Morgunblaðið - 06.04.2006, Page 29

Morgunblaðið - 06.04.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 29 Umræðan hefur verið íræðu og riti undanfariðum stærð orkulindaokkar; um það hvað við gætum framleitt mikla raforku – handa álverum eða í öðru skyni. Alllengi hefur verið miðað við að framleiða megi 50 teravattstundir af raforku á ári (TWh/a), þar af 30 úr vatnsorku en 20 úr jarðhita. Grein þessari er ætlað að varpa ljósi á þessar stærðir. Fyrst verður rifjað upp hvernig þetta mat varð til og síðan hvort ástæða sé til að endurskoða það. Hefðbundið mat á vatnsorkunni Á orkuþingi 1981 skýrði Haukur Tóm- asson, forstöðumaður á Orkustofnun, frá mati á vatnsorku landsins, sem má segja að hafi byggst á því „að telja að ofan“. Í fyrsta lagi reiknaðist honum til að staðarorka þeirrar úrkomu sem á landið fellur sé um 285 TWh/a, en þá er miðað við að hver vatnsdropi skilaði allri fallorku sinni allt til sjávar, sem auðvitað er ekki gerlegt. Næsta skref var að finna rennslisorku í öll- um helstu vatnsföllum landsins með því að áætla afrennslið og reikna hve mikla orku mætti vinna frá upptökum til ósa. Til að nálgast líklega tölu um tæknilega nýt- anlega orku voru aðeins þeir árkafl- ar notaðir þar sem rennslisorkan var yfir 1 MW á hvern 5 km kafla. Með þessu móti var tæknilega nýt- anleg vatnsorka metin vera 64 TWh/a, og hefur þá hvorki verið tekið tillit til hagkvæmni né um- hverfisáhrifa. Í erindi Hauks á árs- fundi Orkustofnunar 1991 þrengdi hann hringinn og komst að því að með tilliti til hagkvæmni, þegar til lengri tíma væri litið, mætti telja nýtanlega vatnsorku 55 TWh/a, en hagkvæmir kostir til skemmri tíma litið næmu þó vart meiru en 37 TWh/a. Á Vatnamælingum Orku- stofnunar er nú unnið að nýju af- rennsliskorti af öllu landinu. Með því og nákvæmara hæðarkorti mun verða unnt að renna styrkari stoð- um undir slíkt mat á vatnsorkunni; mat sem byggt er á úrkomu og landslagi. Fyrir u.þ.b. 30 árum var farin önnur leið, sú að „telja að neðan“. Var þá farið í gegnum hugmyndir um virkjunarkosti en sumar þeirra voru þó á veikum grunni. Kostn- aður var lauslega metinn og aðeins teknir með í reikninginn þeir vatns- orkukostir sem voru taldir hag- kvæmir. Niðurstaðan var að miðað við gefnar forsendur væri fram- leiðslugetan 45 TWh/a. Sem viðmið um hagkvæmni settu menn fram- leiðslukostnað í nýjum kjarn- orkuverum. Ljóst var að margir af þessum orkukostum yrðu umdeild- ir, svo sem virkjanir sem skertu rennsli í þekktustu fossum lands- ins. Því var þriðjungur sleginn af og niðurstaðan talan 30 TWh/a. Í riti iðnaðarráðuneytis frá 1994 um Innlendar orkulindir til vinnslu raforku var fyrrgreind úttekt end- urskoðuð með því að skoða mögu- legar virkjanir, bæði gamlar hug- myndir og nýjar. Töldust þá tæknilega mögulegir og hag- kvæmir kostir nema um 42 TWh/a. Þar sem flestum smærri virkj- unarkostum var sleppt má segja að heildarmatið hafi verið óbreytt. Mat á háhitanum Allt mat á jarðhitakostum til raf- orkuframleiðslu er óvissara en á vatnsorku. Guðmundur Pálmason, forstöðumaður á Orkustofnun, gerði grein fyrir slíku mati á orku- þingi 1981 og má lesa út úr reikn- ingum hans að forði háhitasvæð- anna geti gefið um 30 TWh/a miðað við samfellda vinnslu í 50 ár á hverjum einstökum stað. Með svip- uðum hætti og varðandi vatnsork- una hefur þessi