Morgunblaðið - 03.03.2006, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Ríkislögreglustjórinn
Laust starf
löglærðs fulltrúa
við embætti ríkislögreglustjórans
Laust er til umsóknar starf löglærðs fulltrúa
við embætti ríkislögreglustjórans. Um er að
ræða stöðu í efnahagsbrotadeild.
Jón H.B. Snorrason, saksóknari, veitir nánari
upplýsingar um starfið í síma 570 2500.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti
lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum um-
sóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin af ríkislögreglu-
stjóra.
Umsóknum skal skilað til embættis ríkislög-
reglustjóra, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík, en
umsóknarfrestur rennur út þann 6. mars 2006.
Reykjavík, 17. febrúar 2006.
Ríkislögreglustjórinn.
Háseta
Vanan háseta vantar á línuskipið Núp
BA-69 frá Patreksfirði.
Upplýsingar í símum 852 2203, 899 3944 og
450 2100.
Patreksfirði.
sem fyrst í Þorlákshöfn
áhugasamir hafi
samband í síma
483 3214 og 848 6214
Umboðsmaður
Blaðberi
óskast
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Hins íslenska biblíufélags verður haldinn
mánudaginn 3. apríl kl. 20.00 í safnaðarsal
Hallgrímskirkju.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Kennsla
Stangaveiðimenn athugið!
Nýtt námskeið í fluguköstum hefst sunnudag-
inn 5. mars í TBR húsinu, Gnoðarvogi 1,
kl. 20. Kennt verður 5., 12., 19. og 26. mars.
Við leggjum til stangir. Skráning á staðnum
gegn greiðslu (ekki kort). Mætið tímanlega.
Munið eftir inniskóm. Verð kr. 8.000 en kr.
7.000 til félagsmanna gegn framvísun gilds
félagsskírteinis. Uppl. veitir Gísli í s. 894 2865
eða Svavar í s. 896 7085.
KKR, SVFR og SVH.
Tilboð/Útboð
Arkitektúr - skipulag
- verkfræði
Arkitekta- og verkfræðistofa ásamt rafhönnuð-
um geta taka að sér verkefni. Sem greiðsla
gæti komið hluti í skrifstofuhúsnæði eða eftir
samkomulagi.
Uppl. í síma 824 7587, 557 4100 eða 863 2520.
Félagslíf
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Samkoma kl. 20:30. Aníta
Björk frá Arken í Svíþjóð predik-
ar og þjónar. Allir velkomnir.
Sjá nánar dagskrá heimsóknar
hennar inn á www.vegurinn.is.
Í kvöld kl. 20.30 heldurJón L.
Arnalds erindi: „Blekking og
þekking“ í húsi félagsins, Ing-
ólfsstræti 22.
Á laugardag er opið hús á milli
15 og 17 með fræðslu kl. 15.30 í
umsjá Steinunnar H. Lárusdótt-
ur: „Lífsgildi og leiðtogar“.
Hugræktarnámskeið Guð-
spekifélagsins heldur áfram
fimmtudaginn 2. mars.
Tran-Thi-Kim-Dieu fjallar um:
„Sjálfsþekking“ kl. 20.30 í
húsi félagsins í Ingólfsstræti 22.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 1 186338 G.H.
8½.II.*
I.O.O.F. 12 186337½ Bh.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Norðurgata 17a, 01-0201, Akureyri (214-9480), þingl. eig. Þuríður
María Hauksdóttir, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Íbúðalána-
sjóður, Kreditkort hf. og Tryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn
8. mars 2006 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
2. mars 2006.
Eyþór Þorbergsson, ftr.
Nauðungarsala
á Eyrarbakka og Stokkseyri
Sérkennari -
stuðningsfulltrúi
Óskum eftir að ráða sérkennara í 50% stöðu,
nú þegar. Einnig stuðningsfulltrúa í um 60%
stöðu.
Umsóknir með uppl. um menntun og fyrri störf
óskast sendar á netfangið
harpa@barnaskolinn.is.
Nánari upplýsingar gefur Arndís Harpa skóla-
stjóri í símum 483 1263 eða 864 1538.
Raðauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
MAÐUR tekur sér kannski smátíma
núna til að kynnast sjálfri sér heima
og svo skulum við skoða hvort við
förum eitthvað að njóta lífsins og
fara út í heim,“ segir Anna Júlíus-
dóttir, sem staðið hefur vaktina við
afgreiðsluborð söluturnsins Viki-
vaka við Laugaveg í Reykjavík frá
átta til sjö alla daga nema sunnu-
daga í tuttugu og þrjú ár.
Anna og eiginmaður hennar,
Hans Júlíusson, tóku við rekstri
Vikivaka árið 1983, en skiluðu hon-
um um mánaðamótin í hendurnar á
ungum manni, Högna Brekasyni, af
næstu kynslóð söluturnsþjóna. „Við
horfum bara björtum augum fram á
veginn,“ segir Hans.
Þau hjónin störfuðu áður á Hér-
aðsskólanum á Reykjanesi við Ísa-
fjarðardjúp. Hans var þar kokkur
og rak mötuneytið, en Anna aðstoð-
aði hann við rekstur mötuneytisins
og bakaði.
