Morgunblaðið - 03.03.2006, Síða 31

Morgunblaðið - 03.03.2006, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 31 UMRÆÐAN FRAMKVÆMDASTJÓRI land- vinnslu Samherja hf. á Dalvík skrif- aði fyrir nokkru grein í Morgun- blaðið þar sem hann gerir að umræðuefni launakjör fiskvinnslu- fólks í landinu sem hann telur vera langt yfir svokölluðum lágmarks- launum sem samið er um í almenn- um kjarasamningum. Þá telur hann starfsöryggi fiskvinnslufólks vera með ágætum og ekki sé ástæða til að kvarta. Þetta eru stór orð sem eru blekkingar einar og með ólík- indum að menn skuli leyfa sér að halda slíkum fullyrðingum fram. Enda hafa greinaskrif hans vakið nokkra athygli, ekki bara hjá fisk- vinnslufólki heldur einnig hjá stjórnendum og forsvarsmönnum fyrirtækja í fiskvinnslu á Íslandi. Menn hafa furðað sig á þessari framsetningu. Hver eru grunnlaun fiskvinnslufólks sem Samherji á Dalvík er að greiða sem og flest önnur fyrirtæki í fiskvinnslu á Ís- landi m.v. fulla dagvinnu á mánuði? Almennt fiskvinnslufólk fær greitt eftir 5. launaflokk og fiskvinnslufólk sem lokið hefur kjarasamnings- bundnum 40 stunda námskeiðum fær greitt eftir 7. launaflokk sam- kvæmt launatöflu SGS og SA, sjá meðfylgjandi töflu: Kaupauki greiddur fyrir aukin afköst Til viðbótar grunnlaunum er víð- ast hvar greiddur kaupauki sem annaðhvort fer eftir afköstum eða er greiddur sem fastur kaupauki á hverja dagvinnustund. Meðal kaup- auki í fiskvinnslufyrirtækjum er tal- in vera um 210 kr. á hverja dag- vinnustund sem gerir um 36 þúsund á mánuði. Í flestum tilvikum er kaupauki greiddur fyrir aukin af- köst sem þýðir aukið álag á viðkom- andi starfsmenn. Eins og gefur að skilja er ekki öllum gefið að ná ár- angri í kaupaukakerfum meðan aðr- ir eiga nokkuð auðvelt með að til- einka sér réttu handtökin og þar með hærri kaupauka. Almennt liggja laun fiskvinnslufólks á bilinu 140 til 160 þúsund fyrir fulla dag- vinnu með kaupauka. Sumir hafa lægri laun en þetta, meðan aðrir hafa heldur hærri laun. Þetta eru nú öll ofurlaunin! Þess má geta í þessu sambandi að launanefnd sveitarfélaga skilgreinir 140 þúsund sem lágmarkslaun. Á virkum frídög- um, „rauðum dögum“, og í veik- indum og slysum eftir að staðgeng- ilslaunum lýkur hafa starfsmenn aðeins föstu dagvinnulaunin sem sjá má í töflunni. Þá hefur þekkst í gegnum árin að fiskvinnslufyrirtæki hafi lokað tímabundið vegna „hrá- efnisskorts“ sérstaklega í kringum jól og áramót og þá eru dæmi um að fyrirtæki hafi lokað lengur en sum- arfrí starfsmanna kveður á um. Á þessum tímabilum fær fiskvinnslufólk í flest- um tilvikum ekki greiddan kaupauka og er í sumum tilvikum sent heim á atvinnu- leysisbætur eftir lög- bundið sumarfrí. Þetta þekkir fiskvinnslufólk og dregur árstekjur þeirra niður í þeim til- vikum sem það á við um. Að sjálfsögðu eru dæmi um að menn geti haft þokkalegar tekjur í fiskvinnslu sem byggja þá á mikilli vinnu, hagstæðu kaupaukakerfi og yfirvinnu. Þessi dæmi eru þekkt og tengjast auk þess oft á tíðum