stærð síðan verið lækkuð bæði með hliðsjón af vinnslukostnaði og umhverfisáhrif- um og staðnæmst við þær 20 TWh/a, sem nefndar eru hér í byrj- un. Svipaðar stærðir eru uppi á ten- ingnum í fyrrgreindu riti iðn- aðarráðuneytisins frá 1994. Í báðum tilvikum er gengið út frá því að vinnslan sé eins og námugröftur og ekki tekið tillit til þess að vatn og varmi streymir sífellt inn í vinnslusvæðin. Þá er matið ein- skorðað við það sem fá má úr efstu 3 km jarðskorpunnar. Í erindi á ársfundi Íslenskra orkurann- sókna fyrir skömmu nefndi Ólafur G. Flóvenz, forstjóri stofnunarinnar, að nýtanlegur háhiti kunni að vera veru- lega vanmetinn. Nefnir hann þrennt máli sínu til stuðn- ings: Í fyrsta lagi megi vega á móti umhverfisáhrif- um, svo sem með haganlegri hönn- un mannvirkja, skáborunum eða því að leggja gufulagnir í jörð. Í öðru lagi megi freista þess að nýta háhita á meira dýpi, allt niður í 5 km. Í þriðja lagi þurfi að fá svör við því hvort unnt sé að vinna háhita í sprungukerfum gosbeltanna, þ.e. utan þeirra svæða sem hingað til hafa verið tekin með í reikninginn. Rammaáætlun og endur- skoðun á mati á orkukostunum Síðan 1999 hefur verið unnið að svokallaðri rammaáætlun um nýt- ingu vatnsafls og jarðvarma. Þar er þess freistað að meta alla helstu virkjunarkosti m.t.t. orkugetu, hag- kvæmni en ekki síst umhverfis- áhrifa. Á árinu 2003 var skilað skýrslu um fyrsta áfanga þessarar áætl- unar. Þar eru orkukostirnir dregnir í dilka í 5 flokka, a-e, eftir vaxandi óæskilegum umhverfisáhrifum. Þegar skýrslan var kynnt létu ráð- herrar umhverfis- og orkumála svo ummælt að vart yrði leitað víðar fanga en í flokkum a-c þegar hugað yrði að nýjum virkjunarkostum. Að þessu viðmiði gefnu má lesa út úr umræddri skýrslu að samtals fást ríflega 19 TWh/a úr vatnsorku og ríflega 15 úr jarðvarmanum með núverandi vinnslu og framleiðslu heimilaðra orkuvera auk þeirra kosta sem fá einkunnina a-c í fyrsta áfanga rammaáætlunarinnar. En rammaáætluninni er ekki lok- ið. Í erindi greinarhöfundar á árs- fundi Orkustofnunar 2004 var þess freistað að spá í niðurstöðu úr framhaldi rammaáætlunarinnar. Ef þeir kostir sem falla undir síðari áfanga áætlunarinnar flokkast hlutfallslega eins og þeir í þeim fyrsta, gæti heildarraforkugetan – að teknu tilliti til hagkvæmni og umhverfisáhrifa – mælst ríflega 26 TWh/a í vatnsorku auk 23 í jarð- varma eða alls nær þeim 50 TWh/a sem lengi hefur verið gengið út frá. En ítreka verður að hér er byggt á þeirri þríliðuforsendu að virkjanir í síðari áföngum flokkist hlutfalls- lega eins og í þeim fyrsta. Aðrar orkulindir En eru ekki til aðrar innlendar orkulindir en vatnsorka og jarð- varmi sem nýta má til raforku- vinnslu? Vissulega, og liggur þá vindorkan beinast við. Á vegum Orkustofnunar er í samvinnu við Veðurstofuna verið að kortleggja vindorku með því að gera vindatlas af landinu. Því verki verður bráð- lega lokið og ætti þá að vera unnt að leggja heildarmat á tæknilega vinnanlega vindorku. En síðan er það annar handleggur að slá þar af vegna hagkvæmnis- og umhverf- isástæðna. Vindorka er, a.m.k. enn sem komið er, dýrari en bæði vatnsorkan og háhitinn. Annar ann- marki vindorkunnar er augljós: Það blæs ekki alltaf byrlega. Að baki vindorku þarf því að vera varaafl, oftast vatnsorka, en vindorka gæti vissulega komið sem eins konar