Morgunblaðið - 26.09.2006, Page 26

Morgunblaðið - 26.09.2006, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. S amkomulag um stofnun Suðurlandsvegar ehf. hefur verið undirritað af hálfu Sjóvár-Almennra og fjögurra sveitarfélaga ásamt Mjólkursamsölunni og sam- tökum sunnlenskra sveitarfélaga. Markmið félagsins er að stuðla að umræðu um flýtingu Suðurlands- vegar og benda á nýja kosti í því samhengi. Er hlutafé félagsins 10 milljónir króna. Sjóvá-Almennar tryggingar átti frumkvæðið að stofnun félagsins og á blaðamannafundi í gær, sem jafn- framt var stofnfundur félagsins, kom fram í máli Þórs Sigfússonar, forstjóra Sjóvár, að ástæða fyrir að- komu félagsins væri augljós. „Við höfum þurft að horfa upp á mjög al- varleg tjón á þessum vegi eins og fleiri stofnbrautum í kringum höf- uðborgarsvæðið og viljum að þetta verði tekið föstum tökum,“ sagði hann. „Við höfum gert margt í for- vörnum en teljum rétt sem nútíma- félag að taka næsta skref, sem er að bjóðast til að létta undir og flýta mikilvægum framkvæmdum í sam- göngumálum. Þær framkvæmdir geta auðvitað þýtt færri slys og tjón á munum og um leið verulega bót fyrir samkeppnisstöðu alls þessa svæðis.“ Frá árinu 1972 hafa orðið 52 banaslys á leiðinni milli Selfoss og Reykjavíkur. Samkvæmt gögnum frá Samtökum sunnlenskra sveitar- félaga er minnt á að nú standi yfir framkvæmdir við fjögurra akreina Reykjanesbraut og ákveðið hafi ver- ið að leggja Sundabraut og tvöfalda veginn að Hvalfjarðargöngum. Suð- urland sé í samkeppni um fólk og fyrirtæki við Suðurnes og V urland og því nauðsynlegt a jafnfætis í þeirri samkeppn nýjum fjögurra akreina Su vegi verði umferðin greiðar hnökralausari, umferðarör ist verulega, framkvæmdin miklum þjóðhagslegum ávi samkeppnisstaða Suðurlan 52 banaslys milli Selfoss og Reykjavíkur síðan 1972 kall Stofna félag um að tvöföldun Suðurlan Suðurlandsvegur ehf. Frá vinstri eru Þór Sigfússon, forstjóri S Árborgar, Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, og Aldís H Sjóvá-Almennar og sveitarfélög á Suður- landi vilja auka um- ferðaröryggi og auka samkeppnishæfni Suð- urlands með fjögurra akreina vegi til Selfoss. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is MIKILVÆGUSTU áhrifaþættir í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga eru mönnun, stjórnunaraðferðir hjúkrunardeildarstjóra og sam- skipti við sjúklinga og samstarfs- fólk, að sögn dr. Sigrúnar Gunn- arsdóttur hjúkrunarfræðings. Vísar hún þar til niðurstaðna í rannsókn sinni á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á Landspítala –háskólasjúkrahúsi (LSH). Rannsóknin náði til tímabilsins september 2002 til nóvember 2003 og var liður í doktorsverkefni henn- ar við London School of Hygiene & Tropical Medicine. Sigrún varði doktorsritgerð sína í nóvember 2005. Hún gerði grein fyrir helstu niðurstöðum rannsóknarinnar á opnum fundi í Háskóla Íslands í gær. Erindið bar yfirskriftina: Hafa stjórnendur áhrif á líðan starfs- manna á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi? Svar hennar við þessari spurn- ingu var einfalt: „Já, stjórnendur hafa áhrif á líðan starfsmanna á LSH. Einkum og sér í lagi deild- arstjórar.“ Sigrún dró heildarniðurstöðu rannsóknarinnar saman í eftirfar- andi setningu: „Með því að bæta starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga; einkum mönnun og samskipti og stjórnun, má gera þeim kleift að eiga uppbyggjandi og heilsueflandi samskipti við sjúklinga sína og sam- starfsmenn og þar með stuðla að bættu heilsufari almennings.