Morgunblaðið - 03.03.2006, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Bridsklúbbur í Reykjavík
sem starfar á mánudögum
Bridsfélagið Mánudagsklúbbur-
inn var stofnað í síðustu viku og var
það með fyrsta spilakvöldið sitt 27.
febrúar. 18 pör mættu til leiks og
var spilaður Monrad Barómeter, 7
umferðir með 4 spilum á milli para.
Gísli Sigurkarlsson og Halldór Ár-
mannsson leiddu mótið allt kvöldið
og stóðu uppi sem sigurvegarar með
+48 sem jafngildir 60,7% skori. Þeir
fengu að launum glæsilega gjafa-
körfu frá SS. 2. sætið hrepptu
kempurnar Guðlaugur Sveinsson og
Kristófer Magnússon og fengu þeir
5 bollur á mann í tilefni bolludags-
ins. Dregið var um þrenn aukaverð-
laun. Jón Stefánsson og Sigurður
Steingrímsson hrepptu sitthvort
kaffikortið og Helga Sigurðardóttir
nældi sér í glæsilega gjafakörfu frá
SS í aukaverðlaun. Efstu pör voru:
Gísli Sigurkarlss. – Halldór Ármannss. 48
Guðlaugur Sveinss. – Kristófer Magnúss. 27
Jón S. Pétursson – Jón V. Jónmunds. 23
Jón Stefánss. – Sigurður Steingrímss. 20
Gabríel Gíslason er yngsti spilari
Mánudagsklúbbsins aðeins 13 ára.
Hann endaði í 5. sæti og ávann sér 6
bronsstig.
Mánudagsklúbburinn ætlar að
standa fyrir eins kvölds tvímenningi
á mánudagskvöldum. Spilaður verð-
ur Monrad Barómeter með um það
bil 28 spilum á kvöldi. Reynt verður
að brydda upp á atburðum af og til
og verða þeir þá auglýstir sérstak-
lega. Veitt verða 3 verðlaun hvert
kvöld og verða minnst 2 spilarar
dregnir út af handahófi hvert kvöld.
Bridsfélagið Mánudagsklúbbur-
inn var stofnaður með það í huga að
vera skemmtilegur klúbbur þar sem
bæði vanir og óvanir spilarar eru
velkomnir og eiga vanari spilararnir
að hjálpa hinum að stíga sín fyrstu
spor og vera góðar fyrirmyndir.
Keppst verður við að hafa góða
stemningu og að spilarar fari glaðir
heim hvernig sem árangurinn var
við spilaborðið.
Spilað er í húsnæði BSÍ í Síðu-
múla 37, 3ju hæð. Keppnisstjóri er
Sveinn Rúnar Eiríksson og tekur
hann vel á móti öllum spilurum.
Keppnisgjald er 800 kr. á spilara,
400 kr. fyrir eldri borgara og yngri
spilarar spila frítt.
Stofnendur og stjórnarmenn
Mánudagsklúbbsins eru: Guðlaugur
Sveinsson, Rúnar Gunnarsson og
Sveinn Rúnar Eiríksson.
Allir spilarar eru velkomnir í
Mánudagsklúbbinn. Spilarar þurfa
ekki að taka með sér neinn sérstak-
an keppnisbúning en þurfa að hafa
brosið með í farteskinu.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 28. febrúar var spil-
að á 14 borðum.
Meðalskor var 312. Úrslit urðu
þessi í N/S
Ragnar Björnsson – Eysteinn Einarsson
361
Albert Þorsteinss. – Bjarnar Ingimarss. 361
Jón B. Sigvaldason – Lilja Kristjánsd. 346
Jóhann Benediktsson – Pétur Antonss. 327
A/V
Ólafur Ingvars. – Sigurberg Elentínuss. 436
Þorvarður S. Guðmss.– Jón Sævaldsson 389
Guðmundur Árnason – Bragi Björnsson 353
Kristín Óskarsdóttir – Gróa Þorgeirsd. 346
Haukur í (Heilsu)horni
Þriðjudaginn 28. febrúar fór fram
2. kvöld af 3 í Heilsuhornstvímenn-
ingi Bridsfélags Akureyrar. Svo
skemmtilega vill til að einn eigenda
Heilsuhornsins leiðir mótið ásamt
meðspilara sínum. Gárungar hvísl-
uðu sín á milli að það væri til að geta
afhent færri verðlaun þó að það
verði að viðurkennast að auðvitað sé
það góðri spilamennsku að þakka.
Hermann Huijbens - Stefán Vilhjálmss. 40
Frímann Stefánss. - Björn Þorláksson 33
Una Sveinsdóttir - Jón Sverrisson 19
Sveinbjörn Sigurðss. - Magnús Magnúss. 15
Hans V. Reisenhus - Sigurgeir Gissurars.
