Morgunblaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMKOMULAG um að Landsbanki
Íslands styrki Alþjóðamálastofnun
og Rannsóknarsetur um smáríki við
Háskóla Íslands til að halda ráð-
stefnu á næsta ári var undirritað í
gær. Ráðstefnan verður haldin 14.
september 2007 og ber heitið: Upp-
spretta auðæfa: Á hverju byggist
útrás smáríkja?
Á ráðstefnunni verður fjallað um
hvernig smáríki í Evrópu hafa
breyst úr fátækum kotríkjum yfir í
auðug borgríki. Áhersla verður
lögð á að útskýra hvernig smáríkj-
um eins og Íslandi, Lúxemborg og
Írlandi hefur tekist að safna auði og
hefja útrás til stærri og voldugri
ríkja. Sérstök áhersla verður lögð á
stöðu Íslands og hvað hafi stuðlað
að íslensku útrásinni.
Alþjóðastofnunin og Rannsókn-
arsetur um smáríki er rekið sem
ein eining og er Silja Bára Ómars-
dóttir forstöðumaður þeirra. Að
sögn Silju er ætlunin að halda ráð-
stefnu um stöðu Íslands í al-
þjóðakerfinu á hverju ári og að ráð-
stefnan sem samkomulag var gert
um í gær verði sú fyrsta í röðinni.
Silja segir að viðfangsefni ráð-
stefnunnar; auðsöfnun og útrás
smáríkja, sé fremur lítið rannsakað
og því mikil þörf á að renna fleiri
fræðilegum undirstöðum undir
skilning manna á því. „Við vitum í
raun lítið um ástæður þess að þetta
er að gerast eða hvaðan þessi orka
kemur sem gerir okkur svona rík.“
Ýmsar skýringar hafi verið gefnar
á útrás og auðsöfnun smáríkja,
t.a.m. haldi sumir því fram að vel-
gengni Lúxemborgar sé til komin
vegna þess að þar sé lítil áhersla
lögð á innlent háskólanám en þess í
stað sæki fólk sér menntun út fyrir
landsteinana. Á Íslandi sé á hinn
bóginn mikið rætt um að öflugt há-
skólasamfélag hafi stutt við útrás-
ina. „Þannig að ríki geta farið ólík-
ar leiðir þó að útkoman sé sú
sama,“ segir Silja.
Ætlunin er að fyrirlesarar á ráð-
stefnunni verði bæði úr fræða- og
viðskiptaheiminum.
Styrkir ráðstefnu um
auðæfi smáríkja
Smáríki Samningur um styrk Landsbanka Íslands til ráðstefnuhalds var undirritaður á skrifstofu rektors Háskóla
Íslands. F.v. Baldur Þórhallsson, Kristín Ingólfsdóttir, Björgólfur Guðmundsson og Silja Bára Ómarsdóttir.
Orsakir fyrir velgengni og útrás smáríkja lítið rannsakaðar
Í HNOTSKURN
» Styrkurinn frá Lands-bankanum nemur 2½ millj-
ón sem er nánast jafn mikið og
allt rekstrarfé Alþjóðamála-
stofnunar og Rannsóknarset-
ursins á þessu ári.
» Ráðstefnan verður haldiní september á næsta ári.
AÐ MATI Samtaka verslunar og
þjónustu (SVÞ) tapa verslanir á Ís-
landi um þremur milljörðum króna á
hverju ári vegna þjófnaða úr versl-
unum. Samtökin telja að sérstaklega
þurfi að taka á þjófnaði barna og
unglinga og er bent á verkefni sem
unnið hefur verið í samvinnu Smára-
lindar og lögreglunnar í Kópavogi
hafi gefið sérstaklega góða raun.
Í tilkynningu SVÞ kemur fram að
verslunareigendur þurfa að hækka
vöruverð til að mæta kostnaði af
þessum sökum. Það hafi áhrif á
neysluverðsvísitölu sem valdi hækk-
un á vísitölutryggðum lánum um 150
milljónir á ári. Allt þjóðfélagið tapi á
þjófnuðum, ekki aðeins verslunin. Þá
sé mikið álag á öryggisvörðum í
verslunarkjörnum og verslunum
vegna þjófnaða og mikill tími og fyr-
irhöfn fari í meðferð mála, bæði hjá
verslunum og einnig hjá lögreglu.
Lítil aðstaða sé víða í verslunum til
að bíða með þjófa þar til lögregla
kemur á staðinn.
Einn truflar, aðrir stela
Fram kemur að öryggisverðir
telja að þjófnaður hafi aukist mikið í
krónum talið og þjófarnir vinni með
skipulagðari hætti en áður. Sigurður
Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ,
segir að algengara sé að þjófar vinni
saman í þjófagengjum og hann hafi
m.a. heyrt af því að einn haldi af-
greiðslumanni uppteknum á meðan
aðrir athafni sig annars staðar í
verslunum. Í þessum gengjum sé
fullorðið fólk sem steli verðmætum
munum sem hægt er að koma í verð.
Í tilkynningu SVÞ kemur fram að
um 4% barna á aldrinum 15–19 ára
séu kærð til lögreglu fyrir þjófnað,
um 850 einstaklingar. Þá er tekið
dæmi úr Kópavogi frá Kópavogi en
árið 2004 hafði lögreglan í Kópavogi
afskipti af 90 börnum á aldrinum 11–
14 ára sem voru staðin að þjófnaði í
verslunarmiðstöðinni Smáralind.
Þar af voru 35 börn 13 ára og yngri.
Börnin komu víðsvegar af landinu,
27% þeirra úr Kópavogi.