árstíðabundnum vertíðum. Mikilvægt að bæta kjör fiskvinnslufólks Það er von mín að fram- kvæmdastjórinn verði í fararbroddi samninganefndar Samtaka atvinnu- lífsins í næstu kjarasamningum. Miðað við fullyrðingar hans verður ekki mikið mál að tryggja fisk- vinnslufólki um þrjú til fjögur hundruð þúsund krónur á mánuði fyrir fulla dagvinnu sem telur 173,33 dagvinnustundir. Þá losna menn kannski við að hlusta á bar- lóm atvinnurekenda um slæma stöðu og að kröfur fiskvinnslufólks um hærri laun kolvarpi greininni og ýtti jafnframt undir það að starf- semin flytjist úr landi. Þessar skoð- anir falla vel að kröfum fisk- vinnslufólks um bætt starfskjör og aukið öryggi. Tíðar uppsagnir Talandi um starfs- öryggið sem fram- kvæmdastjórinn telur af hinu góða og segir sláandi að hlusta á verkalýðsforingja tala um óöryggi fisk- vinnslufólks. Sá tími sé liðinn og ekki heyrist lengur auglýsingar frá Ísbirninum á gömlu ,,Gufunni“ um að vinna hefjist á morgun kl. 13.00. Reyndar er það rétt þar sem Ísbjörn- inn er ekki lengur til. Þessi mál- flutningur er líka nokkuð sérstakur svo ekki sé meira sagt. Á síðustu ár- um hefur töluvert verið um upp- sagnir í fiskvinnslu og heimsending- ar fiskvinnufólks í hráefnisskorti. Fjölmiðlar hafa fjallað töluvert um stöðuna enda hefur störfum í fisk- vinnslu fækkað umtalsvert á um- liðnum árum. Í dag eru t.d. starf- andi 8 rækjuverksmiðjur í landinu en voru um 20 fyrir nokkrum árum samkvæmt nýlegri frétt Morg- unblaðsins. Samherji hefur komið að því líkt og mörg önnur fyrirtæki í sjávarútvegi að segja upp fólki s.s. á Stöðvarfirði, Mjóafirði og þá fækk- aði Samherji starfsmönnum í rækjuverksmiðju fyrirtækisins á Akureyri á síðasta ári. Er það þetta sem menn kalla gott starfsöryggi? Var mannauðurinn metinn í þessum tilvikum? Það er ljóst að starfs- öryggi fiskvinnslufólks á Íslandi er ekki ásættanlegt og fyrir því eru ýmsar ástæður sem er efni í aðra grein. Þá eru sem betur fer einnig til traust fyrirtæki í fiskvinnslu sem halda uppi stöðugri vinnu allt árið og veita þar með starfsmönnum starfsöryggi og jafnar tekjur. Alhæfing sem stenst ekki Það verður ekki af Sam- herjamönnum tekið að þeir reka fullkomið frystihús á Dalvík þar sem mikil vinna hefur verið í boði fyrir gott og hæft starfsfólk sem þeir hafa yfir að ráða. Þá tel ég ekki ólíklegt að kaup- aukakerfið hjá fyrirtækinu á Dalvík sé eitt það besta sem þekkist í fisk- vinnsluhúsum á Íslandi. En að al- hæfa út frá því að fiskvinnslufólk á Íslandi búi almennt við góð kjör og mikið starfsöryggi eins og fram- kvæmdastjórinn heldur fram í grein sinni er alveg út í hött og á ekki við rök að styðjast. Starfskjör fisk- vinnslufólks Aðalsteinn Á. Baldursson skrif- ar um kjör fiskvinnslufólks ’Þetta eru stór orð semeru blekkingar einar og með ólíkindum að menn skuli leyfa sér að halda slíkum fullyrðingum fram.‘ Höfundur er formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur. Aðalsteinn Á. Baldursson Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.