12
Meistaramótstvímenningur
á Suðurnesjum
Meistaramót Bridsfélags Suður-
nesja og Bridsfélagsins Munins í
tvímenningi hófst sl. mánudags-
kvöld. Tólf pör mættu til keppni og
verður spilaður þriggja kvölda
Howell tvímenningur.
Feðgarnir úr Grindavík þeir Guð-
jón Einarsson og Ingvar Guðjóns-
son byrjuðu best og eru efstir með
134 stig en meðalskorin fyrsta
kvöldið var 110.
Næstu pör:
Vignir Sigursveinss. - Úlfar Kristinss.130
Guðjón Jensen - Arnór Ragnarsson 125
Karl G. Karlsson - Jóhannes Sigurðss.124
Sigríður Eyjólfsd. - Hulda Hjálmarsd.119
Spilað er á miðvikudagskvöldum í
félagsheimilinu við Mánagrund.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Gísli Sigurkarlsson og Halldór Ármannsson, fyrstu sigurvegarar í Mánu-
dagsklúbbnum, ásamt Sveini Rúnari Eiríkssyni keppnisstjóra.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Karl Gunnlaugsson afhendir Margréti Runólfsdóttur, bridsspilara ársins,
verðlaunabikarinn.
stjarnan í þessum himingeimi.
Bestu vinkonur að eilífu,
Auður Steinberg Allansdóttir.
Elsku Halla mín.
Þú varst alltaf svolítið feimin en
samt sem áður alltaf frábær við allt
og alla í kringum þig. Við vorum
góðar vinkonur í grunnskóla enda
vorum við saman í bekk frá því í 1.
bekk og svo æfðir þú með mér hand-
bolta og var alltaf mjög gaman hjá
okkur í öllum handboltaferðalögum.
Þú varst svona manneskja sem eng-
um gat líkað illa við.
Þótt maður hefði ekki þekkt þig
þá hefði manni ekki getað líkað illa
við þig á neinn hátt. Við lékum okk-
ur oft saman í grunnskóla. Minning-
arnar um þig eru ólýsanlega ynd-
islegar og margar en ég man alltaf
sérstaklega eftir því þegar við vor-
um að horfa á Turtles heima hjá mér
einu sinni eða þegar við vorum á
Sunnuflötinni þar sem þú bjóst einu
sinni að skoða grímubúninga fyrir
öskudaginn og þig langaði svo að
vera blettatígur, og þegar það var
kominn rosalega mikill snjór og við
vorum úti í garði að gera snjóengla,
góðir tímar.
Alltaf þegar þú kemur upp í huga
mér hugsa ég um litlu rauðhærðu
stelpuna með liðaða hárið sem vildi
aldrei láta taka myndir af sér þrátt
fyrir hvað hún var ofsalega falleg
þessi stúlka. Halla, þú ert án efa ein
besta manneskja sem ég hef kynnst,
svo saklaus og yndisleg og áttir svo
sannarlega skilið að fá að lifa lengur
en Guð saknaði þín greinilega svona
rosalega mikið.
Ég tel mig rosalega heppna að
hafa kynnst þessum engli.
Ásgeir og Margrét hefðu ekki
getað eignast fallegri og yndislegri
stúlku því hún Halla okkar var full-
komin á allan hátt.
Ég vil votta fjölskyldu og vinum
mína dýpstu samúð.
Elsku Halla, þú munt alltaf eiga
stað í hjarta mér og ég mun alltaf
hugsa til þín.
Megi Guð og allir hans englar
gæta þín.
Sofðu unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
(Jóhann Sigurjónsson.)
Anna Ósk Stefánsdóttir.
Eftir svona hræðilegt slys spyr
maður sig auðvitað af hverju. Ef
Guð er svona almáttugur, af hverju
var líf 15 ára stelpu í blóma lífsins
tekið frá henni? Hún átti svo bjarta
framtíð framundan. Svo gáfuð, fal-
leg og skemmtileg stelpa. Algjör
engill í mannsmynd. En lífið er svo
óútreiknanlegt. Þegar ég hugsa um
hve yndisleg og frábær manneskja
Halla Margrét var þá er ég viss um
að Guð hefur einfaldlega ætlað
henni eitthvað meira en hún gat
áorkað hér á jörð.
Ég hef þekkt Höllu síðan við vor-
um sex ára litlar stelpur og vorum
við saman í bekk allan Flataskóla.
Ég þakka Guði fyrir að hafa fengið
að kynnast Höllu og verið í kringum
hana öll þessi ár. Hún lét öllum líða
vel í nærveru sinni og bros hennar
skein ávallt af kærleika og gleði.
