Morgunblaðið - 28.05.2006, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 33
gefur sig. En hann er dyntóttur.
Ljósaskiptin eru besti tíminn fyrir
fluguna. Urriðinn gengur þá upp á
grunnið og þá virkar bara að nota
flugu. Annars er bara að sökkva öllu
draslinu, fara á línu,“ segir sjómað-
urinn, glottir, og vísar mér síðan
veginn framhjá hrauninu að vatninu,
þar sem hann segir bleikjuna bíða.
„Það er vel þess virði að kasta eins
og hún lætur núna,“ segir hann að
lokum.
Það kraumaði allt
Hraunið er æði hrjúft og svipmik-
ið en innan skamms er ég kominn
upp á allháan kamb og fyrir framan
mig liggur botnlangi úr vatninu. Að-
stæður sem þessar, þar sem vatn
kemur að hrauni, eru alltaf áhuga-
verðar í vatnaveiðinni, rétt eins og í
þjóðgarðinum á Þingvöllum og Hlíð-
arvatni í Selvogi. Ég geng fram á
lágan tanga, hnýti Krók og Pheasant
Tail á tauminn – dúett sem oft hefur
reynst vel. Og ekki þarf að kasta oft
út í vatnið áður en fyrsta bleikjan
tekjur. Sú er býsna kröftug en lekur
af í löndun. Og önnur tekur og er
landað, hún er smá og gefið líf. En
svo tekur fyrir tökurnar.
Vindur ýfir vatnið og ég geng
norður með hraunkantinum, kasta af
og til, þar til ég kem að víkunum sem
Friðfinnur nefndi. Þar er kanturinn
hár og illilegur, en aðstæðurnar allar
hinar ákjósanlegustu. Ég geng fram
á tvo félaga sem kasta í skjóli fyrir
gjólunni; tveir rauðbrúnir veiði-
hundar fylgjast með húsbændunum.
Annar veiðimaðurinn er í fiski, en
tökurnar eru grannar, bleikjan fest-
ist ekki á flugunum. Þetta er Arnar
Hreiðarsson, eigandi bakarísins
Nesbrauðs í Stykkishólmi. Félagi
hans er bakarinn Ingólfur Jak-
obsson. Arnar er þaulkunnugur
vatninu og sér ennfremur um sölu
veiðileyfa í vatnið fyrir SVFR.
„Þetta er fimmta ferðin hingað nú
í maí,“ segir Arnar. „Við veiddum vel
í fyrstu tvö skiptin en svo ekkert í
það þriðja. En fiskurinn er hérna.
Kunningi minn var hér í gær, við
stífluna, og þá var eins og ganga
kæmi inn í vatnið. Það kraumaði allt.
Hann fékk fisk nánast í hverju kasti,
pund til eitt og hálft. Og hann sá
stærri fiska.
Ég hef líka séð alveg rosalegar
bleikjur hérna í vatninu. Eitt kvöld
seint um sumar var ég við stífluna og
sá bleikjur synda út, þær stærstu
voru yfir tíu pund! Þarna voru líka
fimm, sex punda fiskar sem voru
vænir, en hinir voru helmingi stærri.
Það er greinilega gott æti í vatn-
inu.“
Arnar hefur samt áhyggjur af því
hvernig ætið muni verða fyrir fisk-
inn í sumar, eftir aðgerðir í fyrra-
sumar sem lækkuðu yfirborð vatns-
ins verulega.
„Spjaldið í stíflunni var tekið úr,
yfirborðið lækkaði og grynning-
arnar komu upp úr, vatnið varð bara
ræma. Sumir veiðimenn voru
ánægðir með þetta, fannst þeir kom-
ast nær fiskinum, en þetta var slys.
Mikið af grynningunum þornaði og
skordýralífið hlýtur að hafa beðið
skaða af.
Ég lét setja spjaldið aftur í í vor.
Fiskurinn gengur aldrei upp nema í
aðfalli, þá eru ekki nema í mesta lagi
50 cm upp að yfirborði vatnsins í yf-
irfallinu og í stórastreymi flæðir yfir
garðinn. Ég hef engar áhyggjur af
því að fiskurinn geti ekki komið og
farið.“
Flagga og býð upp á fiskisúpu
Arnar hefur veitt óslitið í Hrauns-
firðinum í yfir 15 ár, síðan fyrir tíma
laxeldisins, eftir að hann flutti í
Hólminn en hann segist vera að
vestan. „Ég hef verið að veiða hérna
og uppi á fjalli. Fyrsta ferðin hingað
í vor var þegar vika var af maí, þá
hlýnaði svolítið og við vorum strax í
fiski, en það veiðist vel hér allt sum-
arið og mjög vel á haustin. Þá höfum
við farið lengst inn í dal, þar sem áin
rennur í vatnið, vaðið langt út, upp
að mitti, og veitt í kringum okkur.
Bleikjan gengur upp á grunnið.“
Hann segist veiða mikið á litlar
Black Labrador-flugur en félagi
hans á Alder. „En bleikjan er dynt-
ótt. Ég hef oft komið hingað og ekki
orðið var. Stundum veiðist hins veg-
ar vel og þá flagga ég stundum í bak-
aríinu og býð upp á fiskisúpu. Ég tek
þessa pundfiska og minni, flaka þá
og hef í súpuna. Kúnnar sem lenda í
þeirri súpu eru alltaf ánægðir,“ segir
Arnar og brosir.
Það styttist í kvöldið og bleikjan
er enn treg, þannig að ég dóla mér
aftur suður með hraunkantinum og
kasta af og til. Skyndilega lygnir al-
veg og nánast samstundis byrjar
fiskurinn að taka flugu í yfirborðinu.
Ég harma að hafa ekki tekið þurr-
flugur með mér og ekki síst eftir að
ég heyri Arnar kalla til Ingólfs, sigri
hrósandi: „Hann negldi þurrfluguna
um leið og hún lenti!“
Í stað þurrflugu hnýti ég hins veg-
ar undir lítinn nobbler, kasta honum
á uppítökurnar og dreg hratt inn. Á
nokkrum mínútum negla fjórar
bleikjur og tvær enda uppi á bakka
hjá mér. Þær fylgja mér til baka yfir
hraunið.
Afrakstur klukkutímans. Friðfinnur Níelsson og bleikjurnar.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Rimini
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
21
78
3
Króatía
Costa del Sol
Fuerteventura
Benidorm
Mallorca
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð.
31. maí og 7. júní í viku.
31. maí - 11 sæti
7. júní - 16 sæti
14. júní - nokkur sæti
29.995 kr.
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð.
7. og 14. júní í viku.
31. maí - uppselt
7. júní - 6 sæti
14. júní - 13 sæti
39.990 kr.
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð.
1. júní í viku.
1. júní - 13 sæti
8. júní - 5 sæti
15. júní - 19 sæti
39.990 kr.
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð
30. maí í viku.
30. maí - 5 sæti
Aukaflug 7. júní - 13 sæti
Aukaflug 21. júní - nokkur sæti
39.990 kr.
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð.
1. júní í viku.
1. júní - 9 sæti
8. júní - 14 sæti
15. júní - uppselt
29.990 kr.
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð.
1. júní í viku.
1. júní - 6 sæti
8. júní - 8 sæti
15. júní - 15 sæti
34.990 kr.
Síðustu sætin
í maí og júní
ótrúlegt verð –
gríptu tækifærið
Allt að seljast upp!