Morgunblaðið - 28.05.2006, Side 11

Morgunblaðið - 28.05.2006, Side 11
ferðarástand í hverfunum við Grafar- voginn og tengingar inn á Vestur- landsveginn myndu springa allar. Þannig að ef borgin þróast í þá átt er Sundabraut alveg nauðsynleg. Síðan á sjálfsagt eftir að þróast byggð á Álfsnesi þegar fram í sækir.“ – Er þörf fyrir Sundabraut á með- an mest er lagt upp úr byggingar- framkvæmdum við Úlfarsfell? „Sundabraut er ekki brýnasta verkefnið í dag. Núna er það umferð- in sem kemur frá svæðinu við Úlfars- fell, einkum þegar það fer að byggj- ast meira upp. Ástandið á Miklu- braut og í Ártúnsbrekku þarf að verða miklu verra til þess að fólk fari að leggja á sig krók niður eftir Halls- vegi á fyrirhugaða Sundabraut eins og rætt er um. Enda er það mun lengri leið. Fólk fer þá leið sem það telur stysta, ef ekki í vegalengd, þá að minnsta kosti í tíma.“ – Liggur það ef til vill beinna við að byggja á Geldinganesi en við Úlfars- fell? „Ef farið er út í að leggja Sunda- braut er einsýnt að Geldinganes er orðið mjög fýsilegur kostur. Án þess ég ætli að fara að stjórna uppbygg- ingu í Reykjavík.“ – En leysa jarðgöng þennan vanda? „Miðað við hvað opið er norðarlega er mjög hæpið að þau taki við nokk- urri umferð úr Grafarvogshverfun- um. En þetta er til skoðunar núna.“ Mislæg gatnamót nauðsynleg – Hvað finnst þér um uppbyggingu við Hringbraut og vestan Snorra- brautar? „Þarna erum við með fjölmenn- ustu vinnustaði á landinu, Landspít- alann og Háskóla Íslands. Síðan er Háskólinn í Reykjavík að bætast við og Landspítalinn að stækka. Þessum stofnunum fylgir gríðarlega mikil umferð, sem getur orðið erfitt úr- lausnarefni og dýrt að leysa úr því. Fjölmenn byggð í Vatnsmýri kallar svo á enn meiri umferð, enda afar ólíklegt að allir þeir sem þar byggju myndu vinna í Kvosinni.“ – Það yrði þá að gera göng í Öskju- hlíð? „Það er mjög sennilegt. Það kallar aftur á gríðarleg gatnamótamann- virki við Kringlumýrarbraut til að tengja göngin. Þetta eru því flókin og mikil mannvirki sem þarf að ráðast í.“ – Svo hafa mislæg gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar verið í umræðunni. „Þar tel ég bráðnauðsynlegt að setja niður mislæg gatnamót út af umhverfissjónarmiðum. Það þarf að koma þeim sem allra mest niður í jörðina út af útliti og borgarmynd- inni. En hávaðinn í bílum sem bremsa og taka af stað auk gríðar- lega mikillar loftmengunar kyrr- stæðra bíla á aðeins eftir að fara versnandi. Þó ekki væri nema af þessum ástæðum eru mislæg gatna- mót nauðsynleg. Ég vil þó taka fram að í borgarsamfélagi eyðum við aldr- ei öllum biðröðum eða biðtímum. Það er ekki á færi ríkis eða borgaryfir- valda neins staðar að gera það. Í nú- tímasamfélagi verður alltaf einhver bið. En sem betur fer eru biðraðirnar miklu minni hér á landi en víðast hvar erlendis.“ – Skapast vandræði við Lönguhlíð vegna þessara mislægu gatnamóta? „Það eru vandræði þar í dag. Ástandið er mjög slæmt. En það er með ýmsu móti hægt að laga það, til dæmis með því að taka Miklubraut- ina undir Lönguhlíðina og vera með takmarkaðar tengingar. Það er vel hægt.