Eftir slysið tók ég fram gamlar upp-
tökur af afmælisveislum og slíku frá
mínum yngri árum. Þegar ég sá
Höllu hlæjandi og brosandi hlýnaði
mér um hjartarætur. Þótt dauði
hennar hafi verið ótímabær og
ósanngjarn var hún heppin að hafa
lifað eins innihaldsríku lífi og hún
gerði og átt svo ástríka fjölskyldu og
vini.
Ég vil votta nánustu aðstandend-
um og fjölskyldu mína innilegustu
samúð. Það er erfitt að ímynda sér
hvernig ykkur líður á þessari sorg-
arstundu en stuðningurinn er enda-
laus frá þeim sem þekktu og þótti
vænt um Höllu. Við munum öll
sakna hennar gríðarlega en minning
hennar lifir áfram í okkur öllum.
Elsku Halla, ég veit að þú ert hjá
Guði og horfir niður á okkur og bið-
ur okkur að minnast þín með bros-
um en ekki tárum. En þín verður
svo sárt saknað. Ég mun alltaf
hugsa til þín og þú munt alltaf eiga
stórt pláss í hjarta mínu.
Hvíldu í friði, elsku Halla Mar-
grét mín, og megi Guð og allir hans
englar gæta þín.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
(Friðrik Guðni Þórleifsson.)
Elín Þóra.
Enginn í heiminum er fullkominn.
En Halla Margrét komst eins ná-
lægt fullkomnun og nokkur mann-
eskja kemst.
Halla var albesta vinkona sem ég
hefði getað óskað mér og aldrei gæti
mig dreymt um að þekkja aðra eins
frábæra manneskju. Hún hjálpaði
mér í gegnum svo margt. Hún kom
mér alltaf til að hlæja þegar ég var
sár, huggaði mig þegar ég var leið,
sýndi þolinmæði þegar ég var reið,
veitti mér ást og kærleik þegar mig
skorti það og stóð hjá mér sama
hvað á dundi. Hún var svo sterk og
hógvær og hugsaði alltaf fyrst og
fremst um fjölskyldu sína og vini.
Hún var traust og ástrík vinkona,
falleg og góð stelpa með yndislegan
persónuleika, hún var fyndin og gáf-
uð og brosti framan í heiminn. Lífið
sem skein í augunum hennar og
hamingjan sem kom fram í brosinu
hennar eru hlutir sem enginn sem
þekkti hana mun gleyma.
Halla átti sinn eigin heim sem fáir
fengu að kynnast, en um leið og
maður komst framhjá feimninni
kom í ljós manneskja ólík öllum öðr-
um. Þar leyndist vinkonan sem
verður alltaf í hjartanu mínu, ynd-
islega manneksjan sem ég mun
aldrei gleyma. Hún verður alltaf
besta vinkona mín og mun alltaf
vera stór hluti í lífinu mínu.
Ég veit að þó svo að Halla sé farin
þá verður hún alltaf hjá okkur því
minning svona frábærrar mann-
eskju varir að eilífu. Halla er engill-
inn minn núna, hún vakir yfir mér
og öllum þeim sem hún unni og
hugsar vel um þá.
Ég votta mömmu, pabba og bróð-
ur Höllu mína dýpstu samúð.
Margrét.
Elsku Halla mín.
Síðustu dagar hafa verið mjög
erfiðir og mikil sorg hvílir yfir
okkur. Maður spyr sjálfan sig í sí-
fellu: „Af hverju er heimurinn
svona ósanngjarn?“ en enginn
getur svarað því. Hvers vegna er
svona falleg, klár og yndisleg
stúlka sem á alla framtíðina fyrir
sér tekin frá okkur? En svona er
lífið, oft mjög ósanngjarnt og
stundum eins og allt sé ákveðið
fyrirfram. Það er erfitt að sætta
sig við það að þú sért farin. Þessi
fallegu augu sem skinu af gleði og
væntumþykju, þetta yndislega
bros og þessi krúttlegi hlátur og
fallega rauða hárið. Allt þetta far-
ið og maður fær aldrei að sjá það
aftur. Það er ósegjanlega sárt að
hugsa til þess. En ég veit þó að þú
ert og verður alltaf hjá okkur og
gætir okkar þó svo að við getum
ekki séð þig og talað við þig. Það
eina sem við getum gert er að
muna eftir öllum þeim góða tíma
sem við áttum með þér og varð-
veita minninguna um þig eins vel
og við getum.