bú- drýgindi. Önnur endurnýjanleg orka felst í sjávaröldum, sjávarstraumum og sjávarföllum. Allt eru þetta lítt kannaðir kostir, enda hvergi nýttir í heiminum í neinum teljandi mæli. Orkulindirnar eru líka af lífrænum toga og er t.d. verulegt magn til af mó. En vart þætti stórtækur mó- gröftur ákjósanlegur út frá nútíma- legum umhverfissjónarmiðum. Á hinn bóginn kann að vera unnt, og jafnvel hagkvæmt, að rækta gróður sem orkugjafa, og hefur lúpína helst verið nefnd í því sambandi. Slík ræktun gæti verið áhugaverð sem liður í framleiðslu gervields- neytis þar sem raforka eða bein nýting jarðvarma kæmi jafnframt við sögu. Að lokum má sjá í hillingum að olía eða gas finnist á landgrunni okkar. Unnið er að því að afla okk- ur réttinda og frumleit hefur að nokkru farið fram. En að sjálfsögðu líður drjúgur tími þar til í ljós kem- ur hvað sé að hafa, og hvort þar er um nýtanlega auðlind að ræða eða ekki. Niðurstaða Lengi hefur verið við það miðað að framleiða megi 50 teravatt- stundir af raforku á ári (TWh/a); 30 úr vatnsorku en 20 úr jarðhita. Nánari og nýrri rýni bendir til að matið á vatnsorkunni sé fullríflegt, vegna hertra umhverfissjónarmiða, en að jarðhitinn kunni að vera veru- lega vanmetinn. Enn er þó ekki tal- in ástæða til að hverfa frá því heild- arviðmiði að vinna megi alls 50 TWh/a úr þessum orkulindum báð- um, en á síðasta ári nam vinnslan 7,0 TWh úr vatnsorku og 1,7 úr há- hita, sem samtals er enn langt und- ir orkugetunni. Og þá eru ótaldir aðrir orkukostir, einkum vindorka, sem gæti verið umtalsverð. Spurningunni sem spurt er í heiti þessarar greinar má svara neit- andi: Ekki liggja fyrir rök þess efn- is að kostir okkar til raforkufram- leiðslu séu ofmetnir. Þeir eru þó ekki óþrjótandi, enda þótt við séum þegar með mestu raforkuframleið- endum í heimi, miðað við fólksfjölda – ef ekki efst á blaði. En íslenskir raforkukostir eru auðvitað litlir á heimsmælikvarða. Við gætum séð vestrænni stórborg með um 6 millj- ónum íbúa fyrir öllum raf- orkuþörfum sínum; en heldur ekki meira. Möguleikar til að nýta orkukost- ina okkur til hagsbóta eru takmark- aðir þar sem landið er eyland. Al- menn innanlandsþörf vex hægt og því kemur þrennt til greina: Í fyrsta lagi áframhaldandi efling orkufreks iðnaðar. Í öðru lagi beinn útflutningur á raforku um sæ- streng og í þriðja lagi framleiðsla á gervieldsneyti eins og vetni. Tveir síðarnefndu kostirnir eru enn ekki raunhæfir þannig að í svipinn eru möguleikarnir einskorðaðir við orkufrekan iðnað eins og ál- bræðslu. En hvað sem við gerum í orku- málunum hlýtur það að þurfa að vera í viðunandi sátt við umhverfið. Vinnan að rammaáætluninni fyrr- nefndu er liður í því að finna rétta meðalveginn í þeim efnum. Að henni lokinni má væntanlega fá af- dráttarlausara svar við spurningu greinarinnar, en þó verður að hafa í huga að mat á mögulegri orku- vinnslu er ætíð háð tíðarandanum. Endanlegt svar fæst því seint. Eru orkulindir okkar ofmetnar? Eftir Þorkel Helgason ’En hvað sem við gerum í orkumálunum hlýtur það að þurfa að vera í viðunandi sátt við umhverfið.