Morgunblaðið - 28.05.2006, Side 37
að íbúar fengju að tjá vilja sinn
um mikilsverð mál sem til um-
fjöllunar eru í bæjar- eða sveit-
arstjórn á milli kosninga. Sem
dæmi má taka yfirgripsmikil
skipulagsmál, eins og veigamiklar
breytingar á aðalskipulagi, eða
gerð deiliskipulags fyrir stórt
svæði. Þegar um slík mál er að
ræða, ætti að kynna íbúum þá
þætti sem til grundvallar liggja
og fá þá til að greiða atkvæði um
málið.
Þetta myndi vissulega krefjast
meiri vinnu af hálfu sveitarstjórn-
armanna, sem þannig þyrftu að
standa fyrir máli sínu gagnvart
atvinnuveitendum sínum og ná-
grönnum oftar en tvisvar til
þrisvar á áratug. Fyrir þá all-
mörgu bæjar- og sveitarstjórnar-
fulltrúa sem virðast líta á vald
sitt sem staðfestingu á eigin til-
vist og tilgangi fremur en nokkuð
annað yrði fækkun kosninga eins
og hver önnur guðsblessun.
Fyrir þá sem af heilum hug
vilja starfa í þágu nágranna sinna
og afkomenda þeirra og á þann
hátt stuðla að betra samfélagi
fyrir sig og sína, væri virkara og
beinna lýðræði hins vegar kær-
komið tækifæri til að skapa hug-
sjónum sínum farveg og leita
samhljóms með kjósendum sín-
um. Þeim myndi smám saman
fjölga á kostnað valdafíklanna
okkur öllum til heilla.
í friði
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 37
Skýrslan er samstarfsverkefni Alþjóðalánastofnunarinnar (IFC),
utanríkisráðuneytisins, sjávarútvegsráðuneytisins og Útflutnings-
ráðs og fjögurra íslenskra fyrirtækja. EUROFISH sá um úttekt á
rússneskum sjávarútvegi og sjávarútvegsfyrirtækjum í Rússlandi,
uppsetningu og ritun skýrslunnar. Skýrslan inniheldur viðamiklar
upplýsingar um fiskiðnað í Rússlandi og getur lagt grunninn að
uppbyggingu nýrra tækifæra.
Dagskrá:
09.00 Opnunarávarp
Gunnar Snorri Gunnarsson,
ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins
09.10 Skýrslan Fish industry in Russia kynnt
Victor Hjort, Eurofish
Jón Sigurðarson, Jarl
10.30 Kostir aðildar Íslands að EUROFISH
Victor Hjort, Eurofish
10.45 Viðskiptasendinefnd til Rússlands
Guðjón Svansson, Útflutningsráð
11.00 Lokaorð
Jón B. Jónasson,
ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins
Vinsamlega skráið þátttöku á netfangið berglind@mfa.is
Utanríkisráðuneytið, sjávarútvegsráðuneytið og
Útflutningsráð bjóða til kynningar á skýrslunni
í utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25,
föstudaginn 2. júní, frá kl. 9.00 til 11.00
M
IX
A
•
fí
t
•
6
0
2
5
2
Fish industry
in Russia
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐUTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
Við leggjum þér lið
Stórhöfða 25 • 110 Reykjavík • sími 569 3100 • www.eirberg.is
Farðu allra
þinna ferða
og njóttu
útiverunnar
Rafskutludagar fyrir eldri borgara
Rafskutlan er hönnuð með þarfir eldri borgara í huga.
Njótið lífsins og farið allra ykkar ferða á auðveldan
hátt allan ársins hring!
• Snúningssæti
• Mismunandi hraðastillingar
• Nota má jafnt innan- sem utandyra
• Einföld og örugg í notkun
Sérfræðingar veita faglega ráðgjöf
þriðjudaginn 30. maí
Komið og reynsluakið
Opið kl. 9:00-18:00 alla virka daga
Til sölu jörðin
Melur í Snæfellsbæ (Staðarsveit)
Undirrituðum lögmönnum hefur verið falið að leita eftir tilboðum í jörðina Mel í
Snæfellsbæ (Staðarsveit). Jörðin er um 600 hektarar að stærð og liggur að sjó og
er strandlengjan um 4 km að lengd. Ræktað land er um 5 hektarar og er jörðin í
eyði. Íbúðarhús er steinhús á tveimur hæðum og er um 121 m² byggt 1946-1948,
fjós sambyggt viðbyggingu um 45 m² byggt 1965, hlaða sambyggð fjósi um 45
m².Tilboðum í jörðina skal skila á skrifstofum neðangreindra lög-
manna fyrir 1. júní n.k. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum. Allar nánari upplýsingar veita undirritaðir.
