Morgunblaðið - 26.09.2006, Síða 19

Morgunblaðið - 26.09.2006, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 19 KVIKMYNDASAFN Íslands sýnir kvikmyndina 79 af stöðinni (1962) í leikstjórn Erik Balling í kvöld kl. 20. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Indriða G. Þorsteins- sonar í samvinnu við Nordisk Film Kompagni og gerð að frumkvæði Guðlaugs Rósinkranz sem skrifaði handrit að henni. Aðkoma Guð- laugs að kvikmyndafélaginu Edda Film er upphafið að blómatíma þess. Rafnar er ungur leigubílstjóri til- tölulega nýkominn úr sveitinni í borgina. Kvöld eitt ekur hann fram á unga glæsilega konu, Gógó, sem á í vandræðum með bílinn sinn. Þau hittast aftur og takast með þeim kærleikar. Fyrir tilviljun kemst Ragnar að því að Gógó á sér jafn- framt bandarískan elskhuga sem hún segir honum ekki frá. Gunnar Eyjólfsson, Kristbjörg Kjeld og Róbert Arnfinnsson leika aðalpersónurnar í myndinni en leikstjóri og kvikmyndatökumaður voru Danirnir Erik Balling og Jörg- en Skov. Sýningar Kvikmyndasafnsins eru í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnar- firði alla þriðjudaga kl. 20 og end- ursýndar á laugardögum kl. 16. Miðasala er opnuð hálftíma fyrir sýningar og miðaverð er kr. 500. 79 af stöðinni í Kvikmyndasafni www.kvikmyndasafn.is Eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is KASA-HÓPURINN flutti íslenska kammertónlist í Norræna húsinu síðstliðinn sunnudag; sömu efnisskrá og flutt verður á tónleikum í Kaup- mannahöfn næstkomandi sunnudag. Þetta er fimmta starfsár hópsins. Að sögn Nínu Margrétar Gríms- dóttur píanóleikara hefur hópurinn fram til þessa leikið tónlist víðs veg- ar að úr heiminum, en ástæðan fyrir valinu á efnisskránni að þessu sinni eru hinir fyrirhuguðu tónleikar í Kaupmannahöfn. „Okkur fannst það vel til fundið að gefa sögulegt yfirlit yfir helstu ís- lensku kammerverkin á 20. öld. Tón- leikarnir í Kaupmannahöfn verða í menningarmiðstöðinni Nordatlant- ens Brygge við Íslandsbryggju. Danska ríkisútvarpið ætlar að hljóð- rita tónleikana. Okkur finnst þetta spennandi verkefni vegna þess að það er ekki oft sem íslensk kamm- ertónlist er flutt í sögulegu sam- hengi. Oftast hefur erlendum tón- skáldum verið bætt inn á efnis- skrána,“ segir Nína Margrét. Virðingarvottur við íslenska kammertónlist Hún segir að þetta sé mikill virð- ingarvottur við íslenska kamm- ertónlist, en segja megi að þessi tón- skáld hafi öll hlotið alþjóðlega viðurkenningu. „Við hlutum styrk sem tónlist- arhópur Reykjavíkurborgar 2006 og tónleikahaldið er liður í því. Við höf- um líka fengið styrki frá Tónlist- arsjóði og Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur til þess að standa að þessu. Það er gaman að geta flutt svona metnaðarfulla tónlist og þjóð- lega í leiðinni,“ segir Nína Margrét. Verkin sem verða flutt í Kaup- mannahöfn á sunnudag eru Tríó í e-moll fyrir fiðlu, selló og píanó eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Strengjakvartett I eftir Jón Leifs, Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Jón Nordal, Dans fyrir flautu, selló og píanó eftir Jórunni Viðar, Smátríó fyrir flautu, selló og píanó eftir Leif Þórarinsson, Duo Verse I fyrir flautu og selló og Tríó nr. 1 fyrir fiðlu, selló og píanó eftir Atla Heimi Sveinsson. Þessi tónverk teljast nokkrir af hápunktum íslensks tónlistarlífs á 20. öld. Tveimur tónskáldanna, Haf- liða Hallgrímssyni og Atla Heimi Sveinssyni, hafa verið veitt Norð- urlandaverðlaun í tónlist. Sveinbjörn Sveinbjörnsson var fyrsta tónskáld Íslendinga og Jón Leifs fyrsta tón- skáldið sem leitaði fanga í tónlistar- arfi þjóðarinnar. Jórunn Viðar er frumkvöðull kvenna í tónsmíðum. Leifur Þórarinsson var í fram- varðasveit avant garde-stefnunnar á 6. áratugnum og í tónlist Jóns Nor- dal má greina íslenskan tón í al- þjóðlegu samhengi strauma og stefna síðustu aldar. Flytjendur á tónleikunum eru fiðluleikararnir Elfa Rún Krist- insdóttir og Auður Hafsteinsdóttir, víóluleikarinn Helga Þórarinsdóttir, sellóleikararnir Sigurður Bjarki Gunnarsson og Sigurgeir Agn- arsson, Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari. Íslensk kammer- tónlist frá 20. öld í Kaupmannahöfn Morgunblaðið/ÞÖK Kammertónlist KaSa-hópurinn ætlar að leika verk eftir íslensk tónskáld eingöngu á tónleikum í Kaupmannahöfn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.