‘ Þorkell Helgason Höfundur er orkumálastjóri. ekki verið val- rðinga, ast. Hins yrir um um byggð- r eldra ja við hafa þær út. Síðan star íbúð- raut og fyrir eldra getur séð en það sjálfs- g hafa n leysa þörf ennar li að bæj- einbeita andi þörf a í Hafn- bygginga- því. Hug- ð það, að ður við Krýsuvíkurveg. Sú staðsetning hugnast mér ekki og er það megin ástæða þess, að ég drep niður penna um þessi mál. Sólvangur er einstaklega vel stað- settur miðsvæðis á einum fallegasta stað í Hafnarfirði. Þar er enn nóg rými undir frekari byggingar fyrir aldraða. Ég bendi á, að byggja má t.d. 6–8 hæða hús ofan á Heilsu- gæslustöðina. Notaðar yrðu hent- ugar og rúmgóðar lyftur, svo sem yfirleitt er á slíkum stofnunum í dag og gangar því ekki eins langir. Þá er stór ónotuð lóð á milli Sólvangs og húsanna við Álfaskeið. Einnig er stórt óbyggt svæði frá Sólvangi og niður að Tjarnarbraut, þar sem risið gæti lágreist byggð. En vil ég benda á til lengri framtíðar að stórt óbyggt svæði er upp með Læknum á milli Hringbrautar og Reykjanesbrautar. Allir þessir staðir eru að mínum dómi æskilegir til byggingar dval- arheimila fyrir aldraða í Hafnarfirði. Kostir þess að byggja áfram á Sólvangssvæðinu eru margir. Fyrir utan fegurð umhverfisins, sem ég hef þegar minnst á, er þaðan stutt ofan í miðbæ og helsta byggða- og þjónustukjarna Hafnarfjarðar. Það hafa vistmenn, sem haft hafa til þess heilsu, iðulega notað sér í gegnum árin. Allar slíkar gönguferðir eru t.d. útilokaðar frá Völlunum, sökum fjarlægðar frá miðbænum. Með því að byggja á Sólvangssvæðinu væri þjónustu bæjarins á þessu sviði komið fyrir á einum stað, sem hlýtur að spara útgjöld við stjórnun og fleira. Þegar er heilsugæsla og al- menn læknaþjónusta starfrækt í húsinu. Fleira mætti nefna, en þetta skal látið nægja að sinni. Ég vænti þess, að á næsta kjör- tímabili bæjarstjórnar, sem nú nálg- ast óðfluga, verði bygging viðbótar dvalarheimilis aldraðra í Hafnarfirði eitt helsta forgangsmálið. Ríkið, sem fer að mestu með fjárveitingavaldið á þessu sviði má ekki láta sitt eftir liggja. Þar verða alþingismenn kjör- dæmisins að leggjast fast á árar með Hafnfirðingum. Ég treysti því, að fulltrúar í næstu bæjarstjórn, hvar í flokki, sem þeir kunna að standa, bindi sig ekki við þær hugmyndir, sem komnar eru fram um heimili fyrir aldraða suður á Völlunum, heldur skoði með opnum huga nýja staðsetningu væntanlegra bygginga á Sólvangssvæðinu. Það er bæj- arstjórn, sem ræður staðsetning- unni. s- ’Kostir þess að byggjaáfram á Sólvangssvæð- inu eru margir.‘ Höfundur er hæstaréttarlögmaður og fyrrv. forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. varðar frá eildin var sjúklinga ira álag í ftir sjúk- vantar að unarfræð- því mikið ar. Spítal- að er stöð- fleiri sjúk- ur við. [...] sem óhjá- ku álagi.“ fræðingar nefndi Þóra Gerður aukastörf sem lenda á hjúkrunarfræðingum sökum manneklu. T.d. fari mikill tími í að svara í síma á deildinni á kvöldin eft- ir að ritari er farinn heim. Þá eru að- standendur oft að spyrja um líðan ástvina sinna. „Það sjá flestir að hjúkrunarfræð- ingur sem er að sinna þessum sjúk- lingahóp er mjög tættur og hefur ekki tíma til að sinna hverjum og ein- um. Hann hefur ekki tíma til að spyrja sjúklinga um líðan eða ræða um áframhald meðferðar eftir heim- komu svo einhver dæmi séu gefin. Okkur finnst við aðeins ná að sinna verkum en ekki fylgjast nægilega vel með sjúklingum eins og þarf til að koma í veg fyrir fylgikvilla og koma í veg fyrir þjáningu og nýta menntun okkar og reynslu. Við förum mjög oft heim pirraðar yfir að hafa ekki