Morgunblaðið - 28.05.2006, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.05.2006, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ É g vildi að ég ætti hundrað ár eftir. Það er svo margt sem ég á eftir að sjá og gera,“ sagði Bragi Ásgeirsson við mig fyr- ir fáeinum misserum. Þarna er þessum nestor í íslenskri myndlist vel lýst. Þorsti hans er óslökkvandi. Hann vill allt- af vita meira í dag en í gær. Bragi á 75 ára af- mæli í dag en er ekki aldeilis á þeim buxunum að hægja ferðina. Hyggst bæta í ef eitthvað er. Við sitjum yfir gosdrykk á kaffistofu Gall- erís Foldar, þar sem sýning á verkum eftir Braga var opnuð í gær. „Það er ekkert brenni- vín til hérna,“ segir listamaðurinn og glottir. Það er jafnan stutt í grínið á þessum bænum. Á sýningunni getur að líta á fimmta tug mynda sem allar eru málaðar á síðustu fimm árum. Engin þeirra hefur verið sýnd áður op- inberlega. „Það stóð ekki til að halda sýningu. Ég ætl- aði að vera á meginlandinu, í París, London eða Berlín, á þessum tímamótum. Síðan var mér boðið að sýna hérna og þar sem ég átti nóg af myndum sló ég til. Fyrir vikið missi ég af mörgum mikilvægum sýningum í Evrópu,“ segir Bragi en á honum má sjá að þetta eru kannski ekki svo slæm býti eftir allt saman. Það er svo margt ókannað Evrópa verður líka á sínum stað í sumar og ef ég þekki Braga rétt líður ekki á löngu uns hann flýgur suður á bóginn – í leit að inn- blæstri og þekkingu. „Ég hef óhemju áhuga á því að ferðast, t.a.m. til Mið-Evrópu. Það er svo margt ókannað. Ég hef mjög gaman af því að ráfa einn um. Mínar bestu minningar eru t.d. frá því þegar ég var einn í tíu daga í Tókíó og lærði á allt kerfið og fylgdist með mannlíf- inu. Ég var allsstaðar. Þarna í Tókíó eru menn með gallerí á efstu hæð í verslunarmið- stöðvum, t.d. má finna Vatnaliljurnar eftir van Gogh í slíku galleríi. Þetta þætti ófínt hérna.“ Bragi hefur dálæti á framandi menning- arsvæðum og í vetur dvaldist hann um tíma í Chile. „Þetta var óhemju langt flug og ég var svolítið banginn í upphafi. En ég var hissa á því hvað ég þoldi þetta vel. Ég var eins og fisk- ur þegar ég kom til Santiago,“ segir hann og hlær. „Svo fór ég í mikla göngu upp brattar hlíðar í Valparaíso og reyndist vera miklu sterkari en ég átti von á.“ Það er með öðrum orðum alveg hægt að vera ungur 75 ára? „Já, blessaður vertu. Unga fólkið á ekki að hafa forgang á æskuna.“ Hvers vegna ertu svona þróttmikill? „Ég hef ekki velt því fyrir mér. Ég fylgist mjög vel með. Ferðast um og skoða ólíka hluti, les mikið, m.a. blöð og tímarit. Síðan gefa söfn- in mér mjög mikið. Það eykur manni þrótt að skoða söfn og sjá hvernig fyrri kynslóðir hafa lifað.“ Listin heldur þér sem sagt ungum? „Já, það má segja það. Það er allavega ekki Elli kerling.“ Veðrabrigði hafa mikil áhrif Hvað ertu að fást við í myndum þínum í dag? „Ég held það megi sjá á þessum myndum að ég fer töluvert eftir veðrabrigðunum. Veðra- brigði hafa mikil áhrif á mig. Og skapið. Ég hef mjög gott útsýni til allra átta á vinnustofu minni, m.a. yfir sundin. Hafið er aldrei eins. Það er alltaf að breytast. Það hefur áhrif á mig. Mikil áhrif. Stundum búa myndirnar sig til sjálfar og svo koma árur frá lífsblossanum fram í myndunum, sköpuninni, eins og í mynd- inni „Kapphlaupið mikla“, þar eru sæðisfrum- urnar í kapphlaupi.“ Ekki eru allar myndirnar á sýningunni falar því Bragi var þegar búinn að selja fjórar þeirra áður en hún var opnuð. Kaupandi tveggja þeirra er ræðismaður Íslands á Ind- landi. „Hann sá aðra myndina hér hangandi uppi á vegg og fékk að vita að hann gæti séð fleiri myndir um kvöldið en þá stóð til að sækja myndirnar mínar vegna myndatöku. Þá sá hann stóra mynd sem ég hafði klárað um morguninn og hún var sumsé seld um kvöldið. Þessi maður er ekki að leita að neinum sér- stökum kennileitum heldur lætur hrífast af myndunum í sjálfum sér. Það voru tvö hundr- uð ræðismenn staddir hérna og það væri æski- legt að fleiri hefðu áhuga á listum,“ segir Bragi og brosir. „Þetta er auðvitað mikil aug- lýsing. Landvinningar í nánd Þú hefur alltaf jafn gaman af því að mála? „Ég hef alltaf meira og meira gaman af því. Það hefur ekki farið vel í mig hvað ég hef þurft að vinna mikið með listinni, eins og t.d. að kenna og skrifa blaðagreinar og gagnrýni. Þetta var lifibrauðið. Ég var svo bjálfa- bjartsýnn þegar ég var ungur að fara ekki í neinn hliðargeira með málaralistinni, eins og t.d. í glerlist eða leikmyndahönnun. Það hefði verið nær málaralistinni en að skrifa um hana. Brauðstritið er gúlag listamannsins. Heldur honum föngnum. Í dag hef ég miklu meiri tíma og ég held að það sjáist á málverkunum. Ég finn fyrir því að ég á enn eftir að breytast og að það séu landvinningar í nánd.