Líf smásjoppueigandans er ekki
auðvelt og hefur það tekið sinn toll
af þeirra tíma. „Þetta er búið að
vera mjög bindandi starf að vera
alltaf vakandi yfir þessu,“ segir
Anna. „Við höfum aldrei tekið okk-
ur lengra frí en viku, en það hefur
verið annaðhvort í kringum páska
eða verslunarmannahelgar. Þá höf-
um við framlengt fríin.“ Hans hjálp-
aði Önnu við reksturinn fyrstu árin,
en réð sig síðan sem kokk á sjó.
Þau hjónin hafa aldrei tekið við
greiðslukortum og skýrir Anna það
með því að færslugjöldin séu svo há
að annaðhvort verði þau að afsala
sér gróðanum af sölu á litlum
skömmtum af sælgæti eða hækka
álagninguna. „Þá er betra að láta
eitt yfir alla ganga,“ segir Anna.
„Og það hefur alveg gengið upp.“
Lífið í miðbænum segja þau hjón-
in allt á uppleið, enda sé sífellt að
færast fleira fólk í hverfið, m.a.
með uppbyggingunni í skugga-
hverfinu og því að ungt fólk er í
auknum mæli að flytja í miðbæinn.
„Það eina sem stríðir okkur er
veðrið, en það gerir það svo sann-
arlega ekki í dag,“ segir Anna.
„Fólkið hér í kring er gott fólk, sem
vinnur hérna, það er tryggir við-
skiptavinir. Mannlífið er ágætt hér,
eins og lífið í smáþorpi.“ Undir
þetta tekur Hans og telur að enn
muni vel rætast úr Laugaveginum.
Að lokum biðja þau hjónin blaða-
mann fyrir þakkir til kúnnahópsins
sem að sögn Önnu hefur „oft hresst
upp á sálarskarnið“.
Fá sér langþráð frí
Þau Anna og Hans taka sér nú langþráð frí frá störfum og hlakka til að
njóta lífsins. Tanja Rut Pálsdóttir, langömmubarn þeirra hjóna, var í heim-
sókn og hjálpaði til við afgreiðslu viðskiptavina.
Í DAG, föstudaginn 3. mars, frá kl.
11 til 18, gengst menntamálaráðu-
neytið fyrir UT2006 – ráðstefnu um
þróun í skólastarfi, í Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga í Grundarfirði.
Áhersla verður lögð á umfjöllun um
sveigjanlega kennsluhætti og ráð-
stefnugestir verða virkir þátttak-
endur í dagskránni þar sem form-
legir fyrirlestrar verða í lágmarki.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
ráðgjafi menntamálaráðherra, flyt-
ur ávarp í upphafi ráðstefnunnar.
Meðal þeirra sem síðan koma fram
eru Guðrún Högnadóttir, frá
Stjórnendaskóla Háskólans í
Reykjavík, Sif Vígþórsdóttir, skóla-
stjóri Norðlingaskóla, Sigurborg
Hilmarsdóttir, kennari við Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga, Soffía
Þorsteinsdóttir, leikskólastjóri Sæ-
borgar, og Matthew Whelpton, frá
Háskóla Íslands.
Á ráðstefnunni verða málstofur
og vinnustofur og má þar nefna
umfjöllun um hugkortagerð, verk-
stæðiskennslu og menningarnetið.
Einnig gefst tækifæri til að spjalla
við nemendur og á svæðinu verða
ýmsar sýningar. Ráðstefnustjórar
eru Sölvi Sveinsson og Brynhildur
Ólafsdóttir.
Sjá nánari upplýsingar og dag-
skrá á vef ráðstefnunnar:
www.menntagatt.is/ut2006.
Ræða þróun
í skólastarfi
LIÐ Skákíþróttafélags stúd-
enta við Háskólann í Reykja-
vík ætlar að tefla fjöltefli við
Henrik Danielsen, stórmeist-
ara Hróksins, í dag, föstudag-
inn 3. mars kl. 11.45. Tilgang-
ur fjölteflisins er að safna
peningum til að flytja græn-
lensk börn og unglinga hingað
til lands til að kenna þeim
sund.
Teflt verður á 20 borðum
gegn stórmeistaranum og
verður helmingur liðsins skip-
aður stúdentum úr Háskólan-
um í Reykjavík, en hinn helm-
ingurinn verður skipaður
ýmsum þjóðþekktum mönnum,
sem fallist hafa á að leggja
góðu málefni lið með þátttöku
sinni. Má þar m.a. nefna:
Ragnheiði Gröndal, Gísla Mar-
tein Baldursson, Gilzenegger,
Helga Hjörvar, Ingu Lind
Karlsdóttur, Ilm Kristjáns-
dóttur, Gunnar Birgisson og
Loga Bergmann Eiðsson.
Fjölteflið fer fram á 1. hæð
Háskólans í Reykjavík, Ofan-
leiti 2.
Fjöltefli í
Háskólanum
í Reykjavík