Morgunblaðið - 06.04.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.04.2006, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VILL STYRKINA BURT Yfirmaður Heimsviðskiptastofn- unarinnar (WTO), Pascal Lamy, seg- ir brýnt að Bandaríkin og Evrópu- sambandið leggi af styrki og niður- greiðslur til landbúnaðar og geri þannig auðveldara fyrir þróunarlönd að selja vörur sínar til auðugra landa. Landbúnaðarstyrkirnir valda mikilli gremju í fátækum löndum enda mörg þeirra einkum samkeppnisfær á sviði landbúnaðar. Mannekla á LSH Mikil mannekla er á Landspítala – háskólasjúkrahúsi og vantar allt að 100 hjúkrunarfræðinga til starfa við spítalann. Einnig er skortur á sjúkra- liðum og aðstoðarfólki. Kemur þetta niður á þjónustunni við sjúklinga. Ekki er útlit fyrir að ástandið batni á næstunni að mati hjúkrunarforstjóra en sífellt fleiri störf hlaðast á herðar hjúkrunarfræðinga, sem margir hverjir vinna nær allar helgar, tvö- faldar vaktir og mikla yfirvinnu. Lá við stórslysi Minnstu munaði að fólksbíll sóp- aðist með snjóflóði fram af Súðavík- urvegi í gær. Í bílnum voru þrjár kon- ur og einn karl. Það sem kom til bjargar var björgunarsveitarbíll sem var nýkominn á vettvang þegar flóðið féll og myndaði bíllinn fyrirstöðu fyr- ir fólksbílinn. Einn björgunarsveit- armaður, sem kominn var út úr jepp- anum þegar flóðið féll, klemmdist á milli bílanna með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði. Snjóflóðahættu var lýst yfir í Bolungarvík og varð fólk að yfirgefa heimili sín í gærkvöldi. Vonskuveður var á norðan- og vest- anverðu landinu. Segir vitnum vera mútað Saddam Hussein, fyrrverandi for- seti Íraks, sagði fyrir rétti í Bagdad í gær að vitnum hefði verið mútað til að tengja hann við fjöldamorð á stjórnarandstæðingum í bænum Dujail árið 1982. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 30 Fréttaskýring 8 Viðhorf 30 Úr verinu 14 Umræðan 30/31 Erlent 16/17 Minningar 32/38 Minn staður 18 Myndasögur 42 Höfuðborgin 20 Dagbók 42/45 Akureyri 20 Staður&stund 44/45 Austurland 21 Leikhús 46 Landið 21 Bíó 50/53 Daglegt líf 22/25 Ljósvakamiðlar 54 Menning 26, 46/53 Veður 55 Af listum 26 Staksteinar 55 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " # $ %         &         '() * +,,,                  Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000 BFG All Terrain 35x12,5 R15 15.980,- stgr Mudder 38x15,5 R15 34.980,- stgr. Seltjarnarnesi Klár í páskatúrinn ? Páskati lboð 35” 38” Gerið verðsamanburð KT verslun Akureyri Njarðarnesi S. 466 2111 ÞORGERÐUR Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að stefnt væri að því að leggja fram frumvarp um fjöl- miðla á næstu dögum, en það væri þó ekki öruggt að það tæk- ist fyrir páska. Vinna nefndar, sem falið var að semja frumvarp um málið, gengi vel, en það ætti eftir að fara betur yfir nokkur atriði. Þorgerður Katrín sagði að góð pólitísk samstaða hefði ver- ið í nefndinni en hún sagði að- spurð að það yrði að koma í ljós hvort frumvarpið yrði að lögum á vorþinginu. Hún sagðist hafa lagt áherslu á að menn þyrftu að gefa sér góðan tíma í þetta verkefni. Kynnt í þingflokkunum Málið var kynnt í þingflokk- um í gær. Þorgerður Katrín sagði að þar hefði eingöngu ver- ið um grófa kynningu á málinu að ræða. Hún lagði áherslu á að ekki væri búið að samþykkja frumvarpið í ríkisstjórninni og það hefði ekki enn verið form- lega lagt fram í þingflokkunum. Fjölmiðlafrum- varp kemur fram á næstu dögum FUGLAFLENSUVEIRA af H5 stofni hefur greinst í dauðum svani, sem fannst í Fife í Skotlandi. Ekki er búið að greina hvort um er að ræða H5N1 veiruafbrigði sem get- ur borist í fólk en búist er við frek- ari niðurstöðum úr rannsóknum í dag. Halldór Runólfsson yfirdýra- læknir sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins í gær að fylgjast þurfi vandlega með gangi mála í Skotlandi og hvort svanurinn sem fannst smitaður reynist vera með H5N1 veiruafbrigðið. „Við þurfum að setjast alvarlega yfir þetta mál því við höfum alltaf sagt að við myndum