getað sinnt öllu sem við teljum þurfa. Skráningin er í molum, hún mætir oftast afgangi og stundum næst ekki að skrá lágmarksupplýsingar sem okkur ber þó lagaleg skylda til. Við náum oftast ekki að klára vaktina á réttum tíma. Við hjúkrunarfræðing- arnir erum undir miklu andlegu álagi að ná aldrei að sinna sjúkling- unum vel, hafa áhyggjur af því að ástand sjúklinganna versni og að okkur yfirsjáist vegna álags og tíma- skorts. Einnig höfum við áhyggjur af hver beri ábyrgðina ef alvarlegt at- vik kemur fyrir eða ef sjúklingur deyr vegna mistaka eða vanrækslu.“ Þóra og fleiri hjúkrunarfræðingar sem tóku til máls á fundinum sögðu að í frítíma sínum fengju þeir engan frið, stöðugt væri hringt og þeir beðnir um að koma á aukavakt. Ragnheiður Narfadóttir, deildar- stjóri á deild 33-A á geðsviði LSH, segir álagið m.a. koma út í mjög miklum veikindum starfsmanna. Segir hún að á síðasta ári hafi starfs- fólkið verið fjarverandi samanlagt í um fimm þúsund klukkustundir vegna veikinda. Ingileif Sigfúsdóttir, deildarstjóri á bráðamóttöku barna, segir álagið á starfsfólkið stöðugt fara vaxandi. Þá komi sífellt fleiri börn á deildina. T.d. komu 1.233 börn á deildina í mars á þessu ári samanborið við 945 í mars árið 2004. Á sama tíma hefur stöðu- gildum hjúkrunarfræðinga sem og sjúkraliða verið fækkað. Í mars 2004 voru stöðugildi hjúkrunarfræðinga 11,4 en tveimur árum síðar voru þau 8,7. Hún segir þjónustu deildarinnar framúrskarandi, „en stöðugt og mik- ið álag mun sigla hópnum fyrr en síð- ar í strand. Þess vegna er mikilvægt að grípa inn í nú þegar“. Hún segir hjúkrunarfræðinga vana að vinna undir miklu álagi. Hins vegar sé það orðið óhóflegt, allt frá því í haust. „En það eru líka tak- mörk fyrir því hversu lengi þetta gengur án þess að eitthvað láti und- an, svo sem aukin veikindatíðni starfsmanna og ekki síst brottfall úr starfi. Við teljum að þetta álag hafi veruleg áhrif. Hræðsla við að bráð- veika barnið, sem er í lífshættu, muni þurfa að bíða jafnvel á biðstofu án þess að hægt sé að veita því þjón- ustu vegna manneklu. [...] Það er ekki hægt að veita þá hjúkrun sem LSH vill veita og það er ekki hægt að leggja áherslu á fræðslu fyrir sjúk- linga eða starfsmenn.“ Hún segir þetta allt koma niður á þjónustunni, hún versnar, stöðnun verður á deildinni og frekari flótti starfsfólks. „Hættan eykst á mistök- um, þreyta og pirringur gerir vart við sig og sömuleiðis vonleysi.“ Soffía Eiríksdóttir, hjúkrunar- fræðingur á deild 13-G, segist finna mikinn mun á starfsánægju starfs- manna frá því hún hóf þar störf árið 2000. Nú vantar 5–6 hjúkrunarfræð- inga til starfa á deildinni. „Ánægja einstaklingsins í starfi er alltaf að versna, hálfkláruð verk bíða og van- máttarkennd fyllir daginn. Afleið- ingin er orðin sú að starfsfólkið kvíð- ir hverjum einasta vinnudegi.“ Hún segir marga hjúkrunarfræðinga ætla að segja upp sökum álags. „Hjúkrunarfræðingar eru eftirsóttir í starfi utan sjúkrahúsa og eitthvað verður að gera til að halda þeim í starfi.“ ustu Landspítalans og mistök verða vegna álags mst við ekki“ Morgunblaðið/ÞÖK júkrahús til að spítalinn sé fullmannaður. Landspít- gær var m lýst er skorti á SH. í miður nú m þjón- sjúklinga. iða til að sem varð- heil- ála, Há- n á Ak- tofnanir m saman álykt- ur ar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.