smærri pakkningar til sölu.
Einnig fundust á heimili hans 26
vindlingalengjur sem ekki höfðu
verið greidd aðflutningsgjöld af.
Jafnframt var hann handtekinn
17. nóvember sama ár með 1,06
grömm af amfetamíni í vörslu sinni.
Ákærði játaði brot sín skýlaust
en ekki þótti efni til að skilorðs-
binda fangelsisrefsingu þar sem
hann hefur á stuttum tíma gerst
sekur um að rjúfa skilorð tvívegis.
Héraðsdómarinn Guðmundur L.
Jóhannesson kvað upp dóminn.
Ásgeir Eiríksson, fulltrúi sýslu-
mannsins í Keflavík, flutti málið af
hálfu ákæruvaldsins en Ásgeir
Jónsson hdl. varði manninn.
Sjö mánaða fang-
elsi fyrir fíkni-
efnamisferli