“ Sigrún sagði að niðurstöður sín- ar staðfestu það sem fram hefði komið í sambærilegum erlendum rannsóknum. Rannsóknin væri því enn eitt lóðið á vogarskálarnar til þess að vinna frekar að því að bæta starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga enn frekar. Rannsókn Sigrúnar byggir á spurningalistakönnun meðal hjúkr- unarfræðinga og ljósmæðra á LSH og ennfremur á viðtölum við nokkra þátttakendur könnunar- innar. Hún upplýsti að spurningar hefðu verið sendar til 930 hjúkr- unarfræðinga og ljósmæðra og að svarhlutfallið hefði verið 75%. Sigrún sagði að þessir aðilar hefðu verið spurðir fjölmargra spurninga um starfsumhverfi sitt. Þeir voru m.a. spurðir út í stjórn- endur sína, til dæmis hvort þeir styddu starfsfólk sitt og væru góðir leiðtogar. Sigrún tók fram, í þessu sam- bandi, að á LSH væru tíu sérsvið, sem skiptust í hundrað dei LSH væru m.ö.o. tíu sviðss hundrað deildarstjórar. Sigrún fór nánar í helstu urstöður rannsóknarinnar m.a.: „Góð stjórnun á deild sterk marktæk áhrif á star ánægju.“ Góð stjórnin leid til minni kulnunar í starfi o gæði þjónustunnar. „Þá he mönnun sterk marktæk áh starfsánægjuna,“ sagði hú fremur og bætti við að það ekki á óvart. „Næg mönnu hendur við það hvort þú ve vinda af þreytu.“ Aukinhel sagði hún að gott samstarf hefði áhrif á gæði þjónustu Sigrún skilgreindi m.a. g stjórnun og sagði að traust verðugleiki væru þar lykil Sömuleiðis væri m.a. mikil stjórnendur væru nálægir, anir væru sameiginlegar, g hæfileikar starfsmanna væ eftirlit væri lágmarkað og stjórnendur stuðluðu að þv starfsmenn blómstruðu. Rannsókn Sigrúnar var samstarfi við rannsóknars Bretlandi og í Bandaríkjun Unnið var úr niðurstöðum unarinnar í samstarfi við f lagsvísindastofnun HÍ. Stjórnendur hafa áhrif á líðan starfsmanna Eftir Örnu Schram arna@mbl.is BOTNVÖRPUBANN OG VÍSINDI Umræður um skaðsemi botn-vörpuveiða fyrir lífríki sjávarfærast í aukana með hverju árinu sem líður. Æ fleiri komast á þá skoðun, að botnvörpuveiðar séu ekki forsvaranlegar, vegna þess að þær valdi svo miklum skemmdum á sjávarbotnin- um að þær eyðileggi kóralmyndanir og jarðmyndanir og þar með lífsskilyrði ýmissa botndýra og fiska. Röksemda- færslan er m.a. sú að botnvörpuveiðarn- ar séu ekki sjálfbærar; gjöful fiskimið séu smátt og smátt eyðilögð með veið- arfærunum og verði ónýt um langt ára- bil eða jafnvel um alla framtíð. Kröfum um alþjóðlegt bann við botn- vörpuveiðum hefur af þessum sökum aukizt fylgi. Fyrir nokkrum misserum kom fram áskorun 1.136 sjávarlíffræð- inga og 40 umhverfisverndarsamtaka til allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um að samþykkja tímabundið bann við botnvörpuveiðum á úthöfunum. Til- gangur slíks banns væri að skapa svig- rúm til að gera vísindarannsóknir á þeim svæðum, sem um er að ræða, til að ákvarða hver þeirra mega við botn- vörpuveiðum og hvar ástæða væri til að banna þær til frambúðar. Ríki, sem stundað hafa botnvörpu- veiðar á úthafinu, Ísland þar með talið, hafa sætt gagnrýni fyrir að leyfa veiðar með botnvörpu. Þannig gagnrýndu grænfriðungar harðlega botnvörpuveið- ar íslenzkra skipa á Flæmska hattinum við Kanada í opnu bréfi til Halldórs Ás- grímssonar, þáverandi forsætisráð- herra, fyrir rúmu ári. Fram kom hér í blaðinu síðastliðinn laugardag að sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna íhuguðu nú að leggja til bann við botnvörpuveiðum á úthafinu og að þeir nytu stuðnings Kofi Annan, fram- kvæmdastjóra samtakanna. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- ráðherra segir í samtali við Morgun- blaðið í gær að full ástæða sé til að taka þessar fregnir mjög alvarlega; þær end- urspegli mikla og vaxandi tilhneigingu margra þjóða til að koma á einhvers konar yfirþjóðlegri stjórnun á fiskveið- um um víða veröld. Það er rétt hjá ráðherranum, að gegn slíkum tilhneigingum ber að sporna. Af- staða Íslands hefur verið sú, að annars vegar eigi strandríkin að stjórna veiðum innan eigin efnahagslögsögu og hins vegar eigi svæðisbundnar fiskveiði- stjórnunarstofnanir á vegum strand- ríkja, sem hagsmuna eiga að gæta, að stjórna veiðum á úthafssvæðum. Og þá er að sjálfsögðu gengið út frá því að fylgt sé ráðgjöf vísindamanna um það hversu mikið af fiski sé óhætt að