Morgunblaðið - 28.05.2006, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 65
Rokkið er í eðli sínu tónlistfyrir ungt fólk, breytingarog bylting er hreyfiaflgóðrar rokk- og popp-
tónlistar, nokkuð sem menn þreytast
yfirleitt á eftir því sem þeir verða
ráðsettari, verða værukærir og gefn-
ir fyrir öryggi og stöðugleika. Það er
oft jafnan lítið púður í lagasmíðum
margra eldri tónlistarmanna, lítið
varið í að heyra þá syngja um það
hvað þeir elska nú fjölskylduna heitt,
hvað það sé erfitt að verða gamall og
hve mikið þeir óttist dauðann. Sá
dauði sem þeir þó virðast óttast mest
er listræni dauðinn, að hafa ekkert að
segja, ekkert nýtt fram að færa, að
lifa sjálfa sig.
Tommi og Jenni
Ein óvæntasta plata síðast árs var
Chaos and Creation in the Backyard
með Paul McCartney, óvenju vel
heppnuð sólóplata frá manni sem
sendi frá sér fyrstu lögin fyrir fjöru-
tíu árum – hann hafði svo sannarlega
eitthvað til málanna að leggja. A
Bigger Bang með Rolling Stones
kom líka á óvart fyrir það hvað hún
var vel heppnuð, enda lítið af viti
komið frá þeirri annars ágætu sveit í
áratugi. Ray Davies sendi líka frá sér
fína plötu um daginn og greinilegt að
gamlingjarnir eru (sumir) í fínu
formi. Bætum við í þann hóp nýrri
plötu Paul Simon, Surprise, sem
kemur heldur en ekki á óvart.
Paul Simon hóf eiginlega tónlist-
arferilinn með Art Garfunkel, æsku-
félaga sínum, því þeir tóku upp
fyrstu lögin 1957 undir nafninu Tom
& Jerry þegar Simon var aðeins sex-
tán ára. Fyrsta smáskífan, Hey
Schoolgirl, náði meira að segja
nokkrum vinsældum og því hefur
Simon verið lengur í sviðsljósinu en
nokkur af þeim gamlingjum sem get-
ið er í upphafi.
Ekki verður hér rakin saga tvíeyk-
isins Simon & Garfunkel sem leystist
upp í illdeilum fyrir 35 árum, en þeg-
ar hann loks losnaði við Garfunkel,
fékk færi á að byrja upp á nýtt má
segja að Paul Simon hafi loks tekið
að blómstra. Þannig voru fyrstu sóló-
skífurnar eftir að þeir slitu samvistir
Paul Simon, There Goes Rhymin’
Simon og Still Crazy After All These
Years, sem komu út 1972, 1973 og
1975, mun betri en það sem þeir fé-
lagar höfðu gert saman. Þá kom
reyndar smá niðursveifla, en hann
sneri aftur með stæl 1983 með
Hearts and Bones og svo kom millj-
ónaplatan Graceland 1983, ein af
mest seldu skífum sögunnar, en á
henni kom vel í ljós hve Simon er til-
raunafús, tilbúinn til að fara útaf lag-
línusporinu þegar þörf krefur.
Rýr eftirtekja
Það síðasta sem heyrðist frá Sim-
on var ekki upp á marga fiska, You’re
the One, sem kom út fyrir sex árum,
var óttalega dauf og þar á undan var
söngleikurinn The Capeman sem
frumsýndur var í New York 1997, en
samnefnd plata kom út þá um haust-
ið. Lítið lá því eftir Paul Simon á tí-
unda áratug síðustu aldar – hann var
sjö ár að semja tónlistina á Capeman
og þrjú að semja tónlist á You’re the
One og mál manna að hann væri út-
brunninn, búinn að syngja sitt síð-
asta. Það kemur því varla á óvart að
menn bjuggust eiginlega ekki við
neinu sérstöku þegar fréttist að Paul
Simon væri með sólóplötu í smíðum
þó menn hafi sperrt eyrun þegar í
ljós kom að aðstoðarmaður hans við
gerð plötunnar væri Brian Eno.
