Morgunblaðið - 26.09.2006, Page 15

Morgunblaðið - 26.09.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 15 Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is ÍSLENSKA bankakerfið hefur tekið róttækum breytingum á undanförnu þremur árum og því hefur gengið vel að takast á við breytingarnar þótt þeir hafi haft í för með sér nýja áhættu og verk- efni. Samfara miklum eignavexti viðskiptabank- anna þriggja hafa þeir orðið umtalsvert háðir al- þjóðlegum lánsfjármörkuðum um fjármögnun og þá um leið viðhorfum markaðarins. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu alþjóðamatsfyrirtækisins Fitch Ratings um íslenska bankakerfið. Þar segir að umrótið í kringum íslensku bankana fyrr á þessu ári hafi neytt íslensku bankana til þess að taka meira tillit til sumra af áhyggjum lánveitenda, til að auka gagnsæi og bæta upplýsingaflæði og takast á við atriði eins og mikla hlutabréfaáhættu og kross- eignartengsl. Fitch lítur útrás íslensku bankanna jákvæðum augum og segir þá hafa einbeitt sér að því að ná fram meiri dreifingu á tekjusviðinu, m.a. með kaupum erlendis, og þeir séu því ekki eins háðir hinu sveiflukennda íslenska efnahagsumhverfi og áður. Þannig segir Alexander Birry, aðstoðar- framkvæmdastjóri hjá Fitch, það jákvætt að stærstu íslensku bankarnir hafi fært út kvíarnar til annarra landa. „En hinn hraði vöxur erlendis hefur skapað bönkunum ný verkefni að kljást við, sérstaklega hvað varðar áhættustjórnun og sam- þættingu erlendra rekstrareininga sem þeir hafa keypt,“ segir Birry. Í Vegvísi Landsbankans segir að tónninn í skýrslu Fitch Ratings sé jákvæðari og þar komi m.a. fram að nýlegar samþættingar stærri fyr- irtækja virðist hafa gengið vel. Bankarnir þurfi þó að hafa hátt eiginfjárhlutfall vegna hinnar sér- stöku áhættu sem þeir standi frammi fyrir. Jákvæðari tónn í nýrri skýrslu Fitch Ratings um íslensku bankana ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands lækkaði um 0,5% í gær, í 6.222 stig. Verslað var með hluta- bréf fyrir rúma 3,2 milljarða króna, mest með bréf í Landsbankanum eða fyrir tæpar 478 milljónir króna. Gengi bréfa FL Group hækkaði mest eða um 1,3%. Mesta lækkunin var á gengi bréfa Avion Group en það lækkaði um 9,3% en félagið birti árs- fjórðungsuppgjör sitt í gær. Krónan styrktist um 0,7% en velta á millibankamarkaði nam um 17,3 milljörðum króna. Bandaríkjadalur kostar nú 70,3 krónur, evran 89,6 og pundið 133,6 krónur. Bréf Avion Group lækkuðu um 9,3% ● Trygginga- miðstöðin hefur gert samning við norska trygginga- fyrirtækið Møret- rygd um vátrygg- ingasamstarf á sviði frum- og endurtrygginga. Í tilkynningu TM segir að samningurinn, sem sé ný- mæli í íslenskum trygginga- viðskiptum, nái til vátrygginga vegna hátt á áttunda hundrað báta og skipa og því sé um umtalsverð við- skipti að ræða en samningurinn er til þriggja ára. „Samningurinn við Møretrygd er samstarfsverkefni TM og Nemi og markar ákveðin tímamót sem fyrsti samningur sem þessi fé- lög koma saman að. Ráðgert er að félögin muni vinna áfram saman að fleiri verkefnum á erlendum vett- vangi en eftir að TM eignaðist Nemi er orðið auðveldara fyrir félagið að bjóða fyrirtækjum á Norðurlöndum þjónustu,“ segir í tilkynningunni. Bátaábyrgðarfélagið Møretrygd er í Álasundi á vesturströnd Noregs, og félagið er stórt á sínu sviði á norskan mælikvarða og hefur sterka stöðu á markaðssvæði sínu. Møretrygd tryggir um það bil 760 fley fyrir vá- tryggingafjárhæðir sem nema tæp- um 70 milljörðum. Árleg iðgjöld nema tæpum 600 milljónum og eigið fé er rúmlega 1,7 milljarður. Møretrygd er meðal elstu trygginga- félaga í Noregi. TM semur við norska tryggingafyrirtækið Møretrygd ● LANDSBANKINN hefur lokið við kaup sín á Cheshire Guernsey Ltd. en þau voru háð skilyrðum um sam- þykki eftirlitsaðila á Guernsey og Ís- landi og hefur það nú fengist. Kaupin voru fjármögnuð með eigin fé Lands- bankans. Nafni Cheshire Guernsey verður breytt í Landsbanki Guernsey Lim- ited. Bankinn er þar með orðinn hluti af samstæðu Landsbankans. Hall- dór J. Kristjánsson bankastjóri, Sig- urjón Þ. Árnason bankastjóri og Mark Sismey Durrant, framkvæmdastjóri Heritable Bank, hafa tekið sæti í stjórn Landsbanki Guernsey Limited auk lögmanns bankans á Guernsey, John Lewis. Fram kemur í tilkynningu Lands- bankans að kaupin séu í samræmi við þá stefnu Landsbankans að fjölga stoðum í fjármögnun hans og gefa Landsbankanum færi á að ná skjótri og öruggri fótfestu á markaði fyrir alþjóðleg innlán og leggja þar með góðan grunn að áframhaldandi uppbyggingu alþjóðlegrar innlána- starfsemi. Kaup Landsbankans á Cheshire Guernsey frágengin ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.