Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 4
KJÖRSÓKN fór rólega af stað í
stærstu sveitarfélögunum í gær og
var kjörsókn víðast minni á hádegi
en á sama tíma í kosningunum árið
2002. Aðeins á Akureyri var kjör-
sóknin áberandi meiri en 2002.
Kjörsókn fór rólega af stað í
Reykjavík, og kl. 12 höfðu 11,9%
greitt atkvæði, samanborið við 14%
frá því fyrir fjórum árum.
Í Kópavogi höfðu 11,8% kosið á
hádegi, sem er sama hlutfall og á
sama tíma í kosningunum árið 2002.
Þar höfðu að auki um 1.600 greitt at-
kvæði utan kjörstaðar, eða um 8% af
þeim sem eru á kjörskrá.
Kjörsóknin var ívið dræmari í
Hafnarfirði, en þar höfðu 11% at-
kvæðisbærra manna greitt atkvæði
kl. 12 á hádegi, sem er örlítið lægra
hlutfall en í kosningunum 2002.
Í Reykjanesbæ höfðu 10,2% neytt
atkvæðisréttar síns á hádegi, eða
svipað hlutfall og fyrir fjórum árum.
Alls höfðu 675 kosið utan kjör-
fundar.
Klukkan 12 höfðu um 9,5% allra á
kjörskrá greitt atkvæði í Fjarða-
byggð, en erfitt er að bera saman
tölur um kjörsókn milli sveitar-
stjórnarkosninga, þar sem Fjarða-
byggð er nýtt sveitarfélag. Á hádegi
í gær voru komin fram 340 utankjör-
fundaratkvæði.
Rétt fyrir klukkan 12 á hádegi í
gær höfðu 2.492 kjósendur greitt at-
kvæði á Akureyri sem jafngildir
20,7% atkvæðabærra manna í bæn-
um, sem er talsvert meira en í síð-
ustu alþingis- og forsetakosningum.
Klukkan 11:30í gærdag höfðu
5,9% atkvæðisbærra manna greitt
atkvæði í kosningunum á Ísafirði,
auk þess sem 343 utankjörfund-
aratkvæði höfðu borist. Er það
nokkru meira af utankjörstað-
aratkvæðum en í síðustu sveit-
arstjórnarkosningum.
Bannað að senda upplýsingar
úr kjördeildum
Fulltrúar flokkanna virðast svo til
hættir að sitja í kjördeildum og
fylgjast með þeim sem kjósa. Af
þeim stöðum sem haft var samband
við var það aðeins í Reykjanesbæ
sem tveir flokkar viðhöfðu slíkt eft-
irlit; Sjálfstæðisflokkur og A-listinn.
Á árum áður var talsvert um að
flokkarnir sendu fólk til að fylgjast
með í kjördeildunum, en með úr-
skurði Persónuverndar frá árinu
2003 var þeim óheimilt að miðla upp-
lýsingum út fyrir kjördeildina, nema
slíkt teldist nauðsynlegt til að hafa
eftirlit með því að kosning færi lög-
lega fram, t.d. til að tryggja að að-
eins þeir sem væru á kjörskrá
greiddu atkvæði, og enginn greiddi
atkvæði oftar en einu sinni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, og Arna Dögg Einarsdóttir, eiginkona hans,
greiddu atkvæði sín í kosningunum í Ráðhúsi Reykjavíkur í gærmorgun.
Morgunblaðið/Eggert
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna, og Guðrún Kristjánsdóttir, unnusta
hans, greiddu atkvæði í Íþróttamiðstöðinni Austurbergi í Breiðholti í gærmorgun.
Kjörsókn yfirleitt rólega af stað
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
og Brján Jónasson
Morgunblaðið/Eyþór
Svandís Svavarsdóttir, oddviti VG, greiddi atkvæði í Hagaskóla ásamt
Torfa Hjartarsyni, eiginmanni sínum, og börnum þeirra, Tuma og Unu.
Morgunblaðið/Eyþór
Ólafur F. Magnússon, oddviti F-listans, og Guðrún Kjartansdóttir, eigin-
kona hans, við atkvæðagreiðslu í Breiðagerðisskóla í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Björn Ingi Hrafnsson, oddviti B-lista, og kona hans, Hólmfríður Rós Eyj-
ólfsdóttir, greiddu atkvæði í Ölduselsskóla og var sonur þeirra með í för.
4 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Goða grillkjötið er
heitast á grillið í sumar!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
15
NEFND sem forsætisráðherra
skipaði til að skoða hátt matvæla-
verð hér á landi mun reyna að skila
af sér fyrir lok júnímánaðar. For-
maður nefndarinnar segir niður-
stöður verðkönnunar Alþýðusam-
bands Íslands (ASÍ) á Norður-
löndunum ekki koma á óvart, hún
staðfesti þó það sem áður hafi verið
fjallað um.
Í verðlagskönnun ASÍ kom fram
að matarverð er allt að tvöfalt hærra
í Reykjavík en hjá hinum Norður-
landaþjóðunum, en fjallað var um
niðurstöðurnar fyrir helgi. Hall-
grímur Snorrason, hagstofustjóri og
formaður nefndar sem skoða á hátt
matvælaverð, segir þessar niður-
stöður koma heim og saman við
gögn sem nefndin hafi kynnt sér.
„Niðurstaðan staðfestir fyrri
kannanir, og það sem hægt er að bú-
ast við á grundvelli þeirra kannana,
að teknu tilliti til verðþróunar í lönd-
unum.“
Hallgrímur bendir á að miklar
heimildir séu til um matvælaverðið,
og í flestum skýrslum sem skrifaðar
hafi verið upp á síðkastið hafi inn-
flutningshömlur á búvörur annars
vegar og skattamál hins vegar verið
nefndar sem helstu orsakir þess hve
matvælaverð er hátt hér á landi.
Nefndin hóf störf snemma á árinu
og hefur til þessa viðað að sér gögn-
um um matvælaverð og farið yfir
þau, auk þess sem fundað hefur ver-
ið með fulltrúum neytenda, fram-
leiðenda, vinnslustöðva, afurða-
stöðva, og samtaka iðnaðar, versl-
unar og þjónustu o.fl. Þessir aðilar
hafi gefið álit sitt, og í sumum til-
vikum tillögur. Nú hefur nefndin
hafið umræður um beinar tillögur til
stjórnvalda um viðbrögð við háu
matarverði, en Hallgrímur vildi ekki
gefa upplýsingar eða dæmi um þær
tillögur sem til umfjöllunar væru.
Nefnd um hátt matvælaverð skilar niðurstöðum fyrir lok júní
Niðurstöður könnunar
ASÍ koma ekki á óvart