Morgunblaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 22
|þriðjudagur|26. 9. 2006| mbl.is
FYRIRSÆTURNAR sem sýndu
fatnað hönnuðarins Anke Loh á for-
sýningu tískusýningar í Chicago í
Illinois í síðustu viku voru klæddar
óvenjulegum fötum. Þegar þær
gengu um og sýndu klæðnaði sendi
efnið í fötunum frá sér ljós út í sal-
inn.
Lýstu
út í salinn
daglegtlíf
Áhugamenn koma margir um
langan veg í Skagafjörðinn til að
vera með þegar rekið er
til réttar. » 25
landið
Í Melaskóla eru kenndar
skylmingar og strákarnir eru
ekkert mjög ánægðir þegar
stelpurnar vinna þá. » 23
tómstundir
Hrós er miklu áhrifaríkara en
skammir og refsingar og það er
rauði þráðurinn í bókinni Börn
eru klár. » 25
Það er oftast biðröð fyrir utan
Góða hirðinn þegar opnað er á
hádegi og þar er fólk að leita að
öllu milli himins og jarðar. » 24
daglegt
Þetta var áður hárgreiðslu-stofa sem við erum aðbreyta í Sunnlenskt bóka-kaffi af því það lá svo vel
við að láta drauminn rætast, fyrst
þetta rými losnaði hér undir sama
þaki og Sunnlenska fréttablaðið er til
húsa,“ segir Bjarni Harðarson sem
er eigandi fyrrnefnds fréttablaðs og
segir hæg heimatökin því innangengt
er milli blaðsins og væntanlegrar
bókabúðar.
„Okkur langaði til að bæta úr því
að það er engin bókabúð á Selfossi
með persónulegri þjónustu. Við
leggjum áherslu á að sá sem vinnur á
Sunnlenska bókakaffinu sé bóka-
manneskja, hvort sem það erum við
hjónin eða einhver annar sem þjónar
viðskiptavininum,“ segir Elín og
bætir við að á Sunnlenska bóka-
kaffinu verði stólar og borð svo fólk
geti tyllt sér niður og þar verður
einnig tölva svo gestir geti skroppið á
netið.
„Við ætlum að bjóða bæði upp á
eðalkaffi með flóaðri mjólk og hvers-
dagslegan uppáhelling, sem fólk get-
ur gætt sér á þegar það sest niður og
gluggar í bækur, hvort sem það ætl-
ar sér að kaupa þær eður ei.“ Með
kaffinu verður boðið upp á bakkelsi
sem Guðni, bakari og nágranni
Bjarna og Elínar, ætlar að sjá um að
baka, svo sem kleinur og hjóna-
bandssælur.
Fornbækur í forláta skáp
Bókaúrvalið á Sunnlenska bóka-
kaffinu mun verða fjölbreytt en
Bjarni og Elín segjast láta bóka-
forlögunum eftir að velja hvaða bæk-
ur frá þeim verði seldar þar. „En við
ætlum líka að vera með notaðar bæk-
ur, bæði ódýrar kiljur sem seldar
verða á smápening, en einnig betri
bækur því Eiríkur Guðjónsson Flóa-
maður ætlar að sjá um að fylla fyrir
okkur einn skáp sem mun vera lok-
aður og læstur en þar inni verður
lostæti í formi fornbóka sem kosta
meira en smápeninga. Og Eiríkur
fyllir jafnharðan á eftir því sem selst
úr skápnum. Auðvitað fær fólk að
skoða og handleika þessar bækur ef
það óskar eftir því, en þær verða ekki
til handargagns uppi í hillum eins og
allar hinar bækur búðarinnar. Svo er
alveg möguleiki að það verði hér ein
hilla af geisladiskum.“
Bjarni er líka bókaútgefandi og
þekkir því af eigin reynslu þá stað-
reynd að bækur seljast aðallega fyrir
jólin. „Þar af leiðandi má vel vera að
þetta verði fyrst og fremst kaffihús
hina tíu mánuði ársins en bókabúð þá
tvo mánuði sem bóksala er í blóma.
Þetta verður allt að koma í ljós. Við
ætlum að opna laugardaginn sjöunda
október og þá verður mikil hátíð.
Þetta verður menningarmiðstöð og
við lofum rífandi stemningu fram að
jólum, höfundar koma og lesa upp úr
verkum sínum og annað slíkt. Svo
höfum við hlerað að forvitnilegir hóp-
ar fólks ætli að gera Sunnlenska
bókakaffið að bækistöð sinni og er
það vel.“
khk@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Notalegt Elín og Bjarni kunna vel við sig innan um bækur með kaffi í hönd.
Gott saman:
Bók í hönd og
kaffi í munni
Hjónin Bjarni Harðarson og Elín Gunnlaugsdóttir
eru elsk að bókum og kaffi enda hafa þau lengið alið
með sér draum um að opna Bókakaffi. Kristín Heiða
Kristinsdóttir kom við á Selfossi þar sem draumurinn
er um það bil að rætast.
„ÁÐUR í Leiðarljósi,“ hljómar dæmigerð kynn-
ing á útvarpsþáttunum „Guiding Light“ sem
miðlað er um netið en margir hér á landi kann-
ast við þættina sem hafa verið sýndir hér á
landi undanfarin ár. „Dinah játaði fyrir Harley
að þau Alan-Michael hefðu reynt að koma
Harley á kné í Spaulding. Lizzie var staðráðin í
að halda því leyndu hver væri raunverulegur
faðir barnsins hennar. Reva leyndi því fyrir
Josh að hún er í efnameðferð. Jonathan lenti
aftur í vandræðum þegar Ashley reyndist vera
dóttir saksóknarans sem ákvað að sækja Ashley
til saka.“
Dreift á netinu
Janet Morrison, 25 ára bandarísk kona, hefur
fengið það starf að annast kynninguna, taka
upp hvern Leiðarljóss-þátt sem sýndur er í
sjónvarpinu, sleppa auglýsingum og löngum
þögnum og senda sápuóperuna svo út í hljóð-
skrám á netinu með svonefndri podcast-tækni.
Það er Ellen Wheeler, framleiðandi Leið-
arljóss, sem átti hugmyndina að því að nýta
þessa tækni og dreifa þáttunum á netinu. Hún
fékk hugmyndina þegar heimavinnandi eig-
inmaður hennar tók eftir því að hann gat fylgst
með því sem gerðist í sjónvarpsþáttunum á
meðan hann vann húsverkin – ef hann stillti
hljóðið í sjónvarpinu nógu hátt.
Elsta sápuóperan
Samkvæmt heimsmetabók Guinness er Leið-
arljós sú sápuópera sem lengst hefur verið út-
varpað. Hún hófst í útvarpi árið 1937 og hefur
verið sýnd í sjónvarpi frá árinu 1952. Fimmtán
þúsundasti sjónvarpsþátturinn var sýndur fyrir
nokkrum vikum.
Vinsældir sjónvarpsþáttanna hafa þó minnk-
að í Bandaríkjunum á síðustu árum. Nær fimm
milljónir Bandaríkjamanna horfðu á þættina á
hverjum degi veturinn 1994–95 og áhorfend-
urnir eru orðnir helmingi færri nú, meðal ann-
ars vegna aukinnar samkeppni frá kapalsjón-
varpsstöðvum.
Fá sápu
í eyrun
Reuters
Eyrnasápa Ekki þarf nú lengur að sitja fyrir
framan sjónvarpið til að vita hvað gerist í Leið-
arljósi, þáttinn má nú hlýða á á netinu.
uppeldi