Ég man alltaf eftir því þegar ég
kom fyrst í heimsókn til þín, þegar
við vorum sjö ára. Þá kom ég með
þér heim eftir skóla. Þú áttir þetta
flotta Barbie-hús sem ég öfundaði
þig ótrúlega af og allt þetta flotta
Barbie-dót. Ég man að við vorum
búnar að vanda okkur við að raða í
húsið og vorum að setja barnarúmið
í það þegar dyrabjallan hringdi. Það
var mamma að ná í mig. Ég man
hvað við urðum sárar að fá ekkert að
leika okkur með þetta sem við höfð-
um eytt öllum þessum tíma í að raða
upp. Og þegar við bjuggum til Kan-
ínulandið í þriðja bekk, þegar þú og
stelpurnar dönsuðuð, allar eins
klæddar, í eins pilsum og bolum,
nema hver með sinn litinn, algjörar
dúllur. Svo man ég eftir öllum mót-
unum og öllum ferðunum sem við
fórum með handboltanum. Hvað þú
blómstraðir á Húsavík, spilaðir í
skyttunni hægra megin og varst al-
veg ótrúleg. Allt í einu komstu með
þessi óverjandi undirhandarskot og
öll hraðaupphlaupin sem þú áttir.
Mér finnst eins og þetta hafi allt
gerst í gær. Og afmælið þitt í 8.
bekk, þegar við stelpurnar gáfum
þér handboltann sem við skrifuðum
nöfnin okkar á, og horfðum á Dark-
ness falls, sátum allar í klessu í sóf-
anum að deyja úr hræðslu. Allir
saumaklúbbarnir sem við héldum,
sérstaklega sá síðasti sem var hald-
inn hjá þér, og svo margt fleira. Svo
varstu alltaf svo feimin, vildir aldrei
láta taka af þér myndir, snerir þér
alltaf undan. Og ef þú fórst að gráta
út af einhverju vildirðu aldrei láta
sjá framan í þig því þú varst svo
rauð í andlitinu, faldir það alltaf þar
til þú hafðir jafnað þig. En síðasta
minningin sem ég á er frá deginum
sem slysið átti sér stað. Síðasta sinn
sem ég sá þig, í strætó á leiðinni á
kynningu í MH. Ég heyri hláturinn
þinn, þennan krúttlega hlátur, og sé
gleðina skína úr andlitinu þínu, aug-
un og brosið. Allar þessar minning-
ar eru dásamlegar og skipta mig
miklu máli og þær mun ég geyma
eins vel og ég mögulega get. Ég
þakka Guði fyrir það eitt að hafa
gefið mér tækifæri til að kynnast
þér og hafa leyft mér að umgangast
þig eins mikið og ég gerði.
Elsku Halla, ég sakna þín svo sárt
að ég get ekki lýst því með orðum.
Þú varst svo yndisleg. Persóna sem
öllum líkaði við og allir elskuðu, svo
tillitssöm og góð. Ég elska þig ótrú-
lega mikið og mun alltaf gera. Þú
munt alltaf eiga stóran hluta af
hjartanu mínu og ég mun aldrei
gleyma þér.
Elsku Halla, hvíldu í friði og megi
minning þín varðveitast í hjörtum
allra sem þótti vænt um þig.
Sólveig Björk.
Ég er ekki enn búin að ná þeirri
skelfilegu staðreynd að Halla sé dá-
in. Við erum búnar að þekkjast í 3 ár
eða síðan ég byrjaði í skólanum í 8.
bekk. Halla var svo góð og yndisleg
manneskja og gerði nákvæmlega
ekkert til að eiga þetta skilið. Hún
vildi alltaf öllum vel og var góð við
alla. Ég er heppin að hafa fengið að
kynnast henni. Minningarnar um
hana koma fram hver af annarri og
ég verð óendanlega sorgmædd við
að hugsa til þess að þær munu ekki
verða fleiri. Halla var með svo ynd-
islega sætt bros og hafði svo smit-
andi hlátur. Hún gat stundum verið
alveg í sínum eigin heimi og byrjað
að hlæja eða syngja upp úr þurru.
Hún stóð sig mjög vel í skólanum og
lagði sig mikið fram við allt sem hún
gerði. Halla var líka mikill sælkeri,
t.d. einu sinni þegar við vorum að
baka köku ásamt Helenu þá borðaði
hún stóran hluta af hlaupböngsun-
um og kreminu sem átti að fara á
kökuna.
Ég veit að lífið mun aldrei verða
eins. Það hefur skapast þarna tóma-
rúm sem aldrei verður hægt að fylla
upp í. Ég mun alltaf hugsa til Höllu
og hún mun lifa áfram í minningum
mínum.
Ég vil votta fjölskyldu Höllu, ætt-
ingjum, vinum og öllum sem þekktu
hana mína innilegustu samúð.
Jesús mælti: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá
sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.
Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldr-
ei að eilífu deyja.“ (Jóh.11:25–26).
Helga Sif Helgadóttir.
HALLA MARGRÉT
ÁSGEIRSDÓTTIR