Morgunblaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Höfn | Náttúrusamtök Austurlands (NAUST) héldu aðalfund sinn ný- verið, en þau spanna svæðið frá Skeiðarársandi til Bakkafjarðar. Fundurinn ályktaði m.a. um Kárahnjúkavirkjun og álverksmiðju Alcoa Fjarðaáls: „Aðalfundur NAUST 2006 minnir á fyrri samþykktir samtakanna um stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi og varar við þeirri margvíslegu hættu sem af þeim stafar fyrir fólk og umhverfi á Austurlandi. Fund- urinn tekur undir með þeim mörgu sem lýst hafa áhyggjum vegna ófullnægjandi undirbúnings þessara framkvæmda, jafnt Kárahnjúka- virkjunar og álvers á Reyðarfirði. Fundurinn telur ekki rétt að hleypa vatni á Hálslón án undangengins óháðs mats á virkjuninni með tilliti til jarðfræði og hönnunar mann- virkja.“ Hafna kröfum um vothreinsun „Aðalfundurinn fordæmir þá hneykslanlegu afstöðu Alcoa og Skipulagsstofnunar að taka fjár- hagslega hagsmuni Alcoa fram yfir heilbrigði íbúa við Reyðarfjörð og Eskifjörð með því að hafna kröfum fjölmargra um vothreinsun við ál- verksmiðjuna. Þá krefst aðalfund- urinn þess að framkvæmdaraðilum sé gert að standa undanbragðalaust við sett skilyrði um frágang og vöktun að framkvæmdum loknum og að komið verði í veg fyrir frekari spjöll og tjón á landi og lífríki í ná- grenni þeirra.“ Samtökin vilja að nú þegar verði gert a.m.k. 5 ára hlé á frekari stór- iðjuframkvæmdum og næstu ár notuð til víðtækra rannsókna á áhrifum vatnsafls- og jarð- varmavirkjana og iðnaðar í krafti þeirra á þjóðarhag, mannlíf og um- hverfi. Þjóðgarður með myndarbrag NAUST hvetur stjórnvöld til að taka af raunsæi og stórhug á mál- efnum væntanlegs Vatnajök- ulsþjóðgarðs, m.a. með nægum fjár- framlögum svo unnt verði að stofna þjóðgarðinn með myndarbrag og ganga til samninga við þá aðila sem geta hugsað sér að leggja til hans landsvæði eða vilja tengjast Vatna- jökulsþjóðgarði með öðrum hætti. Áherzla er lögð á að þjóðgarðurinn nái yfir landslagsheildir umhverfis jökulinn, þar á meðal Langasjó og Fögrufjöll að friðlýsta svæðinu við Laka. Hvatt er til að stjórnvöld setji siðareglur um samskipti við fyrirtæki og aðila sem standa að framkvæmdum er valda umhverf- istjóni. Ályktanirnar í heild má m.a. finna á vefnum hornafjordur.is. Snarpar ályktanir NAUST um virkjun og stóriðju Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Náttúruvá NAUST átelur stjórnvöld harðlega og mótmælir undanbrögðum og andvaraleysi þeirra. Segja fjárhagslega hags- muni tekna fram yfir heilbrigði íbúa eystra Egilsstaðir | Trésmiðja Fljótsdals- héraðs (TF), sem stofnuð var árið 1973, hefur óskað eftir gjaldþrota- skiptum. Nýir eigendur tóku við í árslok 2002 og störfuðu til skamms tíma 30 manns hjá fyrirtækinu, sem hefur á undanförnum misserum byggt talsvert af húsnæði, m.a. á Reyðarfirði og Egilsstöðum. Öllum starfsmönnum hefur verið sagt upp. Reiknað er með að dótturfyrirtæki TF, Kass og TF festir sem hafa m.a. stundað umtalsverð fasteignavið- skipti á Austurlandi, verði gerð upp í kjölfarið. Var Valaskjálf á Egilsstöð- um m.a. í eigu annars þeirra þar til nýlega er það var selt. Trésmiðja Fljótsdalshéraðs er talin hafa skuldað um 50 milljónir króna við eigendaskiptin 2002 og þykir ljóst að skuldir hafi aukist mikið síðan, en um skuldastöðu fást ekki upplýsing- ar. Stjórn TF segir fyrirtækið um árabil hafa strítt við lausafjárerfið- leika og þungan fjármagnskostnað. Trésmiðja Fljótsdals- héraðs öll Egilsstaðir | Í dag kl. 14 stendur Samband sveitarfélaga á Austur- landi (SSA) fyrir málþingi um þjón- ustu við innflytjendur á Austur- landi og ber þingið heitið fjöl- menningarlegt Austurland, staðan og áherslur í málefnum íbúa af er- lendum uppruna. Málþingið er liður í vinnu starfs- hóps á vegum SSA og stuðnings- aðila sem vinnur með verkefnið og skilar niðurstöðum í haust. Það er öllum opið og er haldið á Hótel Hér- aði, Egilsstöðum. Málþing um innflytjendur AUSTURLAND DAGFORELDRAR í Síðuhverfi hafa fengið sig fullsadda af síend- urteknum og hættulegum skemmdarverkum á Bugðuvelli, leikvelli fyrir neðan verslunina Síðu. Þeir finna glerbrot á vellinum flesta morgna, svo rammt kvað að á dögunum að glerbrotum hafði verið komið fyrir í sandkassanum þar sem smábörn leika sér og hass- flöskur finnast oft á svæðinu. Dröfn Árnadóttir, talsmaður Dagvistunar, félags dagforeldra á Akureyri og nágrenni, kemur á leikvöllinn alla virka morgna og börnin eru aldrei leyst úr kerrun- um fyrr en búið er að yfirfara svæðið. „Við erum fimm dagfor- eldrar sem komum alla daga, með fimm börn hver, aðrir mæta tvisv- ar til þrisvar í viku og stundum koma foreldrar með sín eigin börn,“ sagði hún við Morgunblaðið. Oft eru því 30–40 börn á vellinum. „Rúða er brotin í húsinu minnst einu sinni í mánuði. Lögreglan kemur alltaf til þess að skrá skemmdarverkin og menn frá bænum skipta um rúðu en það hef- ur komið fyrir oftar en einu sinni að nýja rúðan hefur verið brotin strax sama dag eða daginn eftir.