Sigurbjörn Magnússon hrl.
Juris, lögmannstofa,
s. 588 4400,
sigurbjorn@jur.is
Þórður Þórðarson hdl.
Leges, lögmannstofa,
s. 510 7750/gsm 697 5050,
tt@leges.is
Landhelgis-
gæslumenn/
þorskastríðs-
hetjur
Nú eru liðin 30 ár frá lokum þorskastríðs-
ins síðasta. Af því tilefni ætla gamlar
þorskastríðshetjur og núverandi starfs-
menn Landhelgisgæslunnar að hittast á
Kaffi Reykjavík, fimmtudaginn
1. júní milli kl. 15:30 - 17:30
í beinu framhaldi af málstofu Hafréttar-
stofnunar Íslands um þorskastríðin þrjú.
Allir aðrir áhugasamir eru velkomnir.
Starfsmannafélag Landhelgisgæslunnar.
LEIFUR Þór Leifsson varði dokt-
orsritgerð sína í flugvélaverkfræði
við Virginia Polytechnic Institute
and State University í Virginíu,
Bandaríkjunum, á síðasta ári. Rit-
gerðin ber heitið „Multidisciplinary
Design Optimization of Low-Noise
Transport Aircraft“. Markmið rann-
sóknarinnar var að kanna hvernig
megi minnka eða lágmarka hljóð-
mengun frá farþegaflugvélum með
því að nota hönnun og bestun (e.
multidisciplinary design optimiza-
tion) á forhönnunarstigi flugvéla.
Helstu hljóðmengunarvaldar far-
þegaflugvéla eru þotuhreyflar, flug-
vélaskrokkurinn (flugvélabolur,
vængir, stélin, lendingarbúnaður,
o.s.frv.), og samspil þotuhreyfla og
skrokksins. Þrátt fyrir mun minni
hljóðmengun frá þotuhreyflum síðan
um 1960 er hljóð frá þotuhreyflum
enn yfirgnæfandi við flugtak. Hins
vegar er hljóðmengun flugvélar-
skrokksins veruleg við aðflug og
lendingu.
Doktorsverkefnið skiptist í tvo
hluta. Fyrri hlutinn fjallar um áhrif
nýstárlegs þotuhreyfilskerfis á af-
köst, nýtni og þyngd farþegaflug-
vélar af gerð fljúgandi vængs (e.
Blended-Wing-Body). Þotuhreyfils-
kerfið þar er töluvert hljóðlátara en
hefðbundið kerfi og byggist á því að
nota fleiri og smærri þotuhreyfla í
staðinn fyrir
færri og stærri
þotuhreyfla,
ásamt því að
stýra hluta af
streyminu út um
afturbrún vængs-
ins. Seinni hluti
verkefnisins
fjallar um lág-
mörkun á hljóðmengun flugvéla-
skrokks farþegaflugvéla í aðflugi.
Helstu niðurstöður sýndu að hægt
er að lágmarka, og jafnvel útrýma,
hljóðmengun vegna vængbarða (e.
flaps) án þess að hafa veruleg áhrif á
nýtni og þyngd flugvélarinnar.
Leifur Þór fæddist í Reykjavík 23.
desember 1975. Leifur Þór er
kvæntur Sigrúnu Jónsdóttur mat-
væla- og viðskiptafræðingi og eiga
þau tvær dætur. Leifur Þór lauk
stúdentsprófi af eðlisfræðibraut frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
vorið 1995. Hann lauk C.Sc.-gráðu í
véla- og iðnaðarverkfræði frá Há-
skóla Íslands vorið 1999 og M.Sc. í
vélaverkfræði vorið 2000. Að loknu
námi við HÍ starfaði Leifur Þór í tvö
ár hjá Hafmynd ehf. við hönnun og
þróun á ómönnuðum kafbátum.
Leifur Þór starfar nú sem flug-
vélaverkfræðingur hjá Airbus í
Bretlandi.
Doktor í
verkfræði
FRÉTTIR
Fréttir
í tölvupósti