miða okkar viðbrögð mikið eftir því hvort þetta myndi finnast í Bretlandi eða ekki, um leið og þetta fæst staðfest mun- um við meta stöðuna,“ sagði Hall- dór. – En hvað ef þetta reynist nú vera hið banvæna afbrigði af fugla- flensunni? „Þá eru miklu meiri líkur á að þetta geti borist hingað og þá þarf að athuga hvort við færum okkur ekki upp á viðbúnaðarstig tvö. Það þarf í það minnsta að taka ákvörð- un um það hvort við látum þennan fund verða til þess að við skiptum um gír,“ sagði Halldór og bætti við að skoðað verði mjög vandlega í dag hver næstu viðbrögð verða. „Ég veit að Bretar hafa nýverið tekið sýni úr á sjötta hundrað álft- um sem voru á leið sinni hingað til lands og það hefur allt greinst nei- kvætt,“ sagði Jarle Reiersen, sér- fræðingur í fuglasjúkdómum, við Fréttavef blaðsins. Sjálfur sagðist hann hafa verið að taka sýni úr álftum í Þykkvabænum á mánu- daginn var og verið er að rannsaka þau sýni. „Það hefur komið svo lít- ið af farfuglum hingað vegna norð- anáttarinnar sem verið hefur und- anfarið,“ sagði Jarle. Tæp 20 sýni úr villtum fugl- um send utan til greiningar Tæp tuttugu sýni úr villtum fuglum voru send utan til grein- ingar á rannsóknarstofu í Svíþjóð nú í vikubyrjun. Er niðurstaðna greiningar að vænta eftir um tíu daga. Halldór Runólfsson segir að Landbúnaðarstofnun hafi á umliðn- um vikum tekið fjölda sýna jafnt úr alifuglum sem og villtum fuglum til að kanna hvort fuglar hér á landi hafi sýkst af fuglaflensu. Þannig hafa verið tekin sýni úr öndunum á Tjörninni í Reykjavík, í Húsdýra- garðinum, Hafnarfirði og á ali- fuglabúum víðs vegar um land. Fuglaflensuveira greindist í dauðum svani í Skotlandi Gæti þurft að auka viðbúnaðinn hér á landi RÆÐUMET var slegið á Alþingi í fyrrinótt er Ög- mundur Jónas- son, þingflokks- formaður Vinstri grænna, talaði samfleytt í sex tíma í annarri umræðu um frumvarp menntamála- ráðherra um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Ögmundur hóf ræðu sína kl. 23.10 á þriðjudagskvöld og lauk henni kl. 5.12 morguninn eftir. Hann hefur þar með slegið met Jóhönnu Sigurð- ardóttur alþingismanns og staðið lengur samfleytt í ræðustólnum en nokkur annar þingmaður. Jóhanna, sem þá var þingmaður þingflokks jafnaðarmanna, talaði samfleytt í fimm og hálfan tíma vor- ið 1998 er hún mælti gegn húsnæðis- frumvarpi félagsmálaráðherra. Jó- hanna sló á þeim tíma met Sverris Hermannssonar, þáverandi þing- manns Sjálfstæðisflokksins, en hann talaði samfellt gegn grunnskóla- frumvarpinu vorið 1974 í rúma fimm tíma. Ræðutími í annarri og þriðju umræðu á Alþingi er ótakmarkaður. Heilög kýr Ögmundur sagði við blaðamann í gær að Ríkisútvarpið væri í sínum huga nánast heilög kýr. „Það er kjöl- festan í okkar menningu og fjöl- miðlun og mér finnst það ekki bara ámælisvert heldur líka dapurlegt að þessari stofnun skuli nú hrundið á markaðstorgið.“ Spurður hvort hann hafi ekki ver- ið orðinn þreyttur eftir samfellda ræðu í sex klukkutíma segir hann einfaldlega: „Nei, nei.“ Hann segir ennfremur að ræða sín hafi verið bæði innihaldsrík og málefnaleg. En hvers vegna hætti hann? „Það var farið að morgna og mér fannst mál að linni. Ég hafði trú á því að þing- fundi myndi ljúka skömmu eftir að ég lyki máli mínu.“ Það gekk eftir og lauk þingfundi um hálfsexleytið. Gert er ráð fyrir því að annarri umræðu um frumvarpið um Ríkis- útvarpið hf. verði haldið áfram eftir helgi. Fjöldi þingmanna er enn á mælendaskrá. Ögmundur stefnir að því að taka aftur til máls í um- ræðunni. Ræðumet slegið á Alþingi Sex tíma vörn fyrir „heilaga kú“ Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Ögmundur Jónasson ÞAÐ er nauðsynlegt að kunna sund- tökin rétt og svo virðist sem þessir krakkar úr Grandaskóla sem æfa sund í Vesturbæjarlauginni séu í góðum málum hvað þetta varðar. Stundum er samt gott að hvíla sig og hanga á flotholtunum sem skilja sundbrautirnar að, þó að það sé ekki alltaf vel séð hjá kennurunum. Morgunblaðið/Ásdís Sundtökin æfð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.