veiða og hvaða aðferðum eigi að beita við veið- arnar. En það er sömuleiðis rétt að hafa í huga að tillögur um bann við botnvörpu- veiðum koma ekki fram bara vegna þess að önnur ríki langi svo mikið til að hafa hnattræna stjórn á fiskveiðum. Þær koma fram vegna þess að víða um heim er stunduð gegndarlaus rányrkja á fiskimiðunum, ekki sízt á úthafinu, þar sem ekkert strandríki getur beitt valdi til að stöðva slíkt athæfi. Sjávarútvegsráðherra viðurkennir auðvitað þann veruleika og segir í blaðinu í gær: „Það getur vel verið að botnvörpuveiðar og veiðar með ýmsum öðrum veiðarfærum séu skaðlegar við tilteknar aðstæður og þá þarf að bregð- ast við því. Þannig höfum við gert það með t.d. víðtækum lokunum á veiði- svæðum hér við land.“ Þar á Einar K. Guðfinnsson m.a. við eigin ákvarðanir, sem teknar voru í góðri sátt við útgerð- ar- og skipstjórnarmenn, um að loka stórum svæðum úti fyrir Suðurlandi fyrir öllum veiðum nema uppsjávarveið- um í hringnót og flottroll til að vernda kóralbotn á þessum svæðum. Íslendingar verða auðvitað að sýna sömu ábyrgð gagnvart lífríki sjávar við úthafsveiðar eins og við veiðar í eigin lögsögu. Áhrif botnvörpuveiðanna í ís- lenzkri lögsögu eru raunar umdeild og sú skoðun verður útbreiddari hér innan- lands, að nota eigi vistvænni veiðarfæri í auknum mæli til að vernda sjávarbotn- inn. Einar K. Guðfinnsson bendir rétti- lega á að Íslendingar verði að vera virk- ir þátttakendur í umræðum á alþjóðleg- um vettvangi um nýtingu auðlindanna. Þá skiptir öllu máli að við getum sýnt fram á það, með vísindalegum rökum, að fiskveiðar okkar séu vistvænar og sjálf- bærar. Til þess þarf rannsóknir á áhrif- um botnvörpuveiðanna, bæði í íslenzkri lögsögu og á úthafsveiðisvæðum, þar sem Íslendingar stunda veiðar. Aðeins þannig er hægt að vinna gegn því að bann, sem er ætlað að stöðva rányrkju, komi líka niður á þeim sem vilja stunda ábyrgar fiskveiðar. VANDAMÁL BANDARÍKJAMANNA Tvennt hefur komið fram í fréttumsíðustu daga sem hlýtur að valda Bandaríkjastjórn áhyggjum. Í fyrsta lagi sú staðhæfing brezka blaðsins Fin- ancial Times fyrir nokkrum dögum að hinum umtöluðu leynilegu fangelsum Bandaríkjamanna víðs vegar um heim hafi verið lokað vegna þess að starfs- menn CIA hafi ekki verið tilbúnir að starfrækja þau. Og ástæðan sú að þeir hafi óttast að verða sjálfir dregnir fyrir lög og dóm fyrir lögbrot í rekstri fang- elsanna. Þessar fréttir setja ákvörðun Bush Bandaríkjaforseta um lokun fang- elsanna í annað ljós en áður. Hitt er ný skýrsla, sem ein af leyni- þjónustum Bandaríkjanna hefur tekið saman og birt hefur verið úr í dagblöð- um vestan hafs, þar sem rök eru færð að því að innrásin í Írak hafi aukið á þá ógn sem Vesturlöndum stafar af hryðju- verkamönnum. Þetta er líka óþægilegt fyrir stjórn Bush. Nú er það svo að auðvitað hefur Bandaríkjastjórn náð einhverjum ár- angri í baráttu sinni við hryðjuverka- menn. Það er t.d. augljóst að hún náði alla vega tímabundnum árangri í Afgan- istan þótt vaxandi efasemdir séu um stöðu mála þar. Með innrásinni í Írak breyttu Banda- ríkjamenn valdahlutföllum í Mið-Aust- urlöndum sér og Ísraelsmönnum í hag. Hættan er hins vegar sú að bæði í Afg- anistan og Írak hafi þessi árangur verið tímabundinn og að í báðum tilvikum standi Bandaríkjamenn nú höllum fæti, ekki sízt í Írak. Ef niðurstaðan verður sú að í báðum tilvikum hafi verið magnaðar upp nýjar kynslóðir hryðjuverkamanna í stað þess að kveða hreyfingar þeirra í kútinn er ver af stað farið en heima setið. Og þá styrkjast rökin fyrir því að það sé kannski orðið tímabært að Bandaríkja- menn hverfi til síns heima. Margt bendir til að þrátt fyrir allt hafi dregið úr stríðsátökum í heiminum eftir lok kalda stríðsins. Ef brottför Bandaríkjamanna af átakasvæðum gæti rekið smiðshöggið á þá þróun ættu þeir að íhuga þann kost alvarlega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.