Þeir hittust víst fyrst í matarboði
fyrir þremur árum og náðu svo vel
saman að Eno bauð Simon að heim-
sækja sig í hljóðverið. Þangað mætti
Simon síðan með prufuupptöku af
einu lagi sem Eno vélaði um á staðn-
um. Það þótti þeim hljóma svo vel að
þeir ákváðu að gera plötu saman.
Simon brá sér síðan til Englands
nokkrum sinnum á næstu tveimur
árum og þeir unnu saman fulla breið-
skífu, Surprise. Eitt lag á plötunni
var reyndar tilbúið áður en þeir tóku
upp samstarf og gefur því ágæta
hugmynd um hvert Simon hefði
hugsanlega stefnt ef forsjónin hefði
ekki leitt þá Eno saman.
Ekki ætti samstarfið þó að koma á
óvart. Eno hefur unnið með fjölda
poppara og rokkara í gegnum árin og
á sólóskífum hans má heyra sykrað
popp í bland við tilraunamennskuna
og Paul Simon hefur verið manna
iðnastur við tilraunamennsku á sín-
um sólóskífum, brugðið fyrir sig
doo-wop, gospel, suður-afrískri tón-
list og brasilískri. Það heyrist og á
plötunni að þeir ná vel saman, fram-
lag Eno smekklegt og skreytir vel
lögin hans Simon sem eru vel samin
eins og hans er von og vísa.
Paul Simon snýr aftur
Bandaríski tónlistarmaðurinn Paul Simon hefur verið lengi
að í músík, gaf út fyrsta lagið fyrir tæpri hálfri öld. Þó
starfsaldurinn sé orðinn langur er hann enn í fullu fjöri
eins og sannast á hans nýjustu sólóskífu.
Paul Simon hefur verið manna iðnastur við tilraunamennsku á sólóskífum sínum, brugðið fyrir sig doo-wop, gospel,
suður-afrískri tónlist og brasilískri. Á nýju plötunni vinnur hann með Brian Eno.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
SÝND Í
STAFRÆNNI
ÚTGÁFU,
MYND OG HLJÓÐ
FRÁ J.J. ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
eeee
VJV, Topp5.is
eee
JÞP blaðið
S.U.S. XFM
eee
H.J. mbl
AF MÖRGUM TALIN
VERA BESTA MISSION
IMPOSSIBLE
MYNDIN TIL ÞESSA.
X-MEN 3 kl. 1:30 - 3:45 - 6 - 8:15 - 10:30 B.I. 12 ára
X-MEN 3 LÚXUS VIP kl. 1:30 - 3:45 - 6 - 8:15 - 10:30
AMERICAN DREAMZ kl. 1:30 - 3:45 - 6 - 8:15 - 10:30
SHAGGY DOG kl. 1:30 - 3:45 - 5:50 - 8
MI : 3 kl. 1:30 - 3:45 - 6 - 8:30 - 10:30 B.I. 14 ára
FAILURE TO LAUNCH kl. 8:15
SCARY MOVIE 4 kl. 4 - 6 B.I. 10 ára
FIREWALL kl. 10:30 B.I. 16 ára
BAMBI 2 m/ísl. tali kl. 2
AMERICAN DREAMZ kl. 12 - 2:15 - 4:30 - 6:45 - 9 - 11:15
MI : 3 kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.I. 14 ára
SHAGGY DOG kl. 12 - 2:10 - 3:45 - 6 - 10:20
SCARY MOVIE 4 kl. 12 - 2 - 8:10 B.I. 10 ára
VERÐUR HANN HUNDHEPPINN EÐA HVAÐ!
HEIMSFRUMSÝNING
LOKAUPPGJÖRIÐ Í HINUM STÓRKOSTLEGA X-MEN SAGNABÁLKI.
NÚNA MUNU HINIR STÖKKBREYTTU BERJAST INNBYRÐIS
SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
MAGNAÐUR SUMARSMELLUR SEM ENGINN MÁ MISSA AF!
ra
ra
MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI