Morgunblaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HEIMURINN HEFUR FENGIÐ AÐVÖRUN
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
MEÐ HINUM EINA SANNA JACK BLACK OG FRÁ LEIKSTJÓRA “NAPOLEON
DYNAMITE” KEMUR FRUMLEGASTI GRÍNSMELLURINN Í ÁR.
ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ ANNAÐ
TÆKIFÆRI ÞARFTU AÐ TAKA
FYRSTA SPORIÐ.
MEÐ KYNTRÖLLINU
CHANNING TATUM
(“SHE’S THE MAN”)
KRISTRÚN H. HAUKSD.
FRÉTTABLAÐIÐ
“STÓRVEL LEIKIN… STENST
FYLLILEGA SAMANBURÐ VIÐ
ÞAÐ BESTA FRÁ ÚTLÖNDUM”
PÁLL B. BALDVINS.
DV
“BÖRN ER ÁHRIFAMKIÐ
LISTAVERK SEM SKILUR
ÁHORFANDANN EFTIR
DJÚPT SNORTINN.”
eeee
HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR
MBL
“GÍSLI ÖRN GARÐARSSON FER Á
KOSTUM… NÝJUM HÆÐUM ER
NÁÐ HVAÐ KVIKMYNDALEIK OG
SAMTÖL VARÐAR”
eee
ÓLAFUR H. TORFASON
RÁS2
E.T. kvikmyndir.is
eee
E.B.G. Topp5.is
BLÓÐUGT
MEISTARVERK
EFTIR NICK
CAVE MEÐ
ÚRVALSLEIKU-
RUM Í HVERJU
HLUTVERKI
eeee
Roger Ebert
"Sláandi og
ógleymanleg!" DEITMYNDIN Í ÁR
eeee
VJV
eee
H.J. - MBL
eeee
blaðið
BJÓLFSKVIÐA
GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
Takið þátt í spennandi ferðalagi þar sem villidýrin fara á kostum.
Ekki missa af fyndnustu Walt Disney teiknimynd haustins.
SÍÐUSTU SÝNINGAR TILBOÐ: 400 KR.
BJÓLFSKVIÐA kl. 8 - 10:15 B.i.16
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 6 - 9 TILBOÐ: 400 KR. B.i. 12
MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BÖRN kl. 5:50 - 8 - 10.15 B.i.12
THE PROPOSITION kl. 5:50 - 8 - 10:15 B.i.16
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
AN INCONVENIENT TRUTH kl. 8 - 10:15 LEYFÐ
www.haskolabio.is • Miðasalan opnar kl. 17HAGATORGI • S. 530 1919
FRÁBÆR DANSMYND HLAÐIN GEGGJAÐRI TÓNLIST EN MYNDIN
KOM HELDUR BETUR Á ÓVART Í USA FYRIR NOKKRU.
/ KEFLAVÍK
STEP UP kl. 8 - 10 B.i. 7
TAKK FYRIR AÐ ... kl. 8 B.i. 7
UNITED 93 kl. 10 B.i. 12
/ AKUREYRI
NACHO LIBRE kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7
ÓBYGGÐIRNAR Ísl tal. kl. 6 Leyfð
UNITED 93 kl. 8 - 10 B.i.14
FRAMLAG ÍSLENDINGA
TIL ÓSKARSVERÐLAUNA!
ar félagar þeirra eru
upp til hópa úti eftir kl.
20. Er nema von að
barnið spyrji hvers
vegna það þurfi að vera
inni þegar Nonni og
Sigga hlaupa óáreitt
um hverfið.
Það væri óskandi að
foreldrar virtu almennt
settar reglur um úti-
vistartíma. Það myndi
einfalda málið til muna.
Kennarar barna Vík-
verja hafa alla tíð verið
óþreytandi við að
brýna fyrir foreldrum
að gæta samræmis
enda fara þeir ekki var-
hluta af því þegar allt óréttlæti
heimsins hellist yfir nemendurna.
Allt kemur fyrir ekki.
Lögreglan mætti að mati Víkverja
vera duglegri að vekja athygli á
þessu. Þannig var framlag Björns
Bjartmarz, lögreglumanns í Breið-
holti, í sjónvarpsfréttum á dögunum
til mikillar fyrirmyndar en þar um
slóðir er átak í gangi þessa dagana.
Hann talaði enga tæpitungu. Inn-
takið var á þá leið að foreldrar ættu
að halda reglunum til streitu, hvað
sem tautar og raular.
Mikið höfðu börn Víkverja gott af
því að horfa á Björn.
Víkverji hefur aliðupp ófá börnin,
a.m.k. reynt það. Og
alltaf byrjar sama
þrasið að hausti –
ágreiningur um úti-
vistartíma. Víkverji er
löghlýðinn borgari og
hefur alla tíð virt úti-
vistarreglur lögreglu.
Leyfir börnum sínum
að vera úti til kl. 22 á
sumrin og til kl. 20 á
veturna. Þetta hefur
mælst misjafnlega fyr-
ir hjá börnunum enda
virðist það af ein-
hverjum ástæðum vera
svo að öll önnur börn á
Íslandi en börn Víkverja mega vera
úti lengur en til kl. 20 á haustin, þeg-
ar skólinn er byrjaður. A.m.k. hafa
börn Víkverja, hvert á fætur öðru,
haldið þessu kinnroðalaust fram. „O,
það mega allir vera úti, nema ég.“
Enda þótt hart sé að Víkverja sótt
í þessu máli hefur hann allar götur
staðið fast á sínu. Af þeirri einföldu
ástæðu að annars færi allt úr skorð-
um. Engir þjóðfélagshópar eru
lunknari við að ganga á lagið en
börn. Það er gömul saga og ný.
Víkverji getur eftir sem áður ekki
neitað því að hann finnur á köflum
til með börnum sínum, einkum þeg-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins : Gakk þú inn í bergið og fel þig í
jörðu fyrir ógnum Drottins og ljóma hátignar
hans. (Jes. 2,3-10.)
Í dag er þriðjudagur
26. september, 269. dag-
ur ársins 2006
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Agaleysi í íslenskum skólum
ÉG átti leið um gangstétt sem er í
næsta nágrenni við ónefndan
menntaskóla hér á landi.
Mér krossbrá þegar ég sá allar
tyggjóklessurnar sem voru fastar í
gangstéttarhellunum. Ekki langt frá
gekk ég fram á hóp nemenda sem
voru að reykja rétt við skólahúsið.
Ég hélt að hvergi mættu mennta-
skólanemar reykja inni á skólalóð
svo að mér varð á að spyrja einn
strákinn hvort þau mættu reykja
inni á skólalóðinni hjá sér?
„Er þetta ekki frjálst land?“,
spurði hann þá all harkalelga.
Og ekki tók betra við þegar ég
beygði fyrir húshornið og við mér
blasti hrúga af tómum sígarettu-
pökkum og ýmislegt fleira.
Geirmundur.
Sjónvarpið endurskoði
kvikmyndasýningar
RÍKISSJÓNVARPIÐ sýndi kvik-
myndina „Málaðir englar“ föstudag-
inn 15. september kl. 21.55.
Ég vil lýsa yfir megnustu and-
styggð minni á að svona nokkuð sé
sýnt á þessum tíma, þegar börn og
unglingar eru ekki farin að sofa.
Þetta er nokkuð sem alls ekki á er-
indi í sjónvarp.
Þessi mynd var einn viðbjóður og
algjörlega ófært að sýna hana á
þessum tíma þegar unglingarnir
sitja með foreldrum og horfa á sjón-
varpið.
Ég bið þá sem þessu ráða hjá
sjónvarpinu að endurskoða svona
nokkuð áður en farið er í útsend-
ingu.
Helga Árnadóttir.
Um sveppagróður
ÉG las í Morgunblaðinu 20. sept.sl.
grein um sveppasýkingu og birtust
ljótar myndir af sýktum nöglum.
Mig langar að vekja athygli á að
til er afar ódýr lækning við sveppa-
sýkingu af þessu tagi. Ég þekki
mann sem var afar illa haldinn af
þessum sjúkdómi og þoldi orðið
enga skó og átti vont með gang. Nú
ætla ég að lýsa því hvernig hann
læknaði sig. Hann fékk sér ísbox 2ja
lítra, pissaði í það á morgnana áður
en hann fór á fætur, síðan stóð hann
ofan í þvaginu með tærnar í 30 til 60
mínútur og þvoði sér vel á eftir.
Þessa meðferð endurtók hann á
hverjum morgni í tæpan mánuð.
Eftir mánuð var sveppurinn alveg
horfinn og hefur ekki komið aftur,
síðan eru liðin 6 ár.
Mig langaði að vekja athygli á
þessu, ef einhver treystir sér í þessa
lækningaaðferð, hún virðist vera
pottþétt.
Ég er ekki að grínast.
S.G.
Sáttaleið til friðar
EINAR Karl Haraldsson segir á bls.
37 í Mogganum 16. september sl. að
heimurinn yrði ekki öruggari án
trúarbragða. Einar vitnar sínu máli
til sönnunar að þekktir fræðimenn
hafi viðhaft sáttamiðlanir í mörgum
löndum. Í engu upptalina land er
friður heldur þvert á móti.
Nýlega hitti ég tvo múslima er-
lendis og fékk staðfestingu á að „Iðr-
un“ opinberun í Medínu, 9nda súra
er bókstafleg. Þeirra trú er annað
yndislegt líf. Þessar sekúndur mínar
sem ég á skipta engu máli enda hjá-
guðadýrkandi og því réttdræpur
hvar og hvenær sem þeim þóknast.
Semsagt að þeir fá stig fyrir
hversu mörgum þeim tekst að snúa
til réttrar trúar og fá margfölduð
stig fyrir að fækka hinum van-
trúuðu.
Helgi Steingrímsson,
Laugarnesvegi 88, Rvík.
Hafið bláa
ÉG fór að sjá Hafið Bláa með barna-
barnið mitt og þvílíkt falleg sýning,
leikurinn, söngurinn og búningar,
allt bara fallegt.
Ég vil þakka öllum fyrir þetta
framlag, þetta er sýning sem sómir
sér á heimsmælikvarða. Ekki veitir
okkur af sem flestu fallegu framlagi
í menningu í dag á tímum viðsjár-
verðum.
Ég var mjög hrærð eftirá, Selma
greinilega barnshafandi, og skilar
þvílíku framlagi.
Ég þakka innilega öllum sem
standa að þessari sýningu með von
um fleiri.
Hildur Hilmarsdóttir.
Leikarinn viðkunnanlegi ChowYun-fat stendur í ströngu við
undirbúning fyrir næsta hlutverk
sitt. Chow fór í strembna megrun og
hefur verið iðinn við að vera á hest-
baki. Hlutverkið sem Chow leggur
svona mikið á sig fyrir er í vænt-
anlegri kvikmynd John Woo, sögu-
legri og epískri mynd sem fengið
hefur enska titilinn „The Battle of
Red Cliff“.
Lýsir myndin orrustu árið 208
sem hafði mikil áhrif á sögu Kína-
veldis.
Fólk folk@mbl.is Gúmmítöffarinn Kevin Feder-line, sem einnig hlýðir nöfn-unum K-Fed og hr. Britney Spears,sýndi nýverið á sér nýjar hliðar.
Getur Kevin nú ekki aðeins stát-
að af því að vera rappari og dansari
og heimsfrægur fjölskyldufaðir
heldur er hann einnig orðinn karl-
fyrirsæta.
Kevin hefur gengið til liðs við
Five Star Vintage-fatamerkið og
sat fyrir í myndatökum þar sem
han skrýddist frístundalínu fata-
merkisins.
Að sögn aðstandenda Five Star
Vintage hefur samstarfið gert
mikla lukku og hafa næstum allar
flíkurnar, sem rapp-dansarinn hef-
ur auglýst, selst upp.
Gamalbítillinn Paul McCartneygaf út sitt fjórða klassíska verk
á dögunum. Kallast það „Ecce Cor
Meum“ og verður frumflutt í Royal
Albert Hall í nóvember. Í nýlegu
viðtali segir fyrrum Bítillinn frá því
að hann hafi ekki getað unnið í heilt
ár eftir að kona hans, Linda, lést.
McCartney var yfirbugaður af sorg
og tafðist „Ecce Cor Meum“ vegna
þessa en hann hóf að vinna að því ár-
ið 1997. Linda lést árið 1998, eftir
erfiða baráttu við brjóstakrabba-
mein. „Ég varð að taka heilt ár í það
að syrgja,“ segir McCartney, „Og
sorgina er að finna í þessu verki. Ég
og samstarfsmaður minn sátum
stundum við píanóið og grétum.
Þetta var afskaplega erfiður tími