Morgunblaðið - 06.04.2006, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.04.2006, Blaðsíða 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi HUNDINUM Trygg, sem á myndinni sést að- stoða mann við að fara úr sokk, er ýmislegt fleira til lista lagt, enda gegnir hann þeim virðulega starfstitli þjónustuhundur. Að sögn Auðar Björnsdóttur hundaþjálfara, sem þjálf- aði Trygg, geta hundar eins og hann verið góðar hjálparhellur fatlaðra einstaklinga. „Hundarnir geta opnað dyr, kveikt ljós, að- stoðað fólk við að afklæðast, og sótt allt sem það missir, allt niður í smáhluti á borð við kreditkort og lykla,“ segir Auður. Þá geti þjónustuhundar sett þvott í þvottavél og tek- ið úr þeim, hjálpað til við að draga hjólastóla og ýmislegt fleira. Hundurinn Tryggur er í eigu Viðars Sig- urðssonar, níu ára sonar Auðar, sem er fatl- aður. Þeir Tryggur og Viðar hafa verið góðir félagar undanfarin fimm ár, en um sex mán- uði tók að þjálfa Trygg upp í það hlutverk sem hann gegnir. Auður segir að einn annar þjónustuhundur sé til á landinu, en tveir til viðbótar bíði þjálfunar. Verið sé að þrýsta á Tryggingastofnun að leggja til fé vegna þjálf- unar hjálparhunda, enda sé hún dýr. Morgunblaðið/Árni Sæberg Á þjónustuhund með þjónustulund FJÖLGA ber eftirlitsmyndavélum í miðborginni. Auka þarf samvinnu lögreglu og borgaryfirvalda m.a. með eftirliti óeinkennisklæddra lög- reglumanna og þróa ber áfram hverfalöggæslu í hverfum borgar- innar í nánum tengslum við þjón- ustumiðstöðvar. Þetta er meðal fjölmargra tillagna um aðgerðir til að efla löggæslu í Reykjavík, sem vinnuhópur á vegum dómsmálaráðuneytis, lögreglu og borgaryfirvalda leggur til að ráðist verði í. Hópurinn hefur skilað dómsmála- ráðherra skýrslu þar sem tillögurnar eru settar fram og segir að ekkert sé því að vanbúnaði að hrinda þeim í framkvæmd að því marki sem þær kalli ekki á meiriháttar útgjöld eða feli í sér grundvallarbreytingar. Leggur hópurinn til ýmsar að- gerðir vegna stöðu mála í miðborg- inni, vegna neikvæðrar hegðunar unglinga, til að auka öryggi í hverf- um borgarinnar og vegna umferðar- mála og starfsaðstöðu lögreglunnar. „Unnið verði að því að efla sýni- leika lögreglu með því að auka við- veru hennar í hverfum borgarinnar, efna til funda reglulega í hverfum borgarinnar þar sem farið verði yfir helstu leiðir til að koma í veg fyrir af- brot og efla tengsl hennar við borg- arbúa með því að nýta upplýsinga- tækni til að miðla upplýsingum og taka við ábendingum frá borgurum,“ segir í tillögunum. Lagt er til að borgaryfirvöld og lögregla sjái til þess að eigendur mannlausra húsa gangi þannig frá eignum sínum að ekki ógni öryggi annarra, t.d. vegna hústöku. Í um- ferðarmálum er m.a. lagt til að upp- tökuvélum verði komið fyrir á öllum stærstu gatnamótum í höfuðborg- inni. Starfshópur leggur til að hverfalöggæsla verði aukin Eftirlitsmyndavél- um verði fjölgað  Leggja til | 12 Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „MÉR finnst starf hópsins hafa skilað góðum ár- angri, bæði í niður- stöðum hans og því, sem hann hefur beitt sér fyrir á undanförnum miss- erum,“ segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra um til- lögur viðræðuhópsins um lög- gæslumál í höfuðborginni. „Af hálfu ráðuneytisins er mikill vilji til þess að beita sér í þeim málum, sem að því snýr og sama veit ég, að gildir um alla aðila þessa samstarfs,“ segir Björn. Mikill vilji Björn Bjarnason LÖGREGLAN á Akranesi kom manni til bjargar sem hafði sofnað í strætisvagni á leið frá Reykjavík upp á Akranes um miðnætti í fyrrakvöld. Maðurinn hringdi í lögreglu þeg- ar hann vaknaði, en þá hafði strætisvagn- inum verið lagt fyrir nóttina og læst, og hafði maðurinn lítinn hug á því að láta fyrirberast í vagninum um nóttina. Lögreglan brást skjótt við og hafði samband við strætisvagnastjór- ann, sem mætti á staðinn og opnaði fyrir far- þeganum þaulsætna. Afþakkaði náttstað í Skagavagninum STJÓRNVÖLD á Írlandi hafa ákveðið að rekneta- veiðum á laxi í sjó skuli hætt og standa vonir til að af því verði á næsta ári. Þetta kom fram í við- ræðum Sólveigar Péturs- dóttur, forseta Alþingis, við ráðamenn á Írlandi í opinberri heimsókn sendi- nefndar Alþingis á Írlandi í gær. „Ég ræddi rekneta- veiðar á laxi við alla viðmælendur okkar og hvatti Íra til að hætta þeim sem fyrst,“ segir Sólveig. „Ríkisstjórnin hefur ákveðið að rek- netaveiðum á laxi skuli hætt en eftir er að ákveða hvernig greiðslum til þeirra sem stunda þessa atvinnu verður háttað. Það mál er í nefnd. Spurningin er hversu hratt málið verður leyst. Voru viðmælendur okkar ekki allir sammála um hvenær reknetaveiðum yrði algjörlega hætt en aðstoðarforsætis- ráðherrann vonaðist til að það yrði á næsta ári,“ segir Sólveig. | 10 Írar hyggjast hætta reknetaveiðum á laxi Sólveig Pétursdóttir 125 UNGMENNI í kór Mennta- skólans við Hamrahlíð og Hamra- hlíðarkórnum syngja með Sinfóníu- hljómsveit Íslands í kvöld á tón- leikum í tilefni af 250 ára afmæli Mozarts. Á efnisskrá eru Sálumessa eftir Joseph Eybler, Totenfeier eftir Gustav Mahler og Sálumessa eftir Mozart. „Sálumessa Mozarts er áhrifamikið og afar fagurt verk. Það er sannarlega ánægjulegt að Sinfón- íuhljómsveit Íslands skuli treysta ungu fólki fyrir svo verðugu verkefni á afmælisári tónskáldsins,“ segir Þorgerður Ingólfsdóttir, stjórnandi Hamrahlíðarkóranna. | 26 Ungmenni syngja sálumessur Morgunblaðið/Ásdís SAMKEPPNISEFTIRLITINU bárust 25 til- kynningar um samruna fyrirtækja árið 2004. Á síðasta ári voru þær 30, en á fyrsta árs- fjórðungi þessa árs eru tilkynningarnar nú þegar orðnar 15 talsins. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppn- iseftirlitsins, segir í Viðskiptablaði Morgun- blaðsins í dag þessa fjölgun samrunamála vera umhugsunarefni og til marks um þá samþjöppun sem á sér stað í íslensku við- skiptalífi. | B1 Fjölgun samrunamála umhugsunarefni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.