“ Hringbrautin ekki í stokk – En kemur til greina að leggja Hringbrautina í stokk? „Vandamálið við stokka er að megnið af umferðinni má helst ekki eiga erindi við viðkomandi svæði. En á þessum stað eru gríðarlega fjöl- mennir vinnustaðir, þannig að það þyrftu að vera miklar tengingar. Stokkhugmyndin er því erfið í fram- kvæmd. Auk þess held ég það sýni sig núna að Hringbrautin er fallegt mannvirki og hún leysir sitt hlutverk ágætlega, umferðin gengur býsna greitt. Það var aldrei gert ráð fyrir að hvergi þyrfti að bíða. Hitt er svo annað mál að ég tek undir að það þurfi að vera hægt að byggja þokkalega nálægt svona göt- um í borg. Það þarf að ná sátt um hvernig megi fara að því. Það er ekki hægt að hafa gríðarlega óbyggða víð- áttu við götuna, þó að gaman sé að hafa græn svæði.“ – Er gert nóg fyrir almennings- samgöngur á höfuðborgarsvæðinu? „Það getur vel verið að það þurfi að gera meira fyrir almenningsvagna. Við erum alltaf að draga lærdóm af því sem tíðkast erlendis og taka mið af því hér heima. Þar hefur verið ráð- ist í miklar fjárfestingar til að koma umferð yfir í almenningssamgöngu- tæki. Í mörgum tilfellum er það vegna þess að þar hefur engin önnur leið verið fær, því ekki er pláss í mið- borgum til þess að taka við fólksfjöld- anum á einkabílum, þá yrði algjört öngþveiti. En ég held að við þurfum að leggja meiri áherslu á það hér á landi að rýma fyrir umferð almenn- ingsvagna. Ákveðið skref hefur verið stigið á Miklubrautinni og við þurf- um að fara lengra í þá átt. Við þurf- um einfaldlega á því að halda.“ – Af hverju? „Vegna þess að umhverfisskilyrðin verða aldrei góð í miðborg ef hún byggist eingöngu á umferð einkabíla. Fyrir utan þá hópa sem munu alltaf þurfa á almenningsvögnum að halda af öðrum orsökum.“ Stórar framkvæmdir mega bíða – Þú hefur sagt á fundi að það eigi að klára grunnvegakerfið áður en ráðist er í frekari gangagerð. „Ég tel forgangsverkefni að ljúka við uppbyggingu grunnvegakerfis- ins, þannig að mannsæmandi vega- tengingar séu við að minnsta kosti alla þéttbýlisstaði á landinu. Það þýð- ir ekki að þá þurfi ekki að endurbæta vegakerfið á margan hátt. Það kem- ur að því að það þurfi að gera jarð- göng og fara í þveranir undir eða yfir firði til að stytta eða bæta leiðir. En stórar og dýrar framkvæmdir finnst mér að megi bíða þar til búið er að sinna þessum grunnþörfum, sem því miður hefur ekki verið gert.“ – Þannig að þú vilt fresta öllum jarðgöngum? „Það eru til göng sem eru hluti af þessu grunnkerfi vegna þess að ekki er hægt að tengja saman byggðarlög á annan hátt, eins og göng milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar sem tengja norður- og suðurhluta Vest- fjarða. Ýmis önnur göng eru bráð- nauðsynleg. Gömlu Oddsskarðs- göngin eru barn síns tíma, svo dæmi sé tekið, og standast varla nútíma- kröfur. En það vantar ekki tillögurn- ar og hugmyndirnar þegar kemur að jarðgangagerð. Svo ég bæti við þeim þriðju, þá eru samgöngur milli Hér- aðs og Vopnafjarðar erfiðar og óör- uggar þar til koma göng undir Hellis- heiði eystri.“ – Og nú þegar hefur verið ákveðið að ráðast í Siglufjarðargöng? „Það sem þau gera er að opna al- gjörlega nýja leið. Þau hreinlega breyta landslagi að því leyti. Aftur komum við að því að allar stórar framkvæmdir kalla á ólíkar skoðanir og deilur. Það má ábyggilega hafa ýmsar skoðanir á því hvort þau áttu að vera svona og hvenær þau áttu að koma, en ákvörðun hefur verið tekin og þá að sjálfsögðu vinnum við að því. En ég held að göngin eigi eftir að breyta þessu byggðalandslagi heil- mikið.