“ Bragi segir að sér þyki leiðinlegt að geta ekki unnið meira í grafík. „Samt erum við með hér um bil fullkomið grafíkverkstæði. Það er bara óstarfhæft þar sem það vantar peninga í reksturinn. Þetta gerist á sama tíma og íþróttafélag fær 25 milljónir eins og hendi sé veifað. Það er nóg um boltasparkið í landinu en ekkert grafíkverkstæði. Þetta er ekki lýð- ræði. Það myndi bara kosta nokkrar milljónir að fá útlendan fagmann til að gerast umsjón- armaður og leiðbeinandi við verkstæðið. Það myndi gjörbreyta stöðunni og verða íslenskri listmennt til mikils góðs.“ Finnst þér afstaða íslenskra stjórnvalda til myndlistarinnar lítið hafa breyst í áranna rás? „Hún hefur í raun og veru ekkert breyst, nema hvað menn koma núna meira á opnanir til að sýna sig og sjá aðra. Það er m.ö.o. meiri sýndarmennska og umbúðir. Og svo eru allir voða ánægðir. En list er ekki bara ánægja. Hún er öll stig tilfinninganna, hlátur, grátur og allt þar á milli. Listin lætur ekki stjórna sér. List er einstaklingsframtak en ekki sam- yrkjubú.“ Ekki hægt að drepa fígúruna Hver er staða málverksins í dag? „Málverkið er ofan á um þessar mundir. Það eru risastórar sýningar á málverki víðast hvar. Það er líka mikið talað um að það þurfi að að- skilja myndlist og fjöltækni. Málverkið er í sjálfu sér ekkert „sjó“. Það er líka merkilegt að þegar málverkið er ofan á eru engir að rífa hugmyndalistina niður en þegar hug- myndalistin er ofan á vilja allir útiloka mál- verkið og rífa niður. Einu sinni var fígúran sögð dauð en reynslan hefur kennt okkur að það er hvorki hægt að drepa fígúruna né neitt sem ber í sér lífsneista. Sama máli gegnir um málverkið.“ Málverkið hefur átt undir högg að sækja hérlendis um nokkurt skeið. Erum við Íslend- ingar á skjön við þróunina úti í heimi? „Já, að mörgu leyti. Við erum ennþá sveita- menn og fjósamaðurinn verður ekkert fínni þó hann snúi við sokkunum.“ Hvað þarf þá að gera? „Það vantar að kynna málverkið. Menn eru að fela svo margt í íslenskri myndlist með röngum athöfnum. Það er bara ein hlið mynd- listar sem kemst að og það er mest hliðar- götulist í dag erlendis. Þetta hlýtur að breyt- ast. Það eru að koma yngri listsögufræðingar fram sem ég hef trú á. Menn og konur sem hugsa öðruvísi enda hafa þeir verið í útlöndum á tímum þegar allt er miklu opnara. Í gamla daga var allt lokaðra. Það gengur ekki að læra allt í skólum og segja nemendum hvað þeir eigi að sjá og hvað ekki. Ákvörðunarrétturinn á að vera nemandans.“ Hef alltaf trú á ungu fólki Bindurðu vonir við unga listamenn í dag? „Ég hef alltaf trú á ungu fólki. Það er ekki rétt að hampa einni kynslóð á kostnað ann- arrar. Aðsókn að söfnum hefur minnkað hér enda lætur fólk ekki stýra sér þangað inn. Það verður að skapa forvitni og aðsókn lifnar við þegar fólk fær sjálft að mynda sér skoðanir, er ekki sagt hvað er gott og hvað er slæmt. Það þarf að leggja meiri áherslu á þessa hluti í skólakerfinu. Þetta hefur breyst þannig að áð- ur áttu listamenn mjög erfitt með að tjá eigin list. Það hefur verið svo alveg frá því að miklu grísku skáldin voru uppi. Platón talaði um þetta. Nú er það þannig að unga fólkið á að geta útskýrt allt sem það gerir í bak og fyrir. En innistæðan er ekki alltaf til að hrópa húrra fyrir.“ Brauðstritið er gúlag listamannsins Morgunblaðið/Kristinn Bragi Ásgeirsson listmálari, kennari og gagnrýnandi, er 75 ára í dag. Af því tilefni hefur verið opnuð sýning á nýjum verkum eftir hann í Galleríi Fold. Orri Páll Ormarsson spurði Braga um æskuþrótt, stöðu mál- verksins og sitthvað fleira. Dagmál, 2006. Önnur myndanna sem fer til Indlands eftir sýninguna. Varmi, 1998—2004. Austrið, 2002. Þetta verk er tvímerkt, því kín- versku stafirnir mynda nafnið Bragi. orri@mbl.is Bragi Ásgeirsson segir að í myndlist séu Íslendingar enn á margan hátt á skjön við þróun úti í heimi: „Við erum ennþá sveitamenn og fjósamaðurinn verður ekkert fínni þó hann snúi við sokkunum.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.