“ Það sem verra er er að stundum lítur út fyrir að hrein illska sé á bak við þessi skemmdarverk, að sögn Drafnar, „þegar komið hefur fyrir að glerbrotum hefur verið dreift í sandkassann og jafnvel grafin þar niður.“ Nýlega var brotið útiljós á hús- inu um helgi og þegar þau Dröfn mættu á leikvöllinn á mánudags- morgni var augljóst, að hennar sögn, að glerbrotunum hafði vísvit- andi verið dreift um allt planið. Forsvarsmenn félagsins segjast hafa beðið um eftirlitsmyndavél á leikvöllinn en hún sé talin of dýr og þá vilja þeir endilega láta lýsa svæðið upp því „ef börn eru að gera eitthvað sem þau mega ekki þá leita þau í myrkrið.“ Dagvistun biðlar nú til fólks í hverfinu og í raun samfélagsins alls að breyting verði á. „Við verðum að grípa til aðgerða áður en alvarlegt slys verður,“ segir Dröfn. „Við vilj- um að foreldrar ræði við aðra for- eldra og, það sem er enn mikilvæg- ara, að fólk ræði um þetta við börnin sín. Við viljum að allir séu meðvitaðir um að þetta er leik- svæði barna, ekki aðeins þeirra sem mæta hér hvern einasta morg- un heldur líka annarra í hverfinu sem koma hingað eftir skóla og um helgar.“ Dröfn finnst fólk sinnulaust gagnvart vandamálinu og tekur svo til orða að það séu engar for- varnir að hreinsa upp glerbrot, heldur verði allir að leggjast á eitt til þess að skemmdarverkunum linni. Dagforeldrar í Síðuhverfi orðnir þreyttir á skemmdarverkum á Bugðuvelli „Verðum að grípa til aðgerða áður en alvarlegt slys verður“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gaman á róló Börnunum leið vel á Bugðuvelli í gær og vita sem betur fer ekki af skemmdarvörgunum. Í HNOTSKURN »Dagforeldrar urðu vitniað því nýlega að ung stúlka af áfangaheimili í Eyjafirði kom með fulltrúa sínum á Bugðuvöllinn til að sýna hvar hún hafði hent frá sér töflu sem ætluð var til að komast í vímu. Taflan fannst sem betur fer „en við þurfum náttúrlega ekki að lýsa því hvað hefði getað gerst ef hún hefði ratað í barnsmunn,“ segir í bréfi dagforeldranna. MAGNÚS Þorkell Bernharðsson flytur í dag fyrirlestur á Lögfræðitorgi við Há- skólann á Akureyri. Fyrirlesturinn, sem hefst kl. 12 í stofu L201 á Sólborg, kallar Magnús Sjaríalög múslíma: Forn laga- bálkur í nútímasamfélagi? Sjaríalögin liggja til grundvallar laga- kerfisins í nokkrum ríkjum í Asíu og Afr- íku. Á síðustu árum hefur róttækum hreyfingum íslamista og jíhadista vaxið fiskur um hrygg, en eitt af megin baráttu- málum slíkra hreyfinga er að koma á enn víðtækari útfærslu sjaría. Magnús Þorkell Bernharðsson er með doktorspróf í nútímasögu Mið-Austur- landa og kennir við Williams College í Bandaríkjunum. Magnús Þorkell ræðir um sjaríalög múslíma NJÁLGUR hefur fundist í börnum í Brekkuskóla, en aðeins er um örfá tilfelli að ræða, að sögn skólahjúkrunarfræð- ings. „Njálgur á það til að koma upp á leikskólum og við verðum vör við hann hér á nokkurra ára fresti, í yngstu bekkj- ardeildunum,“ sagði Katrín Friðriks- dóttir, hjúkrunarfræðingur í Brekku- skóla, í samtali við Morgunblaðið. Njálgar eru 1 cm langir ormar sem lifa í þörmunum. Katrín segir töluverðan tíma líða frá smiti þar til njálgurinn uppgötvast og eggin geti lifað lengi utan líkamans, t.d. í rúmfötum, mottum og ryki og allt að 2–3 vikum, t.d. í feldi dýra eins og hunda og katta. Hún segir hreinlæti skipta miklu máli ef njálgur finnist, börnunum verði að þvo mjög vel á hverjum morgni, og þegar heimilið er hreinsað megi ekki gleyma blýöntum og öðrum hlutum sem nagaðir eru eða handfjatlaðir. Og mikilvægt sé að láta skólahjúkrunarfræðing eða kennara vita strax ef njálgur finnst. Lús hefur einnig hreiðrað um sig í grunnskólunum í haust, en það telst vart orðið til tíðinda. Vart hefur orðið við njálg í Brekkuskóla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.