“ Ekki mega allir vegir vera eins Og gríðarlega mikið hefur breyst síðan Jón hóf störf hjá Vegagerðinni. „Þegar ég byrjaði var verið að steypa Reykjanesbrautina, sem var í raun fyrsti vegurinn á landinu með bundnu slitlagi. Síðan tók ég þátt í gömlu Alþjóðabankaframkvæmdun- um, sem var vegurinn austur fyrir fjall til Selfoss yfir Hellisheiði. Upp- bygging á bundnu slitlagi um landið gekk mjög hægt fram til 1980. Þá tókum við í notkun nýjar slitlagspíp- ur og ódýrari aðgerðir. Og þá fór þetta fyrst að ganga.“ – Hvað finnst þér um vegagerð í tengslum við ferðaþjónustu, þar sem einnig þarf að hlífa náttúrunni? „Það þarf að fara mjög vandlega ofan í það hvar eigi að vera vegir og hvernig þeir eigi að vera. Fyrir það fyrsta eiga alls ekki að vera vegir alls staðar og í öðru lagi eiga ekki allir fjallvegir að vera eins. En sumir eru þannig að það verður að byggja þá upp að einhverju marki og setja á þá slitlag, t.d. út af rykmengun og þar sem umferðarálag er mikið. En það verður að fara mjög var- lega í umgengni við náttúruna og hafa það í huga að ekki eigi allir vegir að vera eins. Það fer eftir landslagi og þeirri umferð sem um vegina fer. Þeir vegir sem eru opnir þurfa yfir- leitt að vera í lágmarks gæðaflokki til þess að fólk fari ekki að reyna að keyra við hliðina á þeim og skemma þar með land. Ég hef nefnt sem dæmi að það er reginmunur á því hvernig á að byggja upp fjallabaks- veg nyrðri og Kjalveg út af staðhátt- um. Fjallabaksleið gefur tilefni til krókótts útivistarvegar, þannig að skoða megi hraun og landslag. En Kjalvegur, og út af fyrir sig á það við Sprengisandsveg líka, á að vera beinn vegur, enda ekki landfræðileg- ar aðstæður til að stýra hraðanum. Þar er keyrt tiltölulega hratt í opnu landslagi.“ – Hvaða skoðun hefurðu á stytt- ingu leiðar milli Norðurlands og höf- uðborgarsvæðisins? „Það hafa verið nefndar ýmsar leiðir, til dæmis Stórisandur og Kjal- vegur. Ég tel nærtækast að byrja á styttingu sem hægt er að ná í byggð á vitrænan hátt, þá fyrst og fremst í Húnavatnssýslunum. En það á að huga vel að öðrum möguleikum. Kjalvegur verður byggður upp, en til þess að ná fram styttingu þarf að gera heilmiklar breytingar og það á við um Stórasand líka. Þegar komið er niður innarlega í Skagafirði, ann- aðhvort í Mælifellsdal eða Gilhaga- dal, þarf í báðum tilfellum að komast yfir á hringveginn í Norðurárdal með því að brúa Jökulsá eða Héraðsvötn- in. Til viðbótar við það þarf á Kjal- veginum að brúa Blöndu ofan við Blöndulón til að ná fram mögulegum styttingum.“ nasta verkefnið Morgunblaðið/Ásdís ’Ég tel forgangsverk-efni að ljúka við uppbyggingu grunn- vegakerfisins, þannig að mannsæmandi vegatengingar séu við að minnsta kosti alla þéttbýlisstaði á landinu.‘ pebl@mbl.is ’Það verður að faramjög varlega í um- gengni við náttúruna og hafa það í huga að ekki eigi allir veg- ir að vera eins. Það fer eftir landslagi og þeirri umferð sem um vegina fer.‘ ’Sundabraut eftirinnstu leiðinni er lág og ekki mikið um klifur, þannig að loft- mengun er einna minnst, auk þess sem hægt er að skerma hana nokkuð af hvað hávaða snertir.‘ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 11

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.