Morgunblaðið - 06.04.2006, Qupperneq 52
BREAKBEAT.IS-klúbburinn býður
upp á góða gesti á fastakvöldi sínu í
apríl á Pravda. Fyrstan ber að nefna
Brett Cleaver, höfuðpaur Offshore
útgáfunnar frá Brooklyn í New
York, sem kallar sig DJ Clever, auk
þess mætir hinn írski DJ Code, frá
Subtle Audio. Ekki má gleyma ís-
lenska tvíeykinu Mars sem stígur á
svið í upphafi kvölds.
DJ Clever heiðrar landann með
spilamennsku sinni í annað sinn með
þessari heimsókn. Hann stóð á bak
við spilarana á hinum sáluga Kapital
í júlí árið 2004 og hefur síðan verið
ólmur í að sækja landið heim á ný.
Clever er eigandi Offshore Record-
ings, útgáfu sem sérhæfir sig í til-
raunakenndri tónlist.
Code er hins vegar að koma hing-
að í fyrsta skipti. Hann er eins og áð-
ur sagði eigandi hinnar nýlega stofn-
uðu Subtle Audio. Útgáfan hefur þó
strax látið að sér kveða í „leftfield“
drum’n’bass geiranum með lögum
frá reynsluboltunum Alpha Omega
og Fracture & Neptune í bland við
efni frá nýliðunum Fanu og Sileni.
Gunni Ewok og Raychem sem
Tónlist | Breakbeat.is á Pravda
Clever og Code koma
DJ Clever heiðrar landann með spilamennsku sinni í annað sinn.
skipa dúettinn Mars sjá um að hefja
kvöldið. Raychem reiðir fram lifandi
tóna á meðan Gunni Ewok sér um að
þeyta skífur þannig að úr verður
áhugaverð blanda.
Breakbeat.is á Pravda í kvöld.
Húsið opnar stundvíslega kl. 21.
Aldurstakmark er 18 ár og 500 kr.
aðgangseyrir.
52 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRISAMBÍÓ KEFLAVÍK
BYGGÐ Á ÓTRÚLEGUM SÖNNUM ATBURÐUM
F R U M S Ý N I N G
WOLF CREEK kl. 8 - 10 bi 16 ára
LASSIE kl. 6
EIGHT BELOW kl. 5:45 - 8
BASIC INST. 2 kl. 10:15 bi 16 ára
Ice age 2 kl. 8
Date movie kl. 8 - 10 B.i. 14 ára
Basic Instinct 2 kl. 10 B.i. 16 ára
Ein magnaðasta
kvikmyndaupplifun ársins.
FRELSI AÐ EILÍFU !
eee
- VJV topp5.is
eee
- SV mbl
eeee
- S.K. - DV
eeee
- S.U.S. - XFM 91,9
eeeee
- V.J.V. - TOPP5.IS
eeee
- KVIKMYNDIR.IS
eeee
- A.B. Blaðið
V for Vendetta kl. 5.20 - 8 og 10.40 b.i. 16 ára
Basic Instinct 2 kl. 5.40 - 8 og 10.20 b.i. 16 ára
The Matador kl. 6 - 8 og 10 b.i. 16 ára
Blóðbönd kl. 6 og 8
Syriana kl. 10 b.i. 16 ára
Sharon Stone
er í banastuði
eins og í fyrri
myndinni.
eeeee
Dóri Dna / Dv
Frá höfundi „Traffic“
Fyrir besta
aukahlutverk
karla
George Clooney.
Ógleymanlegar persónur í mynd sem er svo töff, skemmtileg og
alveg drepfyndin. Pierce Brosnan hefur aldrei verið betri.
„Golf er fáviti. Ég blóta þeim degi sem ég byrjaði í þessu fjandans sporti. Einn
daginn spilar þú eins og engill og heldur að þetta sé komið og getur ekki beðið
eftir að komast út á völl aftur. Næsta dag getur þú ákkúrat ekkert og langar mest
að grýta settinu í sjóinn.“
Blog.is
TÓNLISTARMAÐURINN og
heimshornaflakkarinn, Siggi Björns
heldur tónleika í Iðnó í kvöld klukk-
an 21.
Á tónleikunum mun Siggi Björns
flytja tónlist en þá verða einnig
sagðar sögur, meðal annars frá
„mestu sameiningu og hagræðingu
sem um getur, þar sem allt endar á
einum stað,“ eins og segir í frétta-
tilkynningu.
Fyrirbærið sem þar um ræðir hef-
ur hlotið nafnið Game over Group og
á vafalaust eftir að koma mörgum
guðhræddum sálum á óvart. Trúr
því að hafa skuli það sem sannara
reynist nema annað hljómi betur,
ætlar Siggi að segja sögur af sér-
kennilegu og skemmtilegu fólki sem
hann hefur kynnst á sinni löngu veg-
ferð.
Þessir tónleikar eru lok hring-
ferðar Sigga um landið þar sem
hann hefur kynnt nýjasta diskinn
sinn, Stories.
Trúbadorinn Svavar Knútur
Kristinsson kemur fram sem gestur
kvöldsins. Miðapantanir eru hjá
miðasölu Iðnó, miðaverð er 1.000
krónur.
Tónlist | Siggi Björns lýkur hringferð
um landið í Iðnó
Sögur af fólki
Fréttir á SMS