Morgunblaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 9
FRÉTTIR
Póstsendum
Glæsileg
undirföt
Laugavegi 82, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Stakir jakkar
Stærðir 36-56
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15.
Eddufelli 2,
sími 557 1730
Bæjarlind 6,
sími 554 7030
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Úrval af fallegum
flauelsfatnaði
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Nýjar vörur
daglega
Stærðir 38-56
j
l
t r ir -
Finnurðu ekki stærðina þína?
Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970
Saumum buxur eftir pöntun
Tilbúnar stærðir 38-50 eða sérpöntun
Nýr opnunartími
vegna breytinga:
Opið mán.-fös.
kl. 16-18. buxur.is
haust
Stóra Thailand
Burma
(Myanmar)
27. janúar 2-3 vikur
Sjá nánari upplýsingar á heimsferdir.is
eða hjá Heimsferðum í síma 595 1000
eða hjá Ferða- og bókaklúbbnum
Heimskringlan í síma 893 3400
Einstök ferð
fyrir áður
óþekkt verð
– Flest
innifalið,
íslensk fararstjórn, fá sæti í boði
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FORSTJÓRI Vinnueftirlitsins segir
allt benda til þess að gáleysi sprengi-
stjóra hafi valdið því að grjót og
mold þyrlaðist yfir Vesturlandsveg
eftir sprengingu á framkvæmda-
svæði við Stekkjarbrekku á sunnu-
dagsmorgun. Vinnueftirlitið mun
fara yfir og taka saman skýrslu um
atvikið.
Í 36. grein reglugerðar um
sprengiefni segir orðrétt: „Sprengi-
stjóri skal sjá til þess að skotsvæði sé
byrgt með sprengimottum eða öðru
efni á fullnægjandi hátt, þannig að
grjót kastist ekki frá sprengistað.“
Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri
Vinnueftirlitsins, segir afsakanir
verktakans vart gildar. „Það verður
skilyrðislaust að tryggja hverja ein-
ustu sprengingu með yfirbreiðslum,
þetta er alveg kristaltært. Það þýðir
ekki að segja að komið hafi í ljós að
klöppin hafi verið léleg. Það er alls
kyns klöpp hér á Íslandi og óvissa í
kringum berg. Það verður að tryggja
skotsvæðið með byrgingu eða á ann-
an hátt.“
Í Morgunblaðinu í gær kom fram í
máli Þrastar Helgasonar, sem ók um
Vesturlandsveg þegar moldarhnull-
ungur lenti á framrúðu bifreiðarinn-
ar, að hvergi hefði verið að finna
merkingar um að verið væri að
sprengja á svæðinu. Í 38. grein
reglugerðar um sprengiefni segir
m.a.: „Sprengistjóri skal fyrir skot
gera ráðstafanir sem tryggja að eng-
inn dveljist á eða ferðist um það
svæði umhverfis sprengistað, þar
sem ætla má að hætta skapist. Setja
skal upp merkingar sem vara við
hættu sé slíkt nauðsynlegt til að
koma boðum til óviðkomandi.“
Ekki er ljóst hvort kært verður í
málinu vegna gáleysis.
Sprengistjórinn ábyrgur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í HNOTSKURN
»Vesturlandsvegi var ekkilokað þrátt fyrir spreng-
ingu í námunda við veginn á
sunnudagsmorgun.
»Mold og grjót þyrlaðist yf-ir veginn og lenti hnull-
ungur á framrúðu bifreiðar.
»Vinnueftirlitið mun farayfir og taka saman skýrslu
um atvikið. Ljóst er að
sprengistjóri er ábyrgur fyrir
sprengingunni.