Dregur úr þjófnaði um 40%
Vegna búðaþjófnaða í bænum var
ákveðið að ráðast í forvarnaverkefni
með aðkomu Smáralindar og lög-
reglunnar í Kópavogi. Forvarna-
fulltrúi lögreglunnar, Anna Elísabet
Ólafsdóttir, hefur frætt grunnskóla-
börn um þjófnaði og afleiðingar
þeirra og gefnir hafa verið út tveir
bæklingar, annar ætlaður nemend-
um og hinn ætlaður foreldrum barna
sem hafa verið staðin að þjófnaði.
Í Smáralind hefur þjófnuðum
fækkað um 40% og er þessu átaki
þakkaður árangurinn, að því er segir
í tilkynningu SVÞ. Til athugunar er
að svipað átak verði annars staðar á
höfuðborgarsvæðinu.
Árlega stolið fyrir þrjá
milljarða úr verslunum
Mjög góður árangur af forvarnaverkefni í Kópavogi
Morgunblaðið/Eggert
Stórtækir Talið er að stolið sé úr
verslunum fyrir 3 milljarða á ári.
GYLFI Þorkels-
son hefur ákveðið
að gefa kost á sér
í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í
Suðurkjördæmi
4. nóvember nk.
vegna alþingis-
kosninganna
næsta vor og
stefnir á 4.–6.
sæti á lista flokksins.
Gylfi er 45 ára, frá Laugarvatni í
Ánessýslu, framhaldsskólakennari á
Selfossi og hefur kennt í grunn- og
framhaldsskólum á Suðurlandi og
Suðurnesjum frá 1983. Frá 2002 hef-
ur Gylfi verið bæjarfulltrúi í Árborg
og sinnt ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir sveitarfélagið, sem og Samtök
sunnlenskra sveitarfélaga.
Í tilkynningu frá Gylfa segir að
hann muni leggja sérstaka áherslu á
menntunarmál, eflingu sveitar-
stjórnarstigsins í stjórnkerfi lands-
ins og bætt samskipti ríkis og sveit-
arfélaga og umhverfismál.
Stefnir á
4.–6. sæti
Gylfi Þorkelsson
KRISTJÁN Æg-
ir Vilhjálmsson
hefur ákveðið að
gefa kost á sér í
þriðja sæti í próf-
kjöri Samfylking-
arinnar í Norð-
austurkjördæmi
fyrir komandi al-
þingiskosningar.
Hann segist
telja að Samfylk-
ingin þurfi að beina sjónum sínum
enn frekar að ungu fólki enda hafi of
lengi farið of lítið fyrir ungu fólki.
Stjórnmálaflokkar hafi ekki verið
nógu duglegir að treysta ungu fólki
til ábyrgðar.
Kristján Ægir er 19 ára nemi í við-
skiptafræði við Verkmenntaskóla
Akureyrar. Hann er gjaldkeri
Ungra jafnaðarmanna á Akureyri en
var áður formaður félagsins.
Sækist eftir
þriðja sæti
Kristján Ægir
Vilhjálmsson
ANNA Sigríður
Guðnadóttir,
varaformaður
Samfylkingarinn-
ar í Mosfellsbæ,
hefur ákveðið að
taka þátt í próf-
kjöri Samfylking-
arinnar í Suðvest-
urkjördæmi og
stefnir að kjöri í
4.–5. sæti.
Anna Sigríður er varabæjar-
fulltrúi í Mosfellsbæ og fulltrúi í
fræðslunefnd og heilbrigðisnefnd
Kjósarsvæðis. Hún á sæti í flokks-
stjórn Samfylkingarinnar og vara-
stjórn kvennahreyfingar flokksins.
Anna Sigríður er bókasafns- og
upplýsingafræðingur að mennt og
starfar sem aðstoðarforstöðumaður
Bókasafns- og upplýsingamiðstöðv-
ar Landspítala.
Ragnheiður segir að síaukið mis-
rétti og ójöfnuður kalli á öfluga sókn
breiðfylkingar jafnaðarmanna.
Stefnir á
4.–5. sæti
Anna Sigríður
Guðnadóttir
RAGNHEIÐUR
Hergeirsdóttir,
framkvæmda-
stjóri og bæjar-
fulltrúi í Árborg,
hefur ákveðið að
sækjast eftir 2.–3.
sæti á lista Sam-
fylkingarinnar í
Suðurkjördæmi
fyrir alþingis-
kosningarnar.
Ragnheiður hefur m.a. starfað við
kennslu og námsráðgjöf í Fjöl-
brautaskóla Suðurlands, við fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga, við Rétt-
argeðdeildina að Sogni og að
málefnum fatlaðra. Hún hefur átt
sæti í stjórn Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga og verið formaður
stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga.
Á næstu dögum opnar Ragnheiður
nýja heimasíðu þar sem hún kynnir
áherslumál, www.ragnheidur.is.
Stefnir á
2.–3. sæti
Ragnheiður
Hergeirsdóttir
www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
RK
3
40
42
08
/2
00
6 Verið velkomin á Nesjavelli
Orkuveita Reykjavíkur býður gestum og gangandi
að heimsækja Nesjavelli, kynna sér orkuverið
ásamt því hvernig staðið hefur verið að umhverfismálum
og aðgengi fyrir ferðamenn og gesti á Nesjavöllum.
Opið á Nesjavöllum í september og október:
Mánudaga til laugardaga er opið frá kl. 9:00–17:00.
LOKAÐ á sunnudögum.
Hvað veistu
um jarðvarmavirkjanir?